Morgunblaðið - 24.06.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.06.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 VANDAÐIR ÞÝSKIR PÓSTKASSAR, HENGILÁSAR OG HJÓLALÁSAR. MIKIÐ ÚRVAL Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is Opið virka daga frá 9-18 og lau frá 10-16 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er rétti tíminn til að eiga sam- skipti við fólk. Farðu gætilega, hugur þinn starfar hraðar en talfærin ráða við þessa dag- ana. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er hætt við að þú ætlist til of mikils í dag. Oft og tíðum er líf þitt skemmtilegt og spennandi. Hættu að stressa þig yfir smá- munum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Búðu þig undir annríki í dag. Farðu vel yfir allar peningafærslur og gættu þess að týna hvorki veskinu né sjálfum/sjálfri þér. Ef þú þarft að undirrita pappíra skaltu fá að yfir- fara þá áður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Rómantískar hugsanir sækja á þig í dag. Leitaðu til þeirra sem þú treystir. Lygar hafa kannski áhrif tímabundið, en sannleik- urinn ofurmátt þegar til lengri tíma er litið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Farðu þér hægt í skuldbindingum í bili. Reyndar ættir þú að fresta öllu sem ekki þarf nauðsynlega að afgreiða á stundinni. Kíktu út í göngutúr, það er svo frískandi og endurnær- andi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú kemst ekkert áleiðis ein/n og óstudd/ur. Það er allt í lagi að biðja stundum um hjálp. Þú hefur fjörugt ímyndunarafl og persónutöfrar þínir munu koma þér langt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sköpunargleðin er við völd í dag. Þig langar ætíð til að upplifa eitthvað nýtt og lenda í ævintýrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að sýna sveigjanleika til þess að allt fari ekki í bál og brand á vinnu- stað þínum. Njóttu dagsins því hann er þinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nýir kunningjar koma með fersk- an blæ inn í líf þitt. Vertu óhrædd/ur. Stattu fast á þínu og treystu eigin dómgreind. 22. des. - 19. janúar Steingeit Endilega notfærðu þér þau tæki- færi sem bjóðast í dag. Gefðu þér samt tíma til þess að hvílast inn á milli. Samræður eru alvarlegar og praktískar og líklegar til árang- urs. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér á eftir að ganga vel í dag ef þú skipuleggur þig nógu vel. Um leið og þú hætt- ir að reyna að sanna mál þitt mun fólk átta sig á að þú hafðir rétt fyrir þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Tímamörk þrýsta á þig og þú þarft að leggja nokkuð á þig til þess að standast þau en þú getur það alveg. Einblíndu á minnihátt- ar viðgerðir. Mér varð á í messunni og bið af-sökunar á því. Gunnar Kr. Sigurjónsson skrifaði mér stutt bréf en gott og sagði mér að nafn sitt hefði misritast í Vísnahorni – Kr. stæði ekki fyrir Kári: Ei var nafn mitt alveg rétt, inni í dagsins Morgunblaði. Það er: Gunnar Kristinn „ganske nett“, en gerðist svosem enginn skaði. Páll Imsland heilsar Leirliði á há- sumardegi: Úr því ég er að þessu rímlausna- vandamálatali er best að halda bara áfram. Ein leið í lausn rímþrauta er að sækja í vestfirskan hákall – afsakið þetta átti víst að vera vestfirskan framburð. Þó mér sé hann ekki tamur geri ég tilraun: Hún Lólíta Léttló í Ankara ók læri sem var miklu slankara fram fyrir hitt ferlíkið sitt í tilraun að tæla einn bankara. Að þessum hugleiðingum fellur þessi limra Kristjáns Karlssonar vel: Ef eyra þitt er þér byrði, slít það af og fleyg vestur á firði. Þar eð mannseyrum fækkar, jafnt og músík vor hækkar, mun það úrelt, þótt aftur kyrrði. Bjarki Karlsson yrkir á Boðn- armiði. Til athugunar og eftirbreytni í mollunni: Svo mælti hann Max gamli Weber: „Ég meina það, hvílíkur feber! Samt klæðist ég jakka úr kasmír og frakka en geng hvorki nakinn um né ber.“ Ingólfur Ómar Ármannsson yrk- ir og fellur vel að Skagfirðingalagi: Hýrgar glóð að heyra óð hljómar bagan slynga, Dávæn fljóð og glæta góð gleður Skagfirðinga. Við þessa stemmu hefur séra Bjarni gamlan húsgang: Ljót mig naga leiðindin, ljóða bagar gjörðin, hryggur stagar hugurinn heim í Skagafjörðinn. Hér er önnur vísa, svipuð þessari: Lifnar hagur, hýrnar brá hindrast bragar gjörðin; ó, hve fagurt er að sjá ofan í Skagafjörðinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Frá Weber, vestfirsku og Skagfirðingum Í klípu STJÁNI NENNTI EKKI AÐ STANDA UPP EN SAMT HATAÐI HANN ÞEGAR EINHVER TALAÐI NIÐUR TIL HANS. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger ,,SEGJUM SEM SVO AÐ VIÐ ÁKVEÐUM AÐ HORFA EKKI EITT KVÖLDIÐ. MANSTU ÞÁ HVERNIG MAÐUR SLEKKUR Á ÞVÍ?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... betri seint, en aldrei. HRESSTU ÞIG VIÐ, GRETTIR. ÞETTA ER BETRA! HVAÐ NÚ? ÞETTA ER MOTTÓIÐ HANS HRÓLFS, ,,ÞETTA ER MITT” OG SKATTAYFIRVÖLD VILJA FÁ AÐ VITA HVAR HANN FELUR ÞAÐ! BLA BLA BLA. ÞETTA ER MITT Kunningi Víkverja hélt því framvið hann á dögunum að kyn- slóðabil væri að myndast í tungu- málinu. Eldri kynslóðir töluðu mál sem þær yngri skildu ekki og öfugt. Nefndi hann sérstaklega til sög- unnar gömul orðatiltæki sem eitt sinn hefðu verið gagnsæ, en væru það ekki lengur eins og að vera kom- inn á fremsta hlunn með að gera eitthvað eða sitja við sinn keip. Ein- hvern tímann kallaði Flosi Ólafsson á nútímavæðingu orðatiltækja og sagði að auðskiljanlegra væri að tala um að berjast í bönkum en að berj- ast í bökkum. x x x Þetta samtal rifjaðist upp fyrirVíkverja þegar ungur viðmæl- andi varð eitt spurningarmerki í framan við að heyra orðið glænepju- legur. Þetta var sami svipurinn og mætti Víkverja einhverju sinni þeg- ar hann sagðist vera rotinpúrulegur. x x x Reyndar þykist Víkverji yfirleittskilja þá sem hann á samræður við. Reyndar skjóta upp kollinum orð og orð sem honum eru ekki á tungu töm. Það tók hann til dæmis tíma að átta sig á orðinu sjomli, sem mun þýða gamli. Nú er orðið hins vegar það mikið notað að í gam- anþættinum Drekasvæðinu var elli- heimili úr framtíðinni látið heita Sjomli. x x x Þegar Víkverji var unglingur varþví oft haldið fram að unga kyn- slóðin væri orðin svo linmælt að brátt yrði ekkert eftir nema óskilj- anlegt uml. Þetta tal var Víkverja óskiljanlegt, þótt hann velti því stundum fyrir sér þessa dagana hvort mælt mál sé að hverfa inn í móðu linmælginnar. x x x Ný vídd á þessu máli opnaðist þeg-ar Víkverji rakst á frétt um að Danir þyrftu að meðaltali nokkrum árum fyrr á heyrnartækjum að halda en aðrar þjóðir. Þetta var rak- ið til þess að linmælgi væri slík í Danmörku að við minnstu heyrnar- skerðingu skildu menn ekki bofs hjálparlaust. víkverji@mbl.is Víkverji Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. (2. Tím. 3:15.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.