Morgunblaðið - 14.05.2015, Side 18

Morgunblaðið - 14.05.2015, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fjölmiðlar ogfræðimenn,sem einatt hafa meiri áhuga á stjórnmálalegri baráttu en fræð- unum og frétt- unum, tala gjarnan niður til andstæðinga sinna og þjóð- arinnar, þótt það síðara sé ekki endilega meiningin. Er þá látið eins og stjórnsýsla og útfærsla lýðræðis sé aumari hér en ann- ars staðar. Gjarnan er sá góm- sæti ávöxtur banani dreginn inn í einkunnagjöfina. Sjaldnast á oflæti af þessu tagi nokkurn rétt á sér og stundum er það runnið úr leik- húsi fáránleikans eins og þeg- ar Gylfi Magnússon híaði á þjóðina sem myndi umbreytast í Kúbu norðursins kyngdi hún ekki Icesave. Nær hefði verið spá um að grískur harmleikur tæki varanlega yfir stórasvið þjóðarinnar léti hún hræða sig til uppgjafar. En auðvitað er það svo að finna má einstaka þætti sem fara mættu betur hér og benda á fyrirmyndir hjá öðrum þjóð- um. Horfa mætti til löggjafar- stofnana lýðræðisríkja, þótt ekki standi þær framarAlþingi Íslendinga í öllum efnum. Þó er óhætt að fullyrða að óhugs- andi væri að reynt væri að koma í veg fyrir að mál studd af meirihluta þingmanna fengju umræðu í samræmi við þingsköp og að vera borin und- ir atkvæði að slíkum umræðum loknum. Slíkt er þó daglegt brauð á Alþingi núna. Núverandi ríkisstjórn og forysta þingsins geta að veru- legu leyti kennt sjálfum sér um þetta. Mál, sem bar að ákveða á fyrstu dögum nýrrar ríkis- stjórnar með ein- faldri ályktun á þingi, er enn óafgreitt. Ríkisstjórnin dró úr hömlu að leggja það fyrir þing- ið. Þegar hún kom sér loks til þess var henni ekki tryggður friður til að ræða málið og lét það yfir sig ganga. Hún marg- boðaði nýja þingsályktunar- tillögu næsta þing á eftir og heyktist á því. Engin skýring hefur fundist önnur á því en að ríkisstjórnin hafi kafnað í eigin kjarkleysi. Enduðu þessir ólánlegu til- burðir svo með því að talsmenn ESB í íslenska utanríkisráðu- neytinu voru látnir semja fyrir ríkisstjórnina óframbærilegt þokukennt bréf til raunveru- legra húsbændanna í Brussel. Fullyrt er að þetta bréf hafi verið lagt fyrir á fundi ríkis- stjórnar en nánast er óhugs- andi að það hafi verið lesið þar upphátt. Þá hefði það aldrei verið sent. Stjórnendur ESB hafa síðan hent gaman að þessu bréfi og sendandanum og ekkert gert með hvorugt. Nú stendur yfir dans á þinginu út af verkefnastjórn um rammaáætlun og Skrokk- ölduvirkjun og bannað er að ræða það mál. Kannski reynir þingmeirihlutinn að stíga öld- una og ganga í skrokk á minni- hlutanum og hótar að senda þingmönnum minnihlutans bréf sem þeir botni ekki í láti þeir ekki segjast. Fordæmið hefur ver- ið gefið og ástæðu- laust fyrir þingið að fara að þingsköpum} Upplitið fyrirsjáanlegt John Kerry, ut-anríkisráð- herra Bandaríkj- anna, fundaði með Vladimír Pútín Rússlandsforseta á þriðjudaginn var, og voru við- ræður þeirra að sögn „hrein- skiptnar“. Þetta er fyrsti fund- urinn á milli Kerrys og æðstu ráðamanna Rússlands í hér- umbil tvö ár, eða frá því að deil- an um Krímskaga kom upp. Ljóst var að ekki myndi finnast lausn á deilumálum ríkjanna á fundinum, en báðir aðilar létu vel af viðræðunum og skoð- anaskiptunum. Í sjálfu sér er það jákvætt að Bandaríkin og Rússland auki samskipti sín á efstu stigum í ljósi þess bágborna ástands sem ríkt hefur í alþjóðamálum upp á síðkastið. Það er hins vegar álitamál hvort þau sam- skipti muni duga til þess að koma á einhverri þíðu á milli ríkjanna. Fyrir það fyrsta er ljóst að þó að vopnahléið í Úkraínu frá því í febrúar hafi dugað til þess að koma á nokkurs konar ró fer því fjarri að stríðsátökum þar sé lokið og ljóst er að skilmálum þess hefur ekki verið fylgt. Einn tilgangur Kerrys með fundinum var að reyna að fá Pútín til þess að beita aðskiln- aðarsinna meiri þrýstingi til þess að standa við sinn hluta vopnahlésins, en að sama skapi er ekki ljóst hvers vegna Pútín ætti gera það ótilneyddur, þeg- ar