Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 10

Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Jói er hvatvís, en rosalega já-kvæður, vill alltaf vel og hef-ur bjargfasta trú á öllum íkringum sig,“ segir Baldur Ragnarsson, gítarleikari Skálmaldar, um eitt af hlutverkum sínum í barna- leikritinu Litlu gulu hænunni, sem Leikhópurinn Lotta frumsýnir í kvöld kl. 18.00 í Elliðaárdalnum. Á níu ára leikferli sínum með Lottu, sem hann stofnaði ásamt fleirum, er honum eftirminnilegast hlutverk sitt sem úlfurinn í Rauðhettu og úlfinum 2008. „Fram að því hafði ég alltaf leik- ið góða gæjann en þarna fékk ég tækifæri til að túlka illmennið og hafði gríðarlega gaman af að fara svona alveg í hina áttina. Eftir að ég – úlfurinn – hafði hagað mér mjög illa fannst mér skemmtilegast og mikil áskorun fólgin í að vinna krakkana í áhorfendahópnum á mitt band að sýningu lokinni,“ útskýrir Baldur, sem hefur lofað að vera góði gæinn í kvöld og fram eftir sumri. Jói á ábyrgð Önnu Bergljótar En hvaða Jói er að flækjast í Litlu gulu hænunni? kunna ein- hverjir að spyrja alveg gáttaðir. Jói er mest á ábyrgð höfundar leikrits- ins, Önnu Bergljótar Thorarensen, sem ákvað í samráði við leikhópinn að krydda söguna svolítið og bæta við hana heilu ævintýri í viðbót, Jóa og baunagrasinu. „Hver veit nema litla gula hænan sé einmitt sama hæna og verpir gulleggjum fyrir risann í æv- intýrinu um Jóa og baunagrasið,“ segir Anna Bergljót leyndardómsfull. Fyrstir til að fá úr því skorið hvort um sömu hænu sé að ræða verða væntanlega frumsýningar- Barnaleikrit með þungarokksívafi Söngvar og tónlist leika stór hlutverk í Litlu gulu hænunni sem Leikhópurinn Lotta frumsýnir í kvöld. Líka Baldur Ragnarsson, gítarleikari Skálmaldar, sem samdi söngtextana og er einn þriggja höfunda tónlistarinnar auk þess að leika Jóa – sem sumir velta fyrir sér hvort hafi villst á ævintýri. Morgunblaðið/Styrmir Kári Jói og baunagrasið Baldur Ragnarsson í hlutverki Jóa góða og jákvæða. Hver vill? Svínið sagði: Ekki ég. Kötturinn sagði: Ekki ég. Hundurinn sagði: Ekki ég. En litla gula hænan sagði: Það vil ég. Og það gerði hún. Nú er aldeilis tækifæri fyrir leikhús- áhugafólk til að njóta, því í dag kl. 10:05 verður opinn samlestur á breska leikverkinu At, eftir Mike Bartlett, í forsal Borgarleikhússins. Leikhússtjórinn Kristín Eysteins- dóttir leikstýrir verkinu og leikarar eru þau Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Valur Freyr Einarsson og Eysteinn Sigurð- arson. Verkið fjallar um grimmileg átök á vinnustað þar sem þrír vinnu- félagar bíða eftir mikilvægu starfs- viðtali og aðeins tvö störf eru í boði. At verður frumsýnt í haust og verður fyrsta frumsýning nýs leik- árs. Vefsíðan www.borgarleikhusid.is Morgunblaðið/Eggert Þorvaldur Davíð Hann er einn þeirra leikara sem fara með hlutverk í Ati. Opinn samlestur í dag á Ati Í kvöld kl. 21 verða útgáfutónleikar á Húrra, við hlið gamla Gauksins, en þar ætlar Helgi Valur Ásgeirsson að fagna útgáfu fjórðu plötu sinnar, No- tes From The Underground. Hljómsveitina skipar einvala lið tónlistarfólks, Helgi Valur sér um gít- arspil og söng, Ási Þórðarson lemur trommur, Bergur Thomas Anderson plokkar bassann, Úlfur Alexander Einarsson leikur á rafgítar, Kári Ein- arsson á sveimgítar, Katie Buckley strýkur hörpu, Jón Elísson leikur á hljómborð, Kristinn Roach blæs í saxófón og Hallgrímur Jónas Jensson leikur á selló. Auk sérstakra gesta. Endilega … … farið á útgáfutónleika Helga Vals á Húrra í kvöld Tónlistarmaður Helgi Valur. Flestir finna einhverntíma á ævinni fyrir þunglyndiseinkennum eða þekkja einhvern sem þjáist af þunglyndi. Því getur verið fróðlegt að kynna sér sem flesta þætti sem því tengjast. Hingað til lands er kominn bandarískur læknir, Eddie Ramírez, sem ætlar að halda fyrirlestra um áhrif grænmetisfæðis á þunglyndi. Hann er einn af meðhöf- undum bókarinnar „Rethink Food“ en hana skrifa 100 læknar sem mæla með því að fólk fari yfir í grænmet- isfæði. Eddie Ramírez mun í fyr- irlestrum sínum fjalla um niðurstöður úr rannsóknum sem hann og annar læknir, Neil Nedley, hafa gert meðal annars um áhrif lífsstíls og mataræðis á þunglyndissjúklinga, en árangurinn hefur verið ótrúlegur. Eddie Ramírez mun vera með fjóra fyrirlestra í Rauða sal Verzlunarskóla- Íslands og hefjast þeir í dag, miðviku- dag, kl. 20. Aðgangur er ókeypis og skráning fer fram á netfanginu: vigdislinda@hotmail.com Bandarískur læknir með fyrirlestra Ætlar að fjalla um áhrif grænmetisfæðis á þunglyndi Eddie Ramírez Heimsækir Ísland, en hann er einn af höfundum bókarinnar „Rethink Food“. Getty Images/iStockphoto Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. - Þín brú til betri heilsu Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010 Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf – Eru kílóin að hlaðast á? – Er svefninn í ólagi? – Ertu með verki? – Líður þér illa andlega? – Ertu ekki að hreyfa þig reglulega? – ....eða er hreinlega allt í rugli? www.heilsuborg.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.