Morgunblaðið - 23.06.2015, Síða 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 2015
sinnti almennri kennslu í Áslands-
skóla. Eftir nám í kennslu og hag-
nýtri fjölmiðlun var hún með þátt-
inn Samfélagið í nærmynd hjá
RÚV eitt sumar og hóf síðan
kennslu, fyrst við FG og síðan í
tvö og hálft ár við MK þar sem
hún kenndi lífsleikni og íslensku.
Samhliða því skrifaði hún barna-
blað Morgunblaðsins í hálft ár.
Hún kenndi jafnframt jóga í Bað-
húsinu í sjö ár, var aðstoðarsjón-
varpsstjóri á ÍNN 2007-2009.
Steinunn og eiginmaður hennar,
Leifur Björn, stofnuðu hugbún-
aðarfyrirtækið Locatify 2009 og
hafa starfrækt það síðan en Stein-
unn er framkvæmdastjóri þess.
Fyrirtækið býður upp á sjálfvirk,
staðsetningartengd öpp, innanhúss
sem utan, og geta viðskiptavinir
því sett inn efni á vef fyrirtæk-
isins á auðveldan hátt og viðhaldið
þannig og uppfært eigið efni. Þau
sjá t.d. um öpp fyrir ýmis söfn,
fyrir Vestmanneyjabæ og fyrir
fjölda erlenda aðila.
Steinunn hefur stundað jóga um
langt árabil og er fastagestur í
Sundlaug Hafnarfjarðar: „Ég
kenndi lengi jóga og geri alltaf
jógaæfingar með vissu millibili.
Ég hef einnig verið mikill lestrar-
hestur frá því ég var ung en les
nú aðallega íslenskar skáldsögur.
Það er alltaf spennandi að fylgjast
með ungum og efnilegum höf-
undum sem eru að þreifa sig
áfram, fullir af eldmóði og áhuga.
Þar leynast oft snillingar framtíð-
arinnar.“
Fjölskylda
Eiginmaður Steinunnar er Leif-
ur Björn Björnsson, f. 28.10. 1966,
þróunarstjóri Locatify. Foreldrar
hans: Guðrún Ásmundsdóttir, f.
19.11. 1935, leikkona og leikrita-
skáld í Reykjavík, og Björn
Björnsson, f. 9.3. 1933, d. 29.11.
2008, flugvirki í Reykjavík.
Börn Steinunnar og Leifs
Björns eru Ragnheiður Harpa
Leifsdóttir, f. 11.2. 1988, listamað-
ur og leikritaskáld, BA í fræðum
og framkvæmd frá LHÍ og stund-
ar mastersnám í ritlist við HÍ, bú-
sett í Reykjavík; Rakel Mjöll
Leifsdóttir, f. 16.12. 1989, lista-
maður, söngkona og tónskáld með
BA-próf í sjónrænni myndlist frá
Listaháskóla í Brighton; Viktor
Már Leifsson, f. 9.9. 1991, stundar
nám í nútímadansi við PARTS í
Brussel í Belgíu, og Íris María
Leifsdóttir, f. 14.7. 1993, nemi í
félagsfræði við HÍ.
Foreldrar Steinunnar: Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, f. 24.1
1929, fyrrv. verkakona og versl-
unarmaður í Reykjavík, og Gunn-
laugur Hjartarson, f. 15.4. 1928, d.
16.5. 2014, verkamaður í Reykja-
vík.
Gömul fjölskyldumynd Ragnheið-
ur Harpa, Viktor Már, Steinunn
Anna, Leifur Björn, Íris María og
loks Rakel Mjöll. Myndin var tekin
fyrir 22 árum.
