Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.
Ashgabat. AFP. | Stjórnvöld í Mið-
Asíuríkinu Túrkmenistan hafa af-
hjúpað stóra gullstyttu af forseta
landsins, Gúrbangúlí Berdymúk-
hamedov. Styttan bendir til þess að
ekkert lát sé á leiðtogadýrkuninni
sem hefur einkennt forsetatíð hans
og forvera hans, Saparmúrat Níja-
zov, sem nefndur var „Túrkmen-
basi“, eða „Faðir allra Túrkmena“.
Nýja styttan er sex metra há, úr
bronsi og húðuð með 24 karata gulli.
Hún stendur á um fimmtán metra
háum marmarastalli í miðborg
Ashgabat. Styttan nefnist „Verndar-
inn“ og sýnir forsetann ríða eftir-
lætisgæðingnum sínum, Akkan, og
halda á dúfu með hægri hendi.
Berdymúkhamedov er fyrrver-
andi tannlæknir og komst til valda
eftir að Túrkmenbasi dó úr hjarta-
áfalli árið 2006. Áður hafði verið
reist stór gullstytta af Túrkmenbasi
sem snýst á stalli sínum allan lið-
langan daginn þannig að andlit hans
horfir alltaf við sólu. Nokkrum árum
eftir að Túrkmenbasi dó var styttan
flutt úr miðborg Ashgabat í eitt af
úthverfum höfuðborgarinnar.
Valdaskeið Túrkmenbasi ein-
kenndist af skefjalausri leiðtoga-
dýrkun, harðstjórn og skringilegum
uppátækjum. Nöfnum vikudaga og
mánaða var breytt og þeir nefndir
eftir leiðtoganum sjálfum, móður
hans og ættingjum. Helsta rit for-
setans, Rúkhnama (Bók andlegrar
göfgi), var gert að skyldunámsefni á
öllum skólastigum og börn þurftu að
læra hana utanbókar.
Sveik loforð um umbætur
Eftir að Berdymúkhamedov
komst til valda hét hann því að koma
á lýðræðislegum umbótum. Í stað
þess að standa við loforðið hefur for-
setinn haldið í strangt eftirlit með
borgurunum og bann við stjórnar-
andstöðuflokkum. Dýrkunin á Túrk-
menbasi vék fyrir dýrkun á Berdy-
múkhamedov sem var endurkjörinn
forseti í febrúar 2012 með 97,14% at-
kvæða.
Litið er á hvers konar gagnrýni á
stjórnvöldin sem tilraun til að grafa
undan ríkinu – glæp sem varðar 25
ára fangelsi. Andstæðingar stjórnar-
innar eru vændir um föðurlandssvik
og hafa annaðhvort verið dæmdir í
fangelsi eða reknir í útlegð.
Túrkmenistan hefur verið eitt af
einangruðustu ríkjum heims frá því
að það var stofnað eftir hrun Sov-
étríkjanna árið 1991. Ríkisvaldið
stjórnar öllum fjölmiðlum landsins
og almenningur hefur ekki aðgang
að erlendum fjölmiðlum. Yfirvöldin
hafa einnig strangt eftirlit með net-
notkun landsmanna.
Reist „vegna fjölda áskorana“
Nýja styttan var afhjúpuð á
mánudag, á hátíðisdegi sem tileink-
aður er höfuðborg landsins. Forseti
þingsins, Akdja Nurberdieva, sagði
að ákveðið hefði verið að reisa stytt-
una „vegna fjölda áskorana frá
venjulegu fólki, samvinnufélögum og
opinberum stofnunum“ til að þakka
forsetanum „fyrir þjónustu hans við
föðurlandið“.
„Við ættum öll að þakka almætt-
inu fyrir þá staðreynd að landið okk-
ar er undir stjórn viturs stjórnskör-
ungs, Verndarans,“ sagði Núralí
Gurbanov, 75 ára eftirlaunaþegi, við
fréttamann AFP þegar styttan var
afhjúpuð.
„Minnismerkið um Verndar-
ann-hetjuna varðveitir að eilífu
minninguna um blómaskeið túrk-
menska ríksins,“ sagði Annadurdí
Almamedov, prófessor við Listaaka-
demíu Túrkmenistans. „Við erum
núna vitni að þessu dýrðlega skeiði í
sögunni.“ bogi@mbl.is
AFP
Verndarinn Stytta af forseta Túrkmenistans, Gúrbangúlí Berdymúkhamedov, afhjúpuð í höfuðborginni Ashgabat.
Gullstytta reist til
dýrðar forsetanum
Ekkert lát á leiðtogadýrkuninni í Túrkmenistan
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Um miðjan september rennur fjög-
urra ára kjörtímabil stjórnar Helle
Thorning-Schmidt forsætisráðherra
út í Danmörku og miklar vangavelt-
ur voru í gær um að hún myndi boða
kosningar fyrir tímann eða í júní.
