Morgunblaðið - 14.05.2015, Side 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
OPTICAL STUDIO – FRÍHÖFN
Fagmennska
fyrst
og fremst
Þar sem
úrvalið
er af
umgjörðum
og
sólgleraugum
www.opticalstudio.is
www.facebook.com/OpticalStudio
Módel: Andrea Stefánsdóttir
Sólgleraugu: Chrome Hearts
Frá vordögum 2010
hefur undirritaður, með
kollegum og fagmönn-
um, fylgst með smíði og
frágangi Hörpu og fest
á myndir. Ýmislegt
miður fagurt sést þar úr
stóru myndasafni. Hér
á eftir stikla ég á stóru
um gallana.
Ryðmyndanir: Ryð-
myndir frá byrjun: Af
fyrri „stuðlavegg“ sem
var rifinn vegna hættulegra galla og
sendur sem brotajárn til Spánar (við
skattborgarar „fengum“ að borga í
honum). Nýr var svo reistur en þar
mátti enn sjá ryð, sem síðan var mál-
að yfir. Sama mátti sjá í norð-
urveggjum. Ryðdraugurinn hefur aft-
ur sést skjóta upp kollinum og er þá
yfirmálaður. Greinileg hætta er á að
hann lúri þarna enn og magnist síðar.
Málmsuða, málmsmíði og samteng-
ingar: Sjá má ófögur dæmi um þetta.
Víða sjást klúðurslegar hjúpsamteng-
ingar og „reddingar“, t.d. með litlum
málmplötuskeytingum. Stálfletir eru
víða ósléttir. Benda má á álit málm-
tæknimanna í grein í tímaritinu VM
(grein í okt. 2011): „Hrákasmíði í
Hörpu“.
Sílíkonfúgur: Þýzkur verktaki
benti undirrituðum á að víða í fúgum
væru hnökrar, s.s. misfellur og þær
væru víða misbreiðar. Á kafla á norð-
urhlið sást að fúguefnið var horfið. Í
hve mörg ár skyldi hjúpurinn á þess-
um veðurbarða stað endast?
Sjónsteypa inni og úti: Sjónsteypan
er víða svartflekkótt. Hún er mis-
brýnd, skellótt og æðótt. Sama er á
austurhlið og sjávarvegg og er steyp-
an þar víða áberandi ótútleg.
Gólf og stigar: Sjá
má flísar á gólfyfirborði
misjafnar í hæð og fúg-
ur á milli þeirra mis-
breiðar. Eins vantar
flísalögn út í horn. Gólf-
in uppi eru gráflekkótt
og rákótt. Líkust
óhreinum bílskúrs-
gólfum. Sama er að
segja um stigaþrep.
Þrepnefin eru heldur
ekki litarmerkt fyrir
sjóndapra.
Aðalstigi (neyð-
arstigi): Langur brattur stiginn er
skáskorinn og í einu hlaupi þannig að
t.d. eldra fólk og gangskertir o.fl. eru
óöruggir. Skáinn beinir fólki út að
handriði. Við kollegar teljum að milli-
pallur eigi að vera í öryggisskyni skv.
reglum um stiga í leik- og tónlistar-
húsum: Sjá þá Neufert/Bauentwurfs-
lehre alþjóðlega hönnunar- og reglu-
verksbók arkitekta. Þar segir:
hámark 18 þrep og svo sé pallur.
Brýn ástæða er fyrir palli því að stig-
inn langi er notaður sem neyðarstigi í
vá. Hrasi maður í neyðarrýmingu
gæti það valdið stórhættulegri skriðu
fallandi fólks og því er pallur nauð-
syn. Minna má á að tvisvar kom upp
eldur í Eldborgarsal á smíðatím-
anum.
Handrið: Óhreinindi má sjá á milli
samsettra handriðsglerja. Gleymdust
milliþrif? Málmsuður eru víða óboð-
legar. Handriðin uppi á svölum í Eld-
borg eru hættulega lág og eru aðeins
71 cm. 30 cm eru frá brún sætis að
handriði sem er hættulega lítið. Stór
gestur sem fengi aðsvif eða misstigi
sig gæti hæglega fallið fram yfir
handriðið. Handlistar eru aðeins stál-
listar og án gripvænna viðarhand-
lista.
