Morgunblaðið - 24.06.2015, Blaðsíða 16
16 VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015
!"
#
$$
$!
%!"
$
!
%!%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"%
#"
"
$#!%
!!
!
% #
!"
%#%
!"
!"
!
$!%
$!
""
%%
!""
%! "
%###
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Fjármálaráðherrar evruríkjanna
munu hittast á fundi í dag til þess að
ræða nýjasta útspil grísku ríkisstjórnar-
innar vegna yfirvofandi greiðslufalls rík-
issjóðs landsins. Manuel Valls, forsætis-
ráðherra Frakklands, fundaði í gær með
Mario Draghi, bankastjóra Evrópska
seðlabankans, og sagði að því loknu að
grundvöllur væri kominn fyrir sam-
komulagi um aðgerðir. Þó ítrekaði hann
að enn væri langt í land. Þá hefur Al-
þjóða gjaldeyrissjóðurinn gert athuga-
semdir þess efnis að hugmyndir Grikkja
byggi um of á hækkun skatta á laun og
fjármagnstekjur í stað niðurskurðar hjá
hinu opinbera.
Enn er unnið að sam-
komulagi við Grikki
● Svo virðist sem kynjajafnrétti á Ís-
landi sé með því mesta sem gerist í
heiminum og að vaxandi atvinnuþátt-
taka kvenna hafi haft mikið að segja um
það hve mikill hagvöxtur hefur verið hér
síðastliðin 100 ár eða svo. Um þetta er
fjallað í nýjum Markaðspunktum grein-
ingardeildar Arion banka. Samanburður
á þróun landsframleiðslu og fæðing-
artíðni bendir til þess að sókn kvenna á
vinnumarkað samhliða lækkandi fæð-
ingartíðni hafi haft sitt að segja um þær
miklu efnahagslegu framfarir sem Ís-
lendingar hafa notið frá stríðslokum.
Kynjajafnrétti stuðlar
að efnahagsframförum
STUTTAR FRÉTTIR ...
Snorri segir að samkvæmt lögum
um verðbréfaviðskipti eigi að vera
hægt að meta framtíðarhorfur í lýs-
ingu en í skráningarlýsingu Eikar
hafi vantað allar upplýsingar um
stóran hluta rekstrarins. „Rekstur
félagsins byggir á tveimur félögum
en ekki einu. Það er því mjög sér-
stakt að birta bara fortíðarrekstur
eins félagsins þegar framtíðarrekst-
ur og verðmæti félagsins byggir á
rekstri tveggja félaga.“
Snorri segir að gera verði enn rík-
ari kröfur til upplýsingagjafar þegar
horft sé til þess hvernig staðið hafi
verið að útboðinu á Eik og Reitum.
„Skráningaraðilinn er stærsti eig-
andinn og hann ákvarðar verðið.
Hann hefur því áhrif á upplýsinga-
gjöfina bæði sem eigandi og skrán-
ingaraðili. Það verður að horfa til
þess að í þessum tilvikum er skrán-
ingaraðilinn með yfirburðastöðu um-
fram kaupandann. Fjárfestir vill
fyrst og fremst að upplýsingarnar
séu mjög góðar og því þarf upplýs-
ingagjöfin að vera þeim mun betri
hjá skráningaraðilanum.“ Snorri
segir þetta til vitnis um óþroskaðan
hlutabréfamarkað á Íslandi. „Í ná-
grannalöndum okkar þættu þessi
vinnubrögð ekki til fyrirmyndar og
það er mjög ólíklegt að við myndum
sjá eitthvað í þessa veru þar.“
Hærra gengi í verðmati
Gengi bréfa í Eik hefur lækkað frá
skráningu og er nú 6,30 krónur á
hlut. Gengið hefur lækkað um rúm-
lega 7% frá útboðsgenginu, sem var
6,80. Í skýrslunni er birt gengi á
hverju fasteignafélaganna sam-
kvæmt verðmati Capacent í saman-
burði við markaðsgengi. Öll félögin
eru með hærra gengi samkvæmt
verðmatinu og segir Snorri að félög-
in eigi inni töluverðar verðhækkanir.
Hann segir að Reginn sé lengst frá
sannvirði en félaginu sé líklega refs-
að fyrir það að vera ekki með nógu
góða upplýsingagjöf. „Það vantar
mikið upp á upplýsingar um eign-
irnar til að meta reksturinn betur.
Flest fasteignafélög á Norður-
löndum sem við erum með saman-
burð við standa vel að upplýsingum
um eignir sínar.“
Eik varla tæk til verðmats
við skráningu í Kauphöll
Morgunblaðið/Kristinn
Eik Capacent segir í skýrslu sinni að skort hafi á upplýsingar við skráningu fasteignafélagsins í Kauphöllinni.
