Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 30

Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 ✝ SigurlínaGunnlaugs- dóttir fæddist í Ólafsfirði 29. júlí 1924. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Skógarbæ 19. maí 2015. Foreldrar henn- ar voru Hulda Guð- mundsdóttir hús- móðir, f. 27.3. 1904, d. 2002, og Gunnlaugur Jónsson kaup- maður á Ólafsfirði, f. 1897, d. 1980. Stjúpfaðir hennar var Gunnlaugur S. Jónsson vélsmíðameistari, f. 8.10. 1900, d. 1989. Bræður hennar: Björn Gunnlaugsson, f. 1922, d. 2013, og Sigurður Gunnlaugsson, f. 1929. Hálfbróðir hennar sam- mæðra Guðmundur Gunn- laugsson, f. 1933. Hálfbræður hennar samfeðra: Jón B. Gunn- laugsson, f. 1936, d. 1991, og Gunnlaugur Gunnlaugsson, f. grét Guðmundsdóttir. Börn þeirra: Auður Björk, Axel Guð- mundur og Matthildur. Sigurlína ólst upp á Ólafs- firði, Svalbarðseyri og Ak- ureyri. 18 ára gömul flutti hún til Reykjavíkur og stundaði nám í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Síðar stundaði hún nám í Garð- yrkjuskólanum á Reykjum, Ölf- usi. Þar kynntist hún eigin- manni sínum. Árið 1947 fluttu þau til Kaupmannahafnar þar sem Axel stundaði nám við danska Landbúnaðarháskólann. Þau fluttu heim til Íslands 1950 og settust að á Reykjum. Sig- urlína vann við garðyrkju megnið af sinni starfsævi. 1989 fluttist hún til Reykjavíkur eftir fráfall Axels og bjó þar síðan. Hún bjó á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ frá nóvember 2014 til dánardags og naut þar frá- bærrar umönnunar. Hún var mikið náttúrubarn, hafði mik- inn áhuga á blómum, safnaði steinum, spilaði mikið og keppti í brids. Hún var mikil fjölskyldukona og fylgdist mjög vel með afkomendum sínum. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 27. maí 2015, kl. 13. 1941. Hinn 19. júlí 1947 giftist Sig- urlína Axel Val- garð Magnússyni, f. 30.9. 1922. For- eldrar hans voru Magnús Jóhanns- son, f. 1874, d. 1923, og Rannveig Tómasdóttir, f. 1881, d. 1969. Börn Sigurlínu og Axels eru: 1) Hulda, f. 1947. Maki hennar var Halldór Þor- steinsson, þau skildu. Börn þeirra: Tómas Þorsteinn, Þor- steinn Axel og Helga Lína. 2) Álfdís Elín, f. 1950. Fyrir hjóna- band átti hún Axel Magnús Edwardsson. Maki Martin Ken- nelly. Börn þeirra: Kjartan Fe- lim og Eydís Perla. 3) Erla Dís, f. 1959. Maki Pétur H. Hann- esson. Börn þeirra: Kristín, Sig- rún Lina og Hannes. 4) Ari Víðir, f. 1961. Maki Anna Mar- Þegar við kynntumst tengda- móður okkar Sigurlínu Gunnlaugs- dóttur eða Línu eins og hún var ætíð kölluð bjó hún ásamt Axel Magnússyni garðyrkjuráðunaut, manni sínum, í glæsilegu húsi í fal- legu umhverfi við gilið í Hvera- gerði, nú kallað Axelshús. Byggðu þau hjónin húsið og ræktuðu garð- inn af miklum dugnaði og smekk- vísi. Axel féll frá fyrir aldur fram en hann var mikið valmenni, hæg- látt gáfumenni. Lína var garð- yrkjufræðingur og starfaði lengst af sem slíkur. Af því leiddi að hún hafði mikinn og einlægan áhuga á garð- og blómarækt og voru blóm hennar líf og yndi. Oftar en ekki töfraði hún fram fallegar blóma- skreytingar við ýmis tækifæri. Fyrir utan fjölskylduna, börn og barnabörn hafði Lína mörg áhugamál. Hún var náttúruunn- andi og það var ekki aðeins gróður jarðar sem átti hug hennar heldur einnig steinaríkið. Lína var ástríðufullur steinasafnari og átti mikið safn náttúru- og skraut- steina. Hún var einnig mjög bók- elsk, átti mikið af bókum og las. Deildu þau Axel þessum áhuga á góðum