Það sem mælir líka með júní er að
ella yrði í reynd hafin gríðarlega
löng kosningabarátta sem stæði
fram í september, maraþon-barátta í
tvo og hálfan mánuð.
Fyrri tímasetningin gæti virst
álitlegri fyrir Thorning vegna þess
að greinileg batamerki eru nú í efna-
hagnum eftir nokkur mögur ár.
Thorning kynnti í gær nýjar tillögur
um stóraukin útgjöld til velferðar-
mála og segir fréttaskýrandi Berl-
ingske Tidende að um hreinræktaða
kosningabeitu sé að ræða.
Danskar ríkisstjórnir hafa síðustu
áratugina verið samsteypustjórnir.
Thorning, fyrsti forsætisráðherrann
úr röðum kvenna í sögu landsins,
myndaði stjórn 2011 með Sósíalíska
þjóðarflokknum, SF og flokki Rad-
íkala, RV, sem er miðjuflokkur.
Einnig naut stjórnin að jafnaði
stuðnings Rauðgrænu fylkingarinn-
ar á þingi þar til í febrúar 2013.
Enn syrti í álinn ári síðar þegar
SF yfirgaf stjórnina til að mótmæla
sölu á hlutabréfum í ríkisorkufélag-
inu DONG til fjármálarisans banda-
ríska, Goldman Sachs. Flokkurinn
varði þó stjórnina falli á þingi.
Vinstrimenn lægri í skoð-
anakönnunum
Vinstriflokkarnir, Rauða blokkin
svonefnda, hafa í síðustu könnunum
um 48% stuðning, Bláa blokkin,
hægriflokkarnir, 52% sem gæti bent
til stjórnarskipta eftir kosningar. Í
síðustu þingkosningum fengu jafn-
aðarmenn verstu útreið sína í meira
en öld, Venstre fékk þá 47 þingsæti
en jafnaðarmenn aðeins 44. Fyrst og
fremst hefur það verið Venstre, sem
er miðju-hægriflokkur, þrátt fyrir
nafnið, sem keppt hefur við jafnaðar-
menn um forystuna en ljóst er nú að
Danski þjóðarflokkurinn, DF, getur
vel blandað sér í þá baráttu.
Ný könnun bendir til að jafnaðar-
menn verði aftur stærsti flokkurinn,
fái um 26% en Venstre og DF fái
hvor um sig tæp 20%. Traust al-
mennings í garð forsætisráðherrans
hefur aukist, fleiri álíta hana nú vera
heppilegri leiðtoga en Lars Løkke
Rasmussen, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og leiðtoga Venstre. Hann
hefur þurft að kljást við ýmis spill-
ingarmál sem þykja benda til að
dómgreindin sé ekki ávallt góð.
Í snarpri kosningabaráttu gæti
þessi þróun dugað Thorning til sig-
urs. Kjósi hún samt að hika, bíða
fram á haustið segja stjórnmála-
skýrendur að áætlunin hljóti að
byggjast á einskærri von um að
hægrimenn lendi í alls kyns vanda í
sumar. Eða þá að kjósendur í sólbaði
verði skyndilega vinstrisinnaðri.
Á brattann
að sækja fyr-
ir Thorning
Vaxandi líkur taldar vera á þingkosn-
ingum í Danmörku í júní
AFP
Völ/kvöl Helle Thorning-Schmidt,
forsætisráðherra Danmerkur.
Vonin um klofning
» Danski þjóðarflokkurinn er
gjarnan sagður hægriflokkur.
En hann höfðar einnig til
sumra jafnaðarmanna með
áherslu á velferðarútgöld og
hertri innflytjendastefnu.
» Venstre vill hafa hemil á rík-
isútgjöldum. Thorning gæti því
reynt að ýta undir deilur milli
hægriflokkanna og fá þannig
kjósendur til að hafna þeim.
Vísindamenn á
Nýja-Sjálandi
segja að nú séu
aðeins innan við
fimmtíu Maui-
höfrungar,
minnsta höfr-
ungategund í
heimi, eftir. Teg-
undin er í bráðri
útrýmingarhættu, m.a. vegna veiða
manna.
Nýjustu upplýsingar benda til
þess að aðeins 43-47 höfrungar séu
eftir og þar af aðeins 10-12 full-
orðin kvendýr. Barbara Mass frá
NABU-náttúruverndarsamtök-
unum segir að verði tegundin ekki
vernduð frekar deyi hún út á næstu
fimmtán árum.
Maui-höfrungarnir búa á grunn-
sævi við vesturströnd Norðureyjar
Nýja-Sjálands. Þeim stafar hætta af
lagnetum og togurum. Ríkisstjórn
landsins hefur gefið út olíuleitar-
leyfi á búsvæðum þeirra.
NÝJA-SJÁLAND
Minnstu höfrung-
arnir í hættu