Úr frændgarði Steinunnar Önnu Gunnlaugsdóttur
Steinunn Anna
Gunnlaugsdóttir
Ragnheiður Þorbjörnsdóttir
húsfr. á Litla-Ármóti, í Rvík og
síðast á Dysjum
Sæmundur Guðmundsson
b. á Litla-Ármóti, í Rvík, síðast
á Bjarnastöðum á Álftanesi
Steinunn Anna Sæmundsdóttir
húsfr. og fiskverkak. í Rvík
Guðmundur Þórarinn Tómasson
verkam. og sjóm. í Rvík
Ragnheiður Guðmundsdóttir
verslunarm. í Rvík
Ragnheiður Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík og Hafnarfirði
Tómas Halldórsson
skósmiður í Rvík og Hafnarfirði
Himinbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Mýrarhúsum
Magnús Guðmundsson Waage
skipstj. í Mýrarhúsum
Guðný Magnúsdóttir
húsfr. á Kvígsstöðum í Andakíl, síðar í Rvík
Hjörtur Vilhjálmsson
vinnum. í Borgarfirði og
verkam. í Rvík
Gunnlaugur Hjartarson
verkam. hjá Hampiðjunni í Rvík
Guðrún Guðnadóttir
húsfr. í Tungufelli
Vilhjálmur Þorlákur Hannesson
b. á Kópareykjum og í Tungufelli í
Lundarreykjadal
Skarphéðinn
Magnússon í Rvík
Tómas Waage
veggfóðrameistari
í Rvík
Helga Waage
frumkvöðull á
sviði hugbúnaðar
Guðmundur Ingi Gumundsson
skipstj. á Hugin VE
Gylfi Viðar Guðmundsson
skipstj. á Hugin VE
Árni fæddist á Ytri-Brekkum í Sauða-
neshreppi í Norður-Þingeyjarsýslu
23.6. 1894. Foreldrar hans voru Vil-
hjálmur Guðmundsson, bóndi á Heiði,
á Skálum, á Eldjárnsstöðum og á Ytri-
Brekkum, og k.h., Sigríður Davíðs-
dóttir húsfreyja.
Foreldrar Vilhjálms voru Guð-
mundur Sigurðsson, bóndi á Skálum á
Langanesi en flutti síðar til Vestur-
heims og var bóndi í Garðabyggð í
Norður-Dakóta, og k.h., Aðalbjörg
Jónsdóttir húsfreyja, en foreldrar Sig-
ríðar voru Davíð Jónsson, bóndi í
Sandvík og á Halldórsstöðum í Bárð-
dælahreppi, síðar á Heiði á Langanesi,
og k.h., Þuríður Árnadóttir húsfreyja.
Eiginkona Árna var Aagot Fougner
Vilhjálmsson, f. Johansen, húsfreyja.
Þau eignuðust ellefu börn.
Meðal þeirra voru Snorri, lögfræð-
ingur á Selfossi sem lést 1972, Kjart-
an, héraðslæknir á Höfn í Hornafirði
sem lést 1978 og Valborg, hjúkrunar-
fræðingur í Reykjavík.
Aagot sat í sóknarnefnd Vopna-
fjarðarsóknar, starfaði mikið með leik-
félaginu á Vopnafirði, var mikil hann-
yrðakona og starfrækti verslun á
Vopnafirði um árabil. Hún lést 1995.
Árni lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1914, embættis-
prófi í læknisfræði frá Háskóla Ís-
lands 1919 og stundaði framhaldsnám
við Haukeland Sykehus í Björgvin og
á Kvinneklinikken í Osló 1922.
Árni var staðgengill héraðslæknis í
Norðfjarðarhéraði 1919-20 og héraðs-
læknisins í Reyðarfjarðarhéraði 1922,
læknir í Vestmannaeyjum 1922-23 og
héraðslæknir í Flateyjarhéraði 1923,
læknir á Seyðisfirði 1923-24 og hér-
aðslæknir í Vopnafjarðarhéraði 1924
og til ársloka 1959. Þau hjónin fluttu
til Reykjavíkur 1960 og starfaði Árni
síðan hjá Tryggingastofnun ríkisins
frá 1961, við endurskoðun og skýrslu-
gerð.
Árni sat í hreppsnefnd Vopnafjarð-
arhrepps 1925-55, var oddviti hennar
1925-28, 1934-38, og sat í skattanefnd
Vopnafjarðarhrepps 1928-48. Árni lést
9.4. 1977.
