Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 26

Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon David Came-ron, for-sæt- isráðherra Bretlands, mætti sigri hrósandi á leiðtogafund Evr- ópusambandsins í Lettlandi um helgina eftir hinn óvænta kosningasigur sinn í upphafi mánaðarins. Sagðist hann þar vera bjartsýnn á að sér myndi takast að semja um breytingar á stofnsáttmálum Evrópusam- bandsins, og leggja þá samn- inga fyrir bresku þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu líkt og lofað var, með þeim formerkj- um að segðu Bretar nei myndu þeir hverfa úr Evrópusam- bandinu. Það loforð átti enda einna stærstan þátt í því að tryggja Íhaldsflokknum hinn óvænta sigur í þingkosning- unum nýafstöðnu. Loforðið á rót sína í því að efasemdir bresks almennings um gagnsemi Evrópusam- bandsins hafa aukist jafnt og þétt á síðustu árum. Kveður nú svo rammt að þeim að Har- riet Harman, hinn tímabundni leiðtogi Verkamannaflokksins, taldi sig nauðbeygða til að lýsa því yfir að flokkurinn styddi nú fyrirhugaða atkvæða- greiðslu sem hann áður barð- ist hatramlega á móti. En sigurvíma Camerons kann að reynast skammvinn. Hann mun í þessari viku ferðast til helstu þjóð- arleiðtoga Evrópusambands- ins til þess að sannfæra þá um ágæti þess að stofnsáttmálunum verði breytt, þann- ig að hinn almenni Breti geti fellt sig við þá. En þó að Cameron telji sig hafa fengið loforð um sam- starfsvilja Þjóðverja og ann- arra lykilríkja sambandsins í aðdraganda atkvæðagreiðsl- unnar, virðist raunin sú að stuðningur þeirra verður ein- göngu í orði en ekki á borði. Þannig hafði Cameron vart stigið aftur fæti á breska grund þegar fréttir bárust af því að Angela Merkel Þýska- landskanslari og Francois Hollande Frakklandsforseti hefðu gert með sér leynilegt samkomulag um enn sterkari tengsl ríkjanna innan evru- svæðisins, en samkomulagið átti að kunngjöra á leiðtoga- fundi sambandsins í júní. Á þeim sama fundi hugðist Cameron kynna kröfur sínar fyrir hina nýju samninga. Í þýskum fjölmiðlum var sagt beint út að samkomulag leið- toganna tveggja á meginland- inu jafngilti rauðu spjaldi á allar tilraunir Camerons til þess að breyta Evrópusam- bandinu. Það er því hætt við að af- rakstur ferðalags Camerons verði rýr í roðinu, en þeim mun hástemmdari verða sölu- ræðurnar og hótanirnar sem breskum kjósendum verður boðið upp á fyrir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Reynst gæti erfitt fyrir Cameron að standa við loforðið um ESB} Fær hann rauða spjaldið? Það var sögulegtaugnablik þegar Prinsinn af Wales og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, tókust í hendur á dögunum, en fundur þeirra var hluti af fjögurra daga ferðalagi Karls Breta- prins um Írland og Norður- Írland. Á vissan hátt má segja að handabandið hafi verið táknrænt fyrir þann árangur sem náðst hefur á eyjunni grænu frá því að vopnahlé Írska lýðveldishersins, IRA, gekk í gildi árið 1998. Heimsókn Karls er táknræn að öðru leyti. Hann er að nafn- inu til yfirmaður fallhlífasveit- arinnar, sem tók þátt í ofbeld- inu á hinum „blóðuga sunnudegi“ árið 1972, en David Cameron baðst afsökunar á at- burðinum eftir að skýrsla kom út um málið fyrir fimm árum. Karl prins hefur einnig hitt afkomendur sumra þeirra sem féllu á umræddum degi og rætt við þá, en auk þess tók hann sér tíma til þess að heim- sækja þorpið Mul- laghmore, en þar dó frændi hans, Mountbatten lávarður, í sprengjutilræði IRA ásamt þremur öðrum. Ferðin er því tilfinningaþrungin fyrir prins- inn, sem hvatti til þess að Bret- ar og Írar létu hina erfiðu sögu sína ekki standa í vegi fyrir sáttum. Fyrir tilstilli friðarferlisins, sem samþykkt var fyrir 17 ár- um, hafa