bókum. Lína var lagleg kona, glaðleg með blik í auga. Hún hafði hlýja nærveru og var öllum velviljuð. Það leyndi sér ekki að hún var greind kona og einnig hafði hún til að bera góða kímni- gáfu sem kemur sér vel í lífsins ólgusjó. Fyrir þá sem ekki voru til stað- ar býr minningin oft í gömlum ljósmyndum og á þeim má sjá hversu glæsileg þau hjón voru er þau voru að hefja búskap og byrja að takast á við lífið, Lína falleg kona og Axel hár og myndarlegur henni við hlið. Þau eignuðust fjög- ur börn; Huldu sem er elst og í aldursröð Álfdísi, Erlu Dís og Ara Víði. Hún var rík að barna og barnabörnum sem eru 21 talsins. Hún hafði mikið yndi af því að um- gangast fjölskylduna sína og var mjög félagslynd . Hún vissi ekkert betra en að vera með fullt af fólki í kringum sig og fannst mjög gam- an að fara á viðburði hvers konar. Við sem lifum Línu minnumst hennar með miklum hlýhug. Pétur Hörður Hann- esson, Anna Margrét Guðmundsdóttir. Elsku amma Lína. Þú sagðir gjarnan að þér þætti svo gaman að hlakka til. Þú vissir fátt skemmtilegra en að vera í kringum fólk og hafðir mikla ánægju af barnabörnunum og langömmubörnunum. Þú naust þín best í veislum og í margmenni og vildir alltaf fanga augnablikin á filmu. Oftar en ekki mátti heyra þig segja: Tökum mynd! Þú varst mikill steinasafnari og ég man hvað ég var heilluð af steinunum sem voru út um allt hús þegar ég var lítil. Þá gat maður setið lengi og skoðað steinana og raðað þeim upp. Alltaf var saga á bak við hvern stein. Það besta sem þú vissir var ís- lenskt grænmeti og þótti þér ís- lenskir tómatar og gúrkur mesta lostæti. Enda lærðir þú í garð- yrkjuskólanum í Hveragerði sem ung stúlka og vannst svo við garð- yrkju. Vorið og sumarið var þinn tími og þú naust þess að vera úti í náttúrunni og vera úti að vinna. Það hefði verið gaman að upp- lifa sumarið með þér einu sinni enn en ég veit að afi Axel tekur vel á móti þér. Kristín Pétursdóttir. Sigurlína Gunnlaugsdóttir Í dag kveð ég ástkæra tengda- móður mína sem ég kynntist 1974 þegar ég var að gera hos- ur mínar grænar fyrir syni henn- ar, honum Nonna mínum. Þá bjuggu þau í Sæviðarsundinu og ég á Laugarásveginum. Nonni reiddi mig oft heim á sendlahjól- inu sem tengdapabbi átti því hann rak verslunina Þrótt á Kleppsveginum. Okkur Ásu kom alltaf mjög vel saman þó við hefðum ólíkar skoðanir á mörgu, til að mynda stjórnmálum. Henni þótti ég vera rauðsokka og við ræddum oft um pólitík en alltaf allt í góðu. Það var alltaf hægt að leita til hennar með pössun hér áður fyrr og henni þótti ekki leiðinlegt að vera orðin amma. Ása var mjög skemmtileg kona og hafði frá mörgu að segja því hún var fróð um margt og mjög minnug. Vinkvennahópur hennar var stór og komu þær þessar flottu konur alltaf í afmælið hennar á hverju ári. Þar var mikið spjallað og hlegið við að rifja upp gömul prakkarastrik sem greinilega hafði verið nóg af í þá gömlu góðu daga. Tengda- móðir mín var mikil jólakona, mikið af jólaskrauti um allt hús og jólapakkarnir voru mikið skreyttir fyrir börnin sem þótti þetta mjög spennandi. Ég á mjög góðar minningar úr Sævið- arsundinu. Þau Ása og Jói voru góð hjón og stóðu þétt saman, það var alltaf gott að koma til þeirra og þau dekruðu við barna- börnin. Tengdamamma bjó síð- ustu árin á hjúkrunarheimilinu Mörk þar sem vel var hugsað um hana. Hún var kölluð drottningin þar af starfsfólkinu því hún borð- aði ekki hvað sem var og fitjaði Ása Jóna Jónsdóttir ✝ Ása Jóna