Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það var mikill áhugi á hestum sem
kom mér hingað. Ef maður ætlar að
vinna við hesta í framtíðinni er gott
að hafa menntunina á bak við sig, sér-
staklega að hafa reiðkennaratitilinn.
Svo kemur aukin reynsla sér alltaf
vel,“ segir Hanna Rún Ingibergs-
dóttir sem fékk afhent helstu verð-
laun sem veitt eru fyrir reiðmennsku
á reiðsýningu nemenda sem eru að
brautskrást úr reiðmennsku- og reið-
kennaranámi Háskólans á Hólum.
Sýningin var haldin heima á Hólum
síðastliðinn laugardag. Hún var felld
inn í dagskrá Hólamótsins í hesta-
íþróttum sem hestaíþróttaráð Ung-
mennasambands Skagafjarðar heldur.
Hanna Rún fékk viðurkenningu
Félags tamningamanna fyrir hæstu
einkunn á lokaprófi í reiðmennsku og
Morgunblaðshnakkinn sem er við-
urkenning fyrir besta árangur í reið-
mennskuáföngum öll þrjú námsárin.
Fleiri verðlaun verða veitt við braut-
skráningu Hólanema sem fram fer 5.
júní næstkomandi.
Þrettán ljúka nú námi til BS í reið-
mennsku og reiðkennslu. Oftast
stendur hópurinn saman af fólki frá
nokkrum mismunandi þjóðlöndum og
erlendar stúlkur þá áberandi. Að
þessu sinni eru langflestir útskrift-
arnemarnir Íslendingar og með þeim
tveir Svíar.
Stórkostlegt ævintýri
„Það er stórkostlegt ævintýri fyrir
krakka að fara í þetta nám. Sam-
félagið hér er lítið og kennararnir frá-
bærir. Maður safnar mikilli reynslu á
þessum þremur árum,“ segir Hanna
Rún um námið.
Hún kemur úr mikilli hestamanna-
fjölskyldu í Hafnarfirði og hefur verið
tengd hestum og hestamennsku frá
því hún man eftir sér.
Hún segir framtíðina óráðna, nema
hvað hún muni alltaf hafa hesta í
kringum sig. „Það er bara spurning
hvort maður vill hafa hestana sem að-
alatvinnu eða með öðru. Ég mun alla-
vega vinna við þetta í sumar. Fram-
haldið kemur svo í ljós. Það er líklegt
að ég haldi þessu áfram, þegar hesta-
sýkin er orðin þetta mikil,“ segir
Hanna Rún. Hún verður á Kirkjubæ
á Rangárvöllum í sumar.
Eitthvað mun hún koma við á
keppnisbrautinni í sumar, fer á Ís-
landsmót og í úrtöku fyrir Heims-
leika íslenska hestsins og fleiri mót.
Ljósmynd/Guðmundur B. Eyþórsson
Reiðkennari Hanna Rún Ingibergs-
dóttir á Hlíf frá Skák. Hún sópaði
að sér verðlaunum.
Titillinn getur
komið sér vel
Hanna Rún valin besti reiðmaðurinn
á reiðsýningu Háskólans á Hólum
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Ný sending
Verið velkomin
Sumarbolir
margir litir og gerðir
Túnikur
Kvartbuxur
Peysur
Pils o.fl.
Vinsælu velúrgallarnir
alltaf til í mörgum litum
Stærðir S-XXXXL
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
Vinsælu Modest buxurnar
komnar
aftur
7 litir
Stærðir
36-50
Tvær síddir
Verð
9.980 kr.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Verð kr. 12.900
KOMNAR AFTUR
Gardeur gallabuxur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar verður haldinn miðvikudaginn
3. júní 2015. Fundurinn hefst kl. 17.30 í félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins
að Garðatorgi 7, Garðabæ. Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skóla-
nefndar grunnskóla og bæjarfulltrúi fjallar um menntamál á undan
hefðbundnum aðalfundarstörfum.
Dagskrá:
• Ávarp, Sigríður Hulda Jónsdóttir.
• Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum
Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.
• Lagabreytingar, sjá tillögur hér neðar
• Önnur mál.
Tillaga að lagabreytingu á 10. grein í lögum Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
(um boðun aðalfundar):
…..
Til aðalfundar skal boða skriflega, t.d. með tölvupósti, auglýsingu á heima-
síðu félagsins eða á annan sannanlegan hátt með minnst viku fyrirvara.
……
Annað í 10. greininni verði óbreytt.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags Garðabæjar 2015
Tveir menn réðust á bílstjóra
Strætó í Ártúni um hádegisbil í gær.
Lögreglan kom stuttu seinna á vett-
vang og fór bílstjórinn á slysadeild.
Samkvæmt upplýsingum frá fram-
kvæmdastjóra Strætó, Jóhannesi
Svavari Rúnarssyni, hlaut bílstjór-
inn ekki alvarlega áverka og stefnir
á að mæta til vinnu aftur í dag.
Reyndu að svindla sér inn
Jóhannes segir í samtali við
mbl.is að um hádegi í gær hafi mað-
ur með rifinn miða reynt að svindla
sér inn í vagninn. Bílstjórinn hafi
ekki tekið miðann gildan og gefið
manninum færi á að greiða fargjald-
ið. Á eftir honum hafi komið annar
maður og hafi sá verið með hinn
hluta miðans og einnig ætlað að
svindla sér inn. Þeir hafi ekki sætt
sig við að vagnstjórinn meinaði
þeim aðgang. „Þá verður allt vit-
laust og þá er ráðist á hann,“ segir
Jóhannes.
Ekki algengt en
fjölgað upp á síðkastið
Jóhannes segir atvik sem þessi
ekki algeng, en að upp á síðkastið
hafi komið upp þrjú svona tilfelli.
Segir hann þetta mikið áhyggjuefni,
en að hann vonist til þess að ekki
þurfi að fara í breytingar og að
vagnstjórarnir verði í lokuðum búr-
um. Segist hann telja að slíkt sé
ekki nauðsynlegt hér og tekur fram
að það sé varla þekkt í hinum vest-
ræna heimi. Bílstjórar eru með
neyðarhnapp í bílnum sem þeir geta
notað til að kalla á aðstoð.
Jóhannes segir að bílstjórarnir
séu í framlínunni og þurfi að sitja
undir ýmsu. „En það er hörmulegt
að menn séu að ráðast á saklausa
bílstjóra,“ segir Jóhannes. Segist
hann spyrja sig hver ástæðan sé
fyrir þessu. Hvort það sé minni
virðing gagnvart strætóbílstjórum
eða hvort hún sé einhver önnur.
thorsteinn@mbl.is
Réðust á strætóbílstjóra