Morgunblaðið - 27.05.2015, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Eftir 70 ára bið kom loks aðfyrsta íslenzka heildar-frumflutningi á nafntog-aðri ,sjávaróperu‘ Ben-
jamins Brittens Peter Grimes frá
1945 er markaði ekki aðeins upphaf
heimsfrægðar höfundar heldur
einnig viðreisn brezkrar óperu nán-
ast allt frá tímum Händels. Hún sló
strax í gegn og var t.a.m. frumsýnd
í Kaupmannahöfn þegar 1947.
Freistandi er að leita svara við
því hvað dvaldi Orminn langa hing-
að, þó flest verði sjálfsagt rakið til
þess hversu seint Íslenzka óperan
kom til sögunnar eða fyrir aðeins 37
árum; lengst af við þröngan kost.
Þar við má bæta verulegar tækni-
kröfur verksins sem hérlendir
hljómflutningsmenn réðu e.t.v. illa
við í öndverðu, hafi ekki verkið ein-
faldlega verið talið of framsækið
fyrir íslenzka áheyrendur.
En þótt hér færi aðeins ósviðsett
konsertuppfærsla í nafni Listahátíð-
ar í Reykjavík, þá gaf fyrsti íslenzki
heildarflutningur óperunnar samt
von um fulla sviðsuppfærslu í náinni
fyllingu tímans. Því burtséð frá
fjarveru sjónleiks (að mestu), bún-
inga og sviðsmynda var ekki að
heyra annað en að innlendir kraftar
hljómsveitar, kórs og einsöngvara
stæðust vel kröfur verksins til full-
gildrar óperuuppsetningar. Alltjent
var ekki út á aðsókn að setja. Hún
skilaði nánast fullu húsi, að vísu að
þónokkrum erlendum ferðamönnum
meðtöldum, en sízt nein afsökun
fyrir að draga fullnustu verksins
miklu lengur.
Ekki gat ég, fremur en trúlega
flestir áheyrenda, státað af náinni
þekkingu á Peter Grimes, jafnvel
þótt tónræn uppistaða óperunnar,
Sjávarmillispilin I-V, hafi verið flutt
hér áður á sinfóníutónleikum 1957,
1967, 1985, 1991 og 1995. En því
magnaðri reyndist fyrsta heildar-
upplifunin. Verkið sló mann kannski
mest fyrir þá sérstöðu umfram aðr-
ar óperur 20. aldar hve umhverfið –
hafið – vó þungt á metum; jafnvel
svo að kalla mætti þá höfuðskepnu
aðalpersónu verksins.
Ekki sízt ef tilhöfðun til almennra
hlustenda þykir skipta einhverju
máli. Allavega gerðist oftar en einu
sinni að maður heyrði ósjálfrátt fyr-
ir sér seiðandi dróttvísu Egils Þél
høggr stórt fyr stáli / stafnkvígs á
veg jafnan úr svarrandi brimfextu
framlagi hljómsveitar undir afburða
sveigjanlegri stjórn Daníels Bjarna-
sonar, þrátt fyrir að sögn nauman
æfingatíma. Hafi hljómsveitin á
köflum verið í sterkara lagi fyrir
einsöngvarana (sumpart háð setu-
stað hvers hlustanda), þá truflaði
það samt ekki undirritaðan að
marki.
32 manna kór ÍÓ stóð sig að von-
um svo sópaði að, og gaf frammi-
staðan enn tilefni til að spyrja hvort
ekki sé löngu kominn tími til sjálf-
stæðrar söngfarar hans til útlanda.
Einsöngvararnir skiluðu sömuleiðis
sínu með miklum ágætum. Þó að
ástralski tenórinn í aðalhlutverki
virtist svolítið háður kverka-
slæmsku, þá nýttist hún honum list-
rænt á bezta veg við að tjá sálarvíl
vinasnauða sjómannsins. Hin
brezka Judith Howarth var eft-
irminnileg í hlutverki Ellenar Or-
ford, og meðal innlendra einsöngv-
ara bar að öðrum ólöstuðum af
þróttmikil tjáning Ólafs Kjartans
Sigurðarsonar í gervi Balstrodes
skipstjóra.
