Morgunblaðið - 24.06.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Hvalatalning fer nú fram á Norður-
Atlantshafi í fyrsta sinn í átta ár.
Ætlunin er að meta stofnstærðir
helstu hvalategunda við landið og
hvort breytingar hafi orðið á út-
breiðslu og fjölda.
Af hálfu Ís-
lands fer talning-
in fram frá rann-
sóknaskipum
Hafrannsókna-
stofnunar, Árna
Friðrikssyni og
Bjarna Sæ-
mundssyni.
Gísli Víkings-
son, hvalasér-
fræðingur hjá
Hafró, stýrir talningunni frá Árna
Friðrikssyni.
Morgunblaðið náði tali af Gísla um
borð í Árna í gær, en skipið var þá
statt á Grænlandshafi. „Við fórum út
þann 9. og 10. júní á þessum tveimur
skipum. Við á Árna erum hér á
Grænlandshafi, en Bjarni er sunnar í
hafinu. Við reiknum með að koma til
Reykjavíkur þann 30. júní en halda
aftur út í júlí og eitt skipið verður al-
veg fram í ágústmánuð,“ sagði Gísli.
Talningarnar eru samþættar rann-
sóknum á karfa og makríl.
Þoka á leitarsvæðinu
Gísli sagði að gengið hefði á ýmsu í
hvalatalningunni, vegna þess að
þokusamt hefði verið á leitarsvæð-
inu. Hann sagði ótímabært að segja
til um hverjar niðurstöður talning-
arinnar yrðu, þar sem hún væri kom-
in skammt á veg.
Auk skipanna tveggja tekur ein
flugvél héðan þátt í talningunni með
það meginmarkmið að meta fjölda
hrefna á landgrunnssvæðinu.
Að talningunni standa, auk Íslend-
inga, Færeyingar, Norðmenn og
Grænlendingar, en hún er skipulögð
af Norður-Atlantshafssjávar-
spendýraráðinu, NAMMCO.
Hafrannsóknastofnun fékk sér-
staka fjárveitingu frá ríkinu í verk-
efnið, upp á 150 milljónir króna.
Gísli sagði að þegar niðurstöður
allra sem þátt tækju í talningunni
lægju fyrir færu þær til umfjöllunar í
vísindanefndum NAMMCO og Al-
þjóðahvalveiðiráðsins (IWC) þar
sem þær yrðu megingrundvöllur
mats á ástandi hrefnu- og langreyð-
arstofnanna.
Hvalatalning fram í ágúst
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Hnúfubakur Þessi hnúfubakur var í ætisleit rétt utan við hafnargarðinn á
Rifi á Snæfellsnesi í fyrrakvöld. Fæða hnúfubaks er m.a. loðna og síld.
NAMMCO mun samræma niðurstöður að talningu lokinni Gísli Víkingsson,
hvalasérfræðingur hjá Hafró, segir að þokusamt hafi verið á leitarsvæðinu
Gísli
Víkingsson
Listvinafélagið í Hveragerði heldur
úti lista (tímalínu) á vef sínum,
www.listvinir.is, þar sem tíundaðir
eru allir helstu listamenn bæjarins
frá árinu 1931 og fram á þennan dag.
Þar eru nú skráðir 113 einstaklingar,
myndir af þeim og æviágrip ásamt
því hvenær þeir bjuggu í bænum. Á
bæjarhátíðinni Blóm í bæ um helgina
verður settur upp skjár í Bókasafninu
í Hveragerði, Sunnumörk 2, sem
flettir sjálfkrafa í gegnum skrána.
Hveragerði hefur lengi haft orð á
sér fyrir að vera listamannabær en
Svanur Jóhannesson, stjórnar-
meðlimur í félaginu, segir það hafa
hafist í byrjun seinna stríðs. Þá hafi
verið húsnæðisekla í Reykjavík og
margir sest að í Hveragerði þess
vegna. Sumir hafi sótt í náttúruna og
kyrrðina en aðrir haft fyrir því heilsu-
farsástæður.
