Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 28

Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 : Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Morgunblaðið gefur út glæsilegt sumarblað um Tísku og förðun föstudaginn 5. júní. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna sumarið 2015 í fatnaði, förðun og snyrtingu auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16:00 mánudaginn 1. júní. Tíska & Förðun SÉRBLAÐ Ég læt eftir mér að leggja orð í belg um skagfirska mafíósa, drukkinn bónda í bæj- arferð og stjórnmála- foringja sem gleymdi að hún væri öðruvísi. Kannski svolítið öðru- vísi að hún greip til þess ráðs, sem er hvað aftast í bókinni um hvernig stunda skuli ógeðfelld stjórnmál. Það er að reyna að finna einhvern óvin, spillt og ill öfl, sem andstæðu við eigið ágæti. Vissulega eru vinnubrögð mafí- unnar ekki til eftirbreytni, ef eitthvað er að marka uppáhaldsbíómynd fjár- málaráðherra og þaðan hef ég allt mitt vit á mafíósum. En það sem skil- ur á milli KS og mafíunnar er að enn sem komið er hefur KS ekki verið skilgreint sem glæpasamtök, eins og Egill Helgason benti á í vondum pistli. Egill reyndi þó að gera félagið tortryggilegt og sagði m.a.: „Og þetta félag sem lýtur stjórn manna sem vilja hafa mikil pólitísk áhrif, ekki bara á stjórn í heimahér- aði, þar sem þeir ráða lögum og lof- um, heldur líka á landstjórnina þar sem þeir eru furðu valdamiklir. En Þórólfur Gíslason var ekki kjörinn til að stjórna á Íslandi – þannig að umboð hans til að standa í valdabröltinu er afar veikt. Fæstir Ís- lendingar vita einu sinni hvernig hann lítur út eða hvern- ig röddin í honum hljómar.“ Þetta er mikill mis- skilningur hjá Agli, Þórólfur, eins og aðrir framkvæmdastjórar í fyrirtækjum, var ein- mitt kosinn af stjórn fé- lagsins, til að stjórna, og meðan hann leysir það skammlaust af hendi, heldur hann væntanlega starfinu. Það að fáir þekki rödd eða ásjónu kaupfélagsstjórans skýr- ist sennilega af mismikilli þörf manna fyrir að láta ljós sitt skína á torgum, hvort sem álitsgjafinn getur sett sig í þau spor eður ei. Hvað varðar stjórn á heimahéraði, þá hefur fólk enn kosningarétt í Skagafirði og því fá Skagfirðingar á fjögurra ára fresti yfir sig það stjórn- vald sem þeir eiga skilið. Það sama verður ekki sagt um þátta- stjórnendur á RÚV, um það fá Skag- firðingar engu ráðið frekar en aðrir landsmenn. Stjórnmálamenn, sem ekki hafa mikið fram að færa, annað en sann- færingu um eigið ágæti, grípa stund- um til þess óyndisúrræðis að benda á vont fólk sem andstæðu við sjálft sig og sína hugsjón. Þetta geta verið múslimar, blökkumenn, samkyn- hneigðir eða nú síðast, Skagfirðingar. Þetta virðist virka í sumum til- fellum. Á síðustu árum eru útgerð- armenn sá hópur sem sumir stjórn- málamenn reyna að benda almúganum á sem óæðri mannteg- und. Ef einhver dregur bein úr sjó, án þess að tapa stórkostlega á því peningum, er sá hinn sami að hafa fé af „þjóðinni sem á fiskinn“. Þó borga útgerðarmenn skatta og skyldur eins og önnur fyrirtæki, þar að auki greiða þeir veiðigjald og réttinn til að stunda fiskveiðar, hafa þeir þurft að kaupa eða leigja fyrir marga peninga. En að lokum um kaptein Pírata, vanalega gerir maður ráð fyrir að fólk segi satt, blasi annað ekki aug- ljóslega við, og gildir þetta jafnvel um stjórnmálamenn. Hvort Ási bóndi var drukkinn í bæjarferð eða veikur af öðrum orsökum, hef ég litla hugmynd um. Segist hann hafa verið og sé veik- ur í maga, freistast maður til að trúa því. Að láta hafa eftir sér að bóndinn hafi verið grunsamlega frískur í vinnunni, er lævís leið til að reyna að gera viðkomandi tortryggilegan, sömu ættar og skagfirska mafíu- smjörklípan. Af KS, kapteini Pírata og Agli álitsgjafa Eftir Kára Gunnarsson »Ég læt eftir mér að leggja orð í belg um skagfirska mafíósa, drukkinn bónda í bæj- arferð og stjórnmálafor- ingja sem gleymdi að hún væri öðruvísi. Kári Gunnarsson