Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 32
19. MAÍ 2015 ÞRIÐJUDAGUR10 Eurovision 2015 Stigagjöfin í Eurovision er í hæsta máta pólitísk. Það sést glögglega þegar skoðað er hvaða þjóðir gefa hverjum stig. Eurovísir gerði úttekt á stigagjöfinni til að finna út hverjir eru bestu vinir Íslendinga. Norðurlandaþjóðirnar eru til að mynda mun gjafmildari á stig til Íslendinga en aðrar þjóðir. Svíþjóð, Danmörk og Noregur hafa gefið Íslendingum langflest stig en ná- kvæmlega sömu þjóðir hafa fengið langflest stig frá okkur. Svíar hafa í gegnum tíðina gefið okkur flest stig en við höfum ekki alveg laun- að greiðann heldur gefið Dönum flest stig. VIÐ BETRI VINIR DANA EN ÞEIR OKKAR Ísland hefur gefið Dönum tals- vert meira af stigum en þeir okkur. Frá Íslandi hafa 229 stig farið til Dana, meira en til nokk- urrar annarrar þjóðar, en þeir hafa aðeins gefið okkur 157 stig. Það munar því 72 stigum. Munur- inn er jafnmikill og heildarstiga- fjöldi sem Ísland hefur fengið frá Aser baídsjan, Georgíu, Serb- íu og Svartfjallalandi, Júgóslav- íu, Mónakó, Makedóníu, Úkra ínu, Bosníu og Hersegóvínu, Búlgaríu og Tékklandi – samanlagt. Danir eru nefnilega hrifnari af Svíum en okkur. Þeir hafa gefið sænskum lögum samtals 322 stig, sem er mun meira en þeir hafa gefið nokkrum öðrum en næst á eftir Svíunum koma Írar, sem hafa fengið 168 stig frá frændum okkar Dönum. Stigaskipti Íslands og Svíþjóð- ar eru í mun meira jafnvægi. Við höfum ekki gefið Svíum nema 19 stigum umfram það sem þeir hafa gefið okkur. Íslendingar hafa gefið sænskum lögum 185 stig í heild- ina en sænska þjóðin hefur gefið íslenskum lögum 166 stig. Að jafnaði gefa Íslendingar og Svíar hverjir öðrum sex stig í keppni, sem er það sama og meðaltalið frá Dönum til Íslendinga en Íslending- ar gefa Dönum að jafnaði átta stig í keppni. GÓÐVILDIN EKKI ENDURGOLDIN Hin hliðin á peningnum sýnir okkur hins vegar hvað Spánverjar hafa verið gjafmildir á stig án þess að fá jafn mikið til baka. Í gegnum tíðina hafa Spánverjar gefið Íslend- ingum 95 stig í heildina, sem er þó ekki nema að jafnaði þrjú stig á ári. Íslendingar hafa aftur á móti að- eins gefið Spánverjum 26 stig, eða að meðaltali eitt stig á ári. Spán- verjar hafa því gefið Íslendingum 69 stigum meira en við þeim. Svipað er uppi á teningnum hjá Bretum. Þeir hafa gefið okkur 99 stig, að jafnaði þrjú stig á ári, en við þeim aðeins 37 stig, eða eitt stig á ári. Þeir hafa gefið okkur 62 stigum meira en við þeim. ALDREI NEITT FRÁ ASERBAÍDSJAN Aðeins eitt land hefur aldrei gefið Íslendingum stig – Aserbaídsjan. Þeir hafa haft ellefu tækifæri til að gefa okkur stig, það er bæði í undanúrslitum og úrslitum. Á sama tíma hafa Íslendingar gefið framlagi Aserbaídsjan samtals 30 stig. Íslenska þjóðin hefur þó líka verið ansi hörð gagnvart nokkr- um löndum. Í fjórtán atkvæða- greiðslum höfum við gefið Make- dónum eitt stig. Ekkert stig hefur ratað frá okkur til Tékklands eða Mónakó í þremur atkvæða- greiðslum. Svartfellingar hafa heldur enn ekki fengið stig frá Ís- landi þrátt fyrir fimm tækifæri. Hvaða þjóðir eru vinir okkar? Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð- armaður forsætisráðherra, seg- ist ekkert fara í grafgötur með áhuga hans á Eurovision. Hann kviknaði þegar hann var ell- efu ára og hefur ágerst síðan þá. Hann spáir Maríu góðu gengi en leggur sitt atkvæði á Finnland. „Ég er gjörsamlega djúpt sokk- inn fyrir mörgum árum en hugsa að þetta hafi byrjað þegar ég sá Diggie-Loo Diggie-Ley með Herr- eys-bræðrum í svarthvíta sjón- varpinu hjá mömmu og pabba,“ segir Jóhannes. Hann segir að öllu verði tjaldað til á aðalkvöldinu. „Það er ákveð- inn hópur fjölskyldu og vina sem hittist til að horfa á keppnina. Veislan byrjar klukkan fimm og menn borða saman og svona. Allir þurfa að vera búnir að velja sér land til að halda með og koma með fána, helst heimagerðan. Þá bera menn fram einhvers konar kynningu á landinu sínu; eitthvað til að borða, drekka eða menn- ingu. Svo er gríðarlega hörð kosn- ingabarátta um hver er með bestu kynninguna,“ segir hann og bætir við að hans land í ár verði Finn- land. „Finnska lagið er mitt uppá- halds í ár. Það er fyrst og fremst pönkið, en ég er pönkari inn við beinið. Pönkið lifir!“ Þá segist hann ágætlega bjart- sýnn á gengi okkar Íslendinga í keppninni í ár. „Ég er bjartsýnn. Kannski ekki alveg Gleðibanka- bjartsýnn en ég held að María eigi eftir að selja þetta í undan- riðlinum og koma því upp því hún hefur fína útgeislun á sviði. Ég spái henni tíunda til tólfta sæti,“ segir Jóhannes Þór. Partíhöld frá fimm J‘aime la vie með Söndru Kim er annað af tveimur uppáhaldslögum Jóhannesar. „Hún er engillinn sem tekur þetta og ég held það eigi eftir að koma okkur alveg svakalega á óvart hvernig henni gengur. Hugsanir skapa heiminn og við komumst í fyrsta sætið ef við sköpum orkuna, erum stolt í hjarta okkar og þá gengur allt vel,“ segir Sigríður Klingenberg spámiðill um gengi Maríu í keppninni. Sigga leitaði aðstoðar að handan og fékk þau svör að Noregur ætti eftir að hreppa fyrsta sætið og Ítalía annað. „Mér sýnist við fá tíunda sætið, sem er samt fyrsta sæti frá mér. Við verðum líka að halda í trúna og það er það sem kemur okkur áfram,“ segir hún. Hún segir talnaspekina einnig Maríu í hag. „María er akkúrat að byrja tímabil sem tengir hana í hug- myndum og listum. Hún er akkúrat á ári þar sem fólk mun hjálpa henni og hún mun alltaf hafa þetta. Henni mun ganga sérlega vel í gegnum lífið,“ segir Sigga og bætir við að einlægni Maríu og fegurð muni fleyta henni langt í lífinu. Heillaráð hennar til Maríu sé því að halda áfram að vera hún sjálf. „Þegar hún horfir í myndavélarnar þá sér fólk þessa einlægni. Augu hennar eru á við þúsund tár og þá vilja allir kjósa hana.“ Engillinn sem mun koma öllum á óvart Sigríður Klingenberg spámiðill leitaði aðstoðar að handan til að spá um úrslitin í Eurovision. Íslendingar geta yfirleitt treyst á Dani þegar kemur að stigagjöfinni í Eurovision. Aserbaídsjan hefur ekki sent okkur eitt einasta stig. Svartfellingar hafa ekki fengið eitt einasta stig frá Íslandi þrátt fyrir að hafa fimm sinnum keppt á sama tíma og við. jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Þú færð Maríuskartið í Jóni & Óskari Hannað af Sunnu Dögg Ásgeirsdóttur – smíðað af okkur. PIPA R\TBW A • SÍA • 152313 SKARTIÐ ER SELT TIL STYRKTAR HUGARAFLI. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 0 -0 5 F C 1 7 6 0 -0 4 C 0 1 7 6 0 -0 3 8 4 1 7 6 0 -0 2 4 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.