Fyrst um sinn voru það helst skáld
sem báru út hróður bæjarins, frá
hinni svokölluðu Skáldagötu, sem að
réttu ber nafnið Frumskógar. Upp-
haflega byrjaði verkefnið með sýn-
ingu innan Félags eldri borgara í
Hveragerði um þessi sex skáld í
Skáldagötunni. Það vatt þó fljótlega
upp á sig, Listvinafélagið í Hvera-
gerði var stofnað og útbúin var far-
andsýning sem hefur verið á ýmsum
stöðum í bænum. Nú standa hins veg-
ar vonir til að sett verði upp útisýning
sem taki á öllum þeim listgreinum
sem bæjarbúar hafa lagt stund á en
fjármagn til þess hefur ekki enn feng-
ist. Félagið bíður svara frá Uppbygg-
ingarsjóði Suðurlands. bso@mbl.is
Listafólk Hveragerðis skráð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveragerði Hátíðin Blómstrandi dagar verður haldin um helgina. Listvina-
félagið býður upp á sýningu tengda listasögu bæjarins í bókasafninu.
Listinn gerður
aðgengilegur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Reglan um að líta til beggja hliða áð-
ur en ekið er, gengið eða hjólað út á
götu er gulls ígildi. Það kom í ljós á
sunnudagskvöldið þar sem Akureyr-
ingurinn Unnsteinn Tryggvason var
á götureiðhjóli sínu á þjóðvegi 1 í
Vaðlaheiði. Erlendur ferðamaður,
vanur vinstri umferð, ók þá út af út-
sýnisstæði gegnt Akureyri og þvert í
veg fyrir Unnstein, sem hjólaði á bíl-
inn á töluverðum hraða og viðbeins-
og rifbeinsbrotnaði.
Síðasta árið hafa Unnsteinn og fé-
lagar hans búið sig undir hjólreiða-
keppni WOW hringinn í kringum
landið, sem hófst í gær.
„Það er auðvitað rosalega svekkj-
andi að missa af því en ég gat glatt
einn mann: Við höfðum nefnilega
tryggt okkur mjög öflugan varamann
í Reykjavík og hann fékk tækifæri til
að taka þátt! En ég fylgist með félög-
unum með sól í hjarta,“ sagði Unn-
steinn við Morgunblaðið í gær.
Hann hafði hjólað í tvo tíma þegar
óhappið varð. Alla leið úr Aðaldalnum
þar sem þau hjón, hann og Harpa
Gylfadóttir, voru í sumarbústað sín-
um. „Veðrið var gott og ég ætlaði
bara að taka þessu rólega. Harpa var
í bílnum á eftir mér og bauðst reynd-
ar til að taka mig upp í rétt áður en
þetta gerðist en ég vildi klára túrinn.
Það var svo stutt eftir.“
Þar sem Unnsteinn kemur hjólandi
sér hann lítinn, hvítan bíl á útsýn-
isstæðinu gegnt Akureyri. „Hann
sneri í suður og var kyrrstæður. Ég
mat stöðuna auðvitað þannig að hann
biði eftir mér en ég þegar nálgast tek-
ur hann skyndilega U-beygju fyrir
mig og ég gat ekkert gert. Lenti beint
á honum.“
Hjólið skemmdist töluvert en Unn-
steinn var heppinn að slasast ekki
meira. „Höfuðið og hryggurinn
sluppu alveg. Það má segja að við-
beinið hafi verið eins og og öryggis-
púði sem fór.“
Ungt fólk frá Hong Kong var í bíln-
um. „Bílstjórinn var alveg eyðilagður,
greyið, og þau öll þrjú. Hann gleymdi
sér einfaldlega; sagðist bara hafa
horft til hægri enda vanur vinstri um-
ferð. Ég var ljónheppinn en hann
ekki síður. Það hefði varla þurft að
spyrja að leikslokum ef það hefði ekki
verið lítill hjólreiðamaður sem lenti á
þeim heldur vörubíll.“
Unnsteinn á sér eina ósk nú þegar
WOW-keppnin er hafin: „Margir eru
jafnan á hjóli á vegum úti en óvenju
margir þessa þrjá daga. Ég vona inni-
lega að bílstjórar á hringveginum
sýni hjólreiðamönnum tillitssemi í
vikunni. Alltaf reyndar.“
„Ljónheppinn að
ekki fór mun verr“
Keyrt fyrir reiðhjólamann Viðbeins- og rifbeinsbrotinn
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Heppinn Unnsteinn við hjólið sitt. „Ég gat ekkert gert,“ segir hann.
Óhappið
» Unnsteinn var á 34 kíló-
metra hraða þegar hann lenti á
bílnum skv. mæli á hjólinu.
» Einn félagi Unnsteins úr
Team Bjarg er sjúkraflutn-
ingamaður, var á vakt á sunnu-
dagskvöldið og sótti Unnstein
á sjúkrabíl yfir í Vaðlaheiði.
Kjarasamningar Félags skip-
stjórnarmanna við ríkið hafa verið
lausir síðan í lok apríl. Ægir Steinn
Sveinþórsson, sem fer fyrir far-
manna- og varðskipasviði félagsins,
segir að eðlilegur gangur sé í við-
ræðunum og beðið hafi verið eftir
því að stóru verkalýðsfélögin klár-
uðu sína samninga.
„Það eru allir slakir,“ segir hann
og býst við því að viðræður hefjist í
sumar, líklega í júlí, en undir samn-
inginn heyra starfsmenn Land-
helgisgæslunnar og Hafrann-
sóknastofnunar.
Þá er kjarasamningur skip-
stjórnarmenntaðra félagsmanna
Félags skipstjórnarmanna við
Faxaflóahafnir einnig laus. Undir
samninginn heyra skipstjórar á
lóðsbátum, lóðsar eða hafsögu-
menn, og hafnarverðir. Hann segir
viðræður fara að síga af stað en það
sé einnig fámennur hópur og því
séu félagsmenn rólegir. Verkföll
hafa ekki komið til umræðu.
„Fyrst er að byrja að ræða
saman. Skýra sitt mál og hlusta á
hina.“
Samningslausir sjó-
menn hins opinbera
Morgunblaðið/Golli
Samningar Ósamið er við hafnsögumenn.
Ungur maður
var fluttur á
slysadeild Land-
spítalans eftir
fall af svölum á
þriðju hæð fjöl-
býlishúss í
Garðabæ í há-
deginu í gær.
Áætlað er að fall-
ið hafi verið um átta metrar.
Að sögn lögreglu lenti maðurinn
á fótunum á steinsteyptri gangstétt
fyrir neðan svalirnar. Maðurinn er
ekki í lífshættu en hlaut fótbrot á
öðrum fæti og önnur minniháttar
meiðsl af fallinu. Lögregla segir
mikla mildi að ekki hafi farið verr
enda lífshættulegt að falla úr jafn
mikilli hæð.
Grunur er um að gleðskapur hafi
verið í húsinu þegar slysið varð. Að
sögn lögreglumanns er fíflagangur
talinn hafa leitt til þess að maður-
inn féll fram af svölunum en ekki er
talið að slysið hafi borið að með
saknæmum hætti.
Lifði af átta metra
fall en fótbrotnaði
Maðurinn sem
lést á Landspít-
alanum á föstu-
dag í kjölfar
slyss við Þing-
vallavatn hét
Stefán Þ.
Tryggvason.
Stefán var fædd-
ur árið 1944 og
var til heimilis að Espigerði 16 í
Reykjavík. Hann var ókvæntur og
barnlaus. Endurlífgun á vettvangi
bar árangur en Stefán komst þó
aldrei til meðvitundar eftir slysið
og var haldið sofandi í öndunarvél.
Lést eftir slys við
Þingvallavatn