Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 4

Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 4
SVIÐSLJÓS Malín Brand malin@mbl.is Bæði sjúklingar og starfsfólk heil- brigðisstofnana ríkisins urðu óþyrmi- lega vör við þá óvissu sem í loftinu lá í gær þegar undirbúningur stóð sem hæst vegna verkfalls hjúkrunarfræð- inga. „Hér höfum við verið að und- irbúa það sem hægt er að undirbúa fyrir verkfallið,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðissviðs. Í mörgum tilvikum hefur reynst snúið að gera ráðstafanir þar sem sambærileg staða hefur ekki komið upp áður og óvissan er mikil. Guðlaug Rakel segir að starfsfólk hafi margt hvert verið órólegt og því líði almennt ekki vel vegna þeirrar stöðu sem upp sé komin. Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ekki farið varhluta af óvissuþrungnu andrúms- loftinu því ekkert hefur þokast í samningaátt á þeim fáu samninga- fundum sem haldnir hafa verið. Seinnipartinn í gær áttu hjúkr- unarfræðingar óformlegan fund með samninganefnd ríkisins og bar hann engan árangur að sögn Ólafs G. Skúlasonar, formanns félagsins. „Það þokaðist ekkert í samkomulagsátt. hjartagáttinni eftir hádegið í gær og fóru sjúklingar því strax að finna fyr- ir áhrifum verkfallsins. Fimm daga deildinni á Landakoti verður lokað sem og dag- og göngudeildinni. Dag- deildinni á Grensási verður líka lokað en bráðaþjónustunni verður sinnt þó ljóst sé að tafir verði einhverjar. Nánar má lesa um lokanir og skerta starfsemi Landspítalans á vefnum www.landspitali.is. Spítalinn ræður ekki við langt verkfall  Hafa undirbúið það sem hægt var að undirbúa  Starfsfólk tók stöðuna á klukkustundar fresti Morgunblaðið/Kristinn Önnum kafin Starfsfólk á bráðamóttöku í Fossvogi síðdegis í gær, en verkfall hefur verið undirbúið síðustu daga. Við erum í raun ekkert nær samningi í dag heldur en við vorum í gær,“ sagði Ólafur að fundinum loknum. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í viðræðunum. Miklar áhyggjur starfsmanna Á bráðadeild spítalans stóð starfs- fólk í ströngu við skipulagningu þeg- ar blaðamaður náði tali af deildar- stjóranum, Rögnu Gústafsdóttur. „Það er alveg hægt að segja að hér hafa starfsmenn miklar áhyggjur af næstu klukkutímum og sólarhringum og í raun og veru vitum við ekki alveg í hvað við erum að fara. Við höfum aldrei upplifað svona ástand áður og höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að þetta gangi eins vel fyrir sig og mögulegt er. Það er alltaf reynt að tryggja öryggi sjúk- linga eins og hægt er,“ segir Ragna. Hún segir að í gær hafi staðan ver- ið tekin á klukkustundar fresti og starfsfólk gert allt sem í þess valdi stóð til að bregðast við óvenjulegu ástandinu. „Hér vonast allir til að málin leysist á sem farsælastan hátt og að verk- fallið verði sem allra styst, því það er óhugsandi að spítalinn ráði við þetta í marga daga,“ segir Ragna. Hætt var að taka við sjúklingum á 4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Megináherslur sem unnið er eftir í kjaraviðræðum VR, LÍV, Flóa- bandalagsins og Stéttarfélags Vest- urlands við Samtök atvinnulífsins voru birtar í gærkvöld. Þar kemur m.a. fram að við launahækkanir verði stuðst við taxtahækkanir og launaþróunartryggingu árin 2015 og 2016 en taxta- og prósentuhækkanir árin 2017 og 2018. Gert er ráð fyrir að launataxtar hækki um 25.000 kr. frá 1. maí 2015. Byrjunarlaun afgreiðslufólks í VR hækka að auki um 3.400 kr. Launaþróunartrygging annarra en þeirra sem taka laun samkvæmt töxtum er 7,2% fyrir laun að upphæð 300.000 kr. eða lægri en fer svo stig- lækkandi með hærri tekjum. Launaþróunartryggingin verður þó aldrei lægri en 3%. Þann 1. maí 2016 hækka launa- taxtar um 15.000 kr. Launaþróun- artrygging er 5,5%. Viðmiðunar- tímabil er 1. júní 2015 til 30. apríl 2016. Þann 1. maí 2017 hækka launa- taxtar um 4,5%. Byrjunarlaun af- greiðslufólks í VR hækka að auki um 1.700 kr. Almenn hækkun er 3%. Þann 1. maí 2018 hækka launa- taxtar um 3% og almenn hækkun er 2% miðað við átta mánuði. Fram kemur að samningsaðilar vinni nú að útfærslu ýmissa annarra ákvæða kjarasamningsins. Mikil- vægast af þeim er opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins stand- ast ekki. Einnig er unnið að sameig- inlegum málum með Alþýðusam- bandi Íslands og sérkjarasamning- um sem tengjast frágangi aðalkjara- samnings. Umboð til að halda áfram Meginlínur í drögum að nýjum kjarasamningi voru kynntar stóru samninganefndum og trúnaðarráð- um stéttarfélaganna í gær. Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar sem er í Flóabandalaginu ásamt Verkalýðsfélaginu Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélagi Kefla- víkur, sagði töluvert mikla vinnu eft- ir við að ljúka gerð samningsins. Hann sagði að um 100 manns hefðu mætt á fund samninganefndar Flóabandalagsins í gær. Þar hefði verið ágætis umræða um málin og veitti fundurinn samninganefnd heimild til að vinna áfram á grund- velli þessara samningsdraga. Sigurður sagði að fólk hefði viljað fá betri upplýsingar um ákveðin at- riði. „Ríkisvaldið hefur stigið fram að einhverju leyti, sem í raun og veru er dálítið óútfyllt blað,“ sagði Sigurður. Hann sagði að það ætti eftir að koma betur í ljós. Samningaviðræðurnar halda áfram í dag og hefst fundur kl. 9.00. Búið er að skipuleggja fundahöld í dag og á morgun. Sigurður kvaðst ekki vita hvort það tækist að ljúka gerð samningsins á þeim tíma en lík- urnar á því hefðu aukist. „Vonandi eru menn að finna einhvern þráð í því að koma saman kjarasamningi,“ sagði Sigurður. Kaupmáttaraukning forsenda Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, sagði þær samningsforsendur liggja fyrir í viðræðunum að á næstu árum yrði kaupmáttaraukning hér á landi. Gengi það ekki eftir opnaðist samningurinn. Með þessu færu fé- lögin fram með ábyrgum hætti sem á að tryggja kaupmáttaraukningu og stöðugleika án mikillar verðbólgu. Fundur trúnaðarráðs VR í gær veitti Ólafíu umboð til að halda áfram vinnu að samningi á grund- velli þeirra meginlína sem kynntar voru á fundinum. 25.000 kr. hækkun frá 1. maí  Taxtahækkanir og launaþróunartrygging 2015 og 2016  Taxta- og prósentuhækkanir 2017 og 2018  Opnunarákvæði ef forsendur kjarasamningsins standast ekki  Stíf fundahöld í dag og á morgun Morgunblaðið/Kristinn Flóabandalagið Sigurður Bessason (t.v.), formaður Eflingar, útskýrði samningsdrögin á fjölmennum fundi stóru samninganefndarinnar í gær. „Það er ánægjulegt að þarna eru komin samningsdrög til nokkuð langs tíma sem ættu, ef framkvæmd þeirra gengur eftir, að byggja undir áframhaldandi kaupmátt- araukningu,“ sagði Þorsteinn Víglundsson fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Spurður út í samningstímann til þriggja og hálfs árs sagði hann: „Þetta var á endanum bara sameiginleg niðurstaða aðila þegar sest var yfir þann ramma sem var til umræðu.“ Hann sagði að tíminn myndi leiða í ljós áhrif samningsins á verðbólgu. „Þessi samningur mun reyna talsvert á þolmörk fyr- irtækja til launahækkana, en við töldum að í ljósi þeirrar stöðu sem er uppi þá hefði þetta verið skynsamleg lending. Að öðru leyti þá er bara eftir að sjá hvernig þetta gengur til enda en við teljum góðar líkur á því að þetta ætti að leiða til kaupmáttaraukningar.“ bmo@mbl.is Skynsamleg lending SAMNINGURINN ÆTTI AÐ STUÐLA AÐ KAUPMÁTTARAUKNINGU Þorsteinn Víglundsson Verkfall hjúkrunarfræðinga hef- ur í för með sér lokanir á 75% allra sjúkrarúma á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu frá Herdísi Gunnarsdóttur, for- stjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, kemur fram að 5 af 18 sjúkrarúmum verði opin á Selfossi en hjúkrunarrýmin 40 verði opin áfram. Í Vestmanna- eyjum verða um 4 rúm af 15 op- in. Á heilsugæslunni verður þjónustu forgangsraðað. Lokanir á 75% rúma SELFOSS OG VESTMANNAEYJAR Deilur á vinnumarkaði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.