Morgunblaðið - 27.05.2015, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Hjón týndust í tvær vikur
2. Svona kynlíf þurfa allir að …
3. Drap kanínu í beinni með …
4. Mótmæli hafin á Austurvelli
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Möguleikhúsið frumsýnir leikverkið
Hávamál, eftir Þórarin Eldjárn og
leikhópinn, í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.
Leikstjóri er Daninn Torkild Linde-
bjerg og leikarar Pétur Eggerz, Alda
Arnardóttir og Anna Brynja Bald-
ursdóttir. Sýningin er á dagskrá
Listahátíðar í Reykjavík. Í Háva-
málum segir af unglingsstúlku og
móður hennar sem hafa villst á fjöll-
um. „Þær koma að undarlegu tré þar
sem þeim birtist dularfullur maður er
kemur undarlega fyrir. Er hann kom-
inn til að hjálpa, eða aðeins til að
rugla þær í ríminu? Er þetta geðsjúkl-
ingur, helgur maður, tröll eða jafnvel
hinn forni guð Óðinn?“ segir m.a. um
verkið á vef Listahátíðar.
Morgunblaðið/Kristinn
Hávamál frumsýnd
Hljómsveitin K tríó heldur útgáfu-
tónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
í kvöld kl. 20 vegna breiðskífu sinnar
vindstig. Hljómsveitin vann til
þrennra verðlauna á Íslensku tónlist-
arverðlaununum í ár, fyrir bestu
djassplötu, besta djasstónverk og
besta tónhöfund. Um vindstig segir í
tilkynningu frá hljómsveitinni að hver
og ein tónsmíð sé tileinkuð einu
gömlu, íslensku vindstigi, s.s. 12
vindstigum og logni. „Til að fá sjón-
ræna hlið á verkefnið fengum við
listakonuna Helgu Páleyju til að
teikna myndir sem tilheyra hverri
tónsmíð. Þessum myndum munum
við varpa upp meðan á tónleikunum
stendur,“ segir þar. Tríóið skipa Krist-
ján Martinsson sem leikur á píanó,
flautu og sér um tónsmíðar; Pat Clea-
ver sem leikur á kontrabassa og bás-
únu og Andris Buikis
sem leikur á
trommur og
melód-
íku.
12 vindstig og logn
Á fimmtudag Norðan 8-15 m/s, hvassast NV-lands. Rigning með
köflum, jafnvel slydda fyrir norðan, en stöku skúrir syðra. Hiti 2 til
10 stig, mildast á S-landi.
Á föstudag Norðaustlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða slydduél.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-15 m/s V-til, en annars hægari og
víða skúrir og jafnvel slydduél NV-til. Hiti 1 til 10 stig, svalast NV-til.
VEÐUR
Breiðablik vann annan leik í
röð með minnsta mun, 1:0, í
heimsókn á Akranes í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu í
gærkvöldi. Blikar eru annað
tveggja liða deildarinnar
sem eru taplaus. FH-ingar
endurheimtu efsta sæti
deildarinnar þegar þeir og
Stjörnumenn skildu jafnir,
1:1, í einum af stórleikjum
deildarinnar á leiktíðinni.
Leiknir skellti Víkingum í
Breiðholti. »2
Blikar sóttu þrjú
stig á Akranes
„Þegar maður spilar hérna í Barce-
lona er ætlast til þess að maður vinni
titla. Viðhorfið er ekkert öðruvísi í
byrjun tímabils en þegar líður á tíma-
bilið. Þannig var þetta einnig þegar
ég spilaði með Kiel,“ segir hand-
knattleiksmaðurinn Guð-
jón Valur Sigurðsson
um velgengni spænska
stórliðsins Barce-
lona sem
hann
leikur
með
en lið-
ið hefur verið ein-
staklega sigur-
sælt á keppnis-
tímabilinu sem
brátt sér fyrir
endann á. »4
Það er ætlast til að menn
vinni titla í Barcelona
Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðs-
kona í handknattleik, hefur skrifað
undir samning við þýska handknatt-
leiksliðið Koblenz/Weibern til eins
árs með möguleika á framlengingu
að þeim tíma loknum. „Mig hefur frá
unga aldri dreymt um að leika í
Þýskalandi,“ sagði Hildigunnur sem
síðast var á mála hjá sænska úrvals-
deildarliðinu BK Heid. »1
Hildigunnur flytur sig
um set til Þýskalands
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Brynja Dögg Guðmundsdóttir
brynjadogg@mbl.is
Geir R. Tómasson, fyrrverandi
tannlæknir, hreyfir við mörgum
með einstaklega jákvæðu hugarfari
og viðhorfi til lífsins. Geir, sem
verður 99 ára í næsta mánuði, flutti
nýlega hugvekju í Dómkirkjunni á
degi eldri borgara. Ræða hans
snerti við mörgum en í henni vildi
hann fá fólk til að virða hin sönnu
gildi lífsins og veita hugarfari sínu
eftirtekt.
