Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 30

Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 30
8 19. MAÍ 2015 ÞRIÐJUDAGUREurovision 2015 Síðan árið 1986 hafa fjölmargir tekið þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd en fengið mismikla athygli. Við renndum yfir sögu Íslands í keppninni og höfðum samband við þrjá fyrrverandi keppendur sem allir muna eftir og athuguðum hvað þeir væru að gera í dag. LÉTTKLÆDD MEÐ PALLA Guðrún Kaldal fór út með Páli Óskari Hjálmtýssyni til Dublin árið 1997 en hún var ein af fjór- um dönsurum sem voru með honum á sviðinu. Guðrún er í dag framkvæmdastjóri í frístunda- miðstöðinni Frostaskjóli. „Ég er enn þá að dansa en ég er kannski meira að dansa með gömlum baller ínum,“ segir hún. „Hún Helena Jónsdóttir, sem var danshöfundur, við höfðum verið að dansa saman í hinum og þessum sýningum sem sett- ar voru upp á Hótel Íslandi og höfðum verið saman í dansinum í gegnum árin,“ segir hún aðspurð hvernig hún endaði á sviðinu með Páli Óskari í Dublin. Hún segir að það hafi komið sér á óvart hvað keppnin var stór. „Þetta var í Dublin árið 1997 og það var mikill órói á Írlandi þá. Við þurftum að tæma höllina einu sinni út af sprengjuhótun,“ segir hún og bætir við að þau hafi verið í lögreglufylgd. „Það var rosa- lega mikil öryggisgæsla og það fékk enginn nema þeir sem stigu á svið að fara baksviðs; ekki hár- greiðslufólkið sem var með okkur eða sminkan.“ Hún segir að þetta hafi komið sér mikið á óvart. „Og hvað þetta var bara ofboðslega stór hátíð.“ ANNAR „FRAKKANNA“ Daníel Traustason er einn af eftirminnilegustu dönsurum sem tekið hafa þátt í Eurovisi- on fyrir Ísland. Hann dansaði ásamt Brynjari Þorsteinssyni þegar Selma Björnsdóttir kom, sá og næstum sigraði árið 1999. „Ég er að vinna hjá Vodafone, er vörustjóri þar, meðal annars með Vodafone Play,“ segir Daní- el. Hann segist ekki hafa dans- að mikið í rúm tíu ár. „Ég hætti að dansa svona um 2004. Var þá búinn að vera dansandi alveg frá því að ég var fjögurra ára. Þetta er sennilega ein skemmti- legasta og viðburðaríkasta vika sem ég hef upplifað. Maður fékk sínar fimmtán mínútur þarna úti. Ég hef aldrei kynnst öðrum eins áhuga,“ segir Daníel. Hann segir að fylgst hafi verið með þeim hvert fótmál en þeim hafði verið spáð mikilli velgengni í keppn- inni. „Selma var bara algjör rokk- stjarna þarna. Hún komst ekkert án öryggisvarða. Ég á frakkann enn þá,“ segir Daníel spurður um frakkann góða. En ferðu stundum í hann, þegar þér leiðist og tekur nokkur spor? „Ég var 19 að verða 20 og hann var nánast saumaður utan á mig. Ég er ekki mikið að draga hann fram. En ég þarf að láta setja hann í glerbúr eða eitthvað, ég er mikið spurður út í hann,“ segir Daníel og hlær. BAKRÖDD OG HLJÓMBORÐSLEIKARI INGU Eva Ásrún Albertsdóttir hefur margoft sungið bakraddir með íslenskum lögum í Eurovision. Hún fór fyrst út sem bakrödd árið 1989 til Sviss, 1991 til Rómar, 1993 til Írlands og svo aftur 1994 til Dublin. „Ég er ljósmóðir og hef verið að vinna undanfarin ár í mæðraverndinni á Landspítal- anum en er í leyfi og er að vinna í Zinzino í dag,“ segir hún. En ertu að syngja eitthvað í dag? „Ég var að syngja í Hörp- unni núna með Brunaliðinu síðast, þannig að ég er svona af og til.