Fréttablaðið - 19.05.2015, Síða 34

Fréttablaðið - 19.05.2015, Síða 34
19. MAÍ 2015 ÞRIÐJUDAGUR12 Eurovision 2015 Bretar hafa oftast haft rétt fyrir sér um sigurvegara í Eurovision frá upp- hafi keppninnar. Þeir hafa oftast gefið sigurlaginu 12 stig – eða átján sinnum. Bretar hafa gefið stig í 57 keppnum, sem er jafn oft og Þjóð- verjar, en þjóðirnar tvær hafa oft- ast allra tekið þátt enda eiga þær fast sæti í úrslitum keppninnar. Bret- ar hafa sjálfir unnið keppnina fimm sinnum, en þeir gátu að sjálfsögðu ekki spáð fyrir um þann sigur með því að gefa sér 12 stig. Lettar eru þó sú þjóð sem oftast hefur haft rétt fyrir sér um sigur- vegara miðað við fjölda skipta sem þjóðin hefur tekið þátt. Af þeim fimmtán skiptum sem Lettar hafa gefið stig í Eurovision hafa þeir gefið sigurlaginu tólf stig í átta skipti. Lettar hafa aðeins einu sinni staðið uppi sjálfir sem sigurvegarar í keppninni. Miðað við það að hafa ekki getað kosið sjálfa sig þá hafa þeir því gefið sigurlaginu tólf stig í 57 prósentum tilfella, sem verður að teljast nokkuð góður árangur. Íslendingar hafa einnig staðið sig ágætlega í að spá fyrir um rétt sigurlag en af þeim 27 skiptum sem Íslendingar hafa tekið þátt og kosið höfum við í níu skipti gefið sigur- laginu tólf stig. Það þýðir að íslenskir kjósendur og dómnefndir hafa í þriðjung skipta haft rétt fyrir sér. Ólíkt Bretum og Lettum höfum við hins vegar aldrei unnið keppnina. Lettar þekkja sigurvegara Lettar unnu árið 2002 með lagið I Wanna í flutningi Marie N. Í átján skipti hafa Bretar gefið sigurlagi keppninnar það árið 12 stig. Íslendingar hafa nokkrum sinnum hitt á rétt lag, til að mynda þegar Jóhanna Guðrún atti kappi við Norð- manninn Alexander Rybak í Moskvu árið 2009. Veislur eru algengar á Eurovisi- on-kvöldi en tími til veisluhalda er oft af skornum skammti. Thelma Þorbergsdóttir mat- gæðingur tók því saman þessa góðu uppskrift sem hún segir að taki enga stund að gera. Góða veislu gjöra skal Auðveldur veislukostur. Takið utan af lauknum, skerið í grófa bita og setjið í matvinnsluvél. Hakkið lauk- inn þar til hann verður fínsaxaður. Dreif- ið honum jafnt og þétt í botninn á með- alstóru formi. Setjið rjómaostinn í mat- vinnsluvél og hrærið þar til hann verður mjúkur og sléttur. Blandið salsasósunni saman við og hrærið vel saman. Dreif- ið úr blöndunni yfir rauðlaukinn og slétt- ið vel úr með sleif. Skerið tómatana til helminga og takið innan úr þeim. Sker- ið þá mjög smátt niður og dreifið yfir blönduna. Því næst skerið þið gúrkuna og paprikuna smátt niður og dreifið jafnt og þétt yfir tómatana. Skerið kálið niður mjög smátt og dreifið yfir allt saman. Geymið ídýfuna inni í kæli þar til hún er borin fram. 1-2 rauðlaukar 450 g rjómaostur 1 dós af mildri salsasósu 5 tómatar 1 gúrka 1 rauð paprika ½ kálhaus Fersk mexíkósalsa-ídýfa *sjampó + hárnæring vs sjampó án hárnæringar 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 0 -5 4 F C 1 7 6 0 -5 3 C 0 1 7 6 0 -5 2 8 4 1 7 6 0 -5 1 4 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.