Morgunblaðið - 24.06.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.06.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er ein sú skemmtilegasta og mest uppörvandi opinbera athöfn sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra þegar hann hafði tek- ið fyrstu skóflustunguna að bæna- húsi í Minna-Knarrarnesi á Vatns- leysuströnd, Knarrarneskirkju. Hjónin Anna Rut Sverrisdóttir og Birgir Þórarinsson í Minna- Knarrarnesi hyggjast reisa litla bændakirkju í 19. aldar stíl í túninu, rétt við svokallað Brandsleiði sem raunar enginn veit hvað táknar. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson á Selfossi flutti bæn og helgaði staðinn þar sem kirkjan mun rísa. Fyrir valinu varð mikill hátíðisdagur í fjöl- skyldunni; Sverrir sonur þeirra var að útskrifast sem verkfræðingur og Þórarinn sem stúdent. Það barst síð- an milli manna að húsbóndinn ætti stórafmæli en hann vildi ekki tala mikið um það. En veðrið var stillt og fallegt í gærkvöldi þegar veislan hélt áfram. Í 19. aldar stíl „Það er gamall draumur minn að reisa kirkju. Við erum með ferða- þjónustu og getum nýtt kirkjuna í sambandi við hana og ég er guðfræð- ingur. Þarna koma saman tvö helstu áhugamál mín, guðfræðin og bygg- ingarlist nítjándu aldar,“ segir Birgir. Verkefnið tengist einnig áhuga- málum forsætisráðherra, eins og hann bendir á í samtali við Morgun- blaðið, þjóðmenningunni, kirkjunni og byggingarlistinni. Þess vegna þætti honum sérstaklega áhugavert að taka þátt í athöfninni. Þess má geta að staðurinn tengist ríkisstjórn Sigmundar Davíðs því að stór hluti af stjórnarmyndunar- viðræðum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fór fram í íbúðar- húsinu í Minna-Knarrarnesi. Knarrarneskirkja, sem Birgir áformar að reisa í sumar, mun rúma 30 manns í sæti. Hann á þegar ýmsa muni til að nota í henni. Þannig eru gamlir kirkjubekkir úr Kálfa- tjarnarkirkju í hans eigu, sem og meira en 100 ára gömul skipsklukka sem mun verða kirkjuklukkan. Skemmtileg og uppörvandi athöfn  Forsætisráðherra tók fyrstu skóflustunguna að bænda- kirkju sem reisa á í Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Haldið í Anna Rut Sverrisdóttir, Kristinn Ágúst Friðfinnsson, Birgir Þór- arinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Sigurlaug Pálsdóttir. Guðni Einarsson Agnes Bragadóttir Atvinnuveganefnd Alþingis heldur áfram í dag að ræða um breytingar- tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegsráðherra við makríl- frumvarpið. Í henni felst að makríll verði kvótasettur til eins árs. Upp- haflega var gert ráð fyrir að kvóta- setning yrði til sex ára í senn. Atvinnuveganefnd kom saman til fundar í kvöldverðarhléi í gær þar sem makrílfrumvarp sjávarútvegs- ráðherra var á dagskrá. Fulltrúar at- vinnuvegaráðuneytisins komu á fundinn og útskýrðu breytinguna. Fundurinn stóð fram undir kl. 21, þegar nefndin frestaði fundi sínum. Engin niðurstaða fékkst í gær og því verður málið rætt áfram í dag í nefndinni. Þingfundi var frestað í gærkvöldi á meðan atvinnuvega- nefnd ræddi makrílmálið. Jón Gunnarsson, formaður at- vinnuveganefndar, sagði að búið væri að mæta sjónarmiðum sem komið hefðu fram af hálfu undirskriftasöfn- unarinnar þjóðareignar.is. Í undir- skriftasöfnuninni er forseti Íslands hvattur til að vísa lögum þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til meira en eins árs í þjóðaratkvæða- greiðslu. Fram kemur í fréttatilkynningu frá þjóðareign.is að Alþingi geti tekið af allan vafa með því að setja í frum- varpið ákvæði um „að úthlutun afla- hlutdeildar makríls verði til aðeins eins árs í senn“. Nú hefur verið komið til móts við það. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var það helst Björt framtíð af stjórnarandstöðuflokkunum sem lýsti stuðningi við hugmyndir sjávar- útvegsráðherra. Ekki fékkst stuðn- ingur frá fulltrúum Samfylkingar og Pírata. Einhverjir innan þeirra raða munu þó vera tvístígandi í afstöðu sinni. Lilja Rafney Magnúsdóttir, fulltrúi VG í atvinnuveganefnd, sagði þingflokk VG vera mótfallinn því að setja makríl í núverandi kvótakerfi. Litið er á breytinguna á makríl- frumvarpinu sem framlag stjórnar- flokkanna til samkomulags um þing- lok. Viðræður fóru fram á milli flokk- anna á Alþingi í gær um þinglok. Ein- ar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, taldi ólíklegt að samkomulag um þau næðist í gærkvöldi. Á þingfundi í gærkvöldi voru á dagskrá mál sem nokkur sátt ríkti um en ekki þau sem mestur ágrein- ingur hefur verið um. Þingfundi lauk á ellefta tímanum og er boðaður á ný kl. 15 í dag. Morgunblaðið/Styrmir Kári Alþingi Samkomulag um þinglok í sumar var til umræðu í gær. Komið til móts við þjóðareign.is  Sjávarútvegsráðherra gerir breytingartillögu við makrílfrumvarpið um að makrílkvóta verði úthlutað til eins árs  Atvinnuveganefnd heldur áfram að ræða tillöguna í dag  Ekki samkomulag um þinglok Samningafundi Bandalags há- skólamanna (BHM) og ríkisins sem hófst kl. 15 í gær lauk eftir að- eins 10-15 mínútur. „Þeir höfðu ekki neitt að bjóða,“ sagði Páll Hall- dórsson, formaður samninganefndar BHM. „Það var nákvæmlega sama staða og áður en lögin voru sett.“ Sem kunnugt er setti Alþingi lög þann 13. júní sem bundu enda á verk- fall BHM og Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga (FÍH). Náist ekki samningar fyrir 1. júlí mun gerðar- dómur ákveða kaup og kjör félags- manna BHM og FÍH. Páll sagði að ef samninganefnd ríkisins kæmi með eitthvað nýtt að samningaborðinu myndi BHM skoða það vel. „Annars bara gengur þetta sinn gang. Málaferlin fara af stað og annað eftir því,“ sagði Páll. Stefna BHM gegn ríkinu vegna lagasetningarinnar var þingfest 19. júní sl. Fyrirtaka verður 2. júlí og aðalmeðferð 6. júlí í Héraðsdómi Reykjavíkur. gudni@mbl.is Stuttur fundur hjá BHM Páll Halldórsson  Sama staða og fyrir lagasetninguna Keppendur í WOW Cyclothon hjólreiðakeppn- inni voru ræstir út á Laugardalsvelli í gær. Flug- félagið WOW air stendur fyrir keppninni, sem er nú orðin fjölmennasta hjólreiðakeppni á Íslandi. Yfir þúsund manns taka þátt í henni og hjóla hringinn kringum landið. Skúli Mogensen, for- stjóri WOW air, mætti tvíefldur til keppni eftir rembingskoss unnustu sinnar, Friðriku Hjördís- ar Geirsdóttur sjónvarpskonu. Forstjórinn fékk rembingskoss frá unnustunni Morgunblaðið/Eggert Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst á Laugardalsvelli í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.