Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 41

Morgunblaðið - 27.05.2015, Side 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Bandaríski grínistinn og leikarinn Gabriel Iglesias verður með uppi- stand í Eldborg í Hörpu í kvöld. Sýning hefst kl. 20 með upphitun tveggja grínista, þeirra Martins Mo- reno og Larry Omaha, og Iglesias stígur á svið eftir hlé kl. 21.10, skv. dagskrá. Iglesias er með þekktari uppistöndurum í heimalandi sínu og gerir m.a. grín að vaxtarlagi sínu, segist ekki vera feitur heldur „fluffy“, þ.e. dúnmjúkur. Uppistand hans einkennist m.a. af eftirhermum og furðulegum hljóðum sem Iglesias myndar af mikilli list. Fyrstu tvær sýningar hans, Hot & Fluffy og I’m Not Fat… I’m Fluffy, voru gefnar út á mynd- diskum og hafa selst í yfir tveimur milljónum eintaka og Iglesias hefur auk þess leikið í og talsett fjölda kvikmynda og má þar nefna The Nut Job, The Book of Life, A Haun- ted House 2 og Magic Mike XXL sem verður brátt frumsýnd hér á landi en í henni leikur hann á móti Matthew McConaughey og Chann- ing Tatum. Þá hefur Iglesias komið fram í spjallþáttum á borð við The Arsenio Hall Show og The Tonight Show með Jay Leno. Iglesias mun einnig koma fram á grínhátíðinni Reykjavík Comedy Festival 2015 í Eldborg 25. október nk. og hefst miðasala á það uppi- stand á morgun. Iglesias svaraði nokkrum spurningum blaðamanns í liðinni viku og það stutt og laggott. Gælunafn frá mömmu -Hvenær og hvers vegna hófstu uppistand? „10. apríl 1997. Mig hafði alltaf langað að stunda það,“ svarar Ig- lesias. -Hvernig myndir þú lýsa grín- stílnum hjá þér? „Grínstíllinn hjá mér er frásagn- argrín, sögur sem fólk tengir við. Umfjöllunarefni mín eru m.a. fjöl- skyldan og börn, brjálaðir vinir og ýmislegt sem kemur fyrir mig og gerist í kringum mig.“ -Þú fjallar mikið um eigin þyngd í uppistandinu og ein af sýningunum þínum hét Ég er ekki feitur, ég er dúnmjúkur (e. I’m Not Fat. I’m Fluffy). Ertu meðlimur í Fituviður- kenningarhreyfingunni (e. The fat acceptance movement) eða er þetta bara auðveld leið til að gera grín að sjálfum sér? „Er til „fituviðurkenningar- hreyfing“? Ja, hérna! Ég vissi það ekki en áhugi minn á henni hefur verið vakinn. Þegar ég var að alast upp kallaði mamma mig „Dún- mjúkan“ (e. Fluffy) og það gælunafn og brandari festist við mig,“ svarar Iglesias. -Þú hefur líka mikið dálæti á Havaí-skyrtum, hvað er það við skyrturnar sem heillar þig svo mjög? „Ég dýrka Havaí-skyrtur. Þær eru glæsilegar og þægilegar.“ Drykkjan gerir allt fallegt -Eru einhver forboðin umfjöll- unarefni í uppistandinu hjá þér, eitt- hvað sem þú myndir aldrei gera grín að? „Já. Það eru tvö umfjöllunarefni sem ekki má snerta á því þau skipta áhorfendum umsvifalaust í tvo hópa. Ég tala ekki um íþróttir eða stjórn- mál, allt annað er leyfilegt,“ svarar Iglesias. -Hvað veistu um Ísland og verða einhverjir brandarar sérsniðnir að landinu í uppistandinu? „Mér hefur verið sagt að það sé einn fegursti staður heims og með fegursta fólki í heimi en ég drekk mikið þannig að það verður alltaf fallegt í mínum augum.“ -Hefurðu komið til Íslands áður og hvað ætlarðu að gera meðan á dvöl þinni stendur, fyrir utan að koma Íslendingum til að hlæja? „Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer til Íslands og ég get ekki beðið eftir því að sjá og upplifa landið,“ segir Iglesias. -Þú virðist geta líkt eftir nánast hvaða framburði og rödd sem er. Hefurðu spreytt þig á íslenskum hreim? „Er til íslenskur hreimur? Það kemur í ljós, býst ég við.“ -Ef þú ættir að nefna manneskju sem er með kjánalegustu rödd sem þú hefur heyrt, hver væri það? „Gilbert Gottfried … gúgglaðu hann,“ segir Iglesias að lokum og eru lesendur hvattir til að kynna sér þann ágæta mann á netinu. Heyrn er sögu rík- ari.  Hinn dúnmjúki Gabriel Iglesias skemmtir í Eldborgarsal Hörpu í kvöld  Furðulegar raddir, hljóð og sögur sem fólk tengir við Allt nema íþróttir og stjórnmál Ljósmynd/ Paul Mobley Bíólistinn 22. - 24. maí 2015 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Mad Max: Fury Road Pitch Perfect 2 Bakk Avengers: Age Of Ultron Spooks: The Greater Good Hot Pursuit Home Ástríkur á Goðabakka Fúsi Good Kill 1 2 3 4 Ný 5 6 7 9 Ný 2 2 3 5 1 3 9 6 9 1 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Mad Max: Fury Road aflaði mestra miðasölutekna um nýliðna helgi af þeim kvikmyndum sem sýndar eru í bíóhúsum landsins, rúmlega fjög- urra milljóna króna og hafa nú um 14.000 manns séð myndina á tveimur vikum. Engar breytingar urðu milli vikna í þremur næstu sætum, Pitch Per- fect 2 skilaði um 3,2 milljónum króna í miðasölukassana og um 5.400 manns hafa séð íslensku gamanmyndina Bakk og nema miðasölutekjur af henni um 6,7 milljónum króna. Öllu fleiri hafa séð ofurhetjumyndina Avengers: Age of Ultron, eða um 38.000 bíó- gestir og um 10.700 hafa séð kvik- myndina Fúsa frá upphafi sýn- inga. Bíóaðsókn helgarinnar Max heldur kyrru fyrir ÍSLENSKT TAL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 Sendum hvert á land sem er Taktu raftækin með í ferðalagið Tengist við 12V sígarettutengi eða rafgeymi. Allar stærðir til á lager.100W 150W 300W Verð 5.990 kr. Verð 6.990 kr. Verð 9.990 kr. 600W 1000W Verð 23.990 kr. Verð 34.990 kr. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.