Capacent telur upplýsingagjöf hafa verið ábótavant Arion beggja vegna borðs
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Í nýrri skýrslu Capacent um fast-
eignafélögin í Kauphöll Íslands, Eik,
Reiti og Regin, kemur fram að fast-
eignafélagið Eik hafi varla verið
tækt til verðmats við skráningu þar
sem í skráningarlýsingu hafi engar
fjárhagsupplýsingar verið um Land-
festar, sem félagið yfirtók á árinu
2014. Eik var skráð á aðallista Kaup-
hallarinnar í lok apríl síðastliðnum,
Reitir var skráð í byrjun apríl á
þessu ári og Reginn í júlí 2012. Þá
kemur fram í skýrslunni að þáver-
andi stærsti eigandi fasteignafélag-
anna Eikar og Reita, Arion banki,
hafi setið beggja vegna borðsins og
ákvarðað útboðsgengi félaganna.
Þannig hafi bankinn verið bæði í
hlutverki fjárfestis og þjónustuaðila.
Slík vinnubrögð séu til þess fallin að
grafa undan trúverðugleika bæði út-
gefanda og fyrirtækisins sem selt er.
Vantaði upplýsingar
Snorri Jakobsson, ráðgjafi og sér-
fræðingur hjá Capacent, segir að í
skráningarlýsingu Eikar hafi upp-
lýsingar um allar eignir verið til
fyrirmyndar en hins vegar hafi mik-
ið vantað upp á upplýsingar um
reksturinn. „Rekstur félagsins á
árinu 2015 er allt annar en rekstur
þess 2014 þar sem Landfestar eru
um 40% af eignum og tekjum félags-
ins. Það er því mjög erfitt að átta sig
á framtíðarrekstri ef þú hefur bara
aðgang að 60% sögulegum rekstri.
Ef ekki hefði komið til lausleg
rekstraráætlun fyrir árið 2015 hefðu
fjárfestar verið blindir á hvernig
hugsanlegur framtíðarrekstur fé-
lagsins yrði.“
BankNordik ætlar að selja trygging-
arfélagið Vörð en bankinn, sem áður
hét Færeyjabanki, eignaðist 51%
hlut í félaginu í nóvember 2009 og
eignaðist síðan eftirstöðvarnar í maí
2012. BankNordik, sem getur rakið
sögu sína aftur til ársins 1906, er með
starfsemi í Færeyjum, Grænlandi og
Danmörku. Í Færeyjum á BankNor-
dik meðal annars tryggingafélag sem
nefnist Trygd.
Í tilkynningu frá bankanum til
Kauphallar er greint frá því að
ástæða sölunnar sé að skerpa eigi á
stefnu bankans og draga úr land-
fræðilegri dreifingu starfseminnar.
Haft er eftir forstjóra BankNordik,
Janus Petersen, að bankinn ætli að
auka áherslu á arðgreiðslur til hlut-
hafa með því að bæta arðsemina í
rekstrinum og losa fjármagn frá við-
skiptaeiningum sem ekki tengjast
beint stefnu hans. Salan á íslenska
tryggingafélaginu er liður í því ásamt
öðru. Vegna skilyrða getur bankinn
ekki selt 49% hlut í tryggingafélag-
inu fyrr en í lok júní 2017 og því eru
einungis 51% félagsins í boði í sölu-
ferlinu. Í tilkynningunni segir að með
sölu á 51% hlut á bókfærðu virði
muni eiginfjárgrunnur bankans
styrkjast um 76,3 milljónir danskra
króna eða 1,5 milljarða íslenskra
króna. Stjórn bankans hyggst greiða
til hluthafa í formi arðs sambærilega
fjárhæð og sem nemur hækkun eig-
infjárgrunns vegna sölunnar.
Icora Partners, sem er í eigu Frið-
riks Jóhannssonar og Gunnars Páls
Tryggvasonar, mun sjá um söluna.
BankNordik er með um 480 starfs-
menn og heildareignir bankans eru
16 milljarðar danskra króna. Bank-
inn er skráður á Nasdaq OMX.
margret@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sala Guðmundur Jóhann Jónsson er
forstjóri Varðar sem verður seldur.
BankNordik ætl-
ar að selja Vörð
Færeyski bank-
inn hyggst skerpa
áherslur sínar
Vélorf
Mikið úrval vélorfa - bensínmótor, rafmótor eða rafhlöðudrifin -
ÞÓR HF
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 -18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is