Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 15

Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Klausturbleikja Heitur matur í hádeginuStór nýr humar Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Glæný lúða Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Orkuveita Reykjavíkur stendur í framkvæmdum í Borgartúni þar sem verið er að skipta um holræsi til að undirbúa starfsemi risahótels og íbúðarbyggingar sem til stendur að reisa á Höfðatorgsreit. „Verið er að leggja tvöfalt holræsi þar sem áður var einfalt. Klóakið er haft sér en yfirborðsvatnið fer í annað kerfi,“ segir Ámundi Brynjólfsson á mannvirkjastofu Reykjavíkur- borgar. Að hans sögn þarf fyrir vikið að grafa niður á milli Borgar- túns og Katrínartúns, sem áður hét Skúlagata. „Síðan verður framhald af þessari lögn út Borgartúnið í brunn á Snorrabraut. Það er verk- efni sem Orkuveitan fer í eftir að þessum framkvæmdum lýkur,“ seg- ir Ámundi. Að sögn hans verður nokkurt rask meðan á fram- kvæmdum stendur. „Búast má við tímabundnum lokunum,“ segir Ámundi. Hótelið verður 16 hæðir auk þess sem íbúðarturninn, sem Eykt hyggst byggja, er 12 hæðir. Framkvæmdalok í júní Að sögn Ámunda er kostnaður- inn við nýjar holræsalagnir í Þór- unnartúni um 20 milljónir króna. Framkvæmdir eru langt komnar og í framhaldinu verður malbikað og gengið frá götunni. Búist er við að þeim verði að mestu leyti lokið þegar nýja hótelið verður opnað í júní. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýtt hótel Lögð hafa verið ný holræsi til að þjóna nýjum byggingum. Ný holræsi fyrir nýjar byggingar  Tímabundnar lokanir í Borgartúni Kennarar við Tækniskólann hafa lýst vantrausti á forystu og samn- inganefnd Félags framhaldsskóla- kennara (FF) og vilja að hún segi af sér svo hægt sé að endurnýja traust milli félagsmanna FF í Tækniskól- anum og forystu FF. Þetta var samþykkt á félagsfundi kennaranna í síðustu viku. Kennarar við Tækniskólann hafa nú í tvígang fellt vinnumatið sem samið var um sem hluta af kjarasamningi fram- haldsskólakennara og gagnrýna harðlega útfærslu þess í samningi FF og ríkisins. Félagsmenn FF í Tækniskólanum eru um 160 talsins og eru þeir samn- ingslausir í dag að sögn Benedikts Kristjánssonar, formanns Félags kennara við Tækniskólann. KÍ komi að lausn málsins Á félagsfundinum var þess jafn- framt krafist að formaður og stjórn KÍ komi með beinum hætti að lausn málsins enda hafi formaður ásamt samninganefnd FF lýst sig vanhæf- an og sagt sig fá samningsgerðinni. „Það er komið upp vantraust á milli okkar og forystunnar í FF,“ segir Benedikt. Hann segir kennur- unum ekki hugnast ríkissamningur- inn sem gerður var í framhaldsskól- um en Tækniskólinn er einkaskóli. Ástæðan er fyrst og fremst útfærsla vinnumatsins sem kemur mjög illa með beinum hætti við 70-80% kenn- ara við Tækniskólann að sögn hans. Kennararnir við skólann felldu vinnumatið í febrúar sl. og var samn- ingurinn síðan aftur borinn undir at- kvæði eftir að gerðar höfðu verið breytingar á honum en kennararnir við Tækniskólann felldu hann líka með miklum meirihluta. „Hann var óbreyttur að mestu leyti,“ segir Benedikt um samning- inn. „Hann kemur mjög illa niður á skóla eins og okkar. Segja má að hann sé klæðskerasniðinn að stærri bóknámsskólum en verknámsskólar koma mjög illa út úr þessu,“ segir hann. Benedikt segir að hálfgerð patt- staða sé í málinu í dag og óvíst um framhaldið en kennararnir vilji að KÍ finni á því lausn. Vilja að forysta FF segi af sér  Kennarar Tækniskólans samningslausir Morgunblaðið/Eggert Tækniskólinn Kennarar lýsa van- trausti á forystu FF í ályktun. Magnús Hlini Víkingur Magn- ússon flug- maður segist vera orðinn góð- ur til heilsunnar og næstum al- veg búinn að jafna sig. Magn- ús var flug- maður vélar sem hafnaði í sjónum við Mosfellsbæ fyrir hálf- um mánuði. „Heilsan er góð, ég er eiginlega alveg búinn að jafna mig. Þarf bara að fara varlega með öxlina. Ég er byrjaður að vinna aftur sem bílstjóri og treysti mér alveg í að fara að fljúga aftur þótt ég sé ekki búinn að því ennþá. Það hefur bara ver- ið svo leiðinlegt veður und- anfarið,“ segir Magnús. Vélin lenti á hvolfi í vatninu og þurfti Magnús að brjóta sér leið út um hlið vélarinnar. Hann fór úr axlarlið og hlaut marga minni áverka en engu að síður kom hann sér á land og ber sig nú vel. Hann segist hafa upplifað and- legt áfall sem þó hafi ekki mikil áhrif á hann í dag. Magnús telur hæfni sína til að fljúga ekki hafa raskast við slysið en hann var í góðu formi fyrir það og duglegur í líkamsrækt. Telur hann það hafa hjálpað til við batann. brynjadogg@mbl.is Náð góðum bata á tveim- ur vikum  Stefnir á flugferð við fyrsta tækifæri Magnús Hlini Vík- ingur Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.