Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 134. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Vísað úr MS eftir svindl 2. Rakkamítill fannst í höfði barns 3. Er þetta rétta stúlkan? 4. Egill í „algjörri afneitun“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Allsherjarkenningin: Leitin hefst nefnist myndlistarsýning Ólafar Rún- ar Benediktsdóttur sem opnuð verð- ur á morgun kl. 20 í Ekkisens, sýning- arrými í gömlu kjallarahúsnæði á Bergstaðastræti 25B. Í tilkynningu segir að Ólöf noti allsherjarkenning- una (e. Theory of everything) sem innblástur fyrir sýninguna. Á sýning- unni eru málverk, prentverk í formi púsluspils og lítið zine, þ.e. lítið tíma- rit, sem er ætlað til að örva hugarflug gesta. Listamaðurinn býður öllum þeim sem koma að setja sitt mark á sýninguna, hripa niður sínar eigin hugleiðingar, skoða það sem hefur safnast saman og púsla, eins og seg- ir í tilkynningu. Verk Ólafar tengjast hugleiðingum hennar um eðli raun- veruleikans og hún mun jafnframt bjóða áhorfendum að taka þátt í samtali um þeirra eigin upplifun á raunveruleikanum. Á sama tíma mun Fritz Hendrik IV sýna myndbandsverkið „Kompósi- sjón“ í Heilaga herberginu í Ekkisens. Allsherjarkenningin innblástur sýningar  Verk eftir Kristin G. Harðarson myndlistarmann verður afhjúpað á Gunnfríðarstöpli fyrir framan Lista- safn ASÍ við Freyjugötu 41 í dag kl. 12. Verkið er úr plexígleri og sam- settum ljósmyndum sem teknar eru á Vörðufelli og í næsta nágrenni þess en verkið er það fimmta í röð lista- verka sem sett verða á stöpulinn sem var tekinn í notkun í október 2013. Verk Kristins á stöpl- inum afhjúpað í dag Á föstudag Suðaustan og austan 13-18 m/s og rigning, einkum SA-til. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á NV-landi. Á laugardag Norðaustan 8-13 m/s og víða dálítil rigning eða skúr- ir, en hægari S-til og styttir upp þar um kvöldið. Hiti 5 til 14 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðaustan 8-13 og víða súld eða rigning, þurrt NA-lands. Hiti 6 til 14 stig á morgun, hlýjast NA-til. VEÐUR Það verða Juventus og Barcelona sem eigast við í úrslitaleiknum í Meistara- deild Evrópu í knatt- spyrnu á ólympíuleik- vanginum í Berlín í Þýskalandi hinn 6. júní. Ítalíumeistararnir gerðu sér lítið fyrir og slógu ríkjandi Evrópumeistara, Real Madrid, úr leik á Santiago Bernabeu- vellinum í Madrid í gærkvöld. »3 Juventus sló Real Madrid úr leik „Við erum vissulega taldir líklegra liðið á pappírunum en fyrir Vest- sjælland er þetta leikur lífsins,“ segir Rúrik Gíslason, leikmaður FC Köben- havn, en liðið mætir Vestsjælland í úrslitaleik dönsku bikarkeppn- innar í knattspyrnu á Parken í Kaup- mannahöfn dag. »4 Erum líklegra liðið á pappírunum Edda Garðarsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, fer yfir öll liðin í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu og metur möguleika þeirra í sumar en keppni í deild- inni hefst í dag. Edda segist ekki eiga von á að neitt lið stingi af í sumar en Stjarnan á Íslandsmeist- aratitil að verja. Breiðabliki er hins vegar spáð titlinum í ár. »2-3 Edda metur liðin í Pepsi-deild kvenna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Haukar hafa átt sigursælasta karla- liðið í handboltanum síðan árið 2000, níu sinnum fagnað Íslands- og deild- armeistaratitlinum á tímabilinu og bikarmeistaratitlinum fimm sinnum. Enginn hefur fagnað meira en Þor- geir Haraldsson, formaður hand- knattleiksdeildarinnar, en hann hef- ur verið meira og minna í stjórn deildarinnar síðan 1973 og lengst af formaður eða frá 1981. „Þetta er alltaf jafngaman,“ segir Þorgeir um titlana. Bætir við að hann hafi verið sérlega sætur að þessu sinni vegna þess að uppistaðan sé ungir strákar sem hafi að miklu leyti alist upp hjá félaginu. „Þeir hafa spil- að mikið og uppskeran er góð.“ Formaðurinn segir að liður í upp- byggingunni sé að búa til góða leik- menn sem fari síðan gjarnan í at- vinnumennsku erlendis. „Við höfum verið svo gæfusamir að leikmenn sem hafa farið frá okkur hafa komið aftur til baka og þannig hefur okkur gengið vel að halda okkar fólki hjá okkur.“ Lífsstíll Þorgeir var valinn leikmaður árs- ins hjá Haukum 1978. Þá var hann í flugnámi og síðan hann byrjaði að fljúga hefur frítíminn að mestu farið í starf fyrir Hauka. „Þetta er lífsstíll,“ segir Þorgeir, sem hefur verið flug- stjóri hjá Icelandair síðan 1997 og var yfirflugstjóri undanfarin 10 ár eða þar til hann hætti því starfi í lið- inni viku. „Nú er ég bara venjulegur flugstjóri og þjálfunarflug- stjóri og hef meiri tíma fyrir Haukana.“ Þótt gengi Haukanna hafi verið gott á nýliðnum árum hefur það ekki ætíð verið svo. Þeir urðu fyrst Ís- landsmeistarar 1943 og svo næst 57 árum síðar. „Ár- ið 2000 var stemningin svipuð og núna,“ rifjar Þorgeir upp. Þá hafi verið þjálfaraskipti framundan eins og nú, liðinu ekki gengið vel um vet- urinn, en markmiðin skýr. Þorgeir segir að uppbyggingin hafi byggst á fjölskyldugildum. Kynslóð leikmanna frá áttunda áratugnum hafi byrjað endurreisn deildarinnar fyrir um 25 árum, meðal annars feng- ið Petr Baumruk í liðið, og sé enn að. „Við vorum í baslinu 1975 til 1980, tókum þetta að okkur og höfum hald- ið vel hópinn síðan,“ bendir Þorgeir á. „Þetta er mjög sterkur kjarni. Þótt Hafnarfjörður sé ekki langt frá stór- borginni erum við passlega sveitó og gerum þetta út á fjölskylduna og grasrótina. Það hefur verið okkar stíll og við viljum halda honum.“ Fjölskyldan og grasrótin  Þorgeir fyrst í stjórn 1973 og enn formaður Hauka Morgunblaðið/Kristinn Leiðtogi Þorgeir Haraldsson hefur verið ötull liðsmaður Hauka í áratugi og uppskorið vel. Þorgeir Haraldsson segir að eðlilega hafi margt skemmtilegt gerst í kringum handboltann í Haukum undanfarna áratugi, en eitt atvik komi alltaf upp í hugann þegar rætt sé um fléttur sem hafi skilað árangri. „Í úrslitarimmunni við KA 2001 vorum við komnir upp að vegg en náðum að jafna einvígið 2:2 og gátum farið norður og „stolið“ titlinum,“ rifjar hann upp. „Petr Baumruk var hættur en við Viggó Sigurðsson þjálfari héldum fund með honum heima hjá mér og drógum hann á flot fyrir síðasta leikinn. Hann var fótalaus en ógnandi, þeir voru skíthræddir við karlinn og plottið gekk upp.“ Í meistaraliðinu núna er Adam Haukur Baumruk, sonur Petrs Baumruks. Baumruk gerði gæfumuninn FLÉTTUR INNAN SEM UTAN VALLAR Petr Baumruk og Viggó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.