Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 13

Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þórður Almar Björnsson, komst í hann krappan þegar trillubátur hans, Herkúles SH 147, sökk skammt utan Hellissands í Breiða- firði þann 19. maí. Björgunarbátur sem var um borð opnaðist ekki og var Þórður í sjónum án flotgalla í um fimmtán mínútur áður en honum var bjargað um borð í Ólaf Bjarnason SH 137. „Ég var búinn að vera á veiðum í brælu en svo kom blíða í einn og hálfan til tvo tíma. Ég náði að klára veiðiskammtinn en svo kom bölvuð bræla þegar ég var á leið til baka,“ segir Þórður. Komst ekki í flotgallann Hann segir að mikill sjór hafi gengið yfir bátinn og því fór hann hægt, á um 4-5 sjómílna hraða, í átt til hafnar. Hann setti dælur í gang til þess að losa sjó úr bátnum. „Svo rýkur hitamælirinn upp á vélinni hjá mér og það er engu líkara en það sé að sjóða á vélinni. Því drep ég á henni og fer niður í vél en sé um leið að það er ekkert að sjóða þar. Lík- lega var mælirinn bilaður,“ segir Þórður. Um þetta leyti var vél- arrýmið orðið hálffullt af sjó og því tók Þórður að dæla vatni með hand- virkri dælu. „Svo var kominn það mikill sjór í bátinn að handpressan gat ekki dregið loft og þá þurfti ég að hætta að dæla. Ég fór þá í stýr- ishús, fann flotgalla og reyndi að koma mér í hann. En það eru svo þröngir vettlingar á gallanum að ég komst ekki í hann. Þá fékk ég fregn- ir af því að Ólafur Bjarnason ætlaði að sigla til mín. Ég fór úr gallanum til að halda áfram að ausa úr bátnum en sá fljótlega að báturinn var farinn að hallast.“ „Kippti og kippti í fangalínuna“ „Þá vissi ég að ég væri að fara að missa bátinn niður og hljóp inn í stýrishús til að troða mér í gallann. En um leið snerist báturinn upp á rönd og stefnið var það eina sem stóð upp úr. Ég var því kominn á kaf inni í stýrishúsi og því var ekkert að gera annað en að berjast út.“ Í framhaldinu náði hann að losa björgunarbátinn. „Ég kippti og kippti í fangalínuna en ekkert gerð- ist. Báturinn opnaðist ekki,“ segir Þórður. Hafið var erfitt viðureignar og Þórður saup mikinn sjó. Hann reyndi að spyrna fótum í kassann til að toga og losa björgunarbátinn en allt kom fyrir ekki. „Því notaði ég kassann og reyndi að hanga á hon- um til þess að geta verið á floti,“ seg- ir Þórður. „Ég reyndi að komast upp á kassann en ég er þyngri en kassinn og hann snérist bara þegar ég reyndi,“ segir Þórður. Hann segist hafa barist um í sjónum í um fimm- tán mínútur áður en björg barst. „Ég var alveg búinn á því. Auðvitað var maður orðinn skelkaður, sér- staklega þar sem maður vissi að það var nokkuð langt í næsta bát. Ég reyndi að vera rólegur og hugsa um að halda mér á floti, maður ætti nátt- úrlega tvö börn heima og fleira í þeim dúr,“ segir hann. Þegar þeir tóku mig upp í Ólaf Bjarnason, þá var ég orðinn svo máttlaus að ég gat ekki staðið í fæturna og hrundi á dekkið,“ segir Þórður. Hann segist vera afar þakklátur „strákunum“ á Ólafi Bjarnasyni. „Þeir pökkuðu mér inn í teppi og héldu mér vakandi,“ segir Þórður. Þegar í land var komið var hann skoðaður af lækni áður en hann fór heim til að hvíla sig. „Ég fékk mér að borða, fór í bað og svaf meira og minna í tvo daga,“ segir Þórður. Spurður segist Þórður ekki smeykur við sjóinn eftir þessa lífsreynslu. „Helst langar mig að komast á sjó- inn sem fyrst,“ segir Þórður. Björgunarbáturinn opnaðist ekki  Þórður Almar Björnsson var 15 mínútur í sjónum án flotgalla  Reyndi að vera rólegur og hugsa um börnin  Báturinn skoðaður 7-10 dögum fyrir atvikið  Hrundi á dekkið þegar hann kom um borð Sjómaður Þórður Almar Björnsson. Bátur Þórðar, Herkúles SH-147, var um árs gamall að sögn hans. Var hann skoðaður viku til tíu dögum fyrir slysið. Skipverjar á Ólafi Bjarnasyni náðu kassanum, sem er utan um björgunarbát- inn, um borð. Var Þórði tjáð að ekki hefði átt að vera gerlegt að toga fangalínuna svo langt út án þess að báturinn opnaðist. „Maður veit ekki hvort gerð hafi verið mistök þegar bátnum var pakkað inn í skoðuninni, en það lítur þannig út,“ segir Þórður Báturinn var nýskoðaður MÖGULEGA GALLI Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is www.veislulist.is Skútan PINNAMATUR Pinnamatur Þú getur lesið allt um pinnamat og aðra rétti á heimasíðu okkar Pinnaborðin fyrirútskriftinaeruöllafgreiddá einnota veislufötumtilbúiðbeintáborðið. Val er umnokkrar útfærslur á pinnaborðum sem hægt er að sko ða á heimasíðu okkar ásamt útskriftartertum . FYRIR ÚTSKRIFTINA Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvað a tíma dags veislan er og hversu lengi hún á að standa. Vinsælt fy ri útskriftarveisluna er tíu eininga pinnaborð og fá útskriftartertum eð. Feðgar Þórður með sonum sínum, Bjarna og Hektori Inga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.