Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þrír fyrrverandi forsetar Alþingis, þau Halldór Blöndal, Sturla Böðv- arsson og Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, líta störf Alþingis þessa dagana svolítið mismunandi augum. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar hafa flutt yfir eittþús- und ræður um fundarstjórn for- seta að undanförnu og ekkert lát varð á þeim ræðuhöldum á Alþingi í gær. Halldór Blöndal, var forseti Al- þingis frá 1999 til 2005. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær telja framkomu stjórnarand- stöðunnar fordæmalausa. Meira en þúsund ræður „Stjórnarandstaðan er búin að halda meira en þúsund ræður um fundarstjórn forseta til þess að reyna að koma í veg fyrir, að vilji meirihlutans nái fram að ganga. Slík framkoma á sér engin for- dæmi og grefur undan tiltrú þjóð- arinnar á störfum Alþingis. Það er Alþingis að ákveða hvaða virkjanir eru í nýtingarflokki og hverjar ekki, málið var lagt fyrir með þing- legum hætti og öllum formsatrið- um fullnægt. Svo einfalt er það,“ sagði Halldór. Þurfa að horfa í eigin barm Sturla Böðvarsson var forseti Alþingis frá 2007 til 2009. Hann sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær hafa ríka samúð með Einari K. Guðfinnssyni, forseta Alþingis. „Það er ósanngjarnt að kenna hon- um um það ástand sem er á Al- þingi þessa dagana, hvað þá að veitast að honum með kröfur um afsagnir og vantraust. Það þarf nú tvo til,“ sagði Sturla. Sturla segir að reynsla sín af starfi forseta Alþingis sé sú, að það hafi skipt miklu máli við hverja verið var að ræða hverju sinni. Voru sanngjarnir og sáttfúsir „Ég bjó við það ágæta umhverfi að formenn þingflokka voru vel viðræðuhæfir, sanngjarnir og sátt- fúsir og vissu um eigin ábyrgð. Formenn þingflokka gegna geysi- lega mikilvægu hlutverki í þing- störfunum öllum. Þó að forseti hafi mikið vald, þá þarf hann að vinna sitt verk í samstarfi við formenn þingflokka,“ sagði Sturla. Hann segir að sér sé sérstaklega minnisstætt gott samstarf sem hann átti við þá Ögmund Jónasson, sem þá var þingflokksformaður Vinstri grænna og Lúðvík Berg- vinsson, þáverandi formann þing- flokks Samfylkingarinnar. Þeir hafi báðir verið mjög meðvitaðir um sína ábyrgð. „Mér sýnist að forystumenn þingflokka stjórnarandstöðunnar þurfi aðeins að horfa í eigin barm og átta sig á því að sagan mun ekki, að mínu mati, fara mjúkum höndum um þá,“ sagði Sturla. Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt- ir, forseti Alþingis frá 2009 til 2013, segir fátt koma sér á óvart í störfum Alþingis í dag. „Mér finnst þetta vera ósköp svipað og gerist í þinginu, þegar líður að lokum þinghalds. Hvorki betra né verra,“ sagði Ásta Ragnheiður í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þegar ég var þingforseti var mjög erfitt ástand í þinginu. Ég tel að ástandið í þinginu nú sé ekkert verra en það var í minni forsetatíð. Stjórnarandstaðan var mjög hörð í tíð síðustu ríkisstjórnar og það voru notaðar ýmsar aðferðir til að reyna að stöðva og tefja mál,“ sagði Ásta Ragnheiður. Spurð hvort hún hafi ekki beitt þrengri túlkun hvað varðar um- ræðu um fundarstjórn, en núver- andi forseti gerir sagði Ásta: „Ég leyfði þingmönnum að tala um dagskrána undir fundarstjórn, af því að undir fundarstjórn fellur líka gerð dagskrár. En ég leyfði þeim ekki að halda áfram efnislegri umræðu undir liðnum umræða um fundarstjórn forseta, svo sem þegar þingmenn voru að reyna að lengja umræður t.d. í fyrirspurnum, þar sem tíminn er afmarkaður, með því að fara upp undir því yfirskini að ræða fundarstjórn forseta og fóru svo í efnislega umræðu, ég leyfði það ekki. Ég var mjög ströng á því, en ég gerði ekki athugasemdir ef þeir voru að ræða dagskrána undir um- ræðu um fundarstjórn forseta.“ Áfram rætt á þingi um fundarstjórn  Skiptar skoðanir hjá fyrrverandi forsetum Alþingis Morgunblaðið/Styrmir Kári Alþingi Halldór Blöndal og Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forsetar Alþingis, eru gagnrýnir á störf stjórnarandstöð- unnar, en Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis 2009 til 2013, segir ástandið á þingi hvorki betra né verra en áður. Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Laugavegi 34 101 Reykjavík | Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N Jakki 29.900,- Buxur 14.900,- Atvinnuvegaráðuneytið, lands- nefnd UN Women á Íslandi, Sam- tök atvinnulífsins og Festa – mið- stöð um samfélagsábyrgð standa fyrir morgunfundi um jafnrétt- ismál á fimmtudag kl. 8-10 á Nauthóli undir yfirskriftinni: „Eru til karla- og kvennastörf?“ Þar verður rætt hvernig fyrirtæki hafa náð að brjótast út úr hefð- bundinni kynjaskiptingu í störfum. Fundurinn er ætlaður stjórn- endum og öðrum sem áhuga hafa á auknu jafnrétti í íslensku við- skiptalífi. Á fundinum segja stjórnendur Rio Tinto Alcan og Orkuveitu Reykjavíkur, frá því hvernig unnið er að jafnrétti í fyrirtækjunum og hvaða leiðir séu færar til að jafna kynjahlutfall í störfum. Sigurður Snævarr hagfræðingur erindi um niðurstöður rannsóknar um kyn- bundinn launamun. Fundarstjóri er Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA. Á fundinum veitir Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og við- skiptaráðherra Hvatningar- verðlaun jafnréttismála. Eru til karla- og kvennastörf?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.