deilurnar um framtíð Írlands verið færðar á hið póli- tíska svið, og ofbeldið vikið fyrir samtali á milli aðila. Þau sár, sem bræðravígin á Írlandi ollu, munu seint gróa að fullu, þó að hinar ómældu þjáningar séu nú liðnar hjá. Um leið og horft er fram á veginn er nauðsynlegt að gera upp hina dimmu fortíð og til að sárin grói þurfa báðir að- ilar að fyrirgefa hinum það sem gert var á þessum óróatímum. Karl prins ferðaðist um Írland og hitti leiðtoga Sinn Fein} Stund fyrirgefningarinnar Þ að vildi svo til að ég eyddi síðustu viku vestan hafs og kom á því ferðalagi við í höfuðborg hipster- anna, Williamsburg, sem er hverfi í Brooklyn-hluta New York-borgar. Hipsterar, eða leppalepjur, tóku að leggja und- ir sig Williamsburg um aldamótin og sókn þeirra hefur gengið svo vel að New York en nánast öll undir: Til viðbótar við Williamsburg hafa þeir nú nánast lagt undir sig Manhattan líka og komið upp nýlendu í Queens. Nú kannastu kannski ekki við fyrirbærið hipster, kæri lesandi, og jafnvel ekki við teg- undarheitið leppalepja, en hipster er notað yfir ungt (hvítt) fólk sem heillast hefur af liðnum tíma en nýtur þó tækniframafara nútímans; konur og karlar sem hlusta á gamla tónlist af vínylplötum, lesa bækur sem þau kaupa í hverfisbókabúðum, horfa á kvikmyndir sem framleiddar eru utan Hollywood, hjóla um á gíralausum hjólum, drekka handverksbjór og borða lífræna fæðu, aðallega grænmetisfæði. Í styttra máli: Hipsterar hafna fjöldaframleiðslu í sí- felldri leit að upprunalegri upplifun og sið, samhliða því sem þeir eiga nýjustu gerðir snjallsíma og fistölvur. Ef þessi lýsing dugar ekki til að þú getir þekkt hipster á færi þá er karldýrið jafnan með alskegg og þegar svo ber við að meirihluti ungra karla í hverfi er skeggjaður ertu staddur í Hipsteríu, paradís leppalepjunnar (nema þá þú sért staddur í Mið-Austurlöndum eða Mið-Asíu). Það er náttúrlega alsiða að menningarkimi, þótt fjölmennur sé, finni sér samnefnara í út- liti, leið til að félagar innan kimans þekki hver annan, svona rétt eins og þegar við hipparnir gengum í mussum og útsaumuðum buxum forðum daga. Skegg er líka ágæt leið til að skera sig úr í samfélagi þar sem allir eru ann- ars nauðrakaðir (það vissum við hipparnir líka, þótt mér hafi ekki sprottið grön fyrr en mörg- um árum eftir að ég afklæddist mussunni). Að því sögðu þá er það forvitnilegt hve hipsterar eru sólgnir í skegg, enda hafna þeir jafnan feðraveldinu og helgisiðum þess sem fela með- al annars í sér bringu- og bakhár og skeggvöxt sem birtingarmynd sannrar karlmennsku. Löngum hefur verið beint samhengi á milli skeggræktar og kvenfrelsis; því fleiri sem skeggjaðir voru í hverju landi því minni rétt- inda nutu konur, nefni sem dæmi lönd í suðurhluta Evr- ópu. Desde que no hay barba, no hay mas alma – við að glata skegginu glötuðum við sálinni sögðu spænskir karl- menn þegar Karl V. tók við völdum þar í landi í upphafi sextándu aldar. Hann var svo ungur að árum að honum var ekki sprottin grön og þótti ekki við hæfi að hirðmenn væru karlmannlegri en kóngurinn svo skeggleysið breidd- ist út, mörgum til ama. Svo samtvinnaður var skeggvöxt- urinn karlmannlegum þrótti að spænsk alþýða þess tíma taldi í óefni komið. Ekki er gott að segja hvað henni hefði þótt um skeggjaða snyrtipinna með tófúborgara. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Vér skeggbragar BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að ofgreiður aðgangur aðlánsfé skýri að hluta van-skil fjölda fólks með íbúða- lán á Suðurnesjum. Það kemur þannig fram í nýrri skýrslu, Fjölskyldur sem misstu húsnæði sitt á nauðungarsölu á Suðurnesjum 2008–2011, eftir Láru Kristínu Sturludóttur, að of mikil lántaka sé hluti skýringarinnar: „Auðvelt var að fá lán hjá bönkum og sparisjóðum og voru svarendur margir á því að ekki hefði verið „neitt vit“ í að lána þeim þær fjár- hæðir, eða það háa lánshlutfall, sem þeir fengu fyrir íbúðakaupunum, en að á þeim tíma hefði ríkt uppgangur og bjartsýni og miklar væntingar verið til ýmissa mála á Suður- nesjum, svo sem til atvinnuuppbygg- ingar,“ segir þar orðrétt. Er svo tek- ið fram að viðmælendur í viðtölum hafi margir nefnt að þeim „hafi boð- ist hærri lán til íbúðakaupanna en þeim sjálfum fannst forsvaranlegt“. Var þetta 2. algengasta skýringin á skuldavandanum á eftir „for- sendubresti vegna hrunsins“. Eins og tilvitnunin ber með sér var skýrslan unnin upp úr könnun. Rætt við 163 einstaklinga Úrtakið í símakönnuninni, 335 fjölskyldur, var allt þýðið að frátöld- um 45 einstaklingum og fjölskyldum þar sem eini eigandi húsnæðisins, eða báðir, var með skráð lögheimili erlendis í mánuðinum þegar könn- unin fór fram. Alls 163 einstaklingar svöruðu, sem var 44,8% svarhlutfall. Meðal niðurstaðna skýrslunnar, sem unnin var fyrir velferðarráðu- neytið, er að rúmlega helmingur svarenda með börn á heimili taldi að mikilsverðar breytingar hefðu orðið í lífi barns eða barna vegna nauð- ungarsölu eða breytinga á fjárhag heimilisins. „Algengustu breytingar voru skólaskipti (45%), rofin eða minnkuð tengsl við vini sína (32%) og að hætta í tómstunda- eða íþróttastarfi (15%),“ segir þar meðal annars um áhrifin á líf barnanna. Um 24% svarenda voru öryrkjar. Þátttakendur voru spurðir um hæsta stig menntunar sem þeir hefðu lokið. Tæplega 44% svarenda hafa lokið grunnskóla eða minni menntun, 45% hafa lokið námi á framhaldsskólastigi, þar af 26,2% iðnnámi/verklegu námi, og um 11% hafa lokið námi á háskólastigi. Rúmlega 81% svarenda býr nú í leiguhúsnæði og tæp 9% í eigin hús- næði. Um 10% svarenda búa ýmist inni á ættingjum eða hafa afnot af húsnæði í eigu ættingja. Margir með 100% veðhlutfall Við lestur þessarar greiningar rifjast upp sú niðurstaða í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall sparisjóðanna, að fjöldi lántaka hjá Sparisjóðnum í Keflavík var orðinn mjög skuldsettur fyrir hrun. Í níunda kafla sparisjóðaskýrsl- unnar er vitnað til skýrslu Fjármála- eftirlitsins um vettvangsathugun í Sparisjóðnum í Keflavík frá sept- ember 2008. Þar sé tilgreint að lán til fasteigna- og byggingastarfsemi hafi verið um 29% af útlánum til at- vinnugreina, eða 13% af heildar- útlánum, og íbúðalán 20%. „Miðað við stöðu íbúðalána í lok apríl 2008 voru veðsetningarhlutföll vegna íbúðalána undir 70% hjá 46% lántak- enda, rúm 40% lána voru með 70– 90% veðsetningu og rúm 6% með 90–100% veðsetningu. Hlutfall þeirra sem voru með yfir 100% veð- hlutfall hafði hækkað úr 6,8% í lok árs 2007 í 9,1% í lok apríl 2008,“ seg- ir í sparisjóðaskýrslunni. Telja sig hafa fengið of mikið fé að láni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjanesbær Mikil lántaka á þátt í skuldavanda suður með sjó. Fram kemur í nýrri skýrslu vel- ferðarráðuneytisins um nauð- ungarsölur á Suðurnesjum að 63% svarenda, eða 95, bjuggu á Suðurnesjum áður en húsnæðið var keypt sem viðkomanndi missti síðar á nauðungarsölu. Fjórðungur svarenda bjó á höfuðborgarsvæðinu áður en húsnæðið var keypt, eða alls 38 svarendur, en 17 svarendur, um 11%, komu frá öðrum lands- svæðum (15) eða höfðu búið er- lendis (2). Meirihluti svarenda, um 64,7%, bjó áfram á Suður- nesjum eftir nauðungarsölu. Fjórðungur aðfluttur BÚSETA FÓLKSINS Morgunblaðið/Golli Bóla Aðgengi að lánsfé sló öll met misserin fyrir hrun. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson st rritstj ri: Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.