“ Eva Ásrún var meðal bak- radda sem þurftu að læra í snatri á hljómborð til að spila á sviðinu á Írlandi árið 1993 með Ingu í laginu Þá veistu svar- ið. „Það voru allt aðrar reglur í keppninni þá og það urðu bara að vera á sviðinu þeir sem voru að spila. Einhvern veginn var lend- ingin sú að við spiluðum allar á þessi hljómborð og Eyfi spilaði á trommur,“ segir hún. „Þetta var ekki spilað „live“ en það þurfti að „mæma“ hljóm- borðin. Þetta var rosalegt stress því það mátti engan veginn að sjást að það væri eitthvert klúð- ur í gangi, að við kynnum þetta ekki. Þetta varð að vera algjör- lega upp á tíu,“ segir Eva, sem segist ekki hafa kunnað að spila á hljómborð. „Ég gerði þetta en ég er ekki hljómborðsleikari,“ segir hún. Hvar eru þau í dag? Búningar stelpnanna vöktu ekki minni athygli en atriðið sjálft. Daníel segist enn eiga frakkann en hann fari ekki í hann lengur. Hann er þó reglulega spurður um hann. Eva Ásrún þurfti að gera sér lítið fyrir og læra að spila lagið á hljómborð. Biðin eftir sigri hefur verið Íslend- ingum erfið. Það eru þó nokkrar þjóðir sem hafa beðið enn lengur en við eftir sínum fyrsta sigri. Aðeins þrjár þjóðir hafa beðið lengur eftir sigri í Eurovision en Ís- lendingar. Portúgal hefur tekið 47 sinnum þátt í keppninni en fimmtíu ár eru frá því að Portúgalar tóku fyrst þátt. Þeir hafa aldrei unnið en hafa beðið lengst allra eftir sigri. Kýpur og Malta koma svo næst á eftir á listanum en hafa beðið tals- vert skemur en Portúgalarnir. Kýp- verjar hafa tekið þátt 31 sinni, fyrst fyrir 32 árum. Maltverjar hafa hins vegar tekið þátt jafn oft og Íslend- ingar, eða 27 sinnum. Þeir hafa þó beðið í heil 43 ár eftir sigri en þeir tóku fyrst þátt árið 1971. TVISVAR BRÚÐARMÆR, ALDREI BRÚÐUR Íslendingar tóku þátt fyrst árið 1986 og hafa síðan þá beðið eftir sigri, þrátt fyrir að hafa verið nokkuð sigurviss með Gleðibank- ann. Við komumst næst sigri þegar Selma Björnsdóttir keppti í Ísrael með lagið All out of luck en þá stálu Svíar sigrinum, á lokasprettinum í stigagjöfinni. Ísland var það árið 17 stigum frá sigurlaginu. Mestu mun- aði það árið um að Bosnía og Hers- egóvína gaf Íslandi ekkert stig en Svíum 12 og að Slóvenar gáfu þeim 7 stig en Íslandi ekkert. Jóhanna Guðrún hefur náð flest- um stigum fyrir Íslands hönd en hún var þó nokkuð langt frá því að næla í glerhljóðnemann fræga þar sem Alexander Rybak sló stigamet í keppninni fyrir Norðmenn þegar hann sögn lagið Fairytale eftir- minnilega. Að ógleymdri Siggu Beinteins og Grétari Örvarssyni, sem höfnuðu í fjórða sætið árið 1990 með Eitt lag enn, en þau voru 25 stigum frá því að vinna keppnina. LANGT FRÁ SÍÐASTA SIGRI Spánverjar eru þó ekki mikið betur settir þó að þeir hafi unnið keppn- ina tvisvar, árin 1968 og 1969, með lögin La, la, la og Vivo cantando. Árið 1969 þurftu Spánverjar þó að deila sigrinum með þremur öðrum þjóðum sem fengu jafnmörg stig og þeir en á þessum tíma var ekki búið að setja reglur um hvernig ætti að bregðast við jafntefli. Voru því öll lögin fjögur lýst sem sigurvegar- ar í keppninni það árið. Spánverj- ar hafa síðan þá beðið eftir sigri, eða í 45 ár. Frakkar eru í svipaðri stöðu en þeir hafa unnið fimm sinnum, síð- ast árið 1977. Þeir hafa þar af leið- andi ekki unnið í 37 ár þrátt fyrir að hafa 36 sinnum tekið þátt í keppninni síðan. Þeim hefur í raun gengið alveg herfilega illa síðustu ár, en árið 2014 lentu þeir í síðasta sæti, sem er þeirra lakasti árangur. Hollendingar hafa svo þurft að bíða í heil 39 ár eftir sínum næsta sigri en á því tímabili hefur þjóðin tekið 35 sinnum þátt. Þeir unnu síð- ast árið 1975 með lagið Ding-a-dong. Fáir hafa beðið jafnlengi eftir sigri og við Selma Björnsdóttir var sjónarmun frá því að vinna Eurovision fyrir okkur Íslendinga. Aðeins vantaði 17 stig upp á að ná sigurlaginu. Sigga Beinteins og Grétar Örvars blésu Eurovision-andanum í þjóðina árið 1993 eftir döpur ár frá upphafi þátttöku okkar árið 1986. allt að 70% afslátt ur Fallegt, fágað og töff, allt fyrir Eurovision partýið Smáralind facebook.com/CommaIceland Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 F -4 F 4 C 1 7 5 F -4 E 1 0 1 7 5 F -4 C D 4 1 7 5 F -4 B 9 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.