„Ég er mjög trúaður og hef verið
það frá því ég var lítill drengur
enda búinn að lenda í þeim raunum
sem fáir Íslendingar hafa lent í á
lífsleiðinni svo það var eins gott að
eiga einhverja trú,“ segir Geir.
Upplifði heimsstyrjöld í Köln
Geir var við nám í tannlækn-
ingum í Köln í Þýskalandi þegar
síðari heimsstyrjöldin braust út og
upplifði þar miklar hörmungar.
„Eitt af því sárasta var að frétta af
því að góðum vinum mínum, sem
voru nýbúnir að leggja á sig
strangt nám, hefði verið slátrað á
vígvellinum. Þetta var hræðileg
upplifun. Eins var með loftárás-
irnar á hverri nóttu í Köln meðan á
stríðinu stóð. Hvað maður var hætt
kominn. Nasistarnir gengu ekki að-
eins hart fram gegn gyðingunum
heldur líka gegn sínum eigin mönn-
um sem ekki vildu fylgja þeim. Það
var alveg hræðilegt,“ segir Geir.
Hann segist þrisvar hafa lent í yfir-
heyrslum hjá öryggislögreglunni
Gestapo en kýs að tjá sig ekki um
þá reynslu.
Doktorsverkefni Geirs í Köln
fjallaði um berkla í munni. Geir
segir þó drauminn hafa verið að
fara í læknanám en þar sem tann-
læknanámið hafi verið styttra og
ódýrara hafi það orðið að duga.
„Ég sá samt alltaf eftir lækn-
isfræðinni, það var það sem mig
langaði alltaf til að læra. Ég hef
alltaf lesið mikið lækningabækur
og vonandi getað hjálpað ein-
hverjum,“ segir Geir.
Í Köln kynntist Geir Maríu
Elfriede Tomasson sem hann síðan
kvæntist. Eignuðust þau þrjú börn
en hann á fjögur barnabörn og ell-
efu barnabarnabörn.
Spurður hverju honum þyki mik-
ilvægast að miðla til almennings
segir hann það vera að efla hið
góða og forðast hið illa. Þetta þurfi
að hafa í huga í hugsunum, orðum
og gjörðum. „Ef þú hugsar mikið
um það illa og ljóta í tilverunni þá
vex það inn í þig og verður gróður
sem erfitt er að uppræta. Þú ert á
hverjum tíma eins og þú hugsar,“
segir Geir.
Ennþá virkur og jákvæður
Snertir marga
með einstöku hug-
arfari og lífssýn
Morgunblaðið/Golli
Lífssýn Geir R. Tómasson er á 99. aldursári og flutti nýlega hugvekju í Dómkirkjunni. Ræðan hreyfði við mörgum.
Geir er við mjög góða heilsu,
hann býr enn heima hjá sér, þar
sem hann gengur upp og niður
stiga á degi hverjum. Þá keyrir
hann einnig og í síðustu viku
festi hann kaup á nýjum bíl. Bíll-
inn sem varð fyrir valinu er Hy-
undai s35-smájeppi en Geir seg-
ist nýta bílinn einungis í
nauðsynleg erindi til að komast
milli staða.
Á árum áður fór Geir á skíði og
var í íþróttaklúbbi. Hann hefur
verið duglegur að mæta í sund-
laugarnar, synti áður fyrr en fór
svo að mæta frekar í gufu og
pottana. Í dag stundar hann helst
göngur. Geir á sæti í safn-
aðarnefnd Dómkirkjunnar og iðk-
ar trú sína mikið. Hann segir at-
hyglina breytast með hækkandi
aldri, „maður verður meiri hlust-
andi en gerandi í lífinu,“ segir
Geir.
Ekur enn bíl og gengur stiga
GEIR R. TÓMASSON