Jóns-dóttir fæddist 12. september 1930. Hún andaðist 15. maí 2015. Útför Ásu fór fram 26. maí 2015. upp á trýnið og sagðist vilja rjóma út á skyrið og hamsa með fiskn- um. Hún var ekki mikið fyrir salat og sagðist ekki vera kanína. Ég gæti sagt margar skemmtilegar sögur af henni tengda- móður minni en þær eru kannski ekki allar prenthæfar. Ég ætla að láta þetta nægja því hún var búin að segja okkur að hún vildi enga lofræðu, hún hreinlega þyldi það ekki. Ég þakka fyrir samfylgdina öll þessi ár. Hvíl í friði. Guðrún Geirsdóttir. Elsku amma Ása okkar. Við erum afar þakklát fyrir að hafa átt þig að. Þú varst alltaf svo hlý og góð við okkur. Við kveðjum þig með söknuði og djúpri virðingu. Minning þín lifir með okkur um ókomin ár. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Einar Þór og Helga Kristín. Elsku amma Ása, ég á erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur en ég hugga mig við það að núna ertu komin til afa Jóa. Mér finnst svo stutt síðan ég var lítil sex ára stelpa sem elsk- aði að fara í pössun til ömmu Ásu af því að þar var ég dekruð eins og prinsessan sem ég hélt ég væri. Við vorum með ákveðna rútínu sem við fylgdum í hvert skipti sem ég kom til þín. Í fyrsta lagi var alltaf til nammi eða kókópuffs, eitthvað sem mamma var ekkert rosalega sátt með en þér var alveg sama, pöss- un hjá þér var undir þínum reglum. Síðan eyddum við mörg- um klukkutímum í að spila ólsen- ólsen þar sem mér tókst með undraverðum hætti að sigra þig í næstum hvert einasta skipti, ég vil trúa því að það hafi verið af því að ég var svo ótrúlega góð í ólsen-ólsen en ekki af því að þú leyfðir mér að vinna. Svo má auðvitað ekki gleyma Tomma og Jenna, ég held mér hafi tekist að sjá hvern einasta Tomma og Jenna-þátt sem hefur verið gerð- ur í stofunni heima hjá þér. Núna í dag þegar ég sé Tomma og Jenna þá hugsa ég alltaf til þín og að það sé synd að þú sért ekki að horfa á þáttinn með mér, því ég veit að þú hafðir alveg jafn gaman af þeim og ég. Eftir því sem ég varð eldri þá fór ég áfram mjög reglulega í heimsókn til þín, eða alveg þar til ég var komin á hin viðkvæmu unglingsár. Þú beiðst eftir mér á hverjum einasta föstudegi við endann á Brákarsundinu og við fórum beinustu leið í sjoppu að kaupa nammi og svo á Skúlagöt- una að njóta þess að brjóta regl- urnar sem mamma hafði sett um nammiát. Þú og afi Jói náðuð að skapa handa mér nokkurs konar annað heimili og ég hlakkaði allt- af til að fara í heimsókn til ykk- ar. Þú, amma, varst einn skraut- legasti persónuleiki sem ég hef nokkurn tímann kynnst og ég á svo sannarlega eftir að sakna þess að sjá þig hneyksla fólk með grófum bröndurum og mik- illi notkun á orðum sem flestir myndu búast við að heyra koma út úr gömlum sjóara en ekki dömu eins og þér. Þú hefur alltaf verið þú sjálf og ekkert kippt þér upp við að fólk horfi á þig með undrunarsvip. Ég dáist að því og vona að ég hafi lært að vera jafn trú sjálfri mér og þú. Ég á eftir að sakna þín rosa- lega en á sama tíma er ég mjög þakklát fyrir að hafa fengið öll þessi ár með þér. Ástarkveðjur, Hekla Jónsdóttir. Með sorg í hjarta og mikilli eftirsjá kveð ég hana Ásu-Lillu, frænku mína. Við höfum fylgst að í gegnum lífið, lengur en minni okkar náði til. Dætur sam- feðra systra, Reykvíkinga í marga ættliði, sem ólust ekki upp saman en voru mjög nánar alla tíð. Þegar við frænkurnar vorum litlar vorum við oft eins klæddar, líkt og systur, í fötum sem mæður okkar saumuðu í sameiningu. Það er svo bjart yfir minning- unni frá æskuheimili hennar Ásu á Njálsgötu 4 og alltaf var jafn- notalegt að koma þangað. For- eldrar hennar voru einstaklega glæsileg hjón, góð og vönduð til orðs og æðis. Ása naut ríkulega umhyggju sinna nánustu í upp- vextinum, Helga móðuramman var alla tíð á heimilinu og á efri hæðinni bjuggu svo föðurforeldr- arnir, Guðrún og Jón. Við vissum ekki að við höfðum fæðst inn í kreppuna fyrr en við komumst til vits og ára. Svo vorum við allt í einu orðnar ungar stúlkur og Ása orðin símamær! Það var virðingarstaða og ekki á allra færi að komast að á Símanum. Enn er það minnisstætt þegar Ása kom til okkar hjóna með ungan mann til að kynna hann fyrir okkur, þar var kominn Jó- hann Gunnlaugsson. Þau stigu bæði gæfuspor þegar þau gengu í hjónaband. Drengirnir þeirra góðu eru þeim til mikils sóma, dugmiklir eins og foreldrarnir. Það dró ský fyrir sólu í lífi Ásu þegar hún missti eiginmann sinn, hún saknaði hans mjög enda voru þau óvenju samrýnd, samhent og unnu við sameigin- legt fyrirtæki sitt um árabil. Vanheilsa hennar Ásu-Lillu frænku minnar síðustu árin er þyngri en tárum taki en hún var þakklát fyrir að eiga góða að. Við hjónin og börn okkar færum fjöl- skyldunni allri samúðarkveðjur. Hennar verður sárt saknað af mörgum. Megi hún hvíla í friði. Frænkan sem eftir lifir kveð- ur hana með miklum trega en þakkar ævilanga samfylgd, vin- áttu og væntumþykju sem verð- ur minnst til hinsta dags. Bergljót Ingólfsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma, BÁRA ANDERSDÓTTIR, Jöldugróf 17, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild LSH laugardaginn 23. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Þór J. Vigfússon, Vigfús J. Þórsson, Ásdís Kristjánsdóttir, Freyr Vigfússon, Edda Andersdóttir og fjölskylda. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÁLMAR STEFÁNSSON, fyrrverandi útibústjóri, Strandvegi 1, Garðabæ, lést á Landspítalanum sunnudaginn 24. maí. Útförin verður auglýst síðar. . Halla Haraldsdóttir, Haraldur Gunnar Hjálmarsson, Þórarinn Hjálmarsson, Bára Alexandersdóttir, Stefán Hjálmarsson, Unnur Stefánsdóttir, Halla, Bjarki, Trausti, Tinna Mjöll, Hjálmar Margrét, Trausti Snær og Hilmar Logi. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Faxabraut 13, Keflavík, lést fimmtudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 1. júní kl. 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. . Guðni Kjartansson, Magnea Erla Ottesen, Lisbeth Thompson, Guðmundur Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, BRYNJÓLFUR MÁR SVEINSSON vélstjóri, Skaftahlíð 34, Reykjavík, lést laugardaginn 23. maí. Fyrir hönd aðstendenda, . Jóhanna Fjeldsted. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT SÆMUNDSDÓTTIR frá Selparti í Flóa, Bólstaðarhlíð 54, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 20. maí. Útför fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 13. . Ólafur Halldór Torfason, Ragnheiður Þórarinsdóttir, Þórarinn Th. Ólafsson, Kristín Þ. Ólafsdóttir, Ingjaldur Ásmundssson, Ólína M. Ólafsdóttir, Ásgeir Þorkelsson, Torfi J. Ólafsson, Ásdís Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR vefnaðarkennari, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á MS félagið, reikningsnr. 0115-26-102713, kt. 520279-0169. . Halldór Sigtryggsson, Herborg Sigtryggsdóttir, Hrafnkell Sigtryggsson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.