Morgunblaðið - 27.05.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 27.05.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Bílastæðavandi er orðinn velþekkt fyrirbæri í Mið- og Vest- urbæ Reykjavíkur. Þessi vandi er að verulegu leyti heimatilbúinn og afleiðing þeirrar stefnu sem borg- aryfirvöld hafa fylgt árum saman og gengur undir nafninu þétting byggðar en snýst um að þrengja byggð og þar með að þrengja að íbú- um í vesturhluta borgarinnar.    Sjálfsagt er að nýta lausar bygg-ingalóðir og það hefur alltaf verið gert.    Jafn sjálfsagt er að það sé gert ísamræmi við þá byggð sem fyr- ir er og af tillitssemi við íbúana sem fyrir eru.    Morgunblaðið sagði frá því um daginn að eitt af því sem nú væri stundað væri að bygg- ingaverktakar fengju að borga sig frá því að tryggja næg bílastæði með þeim húsum sem byggð eru á þessu svæði.    Í stað þess að hafa bílakjallaragreiða þeir borginni fyrir að sleppa því að gera ráð fyrir að íbú- ar séu á bílum og þar með munu íbúar nýju húsanna leggja annars staðar og þrengja að þeim sem fyrir eru.    Þetta bætist við þá stefnu borg-arinnar að leyfa að byggð séu íbúðarhús sem hafa innan við eitt stæði á íbúð, allt niður í 0,2 stæði á íbúð, sem þrengir mjög að nágrönnum.    Hvernig verður um að litast í vesturhluta borgarinnar ef þessari stefnu verður fylgt í nokkur ár enn? Borgin bætir í bílastæðavandann STAKSTEINAR Veður víða um heim 26.5., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 3 snjókoma Akureyri 8 rigning Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 12 léttskýjað Kaupmannahöfn 13 léttskýjað Stokkhólmur 15 léttskýjað Helsinki 13 heiðskírt Lúxemborg 12 skýjað Brussel 16 heiðskírt Dublin 15 léttskýjað Glasgow 12 léttskýjað London 17 heiðskírt París 17 skýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 13 léttskýjað Berlín 13 skýjað Vín 14 skúrir Moskva 26 heiðskírt Algarve 21 léttskýjað Madríd 27 heiðskírt Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 20 skýjað Winnipeg 23 heiðskírt Montreal 25 skýjað New York 27 heiðskírt Chicago 23 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:36 23:14 ÍSAFJÖRÐUR 3:04 23:57 SIGLUFJÖRÐUR 2:45 23:42 DJÚPIVOGUR 2:57 22:52 Oddastefna verður haldin í höfuð- stöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á morgun, fimmtu- daginn 28. maí, og setur Þór Jak- obsson, forseti Oddafélagsins, stefnuna klukkan 13.15. Auk hans eru frummælendur Sveinn Runólfs- son, Ágúst Sigurðsson, sr. Guð- björg Arnardóttir, Páll Imsland og Ragnar Önundarson. Ráðgert er að Oddastefnu ljúki klukkan 17.45. Oddastefna er árlegt málþing Oddafélagsins og er nú haldin í 23. sinn frá árinu 1992. Þetta er í þriðja skipti sem stefnan er haldin í boði Landgræðslunnar. Oddastefna haldin í Gunnarsholti Talsverður fjöldi kom saman á Austurvelli síð- degis og lýsti yfir óánægju vegna starfa rík- isstjórnarinnar. Mótmælin voru skipulögð og auglýst á sam- félagsmiðlinum Facebook umdir yfirskriftinni „Bylting! Uppreisn.“ Var ríkisstjórnin hvött til að fara frá og mættu sumir með lykla sem þeir létu hringla í til að vekja athygli á því að tími væri kominn til lyklaskipta í stjórn landsins. Morgunblaðið/Eggert Komu saman til að mótmæla á Austurvelli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.