Morgunblaðið - 24.06.2015, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.06.2015, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2015 Bryggjuspjall Rabbað um landsins gagn og nauðsynjar í blankalogni og blíðu á hafnarbakka í Hafnarfirði. Eggert Stjórnmálamenn eru gjarnir á að vera gjaf- mildir. Að vísu er gjaf- mildin fremur fyrir annarra manna fé en þeirra eigið. Á stundum vilja þeir sýna víðsýni sína og umburðarlyndi með örlæti sínu en oft eru þeir aðeins að afla sér stuðnings ákveð- inna hópa kjósenda með rausnarskap þótt reikningurinn sé greiddur af skattgreiðendum. Örlæti stjórnmálamanna leiðir oft- ar en ekki til ófarnaðar hvort heldur er í fjármálum sveitarfélaga eða rík- isins. Gjafmildi alþingismanna hefur þannig orðið til þess að við höfum misst sjónar á því hvert raunverulegt hlutverk ríkisins eigi að vera í sam- félaginu. Afleiðingin er sú að umsvif ríkisins aukast stöðugt en um leið er dregið úr bolmagni þess til að sinna grunnhlutverki sínu. Öfugsnúinn rausnarskapur Það er, í besta falli, öfugsnúið að þeir sem hæst tala um öflugt heil- brigðiskerfi skuli um leið grafa undan því með gjafmildi sinni í eitthvað allt annað á sama tíma og barist er við fjárskort. Með svipuðum hætti veikja þeir, sem í ræðu og riti berjast fyrir öflugu almannatryggingakerfi, þegar þeir telja nauðsynlegt að verja tak- mörkuðum fjármunum ríkisins í ým- islegt annað en grunnstoðirnar. Þannig má lengi telja. Fémildi þingmanna hefur orðið til þess að æ stærri hluti sameiginlegra fjármuna ríkisins rennur til annarra verkefna en þeirra sem almenn sátt er um að skuli vera grunnskylda sam- eiginlegs sjóðs lands- manna; heilbrigðisþjón- usta, almannatryggingar, samgöngur, löggæsla, dómstólar (innra og ytra öryggi þjóðarinnar) og menntun. Fyrir utan þungar vaxtagreiðslur af skuldum fer fimmta hver króna sem greidd er úr ