Morgunblaðið - 24.06.2015, Side 27

Morgunblaðið - 24.06.2015, Side 27
síður þekktur fyrir stórkostleg verk sín erlendis: „Ég hef verið lánsamur í gegnum árin og verið falið að vinna mörg stór verkefni bæði hér á landi og erlendis. Meðal annars minningarglugga um Robert Burns í St. Giles Cathedral í Edinborg og listaverk sem myndar nýtt anddyri dómkirkjunnar. Einnig vann ég steindan glugga í Southwark Cathedral í London. Hér á landi eru mörg listaverk eftir mig í kirkjum og má nefna Hall- grímskirkju og Grafarvogskirkju. Þá er listaverk eftir mig m.a. í Flugstöð- inni í Keflavík, Grand Hótel og í Hæstarétti Íslands.“ Leifur hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir listsköpun sína árið 1995 og Bjartsýnisverðlaun Bröste. „Við Sigríður ferðumst mikið sam- an í tengslum við sýningar erlendis, ráðstefnur og vinnu mína við stór verkefni á verkstæðum erlendis. Sameiginlegt áhugamál okkar í þess- um ferðum er að skoða myndlist, listasöfn og fara á tónleika. Það endurnærir sál og líkama.“ Fjölskylda Eiginkona Leifs er Sigríður Jó- hannsdóttir, f. 27.9. 1948, vef- listakona. Hún er dóttir Jóhanns Pét- urssonar, f. 4.8. 1918, d. 26.9. 1990, vélfræðings, og Ísafoldar Kristjáns- dóttur, f. 22.5. 1907, d. 27.7. 1996, hús- freyju. Synir Leifs og Sigríðar eru Jóhann Guðmundur Breiðfjörð, f. 26.6. 1974, kennir börnum að vinna með tækni- lego og er nýsköpunarleiðbeinandi, í sambúð með Katrínu Björk Krist- insdóttur, uppeldis- og félagsfræð- ingi, og eru börn þeirra Iðunn Ísa- fold, f. 2005, og Vilhjálmur Jarl, f. 2009, en stjúpdóttir Jóhanns er Salka Tara Katrínardóttir, f. 2000, og Ólaf- ur Agnar Breiðfjörð, f. 28.7. 1977, bú- settur í Glasgow, myndlistar- og tón- listarmaður og yfirhönnuður hjá Bright Signals, markaðs- og auglýs- ingastofu í Glasgow. Bræður Leifs eru Eiður Breið- fjörð, f. 1933, blikksmíðameistari; Guðmundur Bogi Breiðfjörð, f. 1938, blikksmíðameistari, og Gunnar Breiðfjörð f. 1947, byggingatækni- fræðingur. Foreldrar Leifs voru Agnar Breið- fjörð, f. 14.8. 1910, d. 19.6. 1983, blikk- smíðameistari og forstjóri en auk þess uppfinningamaður sem fann m.a. upp flotvörpuna og tengimótin, og Ólafía Bogadóttir Breiðfjörð, f. 9.11. 1914, d. 9.10. 1998, húsfreyja. Úr frændgarði Leifs Breiðfjörð Leifur Breiðfjörð Gunnhildur Árnadóttir húsfr. í Firði Sigurður Jónsson b. í Firði í Seyðisfirði Elín Guðrún Sigurðardóttir húsfr. á Seyðisfirði og í Rvík Bogi Benediktsson kennari á Seyðisf. og skrifst.stj. í Rvík Ólafía Bogadóttir Breiðfjörð húsfr. í Rvík Kristín A. Gísladóttir húsfr. í Garði Benedikt Olgeirsson b. í Garði í Fnjóskadal Helga Pálsdóttir húsfr. í Hörgsdal Bjarni Bjarnason b. í Hörgsdal á Síðu Guðrún Bjarnadóttir Breiðfjörð húsfr. í Rvík Guðmundur Jóhannesson Breiðfjörð blikksmiður og forstj. í Rvík Agnar G. Breiðfjörð blikksmíðam. og forstj. í Rvík Jóhanna K. Guðmundsdóttir húsfr. á Búlandshöfða Jóhannes Sigurðsson b. og sjóm. á Búlandshöfða í Eyrarsveit Magnús Guðmundsson tónleikahaldari Þorsteinn Guðmundsson leikari Dóróthea Breiðfjörð Stephensen húsfr. í Rvík Elías Bjarnason yfirkennari og kennslubókahöfundur Helgi Elíasson fræðslustjóri Þorkell Helgason stærðfræðingur Þorvaldur Karl Helgason prestur á Selfossi Helga Guðný Bjarnadóttir húsfr. í Múlakoti á Síðu Helgi Þorláksson organisti og skólastjóri í Rvík. Bryndís Bogadóttir húsfr. í Rvík Kjartan Sigurjónsson organisti og kennari Bolli Sigurjónsson trésmiður Bryndís Sigurjónsd. skólameistari Borgarh.skóla Þorgeir Guðmundss. kvikmyndagerðarm. Bryndís Bolladóttir hönnuður Sigurjón Kjartansson tónlistarm. og leikari Indriði Bogason fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands Jóhann Sigurðsson verslunarm. á Seyðisf. Laufey Jóhannsdóttir húsfr. á Ak. Margrét Indriðadóttir fyrrv. fréttastj. RÚV Örnólfur Thorsson forsetaritari Guðmundur Andri Thorsson rith. í Rvík Þorbjörg Olgeirsd. húsfr. á Þverá í Fnjóskadal Garðar Gíslason stórkaupm. í Rvík Kristján G. Gíslason forstj. í Rvík. Garðar Gíslason hæstar.- dómari Þóra Kristjánsd. listfr. Guðrún Stephensen leikkona Helga Stephensen leikkona Stefán Stephensen hornl.í Sinf.hlj.sveit Íslands Kristján Stephensen óból. í Sinf.hlj.sveit Íslands ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 Björn fæddist í Núpsdalstunguí Miðfirði 24.6. 1888, sonurJóns Jónssonar bónda og k.h., Ólafar Jónsdóttur. Eiginkona Björns var Jónína Guðríður Þórhalls- dóttir kennari, fædd í Reykjavík, og eignuðust þau fjögur börn. Björn lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. 1907, stundaði framhaldsnám við framhaldsdeild lýðháskólans í Frið- riksborg og við lýðháskólann í Askov 1912-15. Þar kynntist hann dönskum skólamönnum og drakk í sig skóla- hugsjón lýðháskólamanna um þjóð- frelsi, félagshyggju og samvinnu- stefnu. Björn var skólastjóri Barnaskól- ans í Vestmannaeyjum frá 1914-20 og vann þá öðrum fremur að stækk- un skólans. Hann stofnaði auk þess unglingafræðslu í Eyjum haustið 1918 og stýrimannadeild. Björn sótti fundi íslenskra sam- vinnumanna og vann að stofnun kennarasamtaka um fræðslumál, uppeldismál og launamál. Þessi fé- lagsmálastarfsemi hans olli úlfúð hjá sumum útgerðarmönnum í Eyjum og átti þátt í því að þau hjónin hurfu þaðan og tóku við stjórn lýðháskól- ans í Hjarðarholti í Dölum sem starf- ræktur hafði verið frá 1901. Björn varð bóndi í Hjarðarholti og skóla- stjóri lýðháskólans þar en skólinn hélt upp öflugri ungmennafélags- starfsemi og varð brátt menningar- miðstöð sveitarinnar, með leiksýn- ingum, héraðssamkomum og söngæfingum. Skólinn átti hins veg- ar við fjárhagsþrengingar að etja og 1925 fluttu þau bjónin til Ísafjarðar. Þar urðu þau kennarar við barna- skólann og Björn varð skólastjóri iðnskólans við miklar vinsældir. Árið 1930 varð Björn skólastjóri Barnaskóla Ísafjarðar og gegndi því starfi við góðan orðstír í 27 ár. Björn var yfirskattanefndarmað- ur á Ísafirði, sáttasemjari í vinnu- deilum, sat í barnaverndarnefnd um aldarfjórðungsskeið og var forustu- maður í félagssamtökum vestfirskra kennara. Við starfslok fluttu þau hjónin til Reykjavíkur þar sem hann sinnti ættfræði og öðrum þjóðlegum fróðleik síðustu æviárin. Björn lést 4.6. 1962. Merkir íslendingar Björn H. Jónsson 90 ára Elínborg Benediktsdóttir Jóna Jóhanna Mortensen Magnús Ásgeir Lárusson 85 ára Björgvin Magnússon Hólmfríður Pálsdóttir 80 ára Erling Garðar Jónasson Hrefna Magnúsdóttir Kristófer Magnússon Lórens Rafn Kristvinsson Ósk Óskarsdóttir 75 ára Eymundur Þór Runólfsson Geir Hauksson Guðjón Þórir Þorvaldsson Guðrún Árnadóttir Kristján F. Tryggvason Sigþór J. Sigurðsson Örn I.S. Isebarn 70 ára Ásgeir Ingimundarson Baldur Valgeirsson Elín Magnúsdóttir Jónína Kristjánsdóttir Rafn F. Kjartansson Sigurður F. Kjartansson Stefán Björgvinsson Svanhildur Jóhannsdóttir 60 ára Anthony John Brumpton Bára Þórarinsdóttir Elín K. Guðbergsdóttir Ferdinand Hansen Guðmundur A. Matthíasson Gyða S. Richter Sigrún Olgeirsdóttir Úlfhildur Guðmundsdóttir Þorgeir Pálsson Þráinn Guðjónsson 50 ára Ásta María H. Jensen Berglind Tryggvadóttir Birna A. Aðalsteinsdóttir Dóra Ingólfsdóttir Erlendur Guðbjörnsson Gunnar Ingvar Leifsson Hulda Jóhannesdóttir Jón Vilmundarson Lakkhana Yongkhamcha Pétur Snæbjörn Johnson Ragnhildur J. Barðadóttir Sigurður Víðisson Sóldís Björk Traustadóttir Valdimar Björnsson 40 ára Birna J. Ragnarsdóttir Bryndís Guðmundsdóttir Friðrik Elís Ásmundsson Gabriel Gísli Birgisson Gregory N. Barrett Guðbjörg Stella Árnadóttir Guðrún S. Sigþórsdóttir Gunnar Torfi Benediktsson Gunnhildur Þ. Sigþórsdóttir Hugrún Ósk Ólafsdóttir Ingibjörg Þórarinsdóttir Jón Þorsteinn Oddleifsson Karl Magnús Karlsson Remigiusz Mitryniuk Vigdís Heiða Ólafsdóttir 30 ára Birgitta Anný Baldursdóttir Björn Aron Magnússon Elvar Örn Kristinsson Guðlaugur P. Frímannsson Inga Sigurbjörg Árnadóttir Iris Thiele Ívar Kristleifsson Jóhanna V. Höskuldsdóttir Kamila K. Celej-Ziólkowska Margrét I. Guðmundsdóttir Steingrímur Jón Ólafsson Trausti Geir Torfason Til hamingju með daginn 30 ára Sonja ólst upp í Hafnarfirði, býr í Reykja- nesbæ og starfar á Hrafn- istu á Nesvöllum í Reykja- nesbæ. Maki: Sveinn Ómar Krist- insson, f. 1982, kerfis- stjóri hjá Valitor. Dóttir: Ragnhildur Lauf- ey, f. 2005. Foreldrar: Svala Mark- úsdóttir, f. 1955, læknarit- ari, og Leifur Jónsson, f. 1954, d. 2012, var sölu- stjóri hjá Svartækni. Sonja Leifsdóttir 30 ára Signý ólst upp í Liverpool og í Reykjavík, er nú búsett í Reykjavík, lauk læknisprófi frá HÍ og er læknir við slysadeild Landspítalans. Maki: Kristján Ari Úlf- arsson, f. 1987, bygg- ingaverkfræðingur hjá Verkís. Foreldrar: Auður Möller, f. 1959, bóndi á Strand- arhöfða, og Guðmundur Már Stefánsson, f. 1959, læknir í Reykjavík. Signý Ásta Guðmundsdóttir 30 ára Ólafur býr á Akra- nesi, lauk lögfræðiprófi frá HÍ og er lögfræðingur hjá Norðuráli. Maki: Tarín Hera Árna- dóttir, f. 1990, starfs- maður við sambýli. Börn: Samúel Örn og Auður Líf, f. 2009. Foreldrar: Þórir Guðna- son, f. 1956, starfsm. hjá Klafa á Grundartanga, og Barbara Guðrún Davis, f. 1964, starfar við Grund- arskóla. Ólafur Þór Þórisson • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is • BLI A3 MFP Line of the Year 2013 • BLI A3 MFP Line of the Year 2012 • BLI A3 MFP Line of the Year 2011 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.