Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 22
16. Smáþjóðaleikarnir fara
fram í Reykjavík dagana 1. til 6.
júní 2015. Smáþjóðaleikar er
íþróttakeppni þar sem smá-
þjóðir etja kappi. Hugmyndin er
sú að slíkir leikar efli anda og
hugsjón ólympíuhreyfingarinnar
og treysti vináttubönd þjóðanna
sem keppa. Smáþjóðaleikar
voru fyrst haldnir í San Marínó
árið 1985 og hafa einu sinni
áður verið haldnir á Íslandi, en
það var árið 1997. Alls taka níu
þjóðir þátt í Smáþjóðaleikum
en auk Íslands eru það Lúxem-
borg, Andorra, Malta, Liech-
tenstein, San Marínó, Kýpur,
Mónakó og Svartfjallaland.
Smáþjóðaleikarnir eru stærsta
verkefni sem Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands hefur
tekið að sér. Búist er við að um
2.500 manns komi að leikunum
með einum eða öðrum hætti,
þar af 800 keppendur. Reiknað
er með um 25-30.000 áhorf-
endum.
Keppt verður í ellefu íþrótta-
greinum á leikunum, en það eru
áhaldafimleikar, blak, borð-
tennis, frjálsíþróttir, golf, júdó,
körfuknattleikur, skotíþróttir,
sund, strandblak og tennis.
Fimleikar og golf eru valgreinar
á leikunum 2015 og er það í
fyrsta skipti sem keppt verður í
golfi á Smáþjóðaleikum.
Laugardalurinn í hjarta Reykja-
víkur verður aðalvettvangur
leikanna þar sem allar ofan-
taldar greinar nema tennis,
golf og skotíþróttir fara fram í
mannvirkjum í dalnum. Keppni
í þeim íþróttagreinum fer fram
í Kópavogi, Grafarvogi og í
Álfsnesi.
Segja má að með öllum þeim
glæsilegu mannvirkjum sem
eru til staðar í Laugardalnum
hafi leikarnir á Íslandi ákveðna
sérstöðu þar sem hvergi meðal
þátttökuþjóðanna er mögulegt
að keppa í eins mörgum grein-
um á eins litlu svæði.
Íslenskt íþróttafólk mun vera
áberandi á leikunum, en Ísland
á 166 keppendur. Meðan á
leikunum stendur munu
íslensku þátttakendurnir hafa
bækistöð í Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal þar sem hægt er að
safna kröftum og undirbúa sig
fyrir komandi keppni.
Smáþjóðaleikar á Íslandi
Hönnunarteymi Smáþjóða-
leikanna 2015 samanstendur af
hönnuðunum og Ólympíuförun-
um Elsu Nielsen og Loga Jes
Kristjánssyni. Hönnunarteymið
hannar allt útlit leikanna, þar á
meðal merki leikanna, Blossa
lukkudýr, verðlaunapeninga
og myndaröðina „Náttúrulegur
kraftur“.
Smáþjóðaleikarnir 2015 eru
auglýstir á fallegum vegg-
spjöldum af íþróttafólki í
íslenskri náttúru. Við Íslendingar
erum hvað stoltust af náttúru
Íslands og íþróttafólkinu sem
við eigum. Við búum yfir stór-
fenglegri náttúru sem er í senn
einstaklega falleg og kröftug
og glímu okkar við náttúruöflin
þekkja allir vel. Hugmyndin á
bak við það að blanda saman
náttúrumyndum og íþróttafólki
er sú að sýna sameiginlegan
kraft íslensku náttúrunnar og
íþróttafólksins. Íþróttamyndirnar
fanga augað og færa íþrótta-
greinarnar á óvenjulega staði í
íslenskri náttúru en á sama tíma
þá fegurstu. Náttúrumyndirnar
hafa einnig beina skírskotun í
umhverfisvæna stefnu leikanna
og tengingu í merki leikanna
sem sýnir eldfjall, hálendisöldu,
grænan gróður, haf og ís.
Persónulegri umfjöllun um
íþróttafólkið sem situr fyrir á
myndunum hefur verið birt á
heimasíðu Smáþjóðaleikanna
2015, iceland2015.is undir
„Náttúrulegur kraftur“.
Náttúrulegur kraftur
Aðalvettvangur Smáþjóða-
leikanna 2015 er Laugar-
dalurinn, sem sumir kalla
„Ólympíuþorp“ okkar Íslend-
inga. Átta af ellefu íþróttagrein-
um munu fara fram í íþrótta-
mannvirkjum í Laugardalnum
og þátttakendur munu gista á
hótelum nálægt Laugardalnum.
Keppni í skotíþróttum mun
fara fram á tveimur stöðum, í
Íþróttahúsi ÍFR í Hátúni og á
skotsvæði Skotfélags Reykja-
víkur á Álfsnesi.
Keppni í golfi mun fara fram á
Korpuvelli á Korpúlfsstöðum.
Keppni í tennis mun fara fram í
Tennishöll Kópavogs.
Keppni í blaki og körfuknattleik
mun fara fram í Laugardalshöll.
Keppni í strandblaki mun fara
fram við Laugardalslaug.
Keppni í sundi mun fara fram í
innilaug Laugardalslaugar.
Keppni í frjálsíþróttum mun fara
fram á Laugardalsvelli.
Keppni í fimleikum og júdó
mun fara fram í Íþróttamiðstöð
Ármanns/Laugabóli.
Keppni í borðtennis mun fara
fram í TBR- húsinu.
Hægt er að lesa sér meira til
um íþróttagreinarnar sem
keppt er í og staðsetningar á
heimasíðu leikanna
www.iceland2015.is.