sýnt þykir að áætlun hans um að grafa undan stöðugleik- anum í Úkraínu hefur gengið upp í öllum meginatriðum. Á hinn bóginn má líta svo á, að sá þrýstingur sem alþjóða- samfélagið og Vesturlönd hafa beitt Rússa hefur ekki dugað til þess að knýja fram viðunandi lausn í Úkraínudeilunni. Ef til vill er kominn tími til að kanna hvort gulrótin geti virkað þar sem prikið hefur ekki staðið sig. Fundur Kerrys og Pútíns gekk vel að sögn viðstaddra} Gulrætur og prik E ins og það er geggjað að stara upp í næturhimin frá jörðinni grunar mig stundum að það sé engu síðri upplifun að vera kankvís geim- vera með öflugan sjónauka og stara úr fjarska á okkar eigin plánetu á nætur- þeli. Hugsaðu þér allar óteljandi ryksugurnar sem er stungið í samband á hverju einasta augnabliki, allan sólarhringinn, ísskápana sem suða á eldhúsgólfum um víða veröld, sameinaðir í einsemd sinni, bílana sem spæna upp malbik í ólíkum heimsálfum. Hugsaðu þér allt fólkið sem einmitt núna bíður þess að vatn hitni í krana, dregur tösku á eftir sér inn í breiðþotu, kveikir dauft baðherbergisljós og tyllir sér á kalda kló- settsetu í nóttinni. Ég hef talsverðan áhuga á hugsunarhætti fólks sem hefur efasemdir um það að athæfi manna hafi nokkur áhrif á þennan örláta hnött sem í hljóði hefur fætt okkur og klætt í rás árþúsunda án þess að fara fram á nokk- uð í staðinn; að allir þessir hlutir og tæki sem við sönkum að okkur, að allar þessar eiturgufur og gerviefni sem við spú- um út í andrúmsloftið, að öll þessi orka sem við sólundum til þess að svala fýsnum okkar, marki engin spor í umhverfið. Ályktunin er áleitin, ekki aðeins vegna þess að hún gengur í berhögg við hugmyndir 97% þeirra vísindamanna sem fást við rannsóknir á hlýnun jarðar, heldur af þeim sökum að hún felur í sér það galna viðhorf að jörðin sé einfaldlega hönnuð af skapara sínum til þess að taka við endalausu magni mannlegrar mengunar, sorps og úrgangs. Að í hönn- un jarðarinnar hafi einfaldlega frá upphafi verið gert ráð fyrir öllum þessum ryksugum, breiðþotum, ís- skápum, pokum, jepplingum … þessum 6,4 milljón tonnum af plasti sem við sturtum í hafið á ári hverju – svakalega þægileg hugsun, ekki satt? Félagsfræðirannsóknir á afstöðu fólks til loftslagsbreytinga af mannavöldum eru ekki síður athyglisverðar. Naomi Klein fjallar um þær í nýjustu bók sinni, This Changes Every- thing. Segjum sem svo að þér líki ekki þessi pistill, hafnir því að uppátæki manna hafi nokk- ur áhrif á virkni plánetunnar, og finnist þessi skrif vera hippalegar og holar klisjur síðhærðs manns í predikarastellingum í dagblaði, eða hafir að minnsta kosti efasemdir um þetta allt saman og hafir jafnframt af einhverjum sökum ákveðið að leyfa ekki náttúrunni að njóta vaf- ans. Sé þetta niðurstaða þín benda rannsóknir á heimsvísu til þess að þú sért hvítur karlmaður með laun yfir meðallagi. Þú ert einnig líkleg/ur til að aðhyllast einstaklingshyggju og vera þeirrar sannfæringar að fólk fái meira og minna það sem það á skilið. Áhugavert. Hvernig skyldi standa á þessu? Svarið er eflaust að okkar eina úrræði gagnvart þessum djúpstæða vanda er að umbylta heimsmynd okkar … heimsmynd sem einmitt vill svo til að hentar hvítum ein- staklingshyggjumönnum með laun yfir meðallagi alveg sér- staklega vel. Við höfum komið hryllilega fram við plánetuna og lífið sem á henni þrífst og ef við höldum áfram gegndar- lausum yfirgangi okkar, lifum áfram skeytingarlaus í sælu hins óbreytta ástands, er aldrei að vita nema að við fáum einmitt öll á endanum það sem við eigum skilið. haa@mbl.is Halldór Armand Pistill Á dómsdegi suða ryksugurnar enn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sveitarfélög og forsvarsmenní öldrunarþjónustu bíða eft-ir framkvæmdaáætlun umuppbyggingu hjúkrunar- heimila. Þörfin er brýn því hjúkr- unarrýmum hefur lítið fjölgað á síð- ustu árum og framkvæmdir að hluta verið tengdar breytingum á eldri hjúkrunarheimilum. Á ársfundi Landspítalans