Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Ísland verður í forgunni á listahátíð-
inni Culturescapes 2015 sem haldin
verður í 11. sinn í Sviss dagana 2. októ-
ber til 29. nóvember nk. Allar listir eru
undir, jafnt bókmenntir, dans, leiklist,
tónlist, kvikmyndir, hönnun og mynd-
list, en stór hópur listamanna tekur
þátt. Á ofangreindu tveggja mánaða
tímabili verður boðið upp á tæplega
150 viðburði, þ. á m. tónleika, fyr-
irlestra, myndlistarsýningar og kvik-
myndasýningar. Á síðustu árum hafa
rúmlega 20 þúsund gestir sótt viðburði
hátíðarinnar árlega. Ráðgert er að há-
tíðin kosti eina milljón evra eða tæp-
lega 150 milljónir íslenskra króna og
því óhætt að fullyrða að þetta sé ein
stærsta listahátíð með Ísland í for-
grunni sem haldin er utan landstein-
anna.
„Markmið hátíðarinnar er að skoða
menningarlandslag einnar þjóðar,
landsvæðis eða borgar,“ segir Jurriaan
Cooiman, listrænn stjórnandi og stofn-
andi listahátíðarinnar Culturescapes.
Bendir hann á að menningin sé mörk-
uð af tungumálinu og umhverfinu þar
sem hún verði til sem og af pólitísku
landslagi þar sem ráðamenn reyna
ítrekað að endurskrifa söguna sér í
hag.
„Við sáum mjög skýrt dæmi um
þetta þegar lönd Balkanskagans voru í
forgrunni hátíðarinnar árið 2013 að all-
ar þjóðirnar studdust við ólíkar sögu-
bækur um nýliðna atburði,“ segir Coo-
iman og nefnir loks sem áhrifavald á
menninguna hvers kyns áföll. „Í tilviki
Íslands er borðleggjandi að nefna
efnahagshrunið 2008 auk þess sem
þjóðin býr við stöðuga ógn frá nátt-
úrunni í formi eldsumbrota og jarð-
skjálfta.“
Spurður hvers vegna Ísland hafi
orðið fyrir valinu í ár segir Cooiman að
sér hafi fundist spennandi að koma
með mjög skýrt mótvægi við hátíð síð-
asta árs þar sem Tókýó, stærsta borg
heims, var í brennidepli. „Ísland er
mjög spennandi fyrir margra hluta
sakir. Saga landsins er ekki nema
rúmlega 1.200 ára gömul og íbúafjöld-
inn er aðeins 1% af Tókýó. Land-
fræðilega er Ísland mjög skýrt mark-
að í ljósi þess að vera eyja, sem setur
djúp spor á íbúana og menninguna,“
segir Cooiman sem lagði leið sína
margsinnis til Íslands við undirbúning
hátíðarinnar. „Rannsókn mín á ís-
lensku listalífi hófst í maí 2014 þegar
ég kom til Íslands til að skoða
Listahátíð í Reykjavík, en í framhald-
inu kom ég á Iceland Airwaves, Lókal,
Reykjavík Dance Festival, Myrka
músíkdaga og Hönnunarmars auk
þess sem ég átti fundi með listafólki
og ráðamönnum,“ segir Cooiman og
tekur fram að hann sé afar ánægður
með og stoltur af komandi dagskrá.
Meðal þeirra íslensku listamanna
sem staðfest hafa þátttöku sína á
Culturescapes 2015 eru Sóley, Anna
Þorvaldsdóttir, Daníel Bjarnason,
Andri Snær Magnason, Schola Can-
torum, Ragnar Helgi Ólafsson frá
Tunglbókum, Erna Ómarsdóttir,
Skúli Sverrisson, ADHD, Sunna
Gunnlaugs, Yrsa Sigurðardóttir, Frið-
geir Einarsson, Gusgus, Kling &
Bang, Kunstschlager, Ragna Ró-
bertsdóttir, Pétur Thomsen, Egill
Snæbjörnsson, Ragnar Kjartansson,
Gjörningaklúbburinn og Víkingur
Heiðar Ólafsson, auk þess sem beðið
er staðfestingar frá Jóni Gnarr og
Sjón, en tæmandi þátttakendalisti
verður ekki kynntur fyrr en á blaða-
mannafundi í Basel um miðjan sept-
ember.
Áhugasamir um Ísland
„Auk þess tekur þátt hópur sviss-
neskra listamanna sem búið hafa og
starfað á Íslandi, s.s. Christoph Büch-
el, Dieter Roth, Roman Signer, Silvia
Bächli og Eric Hattan,“ segir Coo-
iman og bendir á að einnig taki þátt
bandaríska listakonan Roni Horn sem
hefur mikið unnið hérlendis. Cooiman
segir Biophilia-verkefni Bjarkar
verða kynnt á hátíðinni auk þess sem
sýndar verði nýlegar íslenskar kvik-
myndir, en endanlegt val liggur ekki
fyrir.
Aðspurður segir Cooiman um helm-
ing viðburða hátíðarinnar fara fram í
Basel, en hinn helmingurinn dreifist
víða um Sviss. „Við leggjum mikið upp
úr því að viðburðir hátíðarinnar rati
sem víðast. Sem dæmi má nefna að
Schola cantorum heldur fimm tónleika
víðs vegar um landið, Ragnar Kjart-
ansson sýnir bæði í Zürich og Basel og
ný kammerópera Önnu Þorvalds-
dóttur verður flutt bæði í Basel og
Chur,“ segir Cooiman og leggur mikla
áherslu á að hátíðin sé haldin í náinni
samvinnu við ýmsar lista- og menning-
arstofnanir í Sviss. „Markhópur okkar
er listunnendur sem þegar sækja hin-
ar ýmsu menningarstofnanir hér-
lendis,“ segir Cooiman og tekur fram
að hann búist við góðri aðsókn sviss-
neskra listunnenda í haust. „Enda eru
Svisslendingar mjög áhugasamir um
Ísland og margir ýmist nýbúnir að
heimsækja landið eða á leiðinni, enda
auðvelt að fljúga með Easy Jet frá
Basel til Keflavíkur,“ segir Cooiman
og bendir á að samkvæmt tölfræðinni
séu Svisslendingar ört stækkandi
hópur meðal ferðamanna á Íslandi.
Eins og fyrr sagði kostar um eina
milljón evra að halda hátíðina og því
liggur beint við að spyrja hvernig há-
tíðin sé fjármögnuð. „Við rekum ekki
okkar eigið húsnæði heldur störfum í
mjög nánu samstarfi við leikhús, tón-
leikastaði, söfn og háskóla,“ segir
Cooiman og tekur fram að í því formi
leggi samstarfsaðilar til þriðjung
þess fjár sem kosti að reka hátíðina.
„Þriðjungur fæst frá svissneskum
styrktaraðilum og stofnunum og loks
kemur þriðjungur frá því landi sem
er í brennidepli hverju sinni,“ segir
Cooiman og nefnir í því samhengi
framlög frá íslenska mennta- og
menningarmálaráðuneytinu,
Reykjavíkurborg, Kynning-
armiðstöð íslenskrar myndlistar,
Miðstöð íslenskra bókmennta og Ice-
landair.
Um 150 viðburðir á
tveimur mánuðum
Morgunblaðið/Heiddi
Gjörningaklúbburinn Eirún Sigurðard., Sigrún Hrólfsd. og Jóní Jónsd.
Ljósmynd/Saga Sig
Björk Biophilia verður kynnt.
Ísland í forgrunni á listahátíðinni Culturescapes í Sviss
Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Einar Falur
Víðförull Ragnar Kjartansson.
Morgunblaðið/Einar Falur
Einleikur Víkingur Heiðar Ólafsson Listakonan Roni Horn.
Hollendingurinn Jurriaan Cooiman
hefur búið og starfað í Sviss frá
árinu 1994, fyrst sem dansari og síð-
ar sem yfirmaður hjá Performing
Arts Services sem sér um að skipu-
leggja listviðburði og ferðalög list-
hópa. Hann lauk doktorsnámi í
menningarstjórnun frá Háskólanum
í Basel 2004 og hefur átt sæti á Evr-
ópska menningarþinginu frá 2008.
Cooiman er stofnandi og listrænn
stjórnandi Culturescapes, en fyrsta
listahátíðin var haldin árið 2005 og
var þá Armenía í forgrunni. Hátíðin
hefur verið haldin árlega síðan með
áherslu á eitt land, landsvæði eða
borg. Þannig hefur sjónum verið
beint að Eistlandi, Rúmeníu, Tyrk-
landi, Aserbaídsjan, Kína, Ísrael,
Moskvu, löndunum á Balkanskaga,
Tókýó og loks Íslandi.
„Ég hafði talsverða reynslu af því
að skipuleggja tónlistarhátíðir og
tónleikaferðir þegar hugmyndin að
Culturescapes kviknaði. Mér fannst
svo spennandi að halda hátíð þar
sem sjónum væri beint að öllum list-
greinum tiltekins landsvæðis,“ segir
Cooiman og tekur fram að fyrstu ár-
in hafi hann beint sjónum sínum að
löndum Austur-Evrópu. „Þannig
valdi ég lönd sem höfðu verið undir
stjórn gömlu Sovétríkjanna. Þessi
lönd hafa breyst svo mikið frá falli
Berlínarmúrsins og járntjaldsins, en
almenningur hér vissi mjög lítið um
þessi lönd og blómlegt menningarlíf
þeirra. Fyrstu árin var markmið
mitt því að auka innsæi og skilning á
menningarlífi nágranna okkar hér á
meginlandinu,“ segir Cooiman og
tekur fram að ákveðið hafi verið að
listahátíðin Culturescapes verði hér
eftir haldin annað hvert ár í stað
þess að vera árlega. „Það skýrist af
því að framboðið af listahátíðum og
menningarviðburðum hér í Sviss
hefur aukist til muna á undan-
förnum árum og því finnst okkur
betra að hafa hátíðina sjaldnar en
þeim mun veglegri hverju sinni.“
Sjónum beint að
öllum listgreinum
Stjórnandinn Jurriaan Cooiman.
Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er
Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu
af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði
og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu
ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili.
Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450
zenus@zenus.is • zenus.is
Augljós kostur
5 ára
ábyrgð