Fréttablaðið - 19.05.2015, Qupperneq 12
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
BLÁTT BLÓÐ - ODDNÝ EIR
EINLÆGNI OG
HUGPRÝÐI
★★★★
„Einstaklega sterkt og
heiðarlegt uppgjör konu við
barnleysi sitt. Bók sem hægt
er að lesa aftur og aftur og
sjá alltaf nýja fleti á.“
FB, FRÉTTABLAÐIÐ 11. MAÍ
ÍRLAND Írar halda þjóðaratkvæða-
greiðslu á föstudag. Annars vegar
verður kosið um hvort samkynja
pör fái að giftast og hins vegar um
að lækka kjörgengisaldur til for-
seta úr 35 árum í 21 ár.
Enda Kenny, forsætisráðherra
Írlands, hefur hvatt Íra eindregið
til að samþykkja löggjöfina.
Fleiri Írar hafa tjáð sig um
málið. Fyrrverandi félagsmála-
ráðherra Írlands, Pat Carey, hefur
talað fyrir frumvarpinu. Hann
kom út úr skápnum sem samkyn-
hneigður í febrúar síðastliðnum.
„Ný kynslóð sér Írland fyrir sér
sem góðhjartað og umburðarlynt
ríki,“ sagði Carey í samtali við
Washington Post.
Írar eru þó ekki allir sammála.
Samtökin Mothers and Fathers
Matter, eða Mæður og feður skipta
máli, hafa barist af mikilli hörku
gegn löggjöfinni og verið áber-
andi á landsvísu. „Við erum að
tala um breytingar á stofnun sem
hefur verið þekkt sem samband
eins karlmanns og einnar konu
frá örófi alda,“ sagði Evana Boyle,
einn talsmanna samtakanna. Sam-
tökin hafa hamrað á því að börn
eigi rétt á móður og föður og ekki
skuli neita þeim um þau réttindi.
Írland yrði fyrsta landið í heim-
inum til þess að leyfa hjóna-
bönd samkynhneigðra í þjóðarat-
kvæðagreiðslu ef tillagan verður
samþykkt. Allt bendir til þess en
skoðanakannanir á Írlandi gefa til
kynna að um sjötíu prósent hyggist
samþykkja.
Undanfarna áratugi hefur póli-
tískt landslag á Írlandi breyst
mikið og réttindi samkynhneigðra
aukist. Ekki þarf að líta lengra
aftur en til ársins 1993 til að sjá
dæmi um það, en þá voru sam-
þykkt lög um að afglæpavæða
samkynhneigð eftir margra ára
þrýsting frá nágrannaríkjum.
Breyting á stöðu kaþólsku kirkj-
unnar hefur spilað lykilhlutverk í
þessari þróun. Áður hefur kirkjan
virkað sem siðferðislegur áttaviti
fyrir Íra en í ljósi fjölmargra kyn-
ferðisafbrotamála hefur sú staða
veikst mikið.
Samkvæmt Alþjóðasamtökum
hinsegin fólks, ILGA, býr hinseg-
in fólk á Írlandi við 40% lagalegt
jafnrétti og er á svipuðu róli og
Albanía, Georgía og Tékkland. Ef
Írar kjósa með löggjöfinni á föstu-
dag er ljóst að sú tala mun breytast
talsvert. thorgnyr@frettabladid.is
HART BARIST Stríðandi fylkingar heyja harða kosningabaráttu í aðdraganda þjóðar-
atkvæðagreiðslu. NORDICPHOTOS/AFP
Kjósa um giftingar
samkynhneigðra
Írland gæti orðið fyrsta land í heimi til að heimila með þjóðaratkvæðagreiðslu
samkynja pörum að giftast. Útlit er fyrir að tillagan verði samþykkt en þó eru
skiptar skoðanir milli fylkinga. Atkvæði verða greidd um þetta og kjörgengisaldur.
EVRÓPA Gunnar Bragi Sveins-
son utanríkisráðherra stýrði í
gær fundi Evrópska efnahags-
svæðisins, EES, fyrir hönd EFTA-
ríkjanna á fundi EES-ráðsins í
Brussel. Ísland gegnir nú for-
mennsku í fastanefnd EFTA.
Zanda Kalnina-Lukasevica stýrði
fundinum fyrir hönd Evrópusam-
bandsins.
EES-samningurinn var á dagskrá
fundarins og lagði Gunnar Bragi
áherslu á mikilvægi góðs sam-
starfs við Evrópusambandið um
framkvæmd hans og undirstrikaði
að hún væri á ábyrgð allra samn-
ingsaðila. Gunnar Bragi sagði að
af Íslands hálfu þyrfti að draga úr
innleiðingarhallanum sem þó færi
minnkandi þrátt fyrir fjölgun gerða
af hendi Evrópusambandsins.
Að auki var fjallað um viðræð-
ur EFTA-ríkjanna og Evrópusam-
bandsins um framlög í Uppbygg-
ingarsjóð EFTA og voru viðstaddir
ráðherrar sammála um að ljúka
þeim viðræðum sem allra fyrst.
- þea
Stýrði fundi EFTA og ESB um EES-samninginn:
Segir halla minnka
þótt gerðum fjölgi
Á FUNDI Í GÆR Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra stýrði fundi í Brussel
fyrir hönd EFTA-ríkjanna. MYND/EES
SVEITARSTJÓRNIR „Mikilvægt er að Sveitarfélagið Árborg leggi sitt af
mörkum til þess að minnast þessara merku tímamóta og taki þátt í
nýrri sókn í átt að aukinni jafnréttis-, lýðræðis- og mannréttindavit-
und,“ segja flytjendur tillögu um
að eingöngu konur sitji bæjar-
stjórnarfundi í júní. Með þessu
er ætlunin að minnast þess að
hinn 19. júní eru 100 ár frá því
að konur fengu kosningarétt á
Íslandi. Tillagan var samþykkt
samhljóma í bæjarstjórn. - gar
Í Árborg fá karlarnir frí frá bæjarstjórnarmálum í júní:
Aðeins konur í bæjarstjórninni
RÁÐHÚS ÁRBORGAR Minnast kosn-
ingaréttar kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
F
-8
0
A
C
1
7
5
F
-7
F
7
0
1
7
5
F
-7
E
3
4
1
7
5
F
-7
C
F
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K