Morgunblaðið - 14.05.2015, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er mjög ánægð með þetta
verk,“ segir Hanna Styrmisdóttir,
listrænn stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík, um nýtt verk sem Guer-
rilla Girls unnu að beiðni hátíðar-
innar og afhjúpað var í gær, en
verkið er staðsett á austurhlið Toll-
hússins.
„Verkið samanstendur af spurn-
ingum á ensku og er sett upp eins
og krossapróf,“ segir Hanna og
minnir á að Guerrilla Girls kalli sig
„samvisku listheimsins“ og beiti slá-
andi tölfræði og beittum húmor til
að afhjúpa kerfisbundna mismunun
og spillingu í jafnt listum og pólitík.
„Við vinnslu verksins leituðum við
að tölfræðiupplýsingum sem þær
þurftu á að halda,“ segir Hanna og
vísar þar til tölfræðiupplýsinga um
hlutdeild kynja í hinum ýmsu list-
greinum hérlendis. „Við sendum
þeim m.a. upplýsingar um kynja-
hlutföll í safneignum safnanna, hjá
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþingi
og í kvikmyndageiranum. Við
reyndum að gefa þeim víða sýn af
því hvernig íslenskt samfélag hefði
staðið sig í jafnréttismálum á sviði
lista á síðustu árum og áratugum.
Það sem stóð upp úr fyrir þær er
kvikmyndaheimurinn, þ.e. hlutfall
fjárframlaga úr Kvikmyndasjóði og
frá Kvikmyndamiðstöð til annars
vegar kvikmynda sem eru gerðar af
karlmönnum og hins vegar konum,“
segir Hanna og tekur fram að þess-
ar tölur hafi ekki verið aðgengilegar
hjá Kvikmyndamiðstöð heldur hafi
þær fengist úr lokaverkefni sem
unnið var við Háskóla Íslands og
nær til áranna 2000-2012.
„Það skiptir miklu máli að fólk
átti sig á því að verkið felur ekki í
sér árás á karlkyns kvikmyndagerð-
armenn. Þetta verk afhjúpar þá
staðreynd að við höfum ekki staðið
við loforðið sem við gáfum okkur
fyrir 100 árum um að lifa í réttlátu
þjóðfélagi þar sem allir hefðu jafnan
rétt. Við höfum staðið alveg sér-
staklega illa við þetta loforð í kvik-
myndagerð. Þetta verk felur í sér
hvatningu um að gera betur,“ segir
Hanna og tekur fram að hún líti
óhikað í eigin barm líka.
Líta einnig í eigin barm
„Þegar við fórum að skoða töl-
fræðiupplýsingar fyrir Guerrilla
Girls skoðuðum við líka kynjaskipt-
inguna fyrir Listahátíð í Reykjavík,
því markmið okkar var ekki að
kasta steinum úr glerhúsi,“ segir
Hanna og bendir á að í heild hafi
kynjaskiptin í hópi listamanna verið
30/70 karlmönnum í vil. „Þegar við
ákváðum að tengja Listahátíð við
100 ára afmæli kosningarréttar
kvenna tvö ár í röð fengum við ein-
stakt tækifæri til að gæta að því
hlutfallið milli karlkyns og kven-
kyns listamanna væri eðlilegt.“
Verkið stendur til loka Listahá-
tíðar í Reykjavík 7. júní. Aðspurð
segir Hanna aldrei að vita nema það
fái framhaldslíf á erlendri grundu.
„Verkið er eign Guerrilla Girls og
þær sýna um allan heim. Þetta verk
gæti ratað inn á sýningar þeirra síð-
ar meir,“ segir Hanna að lokum.
Listahátíð í Reykjavík 2015
Morgunblaðið/Eva Björk
Misrétti Í verki Guerrilla Girls er spurt hvers vegna 87% af styrkjum í íslenska kvikmyndageiranum renni til karla.
Hvatning ekki árás
Guerrilla Girls beina sjónum sínum að hlutdeild kynjanna
í íslenskum kvikmyndabransa í nýju verki fyrir Listahátíð
Misty Rain nefnist sýning Ásdísar
Sifjar Gunnarsdóttur sem opnuð
verður í Hverfisgalleríi í dag kl. 16
og stendur til 26. júní. Sýningin
samanstendur af vídeóverki sem er
á mörkum kvikmyndar og vídeó-
innsetningar.
