Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 35
armál og verndun tréskipa og um
verkþekkingu á því sviði.
Eitt sinn skáti - ávallt skáti
Þorsteinn var skáti í Skátafélagi
Akureyrar, sveitarforingi þar og fé-
lagsforingi í fimm ár. Hann hefur lok-
ið Gilwell-námi og hlotið nokkrar við-
urkenningar fyrir skátastarf, þar á
meðal forsetamerki skáta.
Þorsteinn var einn af stofnendum
Hjálparsveitar skáta á Akureyri og
Landssambands vélsleðamanna og er
einn af heiðursfélögum þess. Hann
tók við Húna II er Þorvaldur Skafta-
son kom með bátinn til Akureyrar
1965, var fyrsti formaður Hollvina
Húna II, er varaformaður og sér um
daglegan rekstur.
Þorsteinn var sæmdur heiðurs-
merki Sjómannafélags Eyjafjarðar
2013.
Helstu áhugamál Þorsteins snúast
um fjölskylduna, varðveislu tréskipa,
ekki síst verndun Húna II, og vernd-
un strandminja almennt. Þá má ekki
gleyma skátastarfinu: „Einu sinni
skáti – ávallt skáti,“ segir Þorsteinn.
„En þetta má nú líka útvíkka og segja
sem svo að maður sé manns gaman,
því mér finnst fátt skemmtilegra en
að eiga samvistir við skemmtilegt og
velviljað fólk úr öllum stéttum og á
öllum aldri.“
Fjölskylda
Eiginkona Þorsteins er Snjólaug
Ósk Aðalsteinsdóttir, f. 7.7. 1946, hús-
freyja. Hún er dóttir Aðalsteins
Sveinbjörns Óskarssonar, f. 16.8.
1916, d. 13.2. 1999, bónda frá Kóngs-
stöðum í Skíðadal og verslunar-
manns, og Sigurlaugar Jóhanns-
dóttur, f. 3.6. 1918, d. 4.7. 1975, frá
Brekkukoti í Hjaltadal, húsfreyju.
Börn Þorsteins og Snjólaugar Ósk-
ar eru Pétur Björgvin Þorsteinsson,
f. 7.2. 1967, djákni en kona hans er
Regína Brigitte Þorsteinsson hjúkr-
unarfræðingur og eru barnabörnin
Samuel Örn Pétursson, f. 1993, Hel-
ena Rut Pétursdóttir, f. 1996, og Jó-
hannes Már Pétursson, f. 2003; Að-
alsteinn Már Þorsteinsson, f. 15.7.
1969, kennari en kona hans er Cor-
nelia Susanne Þorsteinsson kennari
og eru barnabörnin Svava Ósk Að-
alsteinsdóttir, f. 1991, Ísak Már Að-
alsteinsson, f. 1992, Rakel Ösp Að-
alsteinsdóttir, f. 1995, og Stefán Bogi
Aðalsteinsson, f. 2002; Jóhann Hjalt-
dal Þorsteinsson, f. 17.7. 1972, kenn-
ari en kona hans er Hanna Þórey
Guðmundsdóttir bókasafnsfræðingur
og eru barnabörnin Sara Rut Jó-
hannsdóttir, f. 1999, og Elísabet Eik
Jóhannsdóttir, f. 2005.
Systkini Þorsteins: Elísabet, f.
20.3. 1922, d. 5.12. 1946, verkakona á
Akureyri; Jóhanna Fanney, f. 26.3.
1923, d. 16.11. 1963, húsfreyja í Bret-
landi; María, f. 22.2. 1924, d. 30.3.
1968, verkakona á Akureyri; Bogi, f.
3.2. 1925, d. 17.4. 2008, verkstjóri og
forstöðumaður barnaheimilisins að
Ástjörn; Stefanía Una, f. 29.3. 1926, d.
6.5. 2004, húsfreyja í Reykjavík; Jóna
Vilborg, f. 21.11. 1927, d. 25.9. 2005,
húsfreyja á Siglufirði; Guðlaug, f. 6.6.
1930, húsfreyja í Kópavogi; Stefán
Guðmundur, f. 8.5.1931, d. 3.1. 2009,
söðlasmiður á Akureyri; Hjálmar, f.
20.5. 1931, d. 24.11. 1997, úrsmiður í
Reykjavík (hálfbróðir); Jón Pétur, f.
5.3. 1934, skipstjóri í Garðabæ; Sig-
urlína, f. 4.4. 1936, húsfreyja í Mos-
fellsbæ; Valgerður, f. 6.7. 1937, lést
viku gömul; Halldór, f. 2.10. 1941, raf-
virkjameistari á Akureyri, og Ingi
Kristján, f. 22.7. 1943, sjómaður og
bifreiðarstjóri á Akureyri.
Foreldrar Þorsteins voru Pétur B.
Jónsson, f. á Þuríðarstöðum í Eyvind-
arárdal 26.11. 1889, d. 8.11. 1966, einn
fyrsti bifreiðarstjóri á Austurlandi og
skósmíðameistari á Eskifirði og síðar á
Akureyri, og k.h., Sigurbjörg Péturs-
dóttir, f. á Útnyrðingsstöðum á Völlum
á Héraði 14.2. 1902, d. 22.3. 1996, hús-
freyja á Eskifirði og á Akureyri.
Úr frændgarði Þorsteins Péturssonar
Þorsteinn
Pétursson
Jónína Sigríður Jónsdóttir
húsfr. og vinnukona víða
Stefán Ormarsson
frá Kirkjubæjarsókn
Una Stefanía Stefánsdóttir
húsfr. í Neskaupstað
Pétur Pétursson
verkam. og múrari
í Neskaupstað
Sigurbjörg Pétursdóttir
húsfr. á Akureyri
Jóhanna Aðal-
steinsd. fyrrv.
bæjarfulltr. á
Húsavík
Bjarni Hafþór
Helgason
fyrrverandi
fréttam. á RÚV
Pétur Ólason
b. á Gíslastöðum,
bróðursonur Jóns,
afa Róberts Arn-
finnssonar leikara
Jón Pétursson
b. í Tunghaga á Völlum
Jóhanna Halldóra
Stefánsdóttir
húsfr. í Tunghaga
Pétur B. Jónsson
skósmiður á Akureyri
Guðrún Símonardóttir
húsfr. á. Hallormsstað
og á Strönd
Stefán Jónsson
b. á Strönd og á Mjóanesi
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Gíslastöðum
Hákon Aðalsteinsson
skógarb. og hag-
yrðingur í Fljótsdal
Stefán Aðalsteinsson
forstöðum. Norræna
genabankans í Ósló
Jón Hnefill
Aðalsteinsson
próf. við HÍ
Hans Jakob S.,
leikhúsfr. og
leikstj.
Kristján
Jóhann, rith.
og dósent v. HÍ
Örlygur
Hnefill, lögm. á
Laugum
Ingibjörg Jóns-
dóttir húsfr. á
Vaðbrekku í
Hrafnkelsdal
Guðrún Aðal-
steinsd. húsfr.
á Klausturseli í
Jökuldal
Hrafnkell Jóns-
son alþm. og
safnvörður á
Egilsstöðum
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
aðjúnkt og skáld
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Jóhannes Jóhannesson listmál-ari fæddist í Reykjavík 27.5.1921. Foreldrar hans voru
hjónin Jóhannes Bárðarson, sjómað-
ur í Reykjavík, og Hallgríma Mar-
grét Jónsdóttir húsfreyja.
Eiginkona Jóhannesar var Álf-
heiður Kjartansdóttir þýðandi sem
lést 1997. Þau eignuðust fjögur börn.
Jóhannes stundaði nám við Iðn-
skólann í Reykjavík og lauk prófi í
gull- og silfursmíði árið 1945. Eftir
það stundaði hann myndlistarnám
við Barnes Foundation í Bandaríkj-
unum 1945-46 og á Ítalíu og í Frakk-
landi 1949 og 1951.
Jóhannes var listmálari í Reykja-
vík en hafði gull- og silfursmíði að
aðalstarfi allt til árisins 1973, fyrst
hjá Jóni Sigmundssyni og síðar í eig-
in verslun og verkstæði á árunum
1953-68. Hann var einn af þátttak-
endunum í Septembersýning-
ununum, sem ollu miklu umróti á ár-
unum eftir seinni heimsstyrjöld.
Hann hélt fjölda einkasýninga, inn-
anlands og utan, og tók þátt í mörg-
um samsýningum, m.a. erlendis og
með SEPTEM-hópnum á síðustu
áratugum aldarinnar.
Jóhannes sneri sér svo alfarið að
málverkinu eftir 1973 auk þess að
starfa í hlutastarfi hjá Listasafni Ís-
lands.
Jóhannes var einn stofnenda
Septembersýningarinnar 1947, for-
maður Félags íslenskra myndlistar-
manna 1951 og 1952 og fulltrúi fé-
lagsins í Bandalagi íslenskra lista-
manna 1959-60. Hann var fulltrúi í
Listasafni Íslands um langt skeið frá
1971 og sat í safnráði safnsins 1965-
73.
Bókin Jóhannes Jóhannesson –
Leikur forms og lita kom út hjá Há-
skólaútgáfunni árið 2002. Um er að
ræða listaverkabók, með megin-
áherslu á litmyndir af verkum Jó-
hannesar, þar sem gefið er yfirlit af
ferli hans sem listmálara. Bera Nor-
dal skrifar þar um list hans en auk
þess eru í bókinni heimildasafn og
listi yfir sýningar sem Jóhannes tók
þátt í. Karla Kristjánsdóttir sá um
útgáfuna og Kristján Pétur Guðna-
son tók flestar ljósmyndir hennar.
