Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 50
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 30 Graníthellur hafa mun lengri endingartíma en venju legar hellur. Þær henta vel fyrir bílaplön, torg, stíga, þrep, litlar hleðslur og garða. Fjárfesting sem steinliggur Graníthellur20 YFIR TEGUND IR AF HELLU M Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Smiðjuvegi 870 Vík Sími 4 400 400 www.steypustodin.is Allar hellur Steypustöðvarinnar eru framleiddar samkvæmt viðurkenndum stöðlum. Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina. 4 400 400 Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er komin með leikheimild með Selfossi og spilar sinn fyrsta leik í kvöld þegar Selfossliðið fær ÍBV í heimsókn í Suðurlandsslag Pepsi-deildar kvenna í fótbolta. Síðasti sigurleikur Selfoss með Dagnýju í fyrra- sumar var einnig á móti ÍBV, en hún lék þá aðeins fyrstu 11 leiki liðsins. Leikurinn hefst klukkan 18.00 en klukkan 18.15 tekur Fylkir á móti Ís- landsmeisturum Stjörnunnar í uppgjöri liða sem unnu bæði leiki sína í fyrstu umferðinni. Hinir leikir kvöldsins eru Þróttur-Þór/KA (18.00), Afturelding-Breiðablik og KR-Valur (allir klukkan 19.15). Breiðablik er á toppnum eftir 5-0 sigur á Þrótti í fyrsta leik og Valur vann á sama tíma 3-0 sigur á Aftureldingu. Dagný á ný með Selfossi í kvöld HANDBOLTI „Mér finnst þetta helst til of stutt,“ sagði Skúli Skúlason, formaður lyfjaráðs ÍSÍ, í samtali við Fréttablaðið í gær, þegar hann var spurður um sex mánaða bannið sem handboltamaðurinn Jóhann Birgir Ingvarsson var dæmdur í, en hann féll á lyfjaprófi eftir bikarúr- slitaleik FH og ÍBV í lok febrúar. Niðurbrotsefni af sterum fundust í þvagsýni Jóhanns. Lyfjaráð ÍSÍ fór fram á tveggja ára keppnisbann yfir Jóhanni en refsiramminn er fjögur ár: „Ég hefði sætt við mig við árs keppnisbann. Við fórum fram á tvö ár þótt refsiramminn væri fjögur ár. Ástæðan fyrir því er að það þarf að vera um skýran ásetning að ræða til þess að fara fram á fjögur ár,“ sagði Skúli, sem hefur nokkrar áhyggjur af því að dómurinn geti verið fordæmisgefandi. „Ég hef pínulitlar áhyggjur af því. Íþróttamenn verða að hafa ábyrgðarhlutann í huga. Það sem fólk setur ofan í sig er algjörlega á þess ábyrgð,“ sagði Skúli sem telur ólíklegt að lyfjaráð áfrýi dómnum. - iþs Lyfjaráð fór fram á tveggja ára dóm HÁLFS ÁRS BANN Bann Jóhanns rennur út 18. september næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Elísabet Gunnarsdóttir hefur þjálfað markadrottninguna Margréti Láru Viðarsdóttur í mörg ár og Elísabet þjálfaði syst­ ur hennar, Elísu Viðarsdóttur, hjá Kristianstad í fyrra. Nú þjálf­ ar hún þær saman í fyrsta sinn. „Það er æðislegt,“ segir Elísabet og hún segir systurnar ólíkar. „Þær eru algjörlega svart og hvítt. Þær eru ótrúlega ljúfar við hvor aðra held ég, hjálpa hvor annarri mikið og sýna stuðning,“ segir Elísabet. „Það er frábært að þær fái að upplifa það. Elísa hefur verið að bæta sig mjög mikið og var að spila sinn besta leik fyrir Kristi­ anstad í síðasta leik,“ segir Elísa­ bet, en Elísa lagði upp sigurmark Kristianstad í leiknum. Elísa er fimm árum yngri en Margrét Lára og var aðeins 14 ára þegar stóra systir fór til Reykjavíkur til að spila með Val. - óój Eru eins og svart og hvítt FÓTBOLTI Miðvörðurinn Pétur Viðarsson yfirgefur herbúðir FH í júlí og heldur til náms í Ástral- íu. Þetta kom fram á Fótbolti.net í gær. Hann ætlar að leggja stund á MBA-nám í viðskiptafræði. Pétur, sem er fæddur árið 1987, hefur leikið 108 leiki með FH í Pepsi-deildinni og verið fastamaður í liðinu undanfarin ár. Hann hefur spilað alla leiki þeirra í deildinni í sumar. FH er ágætlega sett með mið- verði en auk Péturs eru þeir Guð- mann Þórisson, Kassim Doumbia og Brynjar Ásgeir Guðmundsson á mála hjá félaginu og munu fylla skarð Péturs hjá félaginu. - iþs Pétur á förum SPORT FÓTBOLTI „Hún hefur alltaf haft þetta markanef og þegar hún kemst í færi þá skorar hún yfir­ leitt,“ segir Elísabet Gunnars­ dóttir, þjálfari Kristianstad, um Margréti Láru Viðarsdóttur en Elísabet þekkir vel til Margrétar Láru sem hefur spilað fyrir hana bæði hjá Val og sænska liðinu. Margrét Lára skoraði um helgina sitt 47. mark í efstu deild í Svíþjóð og um leið féll met Ást­ hildar Helgadóttur, sem hafði stað­ ið óhaggað frá árinu 2007. Ásthildur enn þá risanafn á Skáni „Ásthildur var ekkert smá góð hérna plús það að hún er algjör goðsögn á Skáni innan kvennafót­ boltans. Hún er risanafn sem allir muna eftir,“ segir Elísabet um Ást­ hildi Helgadóttur sem skoraði 46 mörk í 58 leikjum fyrir lið Malmö. „Ásthildur opnaði ákveðnar dyr sem hefur hjálpað okkur öllum sem komu á eftir henni,“ segir Elísabet sem sjálf tók við liði Kristianstad árið 2009. Margrét Lára kom til Kristianstad um mitt tímabil 2009 en hafði áður skorað 127 deildarmörk fyrir Elísabetu þegar þær unnu saman hjá Val. „Hennar besti eiginleiki sem leikmaður er að hún er ótrúleg í að klára færin. Það er oft sem maður hugsar í leikjum; af hverju var Margrét ekki í þessu færi, þegar einhver klúðrar,“ segir Elísabet sem segir að Margrét sé enn þá svolítið frá sínu besta formi. „Hún er ekki með sömu snerpu og yfir­ ferð sem maður er vanur að sjá hjá henni. Hún kemst því ekki í sömu færin,“ segir Elísabet. Lagar ekki lærin Margrét Lára skoraði ekki í fyrstu fjórum leikjum Kristianstad en hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð sem báðir unnust. „Þetta voru tvö skallamörk sem er mjög ólíkt henni,“ segir Elísabet um mörkin hennar á móti AIK og Mallback­ en, sem hún segir hjálpa Margréti Láru í endurkomu sinni eftir að hún varð mamma. „Þetta lagar ekki lærin en hjálp­ ar sjálfstraustinu að sjá það að maður er enn þá þar sem maður var,“ segir Elísabet um þýðingu markanna, en Margrét Lára er enn að glíma við sömu meiðsli og fyrir barneignarfríið. Margrét Lára hefur nú skorað 44 af 47 mörkun­ um sínum í Svíþjóð fyrir Elísabetu eða öll nema þrjú þau fyrstu sem hún skoraði fyrir Linköping fyrri hluta sumars 2009. Hefur verið á sérsamningi „Það er kannski eðlilegt að hún hafi endað alltaf aftur og aftur hjá mér út af þessum meiðslum. Hún hefur verið á sérsamningi hvað varðar æfingar og hefur ekki verið að æfa hundrað prósent eins og aðrir leikmenn. Hún hefur farið tvisvar sinnum annað, fyrst til Linköping og svo til Potsdam, og hún hefur endað hjá okkur því hún kemst ekki á sérsamning hvar sem er,“ segir Elísabet. „Hún hefur ekki æft eins og aðrir leikmenn og hefur þurft að vera í sundlauginni og í sérpró­ grammi úti á velli þegar hinir eru á æfingu,“ útskýrir Elísabet. Elísabet gerði Margréti Láru að fyrirliða Kristianstad­liðsins fyrir þetta tímabil og sinnir hún því hlutverki með Susanne Moberg. Ráða því hvor er með bandið „Ég er með tvo fyrirliða. Þær sjá alveg um það sjálfar og eru bara leiðtogar fyrir liðið inni í klef­ anum. Þær ráða því hvor er með bandið,“ segir Elísabet, en úr fjar­ lægð lítur út fyrir það að þær skipti við hvern tapleik. Ásthildur Helgadóttir stóð sig frábærlega með liði Malmö á fyrsta áratug þessarar aldar. Ást­ hildur spilaði fyrst þrjá leiki með Malmö í lok 2003­tímabilsins en var síðan með Malmö þrjú síðustu tímabilin á ferlinum 2005­2007. Besta tímabilið hennar var 2006 þegar hún var í baráttu um marka­ kóngstitilinn í sænsku deildinni. Ásthildur varð á endanum í þriðja sæti á eftir þeim Lottu Schelin og Mörtu, sem báðir hafa síðan verið í hópi bestu knattspyrnukvenna heims. Ásthildur varð að leggja skóna á hilluna haustið 2007 vegna þrálátra hnémeiðsla. Hefur tekið annað met af henni Þetta er ekki fyrsta markmetið sem Margrét Lára tekur af Ást­ hildi því Ásthildur var marka­ hæsta landsliðskona Íslands frá 1996 til byrjun árs 2007 þegar Margrét Lára bætti met hennar. Margrét Lára hefur síðan bætt metið um heil 48 mörk. ooj@frettabladid.is Ótrúleg í að klára færin sín Margrét Lára Viðarsdóttir er nú orðin markahæsta íslenska knattspyrnukonan í efstu deild í Svíþjóð eftir að hafa skorað í tveimur síðustu leikjum Kristianstad. Hún bætti met Ásthildar Helgadóttur um helgina. Margrét Lára Viðarsdóttir 47 Ásthildur Helgadóttir 46 Sara Björk Gunnarsdóttir 30 Erla Steina Arnardóttir 12 Dóra Stefánsdóttir 10 FLEST ÍSLENSK MÖRK Í SÆNSKU KVENNADEILDINNI: 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K _ N Y .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 0 -2 3 9 C 1 7 6 0 -2 2 6 0 1 7 6 0 -2 1 2 4 1 7 6 0 -1 F E 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.