Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. M A Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 122. tölublað 103. árgangur
LITLA GULA HÆN-
AN OG ÞUNGA-
ROKK HJÁ LOTTU
15 MÍNÚTUR Í
SJÓNUM ÁN
FLOTGALLA
FH Á TOPPNUM
OG STJARNAN ENN
ÁN TAPS Í 3. SÆTI
BJÖRGUN 13 PEPSI-DEILDIN ÍÞRÓTTIRBARNALEIKRIT FRUMSÝNT 10
„Mitt leiðarljós
er öryggi sjúk-
linga. Frá þeim
sjónarhóli þá
verður þessu að
ljúka strax.
Strax,“ sagði
Birgir Jak-
obsson, land-
læknir, um það
ástand sem mun
skapast í heilbrigðiskerfinu við
verkfall hjúkrunarfræðinga hjá
ríkinu.
Læknaráð Landspítalans lýsti í
gær yfir þungum áhyggjum af
stöðu mála á spítalanum vegna yf-
irstandandi verkfalla. Með verk-
falli hjúkrunarfræðinga mundi
skapast fordæmalaust ástand á
spítalanum. Verkfall aðildarfélaga
BHM hefur nú staðið í tæpar sjö
vikur og segir læknaráðið að áhrif
þess á starfsemi spítalans séu
gríðarleg.
„Ljóst er að eftir svona langan
tíma hefur orðið óásættanleg töf á
öllum þessum þáttum í meðhöndl-
un sjúklinga spítalans og uppsafn-
aður verkefnalisti er langur,“ seg-
ir m.a. í ályktun læknaráðsins. »2
Gríðarleg
áhrif verk-
fallanna
Birgir Jakobsson
Kjaramál
» Stéttarfélögin veittu samn-
inganefndum umboð í gær til
að halda viðræðum áfram.
» Framkvæmdastjóri SA segir
að samningurinn reyni á þolrif
fyrirtækja til launahækkana.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gert er ráð fyrir að gildistími nýs
kjarasamnings VR, LÍV, Flóabanda-
lagsins og Stéttarfélags Vesturlands
við Samtök atvinnulífsins verði til
ársloka 2018 eða rúmlega þrjú og
hálft ár. Aðaláherslan er lögð á
hækkun lægri launa og að verja
millitekjur. Lágmarkstekjutrygg-
ing, sem nú er 214.000 kr., hækkar
um 86 þúsund kr. á samningstíman-
um. Hún verður 245.000 kr. við gild-
istöku samnings og 300.000 kr. á
mánuði frá og með maí 2018. Lægstu
taxtar Flóabandalagsins hækka um
32,5% á samningstímanum og
lægstu taxtar VR um 31,1%.
Við launahækkanir verður stuðst
við taxtahækkanir og launaþróunar-
tryggingu árin 2015 og 2016 en
taxta- og prósentuhækkanir árin
2017 og 2018.
Í samningnum er opnunarákvæði
sem hægt verður að grípa til ef for-
sendur standast ekki.
Samningaviðræður halda áfram í
dag og á morgun og er stefnt að því
að ljúka gerð kjarasamningsins fyrir
vikulokin.
Lágmarkstekjur í 300.000
VR, LÍV, Flóabandalagið og StéttVest ræða samning við SA til rúmlega 31⁄2 árs
Yfir 30% hækkun lægstu launataxta Opnunarákvæði standist forsendur ekki
M25.000 kr. hækkun »4
Ljósmynd/Árni Geirsson
Þingvellir Fjölmargar hugmyndir
eru um stefnumótun þjóðgarðsins.
Í drögum að endurskoðun á stefnu-
mótun þjóðgarðsins á Þingvöllum er
lagt til að takmarka þar umferð,
vernda þinghelgina á staðnum og
dreifa gestum meira um svæðið.
Hagsmunaaðilar, eins og t.d. ferða-
þjónustan, voru hafðir með í ráðum
við endurskoðunina og samhljómur
er í viðhorfum þeirra og hjá þeim
sem stýra þjóðgarðinum.
