Fréttablaðið - 19.05.2015, Blaðsíða 48
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 28
BAKÞANKAR
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
SWIFT OG
STRÁKARNIR
SIGURSÆL
Billboard-verðlaunin voru afh ent í Las Vegas á
sunnudagskvöld. Sigurvegari kvöldsins var Taylor
Swift með átta verðlaun. Sam Smith fékk þrenn en
gat því miður ekki mætt þar sem hann gekkst undir
aðgerð í síðustu viku. Iggy Azalea fékk einnig þrenn
verðlaun og One Direction og Hozier fengu tvenn.
FJÓRIR FRÆKNIR Strákarnir í One Direction mættu á sína fyrstu verðlaunahátíð
eftir að þeir urðu fjórir. Þeir fóru heim með tvenn verðlaun; sem besta tónleika-
sveitin og besta hljómsveitin, en þeir tileinkuðu verðlaunin Zayn Malik sem hætti í
sveitinni þann 25. mars. NORDICPHOTOS/GETTY
ALSÆL Taylor
Swift var
ekki lítið sátt með öll
verðlaunin sín átta.
Hún mætti á hátíðina
með her af vinkonum
með sér, sem léku í
nýja myndbandinu
hennar við lagið Bad
Blood, en það var
frumsýnt við upp-
haf hátíðarinnar.
BERT Á MILLI Þær Jennifer Lopez og
Rita Ora héldu bert-á-milli trendinu á
lofti, og gerðu það bara nokkuð vel.
BALMAIN-HERINN Fyrirsæturnar
Jourdan Dunn og Kendall Jenner mættu
í fatnaði úr línu Balmain-tískurisans
fyrir H&M sem væntanleg er í verslanir
í nóvember.
SÆT OG FÍN Kynnir kvöldsins, Chrissy
Teigen, mætti ásamt eiginmanni
sínum, John Legend, sem fór heim með
verðlaun fyrir mest sótta lagið á netinu,
All Of Me.
KLIKKAR EKKI Nicky Minaj fór tóm-
hent heim en sló í gegn á sviðinu.
ENGU GLEYMT
Mariah Carey
kom fram á
Billboard-verðlauna-
hátíðinni í fyrsta
sinn í sautján ár.
UPPÁHALD ALLRA
Ed Sheeran heillaði
alla upp úr skón-
um þegar hann
tók lagið sitt
Bloodstream
á hátíðinni,
en hann fór
tómhentur
heim þrátt fyrir
að vera tilnefndur
til fimm
verðlauna.
ALLTAF TÖFF Hin eina sanna
poppprinsessa, Britney Spears, tók
lagið með Iggy Azalega við mikinn
fögnuð gesta.
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
EMPIRE
MAD MAX 8, 10:30(P)
PITCH PERFECT 2 5:30, 8, 10:30
BAKK 5:50, 8
AVENGERS 2 3D 10:10
ÁSTRÍKUR 2D 5:50
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
- Fréttablaðið
- Morgunblaðið
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
Á Twitter-síðu Stjörnunnar var verið að grínast með að setja
vopnaleitarhlið á völlinn vegna komu
Breiðholtsliðsins Leiknis til Garða-
bæjar um helgina. Ekkert sérlega
fyndið en fékk mig til að hugsa um
ræturnar. Ég er nefnilega stoltur
Breiðhyltingur. Úr Fellunum. Ekki
úr einbýlishúsi í Seljahverfi. Afsak-
ið villingahrokann.
ÉG man eftir því að hafa farið
á Samfés-ball með Fellahelli
þar sem unglingar af öllu Stór-
Reykjarvíkursvæðinu komu
saman. Ég var þrettán ára
og skítstressuð. Í hermanna-
klossum með stáltá, mótor-
hjólaleðurjakka og lágt tagl
– og fullan munn af barnatönn-
um. Ófermd skjáta sem reyndi
að fela sakleysið með svörtum
augnblýanti, maskara og sígarettu í
munnvikinu.
HÚSIÐ var fullt af unglingum. Ball-
erínuteinréttum stelpum með teina.
Óttinn náði heljargreipum á andlitinu
þannig að það var eins og svipur-
inn yrði harðari, óttinn í augunum
minnti á ofsa og stressaðir hnúarnir
létu mig líta út eins og ég væri til í
slaginn. Vöðvarnir herptust saman
og axlirnar drógust upp að eyrum
þannig að 150 sentímetra skrokkur-
inn (þau heilu ósköp!) skrapp saman
um fimm sentímetra. Ég var eins og
samankreist reiðisprengja. Misskilin
reiðisprengja í hvítum barnanærbol
og með barnabumbu.
ÉG týndi hjörðinni minni og til
að ná andanum dreif ég mig inn á
kvennaklósett. Þar voru þrjár stelp-
ur að setja á sig gloss fyrir framan
spegilinn. Með sítt, slegið, slétt hár.
Brúnar og berfættar í Nike-skóm. Í
hvítum 501, wonderbra og vel úðaðar
af ávaxtaspreyi. Þær áttu örugg-
lega allar hund. Örugglega labrador.
Gulan labrador. Mikið voru þær
ótrúlega fallegar. Mig langaði svo
að skoða þær þótt ég hafi ekki fyrir
mitt litla líf þorað að koma nálægt
þeim. Ég gjóaði augunum á þær og
því miður tóku þær eftir því. Tóku
eftir mér. „Hvaðan ert þú?“ spurði
ein þeirra. Ég var svo feimin að mig
langaði að hverfa. „Fellunum,“ svar-
aði ég snaggaralega og með kvíða-
grettu á andlitinu. Spennuþrungin
þögn í ógurlega langar þrjár sek-
úndur.
„Ó, guð minn góður! Ertu að fara að
berja okkur?“
Breiðholtið í stelpunni
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
0
-3
C
4
C
1
7
6
0
-3
B
1
0
1
7
6
0
-3
9
D
4
1
7
6
0
-3
8
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K