Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Glæsileg armbandsúr
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
29.200
32.500 36.990 27.300 33.800
24.700 39.900 31.500
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er að mörgu að hyggja þegar
samningar eru gerðir. Vertu því á verði og
láttu gott tækifæri alls ekki renna þér úr
greipum.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef einhver annar myndi lifa þennan
dag í lífi þínu yrðu viðbrögðin við því sem
gerist seinni partinn mjög sterk. Enginn ann-
ar getur, mun eða ætti að segja þér fyrir
verkum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að sækja innblástur í það
sem þú hefur fyrir stafni. Hvað er eiginlega
að? Er fólk að skeyta skapi sínu á þér eða
hefur þú gert eitthvað til að verðskulda
þessi viðbrögð?
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þungri byrði er af þér létt þá er
niðurstaða liggur fyrir í ákveðnu máli. Búðu
því svo um hnútana að allir geti vel við unað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að tala svo skýrt og skorinort
að engin hætta sé á að fólk misskilji þig. En
ástæðulaust er að prófa þau á hverjum degi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það getur reynst erfitt fyrir þig að
klára ákveðið verkefni, þar sem samstarfs-
menn þínir eru þér andsnúnir. Reyndu að
lenda ekki í útistöðum við aðra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú ert jákvæður og horfir fram á við
reynist þér auðveldara að gera þær breyt-
ingar sem þurfa að verða í lífi þínu. Vendu
þig á góðverk við skyldmenni þín.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það má vera að þú hafir ekki
svo mikið milli handanna nú um stundir.
Reyndu að semja við alla sem þú hittir.
Láttu öfund annarra ekki fara í taugarnar á
þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hlustaðu á ráð frá þér eldri og
reyndari manneskju í dag. Beittu skynsem-
inni en gefðu sköpunargáfunni sitt svigrúm
líka.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú tiplar ekkert á tánum í kring-
um það sem sumir telja viðkvæm málefni
eins og fjármál. Breyttu þessu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Eitthvað brjálæðislega fyndið
mun ýta þér upp úr hjólfarinu sem þú ert of-
an í, líka því sem snýr að fjármálum. Taktu
þér tak og hugsaðu málið af yfirvegun.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Varastu að vera of kröfuharður við
fjölskyldumeðlim af eldri kynslóðinni. Vertu
óhrædd/ur við að sýna öðrum feimni þína
og viðkvæmni.
Sigurlín Hermannsdóttir erkvíðafull á Leirnum: „Það eru
ekki bara heiðlóurnar og mann-
fólkið sem kuldinn hefur herjað á,
vorlaukarnir hafa líka verið ræfils-
legir. Þeir reyna samt hvað þeir
geta.
Fölblár og krókloppinn krókus
nær kalinn, en hókus-pókus:
í rosa og frosti
feiminn hann brosti
þótt veröldin væri úr fókus.“
Þetta kveikti í vísnasmiðum:
Davíð Hjálmar Haraldsson sagði:
„Miklar sögur gengu af lóunni í
borginni, hún var sögð illileg og
árásargjörn.
Kælir enn kuldi og hjarn,
á krókusi léttist þó brúnin.
Ætl’ann sé árásargjarn?
Eltir hann fólkið um túnin?“
Ólafur Stefánsson er garðyrkju-
bóndi:
Frost og vindur fer um hlað,
finnst ei vorsins kraftur.
Túlipanar standa í stað,
og stefna í jörðu aftur.
Og Sigurlín aftur:
Atferli lífvera rist er allt rúnum
og ráðningu fyrir mér velti.
séð hef ég krókusa kíkja upp úr túnum
– kannski þeir lóurnar elti.
Og Ólafur:
Óþarfi er æmt og væl,
áfram greikkum sporið,
leit ég áðan lóuþræl,
labba út í vorið.
Á þriðjudaginn birtist hér í
Vísnahorni þessi vísa eftir Hall-
mund Kristinsson:
Flest má nú furðu gegna;
nei, fjandinn hættu nú alveg!
Ríms og vísunnar vegna
verð ég að fara Kjalveg!
Skúli Pálsson brást skjótt við á
Boðnarmiði og svaraði:
„Einu sinni var rætt um Kjalveg
hér í hópnum og þessu þá kastað
fram (sönn saga):
Skröltandi bílnum í skalf ég,
skrjóðurinn hristist og alveg
á síðasta séns
sentist minn Bens
klungróttan torfæran Kjalveg.“
Björn Ingólfsson hafði þessa
sögu að segja:
„Þegar við komum á Kjalveg
af kulda og langsvelti skalf eg,“
sagði Þórhalla og hló,
„ég hafði það þó
en Eyvindur króknaði alveg.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af krókus, túlipönum
og Kjalvegi
Í klípu
„VIÐ ÞURFUM AÐ HREINSA LOFTIÐ. ÉG
MEINA, BARA Á MILLI OKKAR TVEGGJA,
AÐ SJÁLFSÖGÐU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„OG ÞÚ SPYRÐ HVERS VEGNA ÉG
VILJI ALDREI FARA Á ÍTALSKA
VEITINGASTAÐI!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... mikilvægasta
skuldbindingin sem þú
munt takast á hendur.
JÓLASVEINNINN
KEMUR BRÁÐUM
MEÐ GJAFIR FYRIR ALLA
SEM HAFA VERIÐ GÓÐIR
OG
MIG!
OG
ÞIG
GÓÐUR
EIGINMAÐUR ER
VIRÐI ÞYNGDAR
SINNAR Í GULLI!
OG GÓÐUR
VÍKINGA-
EIGINMAÐUR
KEMUR MEÐ
GULLIÐ
HEIM!!
Víkverji náði loksins að setja marksitt á vinnustaðafótboltann um
daginn. Hann vann boltann á eigin
vallarhelmingi, sendi hann á liðs-
félaga og geystist fram í sóknina.
Áður en Víkverji vissi af söng bolt-
inn í neti andstæðinganna eftir netta
innanfótarspyrnu af markteig. Fyrir
gamla knattspyrnujálka má segja að
það hafi verið smá Gerd Müller-
fílingur yfir afgreiðslunni hjá Vík-
verja.
x x x
En þótt markið hafi verið snoturtvoru það frekar fagnaðarlætin
sem vöktu athygli liðsfélaganna, þar
sem Víkverji hreinlega réði sér vart
af kæti. Víkverji er nefnilega vanari
því að „setja“ boltann í sitt eigið
mark, enda hættir hann sér ekki oft
yfir miðjuna í fótbolta. Víkverji veit
sem er, að hans staður á vellinum er
í vörninni, enda hefur hann alltaf
verið frekar góður í því að vera fyrir
öðrum.
x x x
Víkverji rifjaði upp við þetta tæki-færi önnur íþróttaafrek sín, en
þar má til dæmis nefna það afrek að
honum tókst á öllum menntaskóla-
árum sínum einungis að skora tvö
stig í körfubolta á fjögurra ára tíma-
bili. Víkverji kennir raunar aðstæð-
um í íþróttahúsi MR um, en stórir
bitar í loftinu gerðu það að verkum
að helsta leynivopn Víkverja í körf-
unni, þriggja stiga skotið, fór oftar
en ekki í loftið en ekki í körfuna.
Sömu bitar gerðu það að verkum að
blakferill Víkverja í leikfimi varð
frekar endasleppur, þar sem bitarnir
hirtu uppgjafirnar hans, allar með
tölu. Eða það er allavegana sú afsök-
un sem Víkverji heldur sig við, frek-
ar en almennt getuleysi í íþróttinni.
x x x
Víkverji gæti raunar rifjað uppfleiri glæst afrek af allt of
skömmum íþróttaferli, en þegar
hann fann verðlaunagripina sína um
daginn í geymslunni vakti það at-
hygli hans hvað Víkverji átti mikið af
gullverðlaunagripum fyrir knatt-
spyrnuiðkun, sem þó tengdust fót-
boltanum ekki neitt. Þessir ratleikir
unnu sig ekki sjálfir. víkverji@mbl.is
Víkverji
En helgið Krist sem Drottin í hjörtum
ykkar. Verið ætíð reiðubúin að svara
hverjum manni sem krefst raka fyrir
voninni sem þið eigið.
(Fyrra Pétursbréf 3:15)