Höfundur er kennari. Það var söguleg stund í sögu lýðræð- isþróunar þegar al- þingismaðurinn Pétur H. Blöndal ásamt sjö þingmönnum, sem voru þá á þingi, m.a. Þór Saari og Margréti Tryggvadóttur, sem hafa látið af þing- störfum, lagði fram á 140. löggjafarþingi árið 2011-2012 frumvarp um að sjóðs- félagar í lífeyrissjóðum skyldu kjósa stjórnir sjóðanna beinni kosningu. Þau tóku öll undir með lýðnum um nýja skipun stjórnar í lífeyrissjóðum. Nýja skipan, sem koma á í stað úr- eltrar skipanar sem takmarkar rétt sjóðsfélaga til að hafa áhrif á hvernig farið er með eigur þeirra. Það verða sögulegir tímar þegar öfl sem hafa ráðið för í áratugi verða látin sitja á hakanum og beygja sig undir skoð- anir fólks sem á það fé sem það hefur lagt í lífeyrissparnað. Tilgangur sparnaðarins var að hafa það betra eftir starfslok en ella. Þennan tilgang mættu ASÍ, verkalýðsfélög og at- vinnurekendur sem stjórna lífeyr- issjóðnum Gildi hafa í huga þegar hugað er að skipan í stjórn sjóðsins. Þeir ættu að líta til Péturs H. Blöndal og félaga hans, sem lögðu til leið í anda lýðræðis í lífeyris- sjóðakerfinu, með því að sjóðsfélagar skipi beint sínu fólki í stjórn Gildis og annarra lífeyrissjóða. Margir eru Pétri, Margréti, Þór og öðrum með- flutningmönnum hjartanlega sam- mála um þessa leið. Það hlýtur að vera réttur þeirra sem afla og greiða sitt fé til lífeyrissjóða, eru hinir sönnu sjóðfélagar, hverja þeir velji til að ávaxta sinn sparnað með traustum hætti. Það eru hinsvegar brot á mann- réttindum þegar lög eru á þann veg að sjóðsfélagi hefur takmarkað um það að segja hvernig sparnaðinum er varið og hverjir um véla. Lífeyrissjóðakerfið er ógagnsætt og upplýsingaskyldan er vanreifuð. Þegar sjóðsfélagi leitar eftir frekari upplýsingum kemur hann tíðum að lokuðum dyrum, er svarað út í hött eða mætir ýmsum við- bárum um hvers vegna hann fær ekki umbeðn- ar upplýsingar. Það er brot á mannréttindum þegar sjóðsfélögum er neitað um upplýsingar, samanber ósk um að fá í hendur skýrslu endur- skoðenda eða fund- argerðir sjóðsins, sem liggja heldur ekki frammi á ársfundum. Það er ekki til að tryggja mannrétt- indi og gagnsæi þegar Fjármálaeft- irlitið neitar sjóðsfélögum um upp- lýsingar sem tengjast hagsmunum þeirra og ber fyrir sig viðskipta- leynd. Leynd gagnvart eigendum. Er ekki hlutunum snúið á haus? Á ekki FME að vernda sjóðsfélaga sem hafa verið beitir órétti? Dæmi um slakt eftirlit er þegar tveir fulltrúar lífeyrissjóðsins Gildis keyptu hlutabréf í Glitni banka fyrir rúma 3,6 milljarða árið 2008, sem töpuðust svo daginn eftir. Hver voru viðbrögð Fjármálaeft- irlitsins við þessum gjörningi? Fram hefur komið að fulltrúar Gildis hafi samið um 1.800 milljónir króna í bæt- ur fyrir skuldabréf sem þeir keyptu árið 2008 með samkomulagi við slit- astjórn Glitnis nú sex árum síðar. En hvað kostuðu málaferli og tafir öll þessi ár? Það eitt er óupplýst enn. Eins má spyrja af hverju var þessi gjörningur ekki kærður til réttra yf- irvalda vegna hugsanlegra svika? Lífeyrissjóðurinn Gildi og aðrir líf- eyrissjóðir hafa tapað hundruðum milljóna króna í fjárfestingum á und- anförnum árum. Ekki sér þess stað að Fjármálaeft- irlitið hafi mikið gert, a.m.k. enn sem komið er, til þess að vernda sjóðs- félaga. Og það þrátt fyrir at- hugasemdir þeirra. Gögn þar að lút- andi eiga öll að vera til í skjalasafni FME. Samhliða framangreindu tútnar Fjármálaeftirlitið út á kostnað sjóðs- félaga í lífeyrissjóðum. FME er til húsa á dýrasta og glæsilegasta stað í Reykjavík. Gjöld Gildis-sjóðsfélaga til FME námu rúmum 19 milljónum á árinu 2014. Há fjárhæð og það frá sjóðsfélögum í einungis einum lífeyr- issjóði. Enn er spurt: af hverju hefur framangreint frumvarp í anda lýð- ræðis ekki orðið að lögum? Getur það verið að fulltrúar atvinnurekenda og fulltrúar verkafólks hafi staðið í vegi fyrir breytingunni? Treysti Alþingi Íslendinga sér ekki til að stuðla að lýðræði