Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Björn Jónsson, eggjabóndi í Brautarholti á Kjalarnesi, er fæddurþar og uppalinn og hefur búið þar alla tíð. Hann er einn af eig-endum Brúneggja. „Í desember á þessu ári fögnum við því að
tíu ár eru frá því að fyrstu eggin okkar komu í búðir. Við renndum
blint í sjóinn með undirtektir en höfum fengið mjög góðar viðtökur og
sala á eggjunum frá okkur hefur aukist mjög á síðustu árum. Hæn-
urnar okkar eru í lausagöngu og eggin því með vistvæna vottun. Fólk
er farið að láta sig aðbúnað dýra miklu varða, sem er mjög jákvætt.
Það hefur líka haft sitt að segja að það er búið að afsanna að egg séu
óholl heldur eru þau mjög holl og einnig ódýr matur. Það starfa fimm-
tán manns hjá Brúneggjum, en þetta er lítið fjölskyldufyrirtæki. Kon-
an mín, Herdís Þórðardóttir, vinnur þar og krakkarnir okkar hafa
verið að vinna í pökkuninni
Áhugamálin eru fjölskyldan. Við erum með nokkur hross og stund-
um öll útreiðar og svo hef ég gaman af að ferðast þegar maður hefur
tíma til þess. Ég hef verið mörg ár í kórum og hef mikinn áhuga á
karlakórssöng, er einn af stofnendum Karlakórs Kjalnesinga og fyrsti
formaður hans. Ég hef líka sungið með Karlakór Reykjavíkur síðast-
liðin sautján ár. Ég hef oft verið hvattur til að læra eitthvað í söng en
aldrei látið verða af því.“
Björn heldur upp á afmælið með fjölskyldu sinni í dag. „Svo stendur
til að fagna þessum tímamótum síðar í sumar, ef það kemur sumar, og
þá er hætta á að tappi verði tekinn úr flöskum og það bresti í söng.“
Fjölskyldan Björn og Herdís ásamt börnum sínum, Erlu Björgu, Jóni
Þórði, Birnu Dís og Huldu, á fermingardegi Birnu Dísar í fyrra.
Tappi tekinn úr
flösku síðar í sumar
Björn Jónsson bóndi er fimmtugur í dag
Þ
orsteinn fæddist að Gler-
áreyrum 2 á Akureyri
27.5. 1945 og ólst upp á
Eyrinni. Hann dvaldi
mörg sumur á barnaheim-
ilinu Ástjörn hjá Maríu, systur sinni, og
Boga, bróður sínum. Þorsteinn var í
forskóla hjá Jennu Jensdóttur og
Hreiðari Stefánssyni, var í Barnaskóla
Akureyrar, lauk námi frá Gagnfræða-
skóla Akureyrar 1962, lauk námi frá
Iðnskólanum á Akureyri í tréskipa-
smíði 1966, lauk síðar námi við Lög-
regluskóla ríkisins 1973 og hefur sótt
fjölda námskeiða við skólann sem og á
vegum Tollskóla ríkisins.
Þorsteinn hóf sjómennsku á togar-
anum Sléttbak 13 ára að aldri, hóf
nám í tréskipasmíði 1962 á vegum
Skipasmíðastöðar KEA hjá Tryggva
Gunnarssyni skipasmíðameistara,
flutti til Dalvíkur 1966 og hóf vinnu
hjá Tréverki á Dalvík en tók við lög-
reglumannsstarfi þar 1.5. 1967.
Þorsteinn flutti aftur til Akureyrar
vorið 1970, hóf störf í lögreglunni þar
og starfaði þar til 1986 er hann tók við
starfi tollfulltrúa hjá Sýslumanninum
á Akureyri.
Þorsteinn hóf aftur störf í lögregl-
unni 1999 og var þar forvarnarfulltrúi
til starfsloka 31.5. 2010.
Þorsteinn hafði eftirlit með vín-
veitingastöðum í 10 ár og hefur sinnt
nokkuð ritstörfum. Hann skrifaði
greinar í Morgunblaðið um umferð-
Þorsteinn S. Pétursson, fyrrv. lögreglumaður – 70 ára
Á ferðalagi í Þýskalandi Þorsteinn og kona hans, Snjólaug Ósk, á ferð um Reutlingen í Þýskalandi síðastliðið sumar.
Hlúir að eikarbátum
og eldri verkmenningu
Við starfslok Þorsteins Björn J. Arnviðarson sýslumaður, Þorsteinn, Ólafur Ás-
geirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn og Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn.
Akureyri Hafþór Andri Þorvaldsson fæddist 27. maí 2014 kl. 19.54. Hann vó
4.268 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Sigrún Björk Bjarkadóttir og
Þorvaldur Helgi Sigurpálsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Hágæða postulín
- með innblæstri frá náttúrunni
Verið velkomin
í verslun RV og
sjáið úrval af
glæsilegum
hágæða
borðbúnaði