Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Vilt þú vita hvers virði eignin þín er í dag? Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga! HRINGDU NÚNA 820 8080 Sylvía Löggiltur fasteignasali sylvia@fr.is Brynjólfur brynjolfur@fr.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stóru flokkarnir tveir á Spáni töp- uðu fylgi í kosningum til héraðsþinga og sveitarstjórna sem fram fóru á sunnudag og úrslitin bentu til þess að tveggja flokka kerfið í landinu væri á undanhaldi. Róttækur vinstri- flokkur, Podemos, og mið-hægri- flokkurinn Ciudadanos (Borgararn- ir) juku fylgi sitt á kostnað stóru flokkanna. Úrslitin eru álitin endur- spegla óánægju kjósenda vegna mik- ils atvinnuleysis, sem mælist nú 24%, sparnaðaraðgerða ríkisstjórnarinn- ar og ásakana um spillingu. Þjóðarflokkurinn (Partido Popul- ar, PP), undir forystu Marianos Rajoy forsætisráðherra, tapaði miklu fylgi og Sósíalistaflokknum tókst ekki að notfæra sér veika stöðu stjórnarflokksins. Flokkarnir tveir hafa skipst á um að stjórna Spáni síðustu áratugina en samanlagt fengu þeir aðeins 52% atkvæðanna. Í síðustu kosningum fyrir fjórum ár- um fengu þeir 65% samtals. Podemos er systurflokkur Syriza í Grikklandi og var stofnaður í fyrra, en mið-hægriflokkurinn Ciudadanos var stofnaður fyrir tveimur árum. Podemos varð þriðji stærsti flokkur- inn í tólf af þrettán héraðsþingum sem kosið var til á sunnudag. Ciu- dadanos varð hins vegar þriðji fylgismesti flokkurinn í kosningum til um 8.000 sveitarstjórna Spánar. Óvanir samsteypustjórnum Líklegt er að Ada Colou, borgar- stjóraefni hreyfingar sem nýtur stuðnings Podemos, verði borgar- stjóri Barcelona með stuðningi sósí- alista og tveggja katalónskra vinstri- flokka sem eru hlynntir aðskilnaði Katalóníu frá Spáni. Ahora Madrid, önnur hreyfing sem naut stuðnings Podemos, fékk 20 fulltrúa í borgarstjórn höfuð- borgarinnar, einum færri en Þjóðar- flokkurinn. Búist er við að Ahora Madrid myndi meirihluta með Sósí- alistaflokknum sem fékk níu fulltrúa. Stjórnmálaskýrendur telja að úr- slitin gefi forsmekkinn af því sem koma skal í næstu kosningum til spænska þingsins fyrir lok ársins. Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að þrír af hverjum fjórum Spán- verjum vilji helst að Þjóðarflokkur- inn eða Sósíalistaflokkurinn myndi samsteypustjórn með öðrum flokk- um eftir kosningarnar. Könnunin bendir til þess að spænskir kjósendur vilji að tveggja flokka kerfið víki fyrir samsteypu- stjórnum en stjórnmálaskýrendur telja að erfitt verði fyrir leiðtoga stjórnmálaflokkanna að laga sig að breytingunum vegna þess að lítil hefð er fyrir því á Spáni að flokkar deili völdunum með öðrum, með til- heyrandi málamiðlunum. „Sá flokk- ur sem fær flest atkvæði á Spáni lít- ur svo á að hann hafi fullan rétt til að stjórna, þótt hann hafi ekki hreinan meirihluta,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Jose Ignacio Torreblanca, spænskum prófessor í stjórnmála- fræði. KANTABRÍA NAVARRA KASTIL ÍA OG LEON EXTRE- MADURA KASTIL ÍA- LA MANCHA ANDALÚSÍA MÚRSÍA VALENSÍA ARAGÓN KATALÓNÍA FRAKKLAND PO RT Ú G A L MADRÍDA TL A N TS H A F Miðjarðarhaf ANDORRA ASTÚRÍAS BASKA- LAND Sevi l la Flokkar með flesta fulltrúa í héruðunum PP PSOE BALEAREYJAR Heimild: Spænska ríkisstjórnin Barcelona LA RIOJA KANARÍEYJAR BILDU PNVCiU Basknesk ir þjóðernis- s innar (v instr i ) Basknesk ir þjóðernis- s innar (hægri ) Katalónsk ir þjóðernis- s innar (hægri ) 150 km GALISÍA 64,93% Kjörsókn Ciudadanos Podemos og fleiri* 25,02 36,66% 6,55 27,05 4,72 Nýtt pólitískt landslag á Spáni (Borgararnir) (mið- og hægriflokkur) PP (Þjóðar- flokkurinn) Hægriflokkur Vinstri- flokkur Sósíalistar Izquierda Unida * Podemos (róttækur vinstriflokkur) varð þriðji stærsti flokkurinn í kosningum til héraðsþinga Kjörfylgi flokkanna í prósentum (umhverfis- verndarsinnar- kommúnistar) Tveggja flokka kerfið kvatt?  Stóru flokkarnir á undanhaldi á Spáni Læri að deila völdunum » Pablo Iglesias, leiðtogi vinstriflokksins Podemos, sagði eftir kosningarnar að tveggja flokka kerfið á Spáni heyrði sögunni til. » Albert Rivera, leiðtogi Ciu- dadanos, nýs mið-hægriflokks, tók í sama streng og sagði að spænsku flokkarnir þyrftu að læra að deila völdunum með öðrum. Eldgos hófst í Wolf-eldfjallinu á einni af Galapagos- eyjunum í fyrradag og óttast var að það gæti ógnað einstöku dýralífi eyjanna, meðal annars einu heim- kynnum bleikra Galapagos-landkembna (l. conolophus marthae). Þessi dýrategund, oft nefnd pink iguana á ensku, er í mikilli útrýmingarhættu. Vísindamenn Ga- lapagos-þjóðgarðsins sögðust þó í gær vera vongóðir um að eldgosið hefði ekki áhrif á bleiku kemburnar þar sem heimkynni þeirra væru ekki mjög nálægt eldfjall- inu. Þetta er í fyrsta skipti í 33 ár sem eldfjallið gýs en það er ekki talið ógna mannabyggð á eyjunum. Galapagos-eyjaklasinn er um þúsund kílómetra vest- ur af ströndum Ekvadors. Eyjarnar eru á heims- minjaskrá UNESCO, Menningarmálastofnunar Sam- einuðu þjóðanna. Sá mikli fjölbreytileiki í dýralífi sem þar er að finna varð Charles Darwin meðal annars inn- blástur að þróunarkenningunni. Wolf-eldfjallið er nyrst á Ísabellueyju, stærstu eyju eyjaklasans. Það er 115 kílómetra frá Puerto Villamil, einu mannabyggðinni á eyjunni. Engir ferðamenn voru í hættu og eldgosið raskaði ekki ferðaþjónustunni á eyjunum, að sögn þjóðgarðsvarða. Sameinuðu þjóðirnar hafa áður varað við því að líf- ríki eyjanna sé í hættu vegna vaxandi ágangs ferða- manna og framandi tegunda sem hafa sest að þar. Eldfjall á Galapagos-eyjum gýs í fyrsta skipti í 33 ár AFP Hafa áhyggjur af dýralífinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.