og því að mönnum sé gefinn kostur á að líta eftir eigum sínum? Upplýst er að stjórn atvinnurek- enda og sjálfskipaðra verkalýðseig- enda samþykkti nýlega skerðingu á greiðslum til sjóðsfélaga um 4,2% í Gildi lífeyrissjóði. Það munar um minna. Og þarna er um að ræða tekjur þeirra sem hafa skilað ævi- starfi sínu með sóma og treystu á að fá til baka það sem þeir höfðu unnið fyrir. Það liggur ljóst fyrir að þessu kerfi þarf að breyta í lýðræðisátt þannig að sjóðsfélaginn sé hafður í fyrirrúmi og ekki verði um skerðingu að ræða á aðkomu þeirra sjóðsfélaga sem komnir eru á eftirlaun. Þessi orð mín mættu klíkufélagar ASÍ, atvinnurekenda, verkalýðs- forkólfar og aðrir sem eiga hlut að máli taka til sín. Pétur H. Blöndal hefur ásamt öðrum barist fyrir að hreyfa í lýðræðisátt núverandi lífeyr- issjóðakerfi. Kerfi sem jafnvel félaga Brésnef hefði aldrei dottið í hug að setja upp í Sovét. Pétur H. Blöndal og þínir félagar, þið eruð leiðtogar sem tekið verður eftir þegar sagan verður skrifuð. Pétur H. Blöndal brýtur blað í baráttu fyrir mannréttindum Eftir Jóhann Páll Símonarson » Samhliða fram- angreindu tútnar Fjármálaeftirlitið út á kostnað sjóðsfélaga í líf- eyrissjóðum. FME er til húsa á dýrasta og glæsi- legasta stað í Reykjavík Jóhann Páll Símonarson Höfundur er sjómaður. Frá því að ég sá fyrst hvernig átti að gera Landeyjahöfn var ég viss um að það væri röng aðferð. Einnig sá ég það að höfnin er ná- kvæm eftirlíking af höfninni í Hanstholm í Danmörku, sem er ekki gott því þar eru aðstæður allt aðrar. Seinna kom í ljós að skýrslur sérfræðinga sem farið var eftir voru um Hanstholm en ekki Landeyjahöfn. Sandur kemur niður um ós Mark- arfljóts, sem segir að þar þarf að gera garð sem nær það langt út að fram- burður fljótsins fari á um 10 metra dýpi og fleytist til vesturs. Garðurinn að sjálfsögðu vestan megin við ósinn. Eystri garð Landeyjahafnar þarf að framlengja þannig að hann nái fyrir hafnarmynni Landeyjahafnar. Þann- ig er komið í veg fyrir að hafaldan eigi beina braut inn í höfnina og ausi sandinum inn um hafnarmynnið. Þetta er eina leiðin til að koma í veg fyrir að höfnin verði ófær, nýtt skip hefur ekkert með þetta að gera. Það þarf að stytta vestari garðinn svo meira rými sé fyrir skip að sigla inn. Ef þetta tvennt hefði verið gert hefði Landeyjahöfn verið nothæf flesta óveðursdaga ársins og sandur ekki náð að komast inn í höfnina. Sagt hefur verið að ef þetta verði gert þá leiti sandurinn í skjól vestan megin við garðinn. En það tæki langan tíma að fylla í höfnina því meginsandurinn fleytist framhjá með aust- anstraumnum sem þarna er. Til sam- anburðar eru flestar hafnir sem ég hef skoð- að með slíkan öldubrjót. Til dæmis Þorlákshöfn og Dalvíkurhöfn. Þetta þarf að gera strax svo höfnin verð fær allt árið. Ég hef gert Facebo- ok-síðu sem heitir End- urgerð Landeyjahöfn, þar eru um 30 myndir sem sýna þetta svart á hvítu. Suðaustanáttin lendir beint inn um hafnarmynnið og eys sandinum í höfnina. Þetta er hægt að laga með því að gera öldubrjót svo aldan brotn- ar á honum það utarlega og kemur í veg fyrir að sandurinn lendi í höfn- inni. Þessi garður þarf að ná út á um 10 metra dýpi og ná vel fyrir hafn- armynnið. Þá verður einnig logn við hafnarmynnið og hafaldan nær ekki inn. Einnig myndast skjól vegna öld- unnar sem brotnar og endurkastast á móti öðrum öldum í nágrenninu. Eftir að þetta hefur verið gert get- ur hvaða skip sem er siglt inn í höfn- ina í hvaða veðri sem er. Sannleikurinn um Landeyjahöfn Eftir Árna Björn Guðjónsson Árni Björn Guðjónsson » Gera þarf garð sem kemur í veg fyrir að hafaldan geti farið beint inn um hafnarmynnið. Höfundur er bylgjufræðingur. Mig vantar að láta gera við gamlan löber, flatsaumslöber. Vinsamlega sendið á ingasvein@hotmail.com. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Löber Útsaumur Listilega útsaumaður dúkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.