Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 18

Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 18
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Búist er við því að innleiðing breyt- inga á alþjóðlegum reikningsskila- stöðlum, svokallaðra IFRS 9 reglna er varða útlánaáhættu bankastofn- ana, muni hafa í för með sér hundraða millj- óna útgjöld fyrir hvern og einn ís- lensku viðskipta- bankanna. Hinar nýju reglur munu taka gildi í árs- byrjun 2018. „Ég myndi halda að kostn- aður við innleiðingu bankanna gæti hlaupið á hundruðum milljóna króna. Það mun í raun enginn geta slegið á endanlegan kostnað fyrr en búið er að finna út úr því hvernig eigi að leysa þetta kerfislega og að hversu miklu leyti verði hægt að leysa þetta með fólki innanhúss og hversu mikil aðkeypta þjónustan verður,“ segir Signý Magnúsdóttir, IFRS-sérfræð- ingur og eigandi hjá Deloitte. End- urskoðunarfyrirtækið hefur nú birt niðurstöðu alþjóðlegrar bankakönn- unar sem það hefur framkvæmt ár- lega frá árinu 2011 og þar kemur í ljós að áætlaður kostnaður við inn- leiðingu staðalsins hefur tvöfaldast frá því að könnunin var síðast gerð árið 2014. Signý segir að þessar fréttir bendi til þess að bankaþjón- usta verði dýrari fyrir vikið. „Vaxta- kostnaður gæti farið upp og kostn- aður aukist fyrir neytendur, þ.e. viðskiptavini bankanna,“ segir hún. Könnunin er gerð meðal 59 er- lendra banka og fjármálastofnana sem allar teljast stórar á evrópskan mælikvarða og af þeim eru 17 taldar kerfislega mikilvægar. Íslenskar fjármálastofnanir hafa ekki verið hluti af úrtakinu. Meðal þess sem Signý segir að muni hafa áhrif á þann kostnað sem hljótast muni af innleiðingunni er hversu mikla sérfræðiþekkingu verði hægt að sækja innanlands. Nú um mundir eru fáir sem hafa yfir- gripsmikla þekkingu á þessum þætti alþjóðlegra reikningsskila. „Svo er spurning með tæknilega sérþekk- ingu á virðisrýrnunarlíkaninu sem fylgir nýja staðlinum. Þar tel ég að bankarnir þurfi án nokkurs vafa að sækja sérþekkingu til annarra landa,“ segir Signý. Í fyrrnefndri könnun kemur fram að 60% fjár- málastofnana telja sig ekki hafa yfir að ráða nægum fjölda starfsfólks til að ljúka við innleiðingu IFRS 9 og 25% þeirra hafa einnig efasemdir um að nægjanlega margir hæfir einstak- lingar séu á markaðnum sem hægt verði að ráða til þess að ljúka henni. Niðurfærsla útlánasafna Flestar þeirra fjármálastofnana sem tóku þátt í könnun Deloitte telja að hinar nýju reglur muni leiða til þess að niðurfærsla lánasafna muni aukast um 50%. Signý segir að það ráðist af nýrri nálgun á mat útlána- áhættunnar. „Í dag er mat lagt á það tap sem nú þegar hefur orðið. Nýi staðallinn gerir ráð fyrir því að mat sé lagt á það tap sem muni geta átt sér stað, jafnvel út allan líftíma eign- anna – það mun t.d. hafa mikil áhrif í kerfi þar sem verið er að veita lán til 40 ára. Ég geri mér ekki almennilega grein fyrir því hvaða áhrif þetta mun hafa en það er hægt að fullyrða að áhrifin verði töluverð. Í nýja kerfinu verður meira að segja að leggja mat á þá áhættu sem geti myndast á tapi handbærs fjár og það hefur aldrei verið gert áður,“ segir Signý, en Deloitte hyggst standa fyrir ráð- stefnu um hinar nýju reglur í næstu viku. Eftirlitið er stefnumarkandi Um 40% þeirra sem tóku þátt í könnuninni töldu að eftirlitsaðilar á fjármálamarkaði mundu hafa mest áhrif á túlkun reglnanna. Signý segir að búast megi við því að svo verði hérlendis. Þannig muni það ráða hvaða nálgun Fjármálaeftirlitið taki á reglurnar og hversu þröngt eða vítt þær verði túlkaðar. „Aðkoma Fjármálaeftirlitsins í tengslum við innleiðingu á IFRS 9 getur haft áhrif á þær forsendur sem horft er til í innleiðingarferlinu.