Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 11
Boðskapurinn Leikhópurinn Lotta sýnir ævintýrið um litlu gulu hænuna. Sagan hefur verið notuð í áratugi til að
kenna börnum mikilvægi þess að allir hjálpist að og að sumu leyti verið fyrsta lexía barna í siðferði.
gestir þessa glænýja leikrits með
söngvum og alls konar skemmtileg-
heitum. Þá verður líka spennandi að
vita hvort gróðurskilyrði í dalnum
séu slík að baunagrasið spretti alla
leið til skýja.
Frumsamdir söngtextar
Baldur fer ekki aðeins með hlut-
verk Jóa heldur samdi hann alla
söngtextana í leikritinu, samtals tíu
texta. Hann samdi einnig tónlistina
ásamt þeim Rósu Ásgeirsdóttur og
Birni Thorarensen, liðsmönnum
Lottu. „Ég fékk alveg frítt spil að
öðru leyti en því að textarnir þurftu
að styðjast við framvindu sögunnar.
Svo gerði ég bara það sem mér
fannst skemmtilegast. Þótt leikritið
höfði vissulega til barna kappkostaði
ég að semja textana ekki sérstaklega
með hliðsjón af börnum. Markmiðið
var að búa til frambærilegt efni með
góðu þema sem hentaði börnum. Mér
fannst gaman að nota í textunum
ýmsar tilvitnanir í aðrar sögur eða
söngva. Brauðsöngurinn í Litlu gulu
hænunni, sem er uppskrift að því
hvernig á að baka brauð, er dæmi um
slíka tengingu, en hann vísar í pip-
arkökulagið fræga þótt það heyrist
kannski ekki svo glöggt.“
Börn og þungarokk
Lagið Ég er risinn sker sig tölu-
vert frá öðrum lögum í Litlu gulu
hænunni, enda samdi Baldur það al-
veg sérstaklega og meðvitað í anda
HAM. Hann langaði að sameina tvo
heima; barnanna og þungarokksins.
„Sigurjón Kjartansson, söngvari
HAM, var svo indæll að vilja syngja
lagið og leika risann á plötunni sem
kemur út með tónlistinni og verkinu í
heild,“ segir Baldur glaður í bragði.
„Börn hafa gott af þungarokki
og eru mjög móttækileg fyrir því,“
bætir hann við með sannfæringar-
krafti. „Ég er risinn er góður rokk-
slagari, sem slær hvergi af og hlífir
engum. Það er mýta að eldra fólk og
krakkar hafi ekki gaman af þunga-
rokki og því er mikilvægt að þjónusta
alla aldurshópa. Skálmöld verður
með þungarokkstónleika fyrir
krakka á Gauknum á laugardaginn,
en sveitin hefur nokkrum sinnum áð-
ur haldið slíka tónleika fyrir fullu
húsi.“
Ekki við eina fjölina felldur
Undirbúningur Litlu gulu hæn-
unnar hófst eftir að Leikhópurinn
Lotta sammæltist um sumarverkið
rétt eftir áramótin. Handritshöfund-
urinn, lagahöfundar og söngtexta-
smiðurinn tóku til óspilltra málanna
og í byrjun apríl hófust þrotlausar
æfingar. Baldur hefur í nógu að snú-
ast á næstunni. Ekki aðeins treður
hann upp sem Jói í Litlu gulu hæn-
unni út um allar trissur heldur fer
hann í að minnsta kosti þrjár hljóm-
leikaferðir með Skálmöld til Evrópu.
Upp úr dúrnum kemur líka að hann
er ekki við eina fjölina felldur þegar
hljómsveitir eru annars vegar. Hann
spilar með Ljótu hálfvitunum og
einnig hljómsveit sem hann stofnaði
ásamt nokkrum félögum til heiðurs
The Clash.
„Ég verð á þönum ýmist með
Lottu eða Skálmöld í allt sumar. Við
erum reyndar tveir sem skiptumst á
að leika Jóa, ég og Stefán Benedikt
Vilhelmsson, svo fyrirkomulagið ætti
að ganga upp. Eftir frumsýninguna í
kvöld setjum við upp nokkrar sýn-
ingar á höfuðborgarsvæðinu og tök-
um svo Vestfirðina eftir helgina,“
segir Baldur glaðbeittur. Enda vanur
maður, sem leikið hefur stór og smá
hlutverk úr helstu ævintýrabók-
menntum heimsins. Morgunblaðið/Styrmir Kári
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Litlu gulu hænuna, glænýtt íslenskt leikrit
með söngvum, í Elliðaárdalnum í kvöld kl. 18.00 Þetta er níunda sumarið
sem Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn leik-
ið sér við Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana
sjö, Galdrakarlinn í OZ og fleiri áhugaverðar persónur.
Leikritið verður flutt nokkrum sinnum á miðvikudögum í fyrrnefndum
dal á næstunni, en annars er í bígerð að heimsækja yfir 50 staði víðs-
vegar á landinu.
Höfundur Litlu gulu hænunnar er Anna Bergljót Thorarensen og er
þetta fimmta verkið sem hún skrifar fyrir hópinn. Vignir Rafn Valþórsson
er leikstjóri og Baldur Ragnarsson söngtextahöfundur, en hann og Rósa
Ásgeirsdóttir og Björn Thorarensen, liðsmenn Lottu, sömdu tónlistina.
Miðaverð er 1.900 kr. Ekki þarf að panta miða fyrirfram. Lotta bendir
gestum á að klæða sig eftir veðri og mælir með að fullorðna fólkið taki
með sér myndavél vegna þess að áhorfendum gefst kostur á að hitta per-
sónurnar úr leikritinu eftir sýningu.
Úti- og farandsýning
LEIKHÓPURINN LOTTA
Hrein
akstursgleði
BMW X3
www.bmw.is
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
BMW X3 xDrive20d. Verð frá 7.590.000 kr. Steptronic 8 þrepa sjálfskipting,
Sensatec leðuráklæði, lykillaus gangsetning, 6,5" litaskjár í mælaborði, handfrjáls
búnaður (Bluetooth) fyrir síma og tónlist.
Á meðan þú leitar að skemmtilegri upplifun, leitar BMW að tæknilegri fullkomnun.
Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið í BMW X3.
Nýr X3 xDrive20d með 190 hestafla dísilvél og Steptronic 8 þrepa sjálfskiptingu
notar einungis 5,0 l/100 km* í blönduðum akstri.
REYNSLUAKTU NÝJUM BMW X3 Í DAG.
BMW X3 ER TILBÚINN
Í NÆSTU ÁSKORUN.M
ið
að
vi
ð
u
p
p
g
ef
n
ar
vi
ð
m
ið
u
n
ar
tö
lu
rf
ra
m
le
ið
an
d
a
u
m
el
d
sn
ey
tis
n
o
tk
u
n
íb
lö
n
d
u
ð
u
m
ak
st
ri
.