Hér fór sem sagt óvenju síðkom-
inn Íslandsfrumflutningur í kon-
sertformi á einni af fremstu óperum
20. aldar. Má þó óhætt segja að öll-
um hafi verið sómi að. Ef eitthvað
er mætti í hæsta lagi finna að birt-
ingarmáta söngtextans, er sýndur
var á breiðtjaldi með smáu hvítu
letri á ljósum himni yfir opnu hafi
og því varla auðlesinn af öftustu
bekkjum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frábær orkestrun „Enn í dag má ábyggilega leita langt að öðru eins kraftmiklu karlmennskutóntaki í óperugrein-
inni, þótt blönduð sé einnig tærri lýrík og furðumelódískum ómstreitum í frábærri orkestrun sem síðari tíma fram-
sækni gæti lært mikið af,“ skrifar rýnir og hrósar „afburða sveigjanlegri stjórn Daníels Bjarnasonar“.
Síðkomin sjávarópera
Eldborg í Hörpu
Listahátíð – Óperutónleikar-
bbbbn
Benjamin Britten: Peter Grimes (1945;
konsertuppfærsla í ísl. frumfl.) Söngrit:
Montague Slater við ljóð e. George
Crabbe. Stuart Skelton (Grimes; T),
Theodór Pálsson (drengur; þögult hlut-
verk), Judith Howarth (Ellen Orford; S),
Ólafur Kjartan Sigurðarson (Balstrode;
Bar.), Hanna Dóra Sturludóttir (Frænka;
A), Hallveig Rúnarsdóttir og Lilja Guð-
mundsdóttir (smáfrænkur 1 & 2; S),
Snorri Wium (Robert Boles; T), Viðar
Gunnarsson (Swallow; B), Ingveldur Ýr
Jónsdóttir (frú Sedley; MS), Garðar
Thór Cortes (séra Adams; T), Oddur
Arnþór Jónsson (Ned Keene; Bar.), Jó-
hann Smári Sævarsson (Hobson; B).
Kór Íslenzku óperunnar og Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Stjórnandi: Daníel
Bjarnason. Föstudaginn 22.5. kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Skjaldborg – Hátíð íslenskra
heimildamynda lauk á Patreks-
firði á sunnudag en hún var hald-
in í níunda sinn. Á hátíðinni eru
veitt ein verðlaun, áhorf-
endaverðlaunin „Einarinn“, og
þau hlaut að þessu sinni kvik-
myndin Hvað er svona merkilegt
við það? eftir Höllu Kristínu Ein-
arsdóttur leikstjóra. Framleið-
andi er Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir.
Kvikmyndin fjallar um það
þegar íslenskar konur ákváðu í
kjölfarið á róttækri og litríkri
kvennabaráttu að hasla sér völl á
hinu pólitíska sviði. Þær stofnuðu
Kvennaframboð til borg-
arstjórnar og síðar Kvennalistann
sem átti fulltrúa á Alþingi í 16
ár.
Einarinn, verðlaunaskjöldur
Skjaldborgarhátíðarinnar, er
smíðaður af Einari Skarphéð-
inssyni, smíðakennara á Patreks-
firði, og heitir jafnframt í höfuðið
á honum. Einar smíðar gripinn á
hverju ári af mikilli natni og vel-
ur sérstaklega efniviðinn í hann.
Einar til
Höllu
Kristínar
Ljósmynd/Ingi R. Ingason
Verðlaunin Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir framleiðandi og Halla
Kristín Einarsdóttir leikstjóri.
Listahátíð í Reykjavík sendi frá sér
tilkynningu þess efnis að vegna víð-
tækra verkfallsaðgerða og yfirvof-
andi allsherjarverkfalls hefðu tvær
breytingar verið gerðar á dagskrá
hátíðarinnar sem nú stendur yfir.
Mannsröddin eftir Francis
Poulenc, í flutningi Juliu Migenes,
sem auglýst var í Eldborg þann 7.
júní, fellur niður. Allir miðar verða
endurgreiddir í miðasölu Hörpu.
Þá verður fyrirlestur Guerrilla
Girls í Bíó Paradís 4. júní kl. 17 en
ekki 6. júní kl. 14.
Tónleikum aflýst og fyrirlestur fluttur
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Mið 27/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00
Fös 29/5 kl. 19:00 Fös 5/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00
Lau 30/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00
Sun 31/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00
Mið 3/6 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fim 28/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson - síðustu sýningar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Hystory (Litla sviðið)
Sun 31/5 kl. 20:00 auka. Fim 4/6 kl. 20:00 aukas.
Nýtt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur - síðasta sýning
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Lau 30/5 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Shantala Shivalingappa (Stóra sviðið)
Þri 2/6 kl. 20:00
Sýning á vegum Listahátíðar í Reykjavík
Blæði: obsidian pieces (Stóra sviðið)
Fim 28/5 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn - Aðeins þessar sýningar
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200