Hjúprúður: Frá vígslu hefur mátt
sjá rykklepraðar, rákóttar og mattar
rúður.
Hjúpviðgerðir: Af og til má sjá við-
haldsmenn við fúgur og hjúprúður í
körfum bómukranabíla og eins við
þakkanta og þök.
Stétt: Hellusteinar í stétt við mal-
bikstorgið eru ekki fasaðir. Miðað við
þá tegund má hæðarmismunur vera
að hámarki 2 mm eftir niðurlögn.
Hann hefur þó mælst allt að 5 mm.
Gestir hafa dottið og vitað er um slys.
Kvartanir Hörpugesta: a) Mörg
dæmi eru um að fötluðu fólki finnist
því vera mismunað sem annars flokks
gestum varðandi aðstöðu og aðgengi í
Hörpu. Þetta er áberandi með sérdyr
fatlaða fólksins til hliðar og merktar
sem flóttadyr fyrir aðra gesti. Hallinn
í Eldborgarsal er mjög óþægilegur
fyrir hjólastólanotendur. Salernum
er ábótavant m.t.t. aðgengis. Fatlað
fólk á að geta farið og verið sem víð-
ast. b) Kvartað er yfir óvirðulegum,
óaðlaðandi og ómerktum aðal-
inngangi með nálæga áberandi túr-
istadótabúð á fv. lokuðum flóttaleið-
um. Það vantar vindfang þarna. c)
Biðraðir eru að of litlum og fáum lyft-
um. Eins eru biðraðir að of fáum sal-
ernum. d) Stólar Eldborgar eru
þröngir og harðir miðað við breiða og
þægilega stóla Þjóðleikhúss og Há-
skólabíós. e) Bagalegur galli blasir
við í tónleikahléum. Þrátt fyrir yf-
irdrifið stór hliðar- og gangarými
nær fólk ekki að safnast saman og
hittast eins og t.d. í anddyri Há-
skólabíós. Við Eldborg er oft mikil
þvaga og allir troðast eftir mis-
breiðum rýmum milli salar og gler-
hjúps, sem teppist þegar þrengst er.
Úttektir: Enginn kannast við út-
tektir eða ábyrgðir á Hörpu t.d. á
hjúp eða aðgengi fatlaðs fólks. Að-
spurt benti byggingarfulltrúaem-
bættið á tvær verkfræðistofur, sem
svo ekkert könnuðust við neinar út-
tektir. Ný Mannvirkjastofnun segir
aðspurð: „Samkvæmt lögum hefur
Mannvirkjastofnun ekki hlutverki að
gegna varðandi úttektir sem þessar.
Ábyrgð á úttektum bera annars veg-
ar hönnuðir og framkvæmdaaðili og
hins vegar byggingarfulltrúi.
Nb: Kínastálið var málað en ekki
sinkhúðað. Framkvæmdaasi var mik-
ill vegna fastsettrar vígslu í maí 2011.
Leiða má líkur að því að þetta dragi
dilk á eftir sér sem ofurþung við-
haldsbyrði fyrir skattborgara lands-
ins. Óveðursóþol Hörpu: Loks má
nefna upprifnar klæðningar og þak-
kanta og lekaflóð sem þögn var um í
fjölmiðlum (t.d. í óveðrum: 2/11/12-30/
11/14 og 16/12/14).
Af fjölda galla í Hörpu
Eftir Örnólf Hall
» Stór gestur sem
fengi aðsvif eða mis-
stigi sig gæti hæglega
fallið fram yfir hand-
riðið.
Örnólfur Hall
Höfundur er arkitekt.
Frágangur Dæmi um meira ryð í kverkum. Nú yfirmálað.Ryð Nýi stuðlaveggurinn var einnig
ryðgaður, búið er að mála yfir það.