Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 32

Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 ✝ Ingibjörgfæddist 15. mars 1943 og lést 18. maí 2015. Hún var dóttir hjónanna Þórunnar Magnúsdóttur, f. 12.12. 1920, d. 24.12. 2008, og Björns Guðmunds- sonar, f. 17.6. 1914, d. 24.7. 1972. Þór- unn lauk kenn- araprófi frá KÍ 1971 og síðar cand. mag. frá HÍ árið 1982. Hún starfaði sem kennari og skólastjóri og við ritstörf. Komu út bækur eftir hana um sögulegt efni, einkum saga kvenna í atvinnulífinu. Hún vann mikið í félagsmálum og var um tíma varaborgarfulltrúi í Reykjavík, 1954-62. Var stofn- andi og formaður samtaka her- skálabúa. Björn var bifreiða- stjóri, jafnan kallaður Björn eru Jóhanna og Ólafur Helgi Thorarensen. Ingibjörg giftist hinn 5.12. 1964 Geir Ólafssyni. Börn þeirra Ingibjargar og Geirs eru tvö: 1) Björn, f. 18.8. 1971, yf- irlögfræðingur hjá Póst- og fjarskiptastofnun Íslands. 2) Þórunn, f. 27.12. 1972, sýning- arstjóri, áður í Þjóðleikhúsinu en nú skipulags- og sýning- arstjóri hjá Menningarfélagi Akureyrar. Maður hennar er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarmaður og tónlistar- stjóri við sömu stofnun. Dætur þeirra eru: a) Herdís Hlíf, f. 26.4. 1999, og b) Hafdís Hekla, f. 29.4. 2004. Ingibjörg vann skrif- stofustörf hjá borgarfógeta í Reykjavík 1962-64. Síðar í lög- fræðideild Útvegsbanka Íslands frá 1964-72. Geir lauk lækna- námi við HÍ 1969. Árið 1972 fluttu þau til Svíþjóðar þar sem Geir stundaði sérfræðinám í skurð- og þvagfæraskurðlækn- ingum. Ingibjörg stundaði nám við Strömbergsskóla í Lundi og lauk þaðan stúdentsprófi. Síðan eins árs námi við háskólann í Lundi í réttarsálfræði. Eftir heimkomu 1980 vann Ingibjörg sem ritari í hæstarétti Íslands. Jafnframt því hóf hún nám í lögfræði við HÍ og útskrifaðist sem lögfræðingur 1987. Að námi loknu starfaði hún á lög- mannsstofunni Lögfræðiþjón- ustunni, síðan á eigin stofu, Lögsátt. Ingibjörg var mikil fé- lagsmálakona, var virk í kvennaráðgjöfinni og ráðgef- andi við Kvennaathvarfið. Þá var hún ein af stofnendum Netsins, nets kvenna á atvinnu- markaði. Einnig virk í FKA. Það sem tók þó hug hennar all- an var að koma á fót sátta- miðlun á Íslandi. Var hún að öðrum ólöstuðum ein að- alhvatamanneskjan að stofnun Sáttar, félags um sáttamiðlun. Hún stóð fyrir fjölda námskeiða og fékk til liðs við sig hæfustu sérfræðinga á þessu sviði. Hún stóð fyrir Nordisk Forum á Ís- landi og sótti slík þing á Norð- urlöndum. Hún var formaður Sáttar frá stofnun þess og þar til hún lét af störfum sökum veikinda. Útför Ingibjargar fer fram í Fossvogskirkju í dag, 27. maí 2015, kl. 15. Spánarfari, en hann tók þátt í spænska borg- arastríðinu og barðist með lýð- veldishernum gegn Franco. Systkini Ingibjargar eru: Eygló Bjarn- ardóttir, f. 18.9. 1941, lífeindafræð- ingur á Landspít- ala. Hennar sonur er Björn Loftsson. Erla Bil Bjarnardóttir, f. 12.4. 1947, um- hverfistjóri hjá Garðabæ. Henn- ar börn eru Guðröður Ágústs- son, Valgerður Guðlaugsdóttir og Magnús Guðlaugsson. Magn- ús Bjarnarson, f. 4.12. 1950, bif- reiðastjóri í Reykjavík. Hans börn eru Arna, Helgi, Kristín, Þór og Ingigerður. Guðrún Helgadóttir, f. 9.3. 