“ Nýtt mat á útlánaáhættu kostar hundruð milljóna  Innleiðing nýrra IFRS-reglna gæti haft áhrif á kostnað viðskiptavina bankanna Signý Magnúsdóttir Samsett mynd/Eggert Endurskoðun Bankarnir munu meðal annars þurfa að leita ráðgjafar frá útlöndum við innleiðingu reglnanna. 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is                                    !"#$ "%$ %#!! $ #  "# !## " ## $$ &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 #! !"$$ "#% %$" $ %# !"# "%#% #$  %  !"#! "%! %$  $#  " !# "! #$%$ $ %!# Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnu- lífsins og Nasdaq Iceland hafa gefið út leiðbeiningar um stjórnarhætti fyr- irtækja í fimmta skipti en fyrsta útgáfa leiðbeininganna kom út árið 2004. Tals- verðar breytingar hafa verið gerðar á leiðbeiningunum frá fjórðu útgáfu. Í end- urskoðunarferlinu var lögð áhersla á að gera leiðbeiningarnar skýrari og notendavænni með almennum breyt- ingum á formi, uppsetningu og orðalagi. Þá hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum í takt við ábendingar frá notendum leið- beininganna. Að lokum hafa tilmæli leið- beininganna verið endurskoðuð með það að markmiði að þær henti íslensku at- vinnulífi sem best en séu á sama tíma í samræmi við alþjóðlega staðla og þróun. Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja ● Fjármála- og efnahagsráðherra und- irritaði í gær samning við Bandaríkin um regluleg og gagnkvæm upplýs- ingaskipti vegna fjármálastofnana. Er það gert á grundvelli hinna svokölluðu FATCA laga í Bandaríkjunum frá 2010. Samkvæmt þeim ber öllum erlendum fjármálastofnunum að senda árlega upplýsingar um tekjur og eignir banda- rískra skattgreiðenda til bandarískra skattyfirvalda. Samningsaðilar munu skiptast á upplýsingum um skattgreið- endur, bæði einstaklinga og fyrirtæki. Samið um skattaupp- lýsingar við Bandaríkin STUTTAR FRÉTTIR ... Greiningardeildir viðskiptabank- anna þriggja gera allar ráð fyrir því að verðbólga aukist nokkuð milli mánaða nú þegar Hagstofa Íslands birtir mælingar sínar á vísitölu neysluverðs síðar í vikunni. Þannig gerir Landsbankinn ráð fyrir því að vísitalan hækki um 0,2% sem leiðir til þess að ársverðbólgan fari úr 1,4% í 1,6%, Íslandsbanki gerir ráð fyrir 0,3% hækkun vísitölunnar og sú spá mun að sögn bankans einnig valda því að ársverðbólgan færist í 1,6%. Arion banki gerir ráð fyrir meiri hækkun eða 0,4% en verði sú spá að veruleika mun ársverðbólgan mæl- ast 1,7%. Allir gera bankarnir ráð fyrir því að hækkun bensínverðs vegi þyngst þegar kemur að mati á breytingu vísitölunnar. Sem fyrr gerir Arion banki ráð fyrir mestri hækkun elds- neytisverðsins frá aprílmælingum eða 2,8% en Íslandsbanki og Lands- bankinn gera ráð fyrir 2,4-2,5% hækkun þess. Þá gera bankarnir ráð fyrir nokkurri hækkun á húsnæðislið vísitölunnar en verkfall lögfræðinga hjá Sýslumanninum í Reykjavík set- ur nokkurt strik í reikninginn því ekki hefur verið mögulegt að þing- lýsa kaupsamningum á undanförn- um vikum. Landsbankinn segir í spá sinni að þegar verkfallið leysist megi búast við nokkuð skarpri hækkun vísitölu neysluverðs þegar þinglýs- ingar komist í fullan gang að nýju. Þó spárnar séu keimlíkar á flest- um sviðum ber nokkuð í milli þegar litið er til þróunar flugfargjalda. Þannig gerir Arion banki ráð fyrir 4,4% hækkun milli mánaða en Ís- landsbanki gerir ráð fyrir 1,4% lækkun. Landsbankinn gerir hins vegar ráð fyrir því að lítil sem engin breyting verði á verðlagningu þess- arar þjónustu milli mánaða. Morgunblaðið/Kristinn Verðbólga Dropinn er dýrari í maí en í apríl og það hefur áhrif á spár. Bankar spá 1,6% til 1,7% verðbólgu  Verkfall lög- fræðinga setur strik í reikninginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.