Íþróttamannvirki
Dagskrá Smáþjóðaleika
Mánudagur 1. júní Þriðjudagur 2. júní Miðvikudagur 3. júní Fimmtudagur 4. júní Föstudagur 5. júní Laugardagur 6. júní
Athletics / Frjálsíþróttir
Laugardalsvöllur Stadium Keppni (16:00-20:30) Keppni (16:00-20:00)
Basketball / Körfubolti LUX-MON (w) (14:30-16:30) MNE-AND (m) (14:30-16:30) ISL-LUX (w) (13:30-15:30)
Laugardalsholl Sports Hall LUX-MNE (m) (17:00-19:00) LUX-MLT (w) (17:00-19:00) ISL-MON (w) (17:00-19:00) LUX-AND (m) (17:00-19:00) ISL-MNE (m) (16:00-18:00)
ISL-MLT (w) (19:30-21:30) ISL-AND (m) 19:30-21:30 ISL-LUX (m) (19:30-21:30) MON-MLT (w) (19:30-21:30)
LIE-MON (m-A) (12:00-13:00) LUX-MON (m-A) (12:00-13:00) LIE-LUX (m-A) (12:00-13:00) 3A-3B (m) (12:00-13:00) BRONZE (m) (10:00-11:00)
CYP-SMR (m-B) (13:00-14:00) AND-SMR (m-B) (13:00-14:00) CYP-AND (m-B) (13:00-14:00) 1A-2B (m) (13:00-14:00) CYP-LIE (w) (11:00-12:00)
Beach Volleyball / Strandblak LUX-CYP (w) (14:00-15:00) LIE-MLT (w) (14:00-15:00) LUX-LIE (w) (14:00-15:00) 1B-2A (m) (14:00-15:00) MLT-LUX (w) (12:00-13:00)
Laugardalslaug Aquatic Center MLT-MON (w) (15:30-16:30) LUX-MON (15:30-16:30) CYP-MON (w) (15:30-16:30) MLT-CYP (w) (15:30-16:30) MON-ISL (w) (13:00-14:00)
AND-ISL (m-B) (16:30-17:30) CYP-ISL (m-B) (16:30-17:30) ISL-SMR (m-B) (16:30-17:30) MON-LIE (w) (16:30-17:30) Úrslit (m) (14:00-15:00)
LIE-ISL (w) (17:30-18:30) ISL-CYP (w) (17:30-18:30) ISL-MLT (w) (17:30-18:30) ISL-LUX (w) (17:30-18:30)
Golf / Golf
Korpa Golf Course
Artistic Gymnastics / Fimleikar
Laugaból Ármann Gymnastic Hall
Judo / Júdó Keppni (12:00-14:00) Keppni (12:00-14:00)
Laugaból Ármann Gymnastic Hall Keppni (18:00-20:30) Keppni (15:00-17:00)
Shooting / Skotfimi Skeet 75 targets (m)** Skeet 50 targets (m)**
*ÍFR Sports Hall (09:00-12:00) (09:00-14:00)
**Álfsnes Shooting Range Loftriffill (w)* (13:00-16:00) Loftskammbyssa (w)* (13:00-16:00) Prone 60 (09:00-12:30)**
Swimming / Sund Undanrásir (10:00-12:00) Undanrásir (10:00-12:00) Undanrásir (10:00-12:00)
Laugardalslaug Aquatic Center Úrslits (17:30-19:00) Úrslits (17:30-19:00) Úrslits (17:30-19:00) Úrslits (17:30-19:00)
Keppni (10:00-13:00) Keppni (10:00-12:30) Keppni (10:00-11:30) Keppni (10:00-11:00)
Table Tennis / Borðtennis Keppni (14:30-17:00) Keppni (13:00-14:30) Keppni (14:30-15:30) Keppni (12:30-14:00)
TBR Sports Hall Keppni (17:00-18:00) Keppni (15:00-16:30) Keppni (12:00-13:00)
Keppni (18:00-19:30 Keppni (19:00-20:00) Keppni (17:30-19:30)
Tennis / Tennis
Tennisholl Kopavogs
MON-SMR (m) (13:00-15:00) LUX-LIE (w) (13:00-15:00) LIE-SMR (w) (13:00-15:00) LIE-MNE (w) (12:00-14:00)
Volleyball / Blak LUX-MNE (w) (15:30-17:30) LUX-SMR (m) (15:30-17:30) LUX-MON (m) (15:30-17:30) LUX-SMR (w) (14:30-16:30)
Laugardalsholl Athletics Hall SMR-MNE (w) (18:00-20:00) SMR-ISL (w) (18:00-20:00) ISL-MNE (w) (18:00-20:00) LUX-ISL (w) (18:00-20:00)
ISL-LIE (w) (20:30-22:30) LUX-ISL (m) (20:30-22:30) MON-ISL (m) (20:30-22:30) SMR-ISL (m) (20:30-22:30)
Setningarhátíð Lokahátíð
19:30-21:00 20:00-23:00
Keppni (14:00-17:30)
Ceremonies / Hátíðir
Keppni (18:00-21:00)
Loftriffill (m) (09:00-13:00)* Loftskammbyssa (m) (09:00-13:00)*
1. umferð (09:00-15:00)
Keppni (16:00-21:30)
Keppni (10:00-13:00)Keppni (10:00-18:00)Keppni (10:00-18:00)Keppni (10:00-18:00)Keppni (10:00-18:00)
2. umferð (09:00-15:00) 3. umferð (09:00-15:00) 4. umferð (09:00-15:00)
Keppni (16:00-20:00)