Jóhannes lést 12.10. 1998.
Merkir Íslendingar
Jóhannes
Jóhannesson
90 ára
Guðmundur Magnússon
Hrefna Svava
Guðmundsdóttir
85 ára
Inga Einarsdóttir
Kristín Johnsen
Þorsteinsdóttir
75 ára
Árni Ormsson
Eggert Gautur Gunnarsson
Erla Ruth Sandholt
Guðrún Ásbjörg
Magnúsdóttir
Kjartan Birgir Ólafsson
70 ára
Arndís H. Björnsdóttir
Brynjólfur J. Tryggvason
Elna Sigrún Sigurðardóttir
Hjálmveig María Jónsdóttir
Kristín J Stefánsdóttir
Sigurlaug Markúsdóttir
Stefán Þórsson
Valdís Hansdóttir
60 ára
Aðalheiður Stefánsdóttir
Anna Mikaelsdóttir
Björg Guðrún Bjarnadóttir
Guðrún Sigurðardóttir
Hólmfríður Bjarkadóttir
Hörður Harðarson
Kristján Elís Jónasson
Kristján Kristjánsson
Magnús Ólafsson
Sigríður H. Sigurðardóttir
Sigurjón Hannesson
50 ára
Benedikt Hálfdánarson
Berglind Friðbergsdóttir
Blanca Astrid Barrero
Amado
Guðjón Gunnsteinsson
Helgi Ketilsson
Jóhanna H Marteinsdóttir
Jóna Guðlaugsdóttir
Júlíus Sigurjónsson
Lovísa Olga Sævarsdóttir
Sigurður Finnsson
Sólveig Þ Sigurðardóttir
40 ára
Ásta Karen Jónsdóttir
Dagbjört A. Gunnarsdóttir
Danguolé Aukstikalniené
Davíð Hansson Wíum
Eiríkur Árnason
Grzegorz Misarko
Guðmundur Rúnar Árnason
Helena Guðmundsdóttir
Helgi Sæmundur Helgason
Helgi Örn Pétursson
Ingibjörg Þ. Pálsdóttir
Ingi Gunnar Ólafsson
Jökull Pálmar Jónsson
Nanna Kristín Skúladóttir
Pawel Jacek Jakubiak
Sindri Páll Þorsteinsson
Særún Brynja Níelsdóttir
30 ára
Arnfríður Ingvarsdóttir
Dana R. H. Aðalsteinsdóttir
Darri Eyþórsson
Guðmundur Steinþórsson
Harpa Dís Haraldsdóttir
Heiða Björk Geirsdóttir
Jaroslaw Pruszko
Kristín Jóna Bjarnadóttir
Magdalena Mroz
Margrét Ólafsdóttir
Ólafur Ingi Gunnarsson
Pawel Leslaw Fuks
Ragnar Gylfason
Rannveig Garðarsdóttir
Rokas Petkus
Sudarat Kaewwichit
Svavar Sæmann Elfarsson
Vignir Rúnar Kárason
Til hamingju með daginn
30 ára Þór Steinar býr í
Reykjavík, lauk prófum í
viðskiptafræði og fjár-
málum frá Lynn Univers-
ity í Flórída og er að hefja
störf hjá Arion banka.
Systkini: Björg Magnea
Ólafs, f. 1988, og Kristján
Már Ólafs, f. 1993.
Foreldrar: Þorsteinn
Ólafs, f. 1957, viðskipta-
fræðingur hjá VBS, og
Lára Kristjánsdóttir, f.
1961, að hefja sagn-
fræðinám við HÍ.
Þór Steinar
Ólafs
30 ára Viktoría ólst upp á
Blönduósi, Selfossi og á
Vopnafirði, býr í Reykja-
vík, lauk BA-prófi á sviðs-
höfundabraut við LHÍ og
útskrifast nú í júní.
Maki: Elías Björnsson, f.
1983, kerfisfræðingur.
Dóttir: Arna Dís Elías-
dóttir, f. 2005.
Foreldrar: Hjördís Blön-
dal, f. 1961, sjúkraliði, og
Jóhann Örn Arnarson, f.
1960, einkabílstjóri. Þau
eru búsett í Ósló.
Viktoría
Blöndal
30 ára Kría ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
prófum í grafískri hönnun
frá Listaháskóla Íslands og
starfar hjá Hvíta húsinu.
Börn: Fransiska Mirra, f.
2005, og Guðmundur
Flóki, f. 2010.
Systkini: Svala Firus, f.
1981, og Magnús Þór, f.
1987.
Foreldrar: Hjördís M.
Ingadóttir, f. 1959, og
Benedikt Kristþórsson, f.
1953.
Kría
Benediktsdóttir