í síðasta mánuði gaf Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra til kynna að uppbygging væri á næsta leiti. Ráðherra sagði að þjónusta við aldraða, sem þyrftu umönnun og hjúkrun, væri mikilvægur hluti af gangverki heilbrigðiskerfisins og þar væri mikið verk að vinna. Í gróf- um dráttum mætti gera ráð fyrir að á næstu 5-6 árum þyrfti að bæta við um 500 nýjum hjúkrunarrýmum, þorra þeirra á höfuðborgarsvæðinu. „Stofnkostnaður 500 nýrra hjúkrunarrýma er um 12-15 millj- arðar króna. Miðað við hefðbundna kostnaðarskiptingu bera sveitar- félögin 15% en ríkissjóður og Fram- kvæmdasjóður aldraðra 85%. Árleg- ur rekstrarkostnaður 500 hjúkrun- arrýma er um 4,8 milljarðar króna. Þetta er hlutur sem við verðum að takast á við. Ég hef því látið vinna í ráðuneytinu drög að framkvæmda- áætlun um uppbyggingu hjúkrunar- heimila á næstu árum sem ég vonast til að geta kynnt um mitt þetta ár,“ sagði Kristján Þór. Beðið eftir grænu ljósi Hann rakti að öldruðum fjölg- aði ört og yrðu æ hærra hlutfall af þjóðinni, sem gerði auknar kröfur til heilbrigðiskerfisins og öldrunar- þjónustu. „Núna, árið 2015, telja þeir sem eru 67 ára og eldri um 38.000 manns. Árið 2020 verða þeir um 45.300 sem er tæplega 19% fjölgun á fimm árum. Á sama tíma- bili fjölgar landsmönnum sem yngri eru um tæp 4%. Tölurnar tala sínu máli – hlutfall aldraðra í þjóðfélag- inu er að hækka – og við verðum að takast á við staðreyndirnar sem að baki liggja,“ sagði ráðherra. Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna og varafor- maður Samtaka fyrirtækja í velferð- arþjónustu, segir að ýmsir bíði eftir grænu ljósi stjórnvalda svo þeir geti hafist handa. Hann segir að á árabilinu frá 2011 til 2016 fjölgi hjúkrunarrýmum nálægt 100, en fjölgunin hefði þurft að vera 2-300. Árin 2017-19 séu m.a. áform um að taka í notkun hjúkrunarrými á Seltjarnarnesi, í Hafnarfirði og á vegum Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi og við Boðaþing í Kópa- vogi. Við Sléttuveg standi til að byggja hjúkrunarheimili og þjón- ustumiðstöð, en verkefninu hafi ver- ið slegið á frest í október 2013. Borgarráð Reykjavíkur hafi síðan samþykkt að þjónustumiðstöðin myndi einnig bíða þannig að bygg- ingarnar risu samtímis. Pétur segir að óneitanlega séu menn bjartsýnir eftir yfirlýsingu ráðherra á ársfundi Landspítalans. Fjölgar sem þurfa þjónustu Pétur segir óhjákvæmilegt að ákveðið hlutfall af aldurshópum yfir sjötugt þurfi mikla þjónustu. Með fjölgun aldraðra fjölgi þeim jafn- framt sem þurfa þjónustu og því þurfi að fjölga úrræðum. Gróflega áætlað fjölgi öldruðum um 30% á hverjum áratug næstu áratugina. Hjúkrunarrýmum hafi lítið fjölgað síðasta áratug og til að halda í horf- inu sé kominn tími til að bretta upp ermar. Jafnframt þurfi að móta stefnu til framtíðar í þessum mála- flokki. „Það er áhyggjuefni að ný hjúkrunarrými hafa látið standa á sér síðustu árin, “ segir Pétur. „Landspítalinn hefur réttilega bent á að það er miklu dýrara fyrir sam- félagið að fólk sé fast inni á Land- spítala en að það dvelji á hjúkrunar- heimili. Auk þess sem það er mun manneskjulegra að geta dvalið á heimili en á sjúkrahúsi.“ Meðan þetta ójafnvægi ríki verði aldraðir sífellt stærri hluti þjónustuþega heilbrigðisstofnana. Átak með áætlun um hjúkrunarheimili Morgunblaðið/Kristinn Hrafnista Það var ástæða til að taka nokkur dansspor á öskudeginum í vetur. Stjórnendur heilbrigðisstofn- ana hafa vaxandi áhyggjur af nýliðun í hópi heilbrigðisstétta. Pétur segir að á næstu þremur árum komist 20% hjúkrunar- fræðinga á eftirlaun og meðal- aldur sjúkraliða hækki hratt. Atvinnulífið keppi um unga fólkið og efla þurfi ímynd heil- brigðisstétta í þeirri sam- keppni. Þá spyr hann hvort tímabært sé orðið að styrkja gömlu fjölskyldutengslin og að ættingjar og vinir verði virkir þátttakendur í daglegu starfi hjúkrunarheimila. Áhyggjur af nýliðun EFLA ÞARF ÍMYNDINA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.