Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 21

Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 21
Smáþjóðaleikarnir 1.-6. júní 2015 Nú líður að stóru stundinni, setningarhátíð Smáþjóðaleik- anna. Næstkomandi mánu- dagskvöld klukkan 19:30 verða Smáþjóðaleikarnir settir í Laug- ardalshöll. Um 600 erlendir keppendur koma til landsins og munu þeir ásamt 170 íslenskum keppendum keppa í ellefu íþróttagreinum þessa sex daga sem leikarnir standa. Þetta verður umfangsmesta íþróttamót sem haldið hefur verið á Íslandi. Til að menn átti sig betur á umfangi leikanna þá má nefna fleiri tölur: 1.200 sjálfboðaliðar taka þátt, 28.000 máltíðir verða bornar fram, yfir 10.000 gistinætur hafa verið pantaðar, rúmlega 700 medalíur verða afhentar og leikarnir munu velta milli 500– 600 milljónum króna. Fyrir íþróttalífið í landinu er ómetanlegt að fá leika af þessu tagi hingað til lands. Fyrir íþróttafólkið okkar er að sjálfsögðu afar mikilvægt að fá að keppa á heimavelli á sterku móti en ekki síður er dýrmætur sá lærdómur sem situr eftir hjá þeim stóra hópi fólks sem stendur að undirbúningi leik- anna og mótshaldinu sjálfu. Þá má ekki gleyma því að mót af þessu tagi leiðir jafnframt til þess að mannvirki og búnaður er færður að þeim alþjóðlegu kröfum sem við þurfum að starfa eftir. Smáþjóðaleikarnir munu því á margan hátt hafa jákvæð áhrif á íþróttalífið í land- inu til langs tíma. Smáþjóðaleikarnir eru þó ekki eingöngu mikilvægir fyrir íslensku íþróttahreyfinguna. Þeir eru einnig hvalreki fyrir alla landsmenn sem hafa áhuga á íþróttum og keppni. Keppt verður í ellefu keppnisgreinum; blaki, strandblaki, borðtennis, fimleikum, frjálsum, golfi, júdó, körfuknattleik, skotíþróttum, sundi og tennis. Það er því af nógu að taka fyrir íþróttaáhuga- fólk og vil ég hvetja alla til að mæta og njóta þess að fylgjast með skemmtilegri keppni. Íþróttafólkið okkar á skilið að fá öflugan stuðning á sínum heimavelli. Við erum að keppa með það að markmiði að ná sem bestum árangri og höfum í gegnum tíðina verið í harðri keppni um flest verðlaun á Smáþjóðaleikum. Hér á heima- velli ætlum við okkur ekkert annað en sigur í þeirri keppni. Gerum Smáþjóðaleikana að þjóðarleikum okkar og fjöl- skylduskemmtun. Þetta er eins- takt tækifæri til að leyfa ungu kynslóðinni að upplifa keppni á stórmóti og anda að sér því sérstaka andrúmslofti sem þar skapast. Leikarnir eru frábært tækifæri til að kynnast fjöl- breyttum íþróttagrein- um og fylgjast með afreksfólki á heimsmæli- kvarða keppa. Og það besta af öllu er að upp- lifunin kostar ekkert – aðgangur að öllum keppnum er ókeypis. Góðir Íslendingar, gerum næstu viku að gimsteini í safni minninganna, okkar og barn- anna okkar. Góðir Íslendingar Welcome to IT Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.