Í drögunum kemur m.a. fram að
brýnt sé að vernda ásýnd þinghelg-
innar fornu. Nú sé hún slík að þegar
horft sé yfir séu bílaplön með ara-
grúa farartækja yfirþyrmandi.
Að auki hafa komið fram hug-
myndir um að byggja nýjan áningar-
stað í þjóðgarðinum, við ný vegamót
sem verða til þegar þjóðvegur 550
verður færður úr sigdældinni á Þing-
völlum og upp fyrir gjána.
Alls fara 156,5 milljónir til marg-
víslegra verkefna á Þingvöllum í ár
samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um úthlutun til brýnna verk-
efna á ferðamannastöðum.
Uppi hafa verið hugmyndir um að
reisa nýja Valhöll á Þingvöllum í stað
hússins sem brann 2009. Ólafur Örn
Haraldsson, þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum segir ekkert hafa verið
ákveðið í þessum efnum, en ýmsar
hugmyndir hafi komið fram um nýja
byggingu. »2 og 6
Minni umferð, meiri dreifing
Stefnumótun þjóðgarðsins á Þingvöllum endurskoðuð
Mikið álag var á hjúkrunarfræðingum í gær
vegna yfirvofandi verkfalls. Á bráðamóttökunni
í Fossvogi sem á öðrum deildum Landspítalans
biðu hjúkrunarfræðingar fregna af stöðu mála
en ekkert þokaðist í samningaátt á óformlegum
samningafundi. „Við höfum aldrei upplifað
svona ástand áður. Við tökum bara stöðuna á
klukkutíma fresti,“ sagði Ragna Gústafsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri á bráðadeild. »4
„Tökum bara stöðuna á klukkutíma fresti“
Morgunblaðið/Kristinn
Allsherjarverkfall hjúkrunarfræðinga hjá ríkinu átti að hefjast á miðnætti
Margir þátttakendur í nýrri
könnun sögðu ekki „neitt vit“ í
þeim lánum sem þeir fengu til
húsnæðiskaupa á Suðurnesjum.
Um var að ræða könnun meðal
fólks sem hefur misst fasteignir
í nauðungarsölu. Könnunin var
unnin fyrir velferðarráðuneytið.
Yfir 80% aðspurðra búa nú í
leiguhúsnæði og 9% í eigin hús-
næði. Ein meginniðurstaðan er
sú að rúmlega helmingur svar-
enda með börn á heimili taldi að
miklar breytingar hefðu orðið í
lífi barns eða barna vegna nauð-
ungarsölu eða fjárhagserfiðleika
á heimilinu. » 26
Sögðu ekki
„neitt vit“ í lánum
sem þeir fengu
Ísland verður í forgrunni á listahátíð-
inni Culturescapes 2015 sem haldin
verður í 11. sinn í Sviss dagana 2.
október til 29. nóvember. Á þeim tíma
verður boðið upp á um 150 viðburði,
þ. á m. tónleika, upplestra, myndlist-
arsýningar, fyrirlestra og kvik-
myndasýningar. Á síðustu árum hafa
ríflega 20 þúsund gestir sótt viðburði
hátíðarinnar árlega. Ráðgert er að
hátíðin kosti eina milljón evra eða um
150 milljónir ísl. kr. og því óhætt að
fullyrða að þetta sé ein stærsta
listahátíð með Ísland í forgrunni sem
haldin er utan landsteinanna.
„Markmið hátíðarinnar er að skoða
menningarlandslag einnar þjóðar,
landsvæðis eða borgar,“ segir Jurria-
an Cooiman, listrænn stjórnandi og
stofnandi listahátíðarinnar Cult-
urescapes. Bendir hann á að menn-
ingin sé mörkuð af tungumálinu og
umhverfinu þar sem hún verði til sem
og af pólitísku landslagi og ekki síst
náttúrunni í tilfelli Íslands. Meðal
þeirra sem þátt taka á Culturescapes
í ár eru Christoph Büchel, Roni
Horn, Ragnar Kjartansson, Anna
Þorvaldsdóttir, Erna Ómarsdóttir og
Schola cantorum. »38
Ísland í brennidepli
á Culturescapes