„Vídeóið sýnir fjögur sjónarhorn
af manneskju í viðtali. Manneskjan
er að koma úr umbreytingarferli;
hún er breytt eftir áhrifamikla lífs-
reynslu. Karlmaður tekur viðtal
við konu. Er viðtalið gengur sinn
gang birtast minningar hennar á
mismunandi skjáum. Það er hálf-
gerð ráðgáta hvað gerðist fyrir al-
vöru,“ segir m.a. í tilkynningu.
Listamannaspjall mun fara fram
á stafrænu formi í Hverfisgalleríi
sunnudaginn 17. maí kl. 16, en
linkur verður gerður opinber síð-
ar.
Ráðgáta Vídeó Ásdísar sýnir fjögur sjónarhorn af manneskju í viðtali.
Áhrifamikil lífsreynsla
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
There are two in a couple eða Það
eru tveir í pari nefnist einkasýning
listamannsins Barböru Amalie
Skovmand Thomsen sem opnuð
verður í Harbinger við Freyjugötu í
dag kl. 14 og stendur til 7. júní.
Sýningin er innsetning sem sam-
anstendur af skúlptúrum, ljós-
myndum, tónlist og vídeói. „Hún er
lostafullt, tregafullt og rómantískt,
en um leið húmorískt inngrip í yfir-
standandi rannsókn Barböru á
ástarsamböndum,“ segir m.a. í til-
kynningu frá Listahátíð í Reykjavík.
Við opnunina í dag gefst gestum
tækifæri á að sjá tónlistargjörning
Skovmand Thomsen, sem hún flytur
ásamt Kristni Ágústssyni.
Ást Barbara A.S. Thomsen fæst í verkum sínum við ást, losta og þrá.
Það eru tveir í pari
Ljósmynd/Barbara Amalie Skovmand Thomsen
Útisýningin 100 kápur á Frakkastíg
verður opnuð í dag kl. 15 í portinu á
Frakkastíg 9, á húsveggjum og í
garðinum við húsið. Þar sýna sam-
an myndlistarmennirnir Hallgrím-
ur Helgason, Helga Þórsdóttir,
Hildur Hákonardóttir, Hlynur
Hallsson, Jóna Hlíf Halldórsdóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir, Libia
Castro og Ólafur Ólafsson. Þema
sýningarinnar er kosningaþátttaka
kvenna í 100 ár og undirtónninn
nokkuð dimmur, ekki allir á einu
máli um það hvar við stöndum í
dag, eins og segir á vef Listahátíð-
ar. „Liðin hafa hundrað ár, heil öld,
standa kynin jafnfætis í dag þegar
kemur að stjórnun og ákvarðana-
töku í samfélagslegu samhengi?
Eða er þetta baráttan endalausa?“
er spurt. Við opnun syngur
Kvennakórinn Hrynjandi.
Múffur Helga Þórsdóttir tekur þátt.
100 kápur á
Frakkastíg
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
1.485
Öflugar Volcan
malarskóflur á
frábæru verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákústar á
tannbursta-
verði
frá 395
Ruslatínur
Garðklóra/
Garðskófla
595
1.995
Öflug
stunguskófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 1.995
Garðslöngur
í miklu úrvali frá 995
Hrífur
3.995
Rafmagns
hekkklippur
frá 7.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
Holning, sýning
Bryndísar
Hrannar Ragn-
arsdóttur, verð-
ur opnuð í Týs-
galleríi í dag kl.
14. „Hluti verk-
anna er unninn
beint á veggi
rýmisins með
náttúrulegri
vörpun, teikn-
ingu, taktfastri hreyfingu og hjúp-
un. Auk þess verða á sýningunni
teikningar af feitu fólki og málm-
skúlptúrar sem faðma burðarveggi
ókunnugra húsa. Saman mynda
verkin heild sem hvílir í kjöltu Týs-
gallerís,“ segir um sýninguna á vef
Listahátíðar og þar má finna eftir-
farandi texta: „Á brúnni runnu
saman stálklæddir turnar, grár
himinn og reykbólstrar. Turnarnir
þrír voru ferningslaga eins og sel-
enít kristallar, himininn var grár
og kaldur eins og loftið næst mér
og brúarhengið var fölgult.
Brúin hallaðist dálítið út á við og
það var hált. Ég var hrædd um að
renna út í ána eða á brúarhengið
sem var úr pottjárni undir þykkri
fölgulri málningunni, og fá blæð-
andi gat á höfuðið.“
Holning Bryndís
Hrönn í Týsgalleríi.
Holning opnuð
í Týsgalleríi