1959, pró- fessor. Maður hennar er Helgi Þór Thorarensen. Börn þeirra Systir mín, systir ég sakna þín sem elskar mig hvar sem ég er hver sem ég er hvernig sem ég er af því við erum. (gh) Góða, fallega og duglega syst- irin okkar er farin heim í ljósið, friðinn og fegurðina. Við sitjum eftir rík að minningum og full af þakklæti fyrir allar góðu stund- irnar, hvatninguna, umhyggjuna og uppeldið. Ingibjörg var óhrædd við að sækja sér innblástur og styrk annað en þangað sem straum- urinn lá. Hún var sjálfstæð og sjálfri sér samkvæm. Hugurinn var opinn og leitandi, hún var listunnandi og fagurkeri sem vildi hafa allt vandað og fallegt í kringum sig. Myndlistarsýning- ar, kvikmyndir, leikhús og bók- menntir voru stór hluti af lífinu og þann áhuga glæddi hún hjá öllum sem hún kynntist. Og hún kynntist mörgum því hún hafði áhuga á fólki, vildi fræðast og fá ný sjónarhorn á lífið og til- veruna. Í hálfa öld stóðu þau saman í hjónabandi hún og hennar trausti vinur og eiginmaður, Geir Ólafsson. Þau áttu fyrstu búskaparárin tvö saman, blönk en hamingjusöm með mánu- dagsmyndum, tónleikum og há- lendisferðum. Við systkinin vor- um heimagangar og ef marka má minningar yngstu systurinn- ar hefur hún líklega oft fengið því framgengt að vera í pössun. Ingibjörg átti góða tengdamóð- ur, Hlíf Þórarinsdóttur, það var kært með þeim, enda var þeim sameiginlegt að vera glæsilegar, gáfaðar og duglegar. Þegar börnin Björn og Þór- unn komu voru þau langþráð og velkomin, kátir krakkar sem ól- ust fyrstu árin sín upp í Svíþjóð og komu heim með skemmtilega sýn á föðurlandið og allar „kús- Ingibjörg Bjarnardóttir Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓRUNNAR SIGURÐARDÓTTUR frá Frostastöðum. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. . Sigurður Frostason, Gísli Frostason, Frosti Frostason, Magnús Halldór Frostason, Hafdís Huld Þórólfsdóttir og fjölskyldur. Eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, HANNES HJARTARSON, Hannes í Húsasmiðjunni, Goðheimum 20, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 17. maí. Útför hans fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 28. maí kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. . Þórunn Pálsdóttir, synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Stefanía SigrúnKemp fæddist að Illugastöðum í Laxárdal í Skaga- firði 15. júní 1927. Hún lést á Landspít- alanum 17. maí 2015. Foreldrar henn- ar voru Lúðvík Ru- dolf Kemp, f. 1889, d. 1969, og Elísabet Stefánsdóttir, f. 1888, d. 1984. Stefanía var yngst níu systkina auk eins uppeld- isbróður, en þau eru: Júlíus Kemp, f. 1913, d. 1969, Ragna Kemp, f. 1914, d. 2013, Stefán Kemp, f. 1915, Friðgeir Kemp, f. 1917, d. 2007, Aðils Kemp, f. 1920, d. 1969, Björgólfur Stef- ánsson, f. 1921, d. 2004, Oddný E. Thorsteinsson, f. 1922, d. 2015, Helga Lovísa Kemp, f. 1925, d. 1990 og uppeldisbróðir Pétur Stefánsson, f. 1925, d. 2004. Eiginmaður Stefaníu var Sig- urður Helgason, f. 22.2. 1929, d. 20.7. 2013. Börn þeirra eru: 1. Oddný Sigurðardóttir, f. 1959, gift Helena Laufstadius, f. 1959. 2. Helgi Sigurðsson, f. 1961, kvæntur Ólöfu Finnsdóttur, f. 1962, og eiga þau þrjú börn, Sigurð, Þórunni og Finn. Stefanía ólst upp á Illugastöðum til 19 ára aldurs er hún fluttist til Reykja- víkur. Hún glímdi við erfið veikindi í tvö ár, en fór síðan til Bretlands þar sem hún starf- aði á annað ár. Í framhaldi af því hóf hún störf á Hótel Borg og Gamla Garði, en réðst síðan til starfa hjá bókasafni bandaríska sendiráðsins þar sem hún vann til ársins 1959 þegar hún hóf hjú- skap með Sigurði og eignaðist börn. Stefanía hóf störf hjá Hjartarvernd á árinu 1971 og starfaði þar til hún hætti störfum 1994. Stefanía og Sigurður bjuggu lengst af í Barmahlíð 46 í Reykjavík, en fluttust að Eir- arhúsum í Grafarvogi á árinu 2004. Útför Stefaníu fer fram frá Háteigskirkju í dag, 27. maí 2015, kl. 13. Stella Kemp, föðursystir mín, er látin. Hún og pabbi ólust ekki upp saman, en ég man ekki eftir mér öðruvísi en að hafa þekkt tvær yngstu systur pabba, Lúllu og Stellu. Stella var mjög lagleg, dökk á brún og brá og alltaf bros- andi og glöð. Þegar ég var í skóla, vann hún niðri í miðbæ Reykjavík- ur, þar sem ég ólst upp, og hafði fólk orð á því, hvað við værum lík- ar. Ég var stolt af því. Fleiri en ég sáu fegurð Stellu. Amma Beta tók sig upp frá Skagafirðinum og heimsótti æskustöðvarnar í Breið- dal með yngstu dæturnar tvær. Eru enn sagðar sögur í Breiðdal um glæsileik þeirra systra. Einn bóndasonurinn fór að hringja stundum í Stellu í Skagafjörðinn. Einn dag, þegar hann var búinn að spjalla nokkuð lengi, segir Stella: „Þú ert nú búinn að tala ansi lengi, þetta fer að verða kýr- verð“. „Það gerir ekkert,“ svaraði strákur, „Ég á nógar beljur“. Ég fór í Breiðdal fyrir þremur árum til að skoða æskuslóðir Odd- nýjar ömmu, sem í reynd var afa- systir mín. Þar gat ég ekki opnað munninn án þess að finna nýjan ættingja. Þegar líða fór að ættar- móti í fyrra, sagði ég fólki, að við værum sko ekkert úr þessum Skagafirði, þótt amma og afi hefðu búið þar og stakk upp á að fara í Breiðdal. Það varð úr og mikið skemmti hún Stella frænka mín sér vel. Hún marghringdi til mín til að rifja upp þessar skemmti- legu stundir, enda tóku ættingj- arnir þar höfðinglega á móti Kempsættinni. Takk fyrir allt, elsku Stella frænka, alla glaðværðina og skemmtilegheitin. Þín bróðurdóttir, Oddný Björgólfsdóttir. Stefanía Kemp ✝ Helga Helga-dóttir fæddist að Kálfafelli í Fljótshverfi Vest- ur-Skaftafellssýslu 27. júlí 1926. Hún lést að Dvalarheim- ilinu Skógarbæ 18. maí 2015. Foreldrar henn- ar voru Helgi Bergsson bóndi á Kálfafelli, f. 9. mars 1894, og Magnea Jóns- dóttir húsfreyja á Kálfafelli, f. 19. mars 1902, d. 19. maí 1974. Helga giftist 22. maí 1948 Jóni Sigurðssyni, banka- og tónlist- armanni, f. 13. júlí 1925, d. 29. janúar 1992. Börn Helgu eru: 1) Björg, f. 24. september 1948, d. 13. nóv. 2001. Maki 1) Einar Er- lendsson. Maki 2) Magnús Ing- ólfsson, hennar börn eru Anna Björk, Helgi Sigurður og Svala 2) Hulda Magnea, f. 1. nóv. 1950. Maki Benjamín Baldursson, þeirra börn eru Baldur Helgi, Jón Gunnar, Bergur Þorri og Kristján Helgi. 3) Sigrún Helga, f. 11. júlí 1957, maki Gunnar Bergþór Pálsson. Hennar börn Helga Rún og Kristbjörg Lára. 4) Trausti, f. 10. des. 1966, var kvæntur Guðrúnu Dís Magn- úsdóttur, þau skildu. Hans börn eru Bryndís Helga og Bjartur Ruk- undo. Barna- barnabörnin eru 15. Helga ólst upp á Kálfafelli en fór til náms í Hús- mæðraskólanum að Laug- arvatni veturinn 1945-1946. Að þeirri skólagöngu lokinni réðst hún í vist í Reykjavík. Hún ann- aðist uppeldi barna sinna og fór ekki að vinna utan heimilis fyrr en dætur hennar voru farnar að heiman en þá vann hún í Kársnesskóla við þrif og ræst- ingar. Einnig vann hún í eldhúsi starfsmanna Kópavogsbæjar. Nokkur sumur vann hún einnig á sumardvalarheimili sjómanna- dagsráðs að Hrauni í Bisk- upstungum. Útför Helgu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 27. maí 2015, og hefst athöfnin kl. 15. Mamma mín. Mikið held ég að það hafi verið erfitt fyrir þig að ala mig upp, ja svona fyrstu 26 árin. Við erum svo lík og bæði svolítið ósveigjanleg. Eins erfiðlega og okkur gekk fyrstu 26 árin náðum við þess bet- ur saman eftir fráfall pabba. Þá varstu sennilega búin að gefast upp á að reyna að segja mér til og ég hafði líklega þroskast einhverja ögn. Margs er að minnast en ég mun aldrei gleyma þegar við fór- um í fyrsta skipti saman á bíó. Það var nokkrum dögum eftir andlát pabba og við sáum myndina „Börn náttúrunnar“. Það sem var svo minnisstætt, fyrir utan frábæra og vel gerða mynd, var að við komum bæði grátandi út úr bíóinu. Það var á því augnabliki sem ég áttaði mig á að héðan í frá yrði ekkert sem áður. Ég hafði aldrei séð þig gráta áður, mamma mín. Annað minnisstætt atvik og af- gerandi var þegar ég hringdi í þig frá Svíþjóð 9́4 til að segja þér að þú ættir von á enn einu ömmu- barninu, henni Bryndísi Helgu. Svari þínu mun ég aldrei gleyma. „Ég hélt að þið væruð bara búin að ákveða að eiga engin börn.“ Gjörsamlega í þínum anda, búin að gefast upp á að spyrja þvera son þinn og varst hætt að bíða eft- ir barnabarni úr minni átt. Þú varst kletturinn og styrkur- inn sem alltaf var hægt að treysta á. Heiðarleg og þoldir engum óheiðarleika, varst ógurlega ákveðin og á köflum grjóthörð en þegar við náðum saman skildum við hvort annað svo ótrúlega vel. Í seinni tíð fann ég hvernig hlut- verkin snérust og að ég var ekki lengur „bara“ litli strákurinn þinn, það þótti mér vænt um. Mér þótti vænt um að finna fyrir að þú treystir á mig og við nutum þess að spjalla og drekka kaffi saman, jú svart og sykurlaust þó svo ég myndi aldrei eftir því og þú þyrftir jafnan að minna mig á að sleppa mjólkinni. Við áttum mjög góða og oft alveg dásamlega tíma saman í Hamraborginni, mamma, og fyrir þær stundir er ég svo endalaust þakklátur. Ég sakna þín mikið, mamma mín, en ég hugga mig við að nú líð- ur þér betur, svo miklu betur og er þakklátur fyrir að þú fékkst loks- ins frið, eins og þú varst búin að óska eftir. Ég veit að þú og pabbi njótið vel tónlistarævintýrisins með okkur í Salnum og kannski tekst þér að plata gamla á dansgólfið? Hmmm, ég er ekki allt of bjartsýnn, en samt. Hver veit? Þinn sonur, Trausti Jónsson. Elskuleg móðir mín, Helga Helgadóttir, er