Merkir íslendingar
Árni Vilhjálmsson
90 ára
Laufey Vilhelmsdóttir
Sigurður Stefánsson
85 ára
Guðjón Eyjólfsson
Jón Pétursson
Sæunn Ragnheiður
Sveinsdóttir
Þóra Hólm Jóhannsdóttir
Þórður Haukur Jónsson
80 ára
Björn Sigfússon
Ragnar Þjóðólfsson
75 ára
Benedikt Hallgrímsson
Björn Þór Gunnlaugsson
Fjóla Ragnarsdóttir
70 ára
Guðmundur A Ingimarsson
Herdís Viggósdóttir
Lára Axelsdóttir
Ólöf Lára Jónsdóttir
Soffía Kjaran
Sveinbjörn Magnússon
Sveinn Gunnar
Kristjánsson
60 ára
Árni Vésteinsson
Ásgeir Smári Einarsson
Ásta Björg Björnsdóttir
Guðrún H. Björgólfsdóttir
Hildur Þuríður Tómasdóttir
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Jón Baldur Þorbjörnsson
Sigrún Birna Svavarsdóttir
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson
50 ára
Alexander G.
Alexandersson
Anna Birna
Sigurbjörnsdóttir
Anna Katrín
Guðmundsdóttir
Auður Haraldsdóttir
Birgir Þórarinsson
Eduardo Enr Rodriguez
Hernandez
Elín Ólafsdóttir
Guðbjörg Stefánsdóttir
Hrefna Hauksdóttir
Jón Harry Óskarsson
Ómar Þór Edvardsson
Sigurður Ágústsson
Sigurgeir O. Þorsteinsson
40 ára
Birkir Björnsson
Bragi Þór Jónsson
Einar Magnússon
Harpa Hafbergsdóttir
Helga Björk
Sigbjarnardóttir
Hjörtur Levi Pétursson
Jónína Sóley Halldórsdóttir
Magnea Ósk
Sigurhansdóttir
Radoslaw Maurycy
Szmoniak
Sæunn Ósk
Sæmundsdóttir
30 ára
Daði Bertelsson
Halldóra Sigurlaug Ólafs
Sigurður Helgi Grímsson
Valdís Guðrún Gregory
Til hamingju með daginn
30 ára Helgi ólst upp á
Þingeyrum í Austur-
Húnavatnssýslu, býr í
Reykjavík, lauk BA-prófi í
grafískri hönnun frá LHÍ
og prófi í gull og silfur-
smíði við Iðnskólann.
Maki: Gígja Dögg Ein-
arsdóttir, f. 1979, ljós-
myndari.
Sonur: Theodór Flóki
Thoroddsen, f. 2014.
Foreldrar: Helga Thor-
oddsen, f. 1959, og Gunn-
ar Ríkharðsson, f. 1956.
Helgi G.
Thoroddsen
30 ára Elín ólst upp í
Hvammi í Langadal, býr í
Reykjavík, lauk stúdents-
prófi frá FNV og er svæð-
isstjóri Hagkaupa í Kringl-
unni.
Maki: Gunnar Gunn-
arsson, f. 1988, sölumað-
ur hjá Ó. Johnson &
Kaaber.
Sonur: Gunnar Gauti
Gunnarsson, f. 2012.
Foreldrar: Rannveig Run-
ólfsdóttir, f. 1958, og
Gauti Jónsson, f. 1955.
Elín Valgerður
Gautadóttir
40 ára Margeir ólst upp í
Reykjavík og er þar bú-
settur, lauk prófum sem
rafeindavirki og rafvirki
og starfar hjá Eico-
þjónustu.
Maki: Bár Yngvadóttir, f.
1975, fluggagnafræð-
iðngur hjá Isavia.
Börn: Yngvi, f. 2001, Mó-
eiður, f. 2008, og Hrafn-
hildur Ýrr, d. 2010.
Foreldrar: Anna Sveindís
Margeirsdóttir, f. 1950, og
Þórir Lúðvíksson, f. 1950.
Jón Margeir
Þórisson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón