Morgunblaðið - 27.05.2015, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
Enn er bætt um betur með nýju
ReSound heyrnartækjunum
sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og
prófaðu þessa hágæða tækni.
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Farðu á frumlegar uppákomur. Ekki
falla í þá freistni að sýna öðrum óheilindi þó
að þú sleppir kannski við ágreining með því.
Mundu bara að gjalda líku líkt þegar þar að
kemur.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu
ekki ætlast til að aðrir séu eins. Dagurinn í
dag einkennist af tilfinningaflækjum og er
ekki heppilegur til málamiðlana.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur unnið vel að undanförnu
og mátt vera ánægður með sjálfan þig. Ekki
pína sjálfan þig til þess að gera eitthvað sem
þér hugnast ekki.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú nærð þeim árangri sem þú ætlar
þér. Farðu varlega í umferðinni, hvort sem þú
ert gangandi eða akandi. Nú skalt þú ganga
hreint til verks og gera upp fortíðina.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fullkomnunarárátta er streituvaldur.
Dundaðu þér við kaffidrykkju, farðu í göngu-
ferð eða gerðu hvaðeina sem gefur þér svig-
rúm.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reynið að taka hlutina ekki of
persónulega. Dagurinn hentar hins vegar
engan veginn til mikilvægrar ákvarðanatöku
enda er hætt við að þær ákvarðanir sem þú
tekur í dag muni ekki ganga upp.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt nauðsynlegt sé að skoða mál frá öll-
um hliðum þá kemur að því að ákvörðun
verður að taka. Nú er rétti tíminn til að sleppa
þessu endanlega.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er nauðsyn að taka fjármálin
föstum tökum áður en eyðslan fer úr bönd-
unum. Ekki slá samt lán eða eyða fyrir fram.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert tilfinningarík manneskja
en mundu að þínar skyldur eru fyrst og
fremst við þig og þína nánustu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú munt hugsanlega eiga mikil-
vægar samræður við foreldra þína eða yfir-
menn í dag. Sinntu því fólki sem þarfnast þín.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Strengdu þess heit að hnýta lausa
enda sem tengjast smáa letrinu og skrif-
finnsku. Reyndu að láta þetta hafa sem
minnst áhrif á þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er rétti tíminn til þess að láta hug-
myndir sínar uppi við þá aðila sem geta hjálp-
að þér við að koma þeim í framkvæmd.
Leyfðu öðrum að njóta gleðinnar með þér.
Fía á Sandi getur ekki orðabundist á Leirnum: „Lagið
komst ekki áfram og þjóðin barmar
sér meira vegna þess en verkfall-
anna. Makalaust hvað við erum allt-
af viss um að okkar framlag sé
betra en annarra þjóða. Ég hef sent
þessa tillögu á leirinn í hvert sinn
sem menn láta svona og geri enn.
Ekki var nú sigur Íslands sóttur
svona fer oft verr en margir halda.
Við áttum að senda Ásu Ketilsdóttur
út, með rímnatónlist fyrri alda.“
Davíð Hjálmar Haraldsson leikur
sér að erfiðum rímorðum í þessum
limrum:
Er Kamillus keisari Vandala
drakk konjakk hann olli oft skandala
og fullur í stígvélum
fór um á vígvélum
þótt hirðsiðir heimtuðu sandala.
Úr þröngri og hyldjúpri holunni
vösk hjálparsveit bjargaði Kolunni
er sagði þar heitt,
ei sofið gat neitt
en stundum hún geispaði golunni.
Páll Imsland var að koma úr
Hornafjarðarreisu og á leiðinni
suður varð eftirfarandi til:
Við Steinafjall steinarnir tala
og Steinþór hét bóndinn á Hala.
Þar náttúran blífur
og nágrennið hrífur
en vættir í húminu hjala.