látin. Mikil dugn- aðar- og myndarkona sem aldrei féll verk úr hendi. Allan minn upp- vöxt minnist ég mömmu annað- hvort með prjóna- eða heklunál í hönd og saumavélin ekki langt undan. Hún gekk í Húsmæðra- skólann að Laugarvatni og minnt- ist dvalar sinnar þar með gleði og skólasystra með hlýhug, en þær hittust með reglulegu millibili. Þar lærði hún að sauma föt og nutum við börnin þeirrar kunnáttu ríku- lega. Alltaf fengum við falleg ný föt fyrir skólann, jólakjólarnir voru þeir fallegustu í allri Reykja- vík. Mamma saumaði á mig ferm- ingarkjólinn sem ég man hvað ég var alsæl með og aðstoðaði mig við brúðarkjólinn. Mamma dvaldi flest sumur á sínum æskuslóðum með okkur systur með sér þar sem hún lagði móður sinni og bræðrum lið. Eftir að pabbi féll frá kom hún flest sumur og stundum um jól og áramót norður að Ytri- Tjörnum til okkar Benjamíns og var ekki óalgengt að kleinu- eða flatbrauðsilm legði um húsið árla dags. Við mamma fórum í nokkrar ferðir saman bara við tvær, minn- isstæðust er ferð vestur í Stykk- ishólm þar sem við fórum í skemmtisiglingu um Breiðafjörð- inn og heimsóttum skemmtilegt frændfólk í leiðinni. Allra bestu stundirnar okkar voru þegar við fórum saman til berja, aðalbláber, hrútaber og blá- ber las hún af lynginu af alúð fram yfir áttrætt og naut hverrar mín- útu í mónum. Gaf svo fólkinu sínu mest af aflanum þegar heim kom. Á áttræðisafmæli mömmu fórum við þrjú systkinin með mömmu til Kaupmannahafnar og var sú ferð ógleymanleg. Mamma tók þátt í starfi eldri borgara í Gjábakka í Kópavogi og naut sín vel þar í félagsskap ein- staklega laghentra kvenna við margs konar hannyrðir og við af- komendurnir njótum verka henn- ar. Elli kerling fór ekki mildum höndum um mömmu síðustu þrjú árin og varð hún að fara til dvalar á hjúkrunarheimili síðustu mán- uðina. Þungbært var að þurfa að flytja hana þangað, verða vitni að hvernig búið er að eldri borgurum og skorti á virðingu fyrir þessum þjóðfélagshópi í Reykjavík og mætti þar verða breyting á til batnaðar. Hvíldu í friði, elsku mamma mín, og takk fyrir allt. Hulda Magnea Jónsdóttir. Hvernig skrifa ég minningar- grein um persónu sem hefur verið hluti af mér allt mitt líf? Hvar byrja ég? Jú, ég ætla að byrja á Kálfafelli þar sem mamma fædd- ist og ólst upp. Þessi staður var stór hluti af mömmu, þessi stór- brotna náttúra, Harðskafi fyrir of- an bæinn, Lómagnúpur vinstra megin við bæinn og Öræfajökull sem blasir við þegar maður stend- ur á hlaðinu fyrir framan bæinn. Þarna undi hún sér vel og fór á hverju sumri til að aðstoða og hugsa um móður sína á meðan hún lifði. Hún hélt áfram að fara á hverju sumri á meðan heilsan leyfði til að aðstoða bræður sína, Berg og Lárus, eftir að amma féll frá, en þeir bjuggu með ömmu en Bergur kvaddi þann 29. apríl sl. eftir stutt veikindi. Lárus býr enn á Kálfafelli og er hans missir mik- ill. Mamma mín var mikið náttúru- barn. Ég minnist ferðanna út í Tanga þar sem við tíndum kræki- ber, austur í Heimastahvamm þar sem við tíndum jarðarber, í Sæ- mundarbrekkuna að tína hrúta- Helga Helgadóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.