Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þórður Almar Björnsson, komst í
hann krappan þegar trillubátur
hans, Herkúles SH 147, sökk
skammt utan Hellissands í Breiða-
firði þann 19. maí. Björgunarbátur
sem var um borð opnaðist ekki og
var Þórður í sjónum án flotgalla í um
fimmtán mínútur áður en honum var
bjargað um borð í Ólaf Bjarnason
SH 137. „Ég var búinn að vera á
veiðum í brælu en svo kom blíða í
einn og hálfan til tvo tíma. Ég náði
að klára veiðiskammtinn en svo kom
bölvuð bræla þegar ég var á leið til
baka,“ segir Þórður.
Komst ekki í flotgallann
Hann segir að mikill sjór hafi
gengið yfir bátinn og því fór hann
hægt, á um 4-5 sjómílna hraða, í átt
til hafnar. Hann setti dælur í gang til
þess að losa sjó úr bátnum. „Svo
rýkur hitamælirinn upp á vélinni hjá
mér og það er engu líkara en það sé
að sjóða á vélinni. Því drep ég á
henni og fer niður í vél en sé um leið
að það er ekkert að sjóða þar. Lík-
lega var mælirinn bilaður,“ segir
Þórður. Um þetta leyti var vél-
arrýmið orðið hálffullt af sjó og því
tók Þórður að dæla vatni með hand-
virkri dælu. „Svo var kominn það
mikill sjór í bátinn að handpressan
gat ekki dregið loft og þá þurfti ég
að hætta að dæla. Ég fór þá í stýr-
ishús, fann flotgalla og reyndi að
koma mér í hann. En það eru svo
þröngir vettlingar á gallanum að ég
komst ekki í hann. Þá fékk ég fregn-
ir af því að Ólafur Bjarnason ætlaði
að sigla til mín. Ég fór úr gallanum
til að halda áfram að ausa úr bátnum
en sá fljótlega að báturinn var farinn
að hallast.“
„Kippti og kippti í fangalínuna“
„Þá vissi ég að ég væri að fara að
missa bátinn niður og hljóp inn í
stýrishús til að troða mér í gallann.
En um leið snerist báturinn upp á
rönd og stefnið var það eina sem
stóð upp úr. Ég var því kominn á kaf
inni í stýrishúsi og því var ekkert að
gera annað en að berjast út.“
Í framhaldinu náði hann að losa
björgunarbátinn. „Ég kippti og
kippti í fangalínuna en ekkert gerð-
ist. Báturinn opnaðist ekki,“ segir
Þórður.
Hafið var erfitt viðureignar og
Þórður saup mikinn sjó. Hann
reyndi að spyrna fótum í kassann til
að toga og losa björgunarbátinn en
allt kom fyrir ekki. „Því notaði ég
kassann og reyndi að hanga á hon-
um til þess að geta verið á floti,“ seg-
ir Þórður. „Ég reyndi að komast upp
á kassann en ég er þyngri en kassinn
og hann snérist bara þegar ég
reyndi,“ segir Þórður. Hann segist
hafa barist um í sjónum í um fimm-
tán mínútur áður en björg barst.
„Ég var alveg búinn á því. Auðvitað
var maður orðinn skelkaður, sér-
staklega þar sem maður vissi að það
var nokkuð langt í næsta bát. Ég
reyndi að vera rólegur og hugsa um
að halda mér á floti, maður ætti nátt-
úrlega tvö börn heima og fleira í
þeim dúr,“ segir hann. Þegar þeir
tóku mig upp í Ólaf Bjarnason, þá
var ég orðinn svo máttlaus að ég gat
ekki staðið í fæturna og hrundi á
dekkið,“ segir Þórður.
Hann segist vera afar þakklátur
„strákunum“ á Ólafi Bjarnasyni.
„Þeir pökkuðu mér inn í teppi og
héldu mér vakandi,“ segir Þórður.
Þegar í land var komið var hann
skoðaður af lækni áður en hann fór
heim til að hvíla sig. „Ég fékk mér að
borða, fór í bað og svaf meira og
minna í tvo daga,“ segir Þórður.
Spurður segist Þórður ekki smeykur
við sjóinn eftir þessa lífsreynslu.
„Helst langar mig að komast á sjó-
inn sem fyrst,“ segir Þórður.
Björgunarbáturinn opnaðist ekki
Þórður Almar Björnsson var 15 mínútur í sjónum án flotgalla Reyndi að vera rólegur og hugsa
um börnin Báturinn skoðaður 7-10 dögum fyrir atvikið Hrundi á dekkið þegar hann kom um borð
Sjómaður Þórður Almar Björnsson.
Bátur Þórðar, Herkúles SH-147,
var um árs gamall að sögn hans.
Var hann skoðaður viku til tíu
dögum fyrir slysið. Skipverjar á
Ólafi Bjarnasyni náðu kassanum,
sem er utan um björgunarbát-
inn, um borð. Var Þórði tjáð að
ekki hefði átt að vera gerlegt að
toga fangalínuna svo langt út án
þess að báturinn opnaðist.
„Maður veit ekki hvort gerð hafi
verið mistök þegar bátnum var
pakkað inn í skoðuninni, en það
lítur þannig út,“ segir Þórður
Báturinn var
nýskoðaður
MÖGULEGA GALLI
Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
www.veislulist.is Skútan
PINNAMATUR
Pinnamatur
Þú getur lesið allt um pinnamat
og aðra rétti á heimasíðu okkar
Pinnaborðin fyrirútskriftinaeruöllafgreiddá
einnota veislufötumtilbúiðbeintáborðið. Val
er umnokkrar
útfærslur á pinnaborðum sem hægt er að sko
ða á heimasíðu okkar ásamt útskriftartertum
.
FYRIR ÚTSKRIFTINA
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvað
a tíma dags veislan
er og hversu lengi hún á að standa. Vinsælt fy
ri útskriftarveisluna er
tíu eininga pinnaborð og fá útskriftartertum
eð.
Feðgar Þórður með sonum sínum, Bjarna og Hektori Inga.