Á Boðnarmiði yrkir Björn Ing-
ólfsson „Sauðburðarlimru II“:
„Lífið er skrýtinn skrambi
og skrautlegt“ kvað Jóhann á Kambi,
„og sælleg er Vera,
ég sá hana bera
goltóttu gimbrarlambi.“
Jóhann S. Hannesson orti:
Að æskan sé hverful og hröð
má heyra á lýðnum á Tröð:
gegn ungæðiskeim
af hreyfing og hreim
mælti hugsunin, gömul og stöð.
Eysteinn frá Skáleyjum orti:
Strákurinn stelpuna greip í,
strauk hana, þuklaði, kleip í.
Viðþolið missti,
meyjuna kyssti
umlandi I love you baby.
Gísli Jónsson orti:
Löngu hafði ’ann Björn gamli á Hlaða
tvo hrúta inn í stofu hjá Daða
í minningarskyni
um tvo mjög kæra vini,
en hann mundi bara alls ekki hvaða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Rímnatónlist og limrur
af ýmsu tagi
Í klípu
„NÆSTA LAG ER FYRIR ÞÁ SEM ELSKA
LÖG ÁN UNDIRLEIKS; ENGIR STRENGIR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ VAR GÓÐ HUGMYND AÐ PANTA
HEIMSENT MEÐAN LYFTAN ER BILUÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...þegar 7 er
happatalan ykkar.
7.
HIMIN
N
FYRSTA SNJÓKORN ÁRSINS.
HVERNIG ÆTLI VETURINN
EIGI EFTIR AÐ VERA.
LÍKLEGAST
SLÆMUR.
ÞETTA SKIL ÉG
EKKI ALVEG,
ÞAÐ ER EINS OG ÞEIR
VILJI AÐ VIÐ ELTUM ÞÁ.
Gera mætti tungumálakennsluhærra undir höfði í íslensku
skólakerfi. Víkverji hallast að því
að mikilvægi tungumálanáms sé
iðulega vanmetið og telur að sér-
staklega ætti að gefa gaum að því
að nýta tímann sem börn drekka í
sig framandi tungur eins og svamp-
ur vatn. Þannig mætti freista þess
að láta börn tileinka sér nýtt
tungumál án þess að fara í gegnum
nauðsynlegt en lýjandi mál-
fræðistagl.
x x x
Talið er að í það minnsta séu7.102 tungumál töluð í heim-
inum á okkar dögum. Þetta er ótrú-
legur fjöldi, en útbreiðsla þessara
tungumála er þó mismikil. Kín-
versku tala ef allar mállýskur eru
taldar 1,39 milljarðar manna. Tveir
þriðju hlutar mannkyns eiga þau 12
tungumál, sem mest eru töluð, að
móðurmáli. Gríðarlegur fjöldi
tungumála er hins vegar við það að
hverfa. Á vefsíðunni ethnologue-
.com, þar sem fjallað er um tungu-
mál heimsins, segir að 13% þeirra
eða 916 séu í andarslitrunum. Þeir,
sem hafa málið að móðurmáli, eru
farnir að reskjast, og þeir, sem eru
á barneignaraldri, kunna ekki nóg
til að miðla málinu til barna sinna.
x x x
Á sama stað kemur fram að 1.531eða 22% allra tungumála séu í
hættu vegna þess að foreldrar miðli
þeim ekki lengur til barna sinna.
Hins vegar sé hægt að snúa þeirri
þróun við vegna þess að foreldr-
arnir kunni málið nógu vel til að
miðla því til næstu kynslóðar. Þar
segir einnig að frá árinu 1950 hafi
367 tungumál dáið út þar sem eng-
inn eigi þau lengur að móðurmáli.
x x x
Víkverji fór aðeins út af sporinu íþessum pistli, sem hann byrjaði
að skrifa af því að hann rakst á
grein þar sem sagði að í Bandaríkj-
unum gæti þýskukunnátta þýtt 17
milljónum króna meira í ævitekjur
en ella, franska væri hálfdrætt-
ingur á við þýskuna og spænska
skilaði þriðjungi. Tungumál verða
meira að segja metin til fjár.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Þetta er dagurinn sem Drottinn gerði,
fögnum og verum glaðir á honum.
(Sálmarnir 118:24)