Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2015, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 19.05.2015, Qupperneq 22
FÓLK|FERÐIR FERÐIN Nánari upplýsing- ar um ferðina er að finna á www.uu.is eða í símum 585-4102 / 585-4002 Fyrsta heimsmeistaramótið sem ég fór á var í St. Moritz árið 1972. Síðan þá hef ég farið á öll heims- meistaramót, oftast sem liðsstjóri eða keppandi,“ segir Sigurður Sæmundsson, sem ávallt er kallaður Siggi Sæm. Siggi er löngu orðinn þjóðþekktur hesta- maður, jafnvel heimsþekktur í heimi íslenska hestsins. Í fjölda ára var hann svokallaður einvaldur íslenska lands- liðsins í hestaíþróttum en einvaldur er liðsstjóri sem velur hluta keppenda í liðið og heldur utan um hópinn þegar komið er á mótið. HEIMSÓKN Á ÍSLANDSHESTABÚGARÐ Í ár verður Siggi í öðru hlutverki þegar hann gerist fararstjóri í ferð Úrvals Útsýnar á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Herning í Danmörku 3.- 10. ágúst. „Okkur datt í hug að gaman væri að fara með hestatengdan hóp í sérsniðna ferð á mótið,“ segir Siggi en lagt verður í hann 2. ágúst og flogið til Hamborgar. „Þar heimsækjum við Vindhóla, flottan Íslandshestabúgarð Einars Hermannssonar og konu hans, rétt fyrir utan borgina. Einar er góður knapi, ættaður úr Skagafirði, og við fáum að skoða alla króka og kima hjá honum,“ lýsir Siggi en að kvöldi fyrsta dagsins verður gist á sveitahóteli í Schleswig. Næsta dag verður haldið til Herning, með viðkomu í víkingasafn- inu Viking Museum Haithabu. Síðan gistir hópurinn á hótel Scandic Regina meðan á mótinu stendur, en hótelið er það nálægt mótssvæðinu að möguleiki er á að ganga eða hjóla á svæðið. SPÁÐ Í SPILIN „Mig langaði að leyfa fólkinu í ferðinni að fylgjast dálítið betur með en gengur og gerist hjá venjulegum gestum mótsins,“ segir Siggi. Hugmyndin er að hópurinn setjist niður á kvöldin og fari yfir stöðuna, hvað sé fram undan á keppnisvellinum og hvað geti gerst. „Svo væri gaman að fá til okkar liðs- stjóra íslenska liðsins sem gæti veitt okkur innsýn inn í það sem hann og keppendurnir eru að hugsa. Hann gæti sagt okkur af hverju vissar ákvarð- anir hafi verið teknar og spjallað um gang mála,“ segir Siggi og er viss um að þessu ættu allir hestamenn að hafa gaman af. Mótinu geta ferðalangarnir svo fylgst með úr góðum stúkusætum sem búið er að taka frá fyrir þá. FRÁBÆRT MÓTSSVÆÐI Heimsmeistaramótið í ár er haldið í Herning í Danmörku. Herning er mið- svæðis á Jótlandi, um það bil 300 km frá Kaupmannahöfn og 60 km frá Billund. Mótið er haldið á Landsskuepladsen sem er sérlega gott svæði með tilliti til allrar aðstöðu fyrir hesta og menn. Siggi þekkir vel til enda var hann liðsstjóri landsliðs- ins þegar HM var haldið í Herning fyrir nokkrum árum. „Svæðið er mjög gott, þar eru hesthús fyrir alla keppnishesta, þar eru flottir keppnis- og sýningarvellir og góð áhorfendasvæði. Síðan kunna Danir að blanda saman skipulagningu og gleði og því allar líkur á að mótið verði skemmtilegt,“ segir hann glaðlega. SÖGUR OG GLEÐI Siggi Sæm er þekktur fyrir gott skap og frásagnargleði. Ferðalangar munu ekki fara varhluta af þeirri smitandi gleði sem einkennir viðmót hans. Þegar Siggi er inntur eftir því hvort hann verði með einhverjar sögur á takteinunum er hann fljótur til svars: „Það er til alveg hell- ingur af sögum, bæði í kringum heims- meistaramótin og hestamennskuna, efni í heila bók. Það er svo margt sem gerist í kringum þessi mót sem hinn almenni hestamaður hefur aldrei heyrt um. Ég mun segja einhverjar sögur og dreg ekk- ert undan. Og ef sagan er betri með smá kryddi, þá verður hún sögð þannig,“ segir hann og skellihlær. SIGGI SÆM VERÐUR Í FARARBRODDI ÚRVAL ÚTSÝN KYNNIR Sigurður Sæmundsson, fyrrverandi landsliðseinvald- ur, verður fararstjóri í skemmtilegri ferð Úrvals Útsýnar á HM í hestaíþróttum í Danmörku. Ferðin er sérsniðin fyrir hestamenn en heimsóttur verður hesta- búgarður auk þess sem Siggi Sæm segir sögur og spáir í spilin. STEMNING Ólýsanleg tilfinning er að sitja meðal áhorfenda á HM í hestaíþróttum og hvetja áfram glæsilega knapa. MYND/LH SIGGI SÆM Sigurður Sæmunds- son verður fararstjóri í skemmtilegri ferð Úrvals Útsýnar á HM í hestaíþróttum í Herning í Danmörku. SIGURSÆLIR Íslenska landsliðið í hestaíþrótt- um er iðulega sigursælt á heimsmeistaramótum. Mynd/LH BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 FRÁBÆRT ÚRVAL AF PÚÐUM FRÁ kr. 4.900 KLAPPSTÓLL kr. 5.990 BAMBOO BORÐ kr. 36.400 MIST KLUKKA kr. 9.980 AMI STÓLL kr. 19.900 PORGY kr. 17.700 SMILE BUTTON - 3JA SÆTA kr. 204.800 BALDVIN - 3JA SÆTA 196 cm kr. 129.900 2 SAMAN Í SETTI Til hvers að flækja hlutina? 365.is | Sími 1817 SJÁLFKRAFA í BESTA ÞREP! 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 0 -5 4 F C 1 7 6 0 -5 3 C 0 1 7 6 0 -5 2 8 4 1 7 6 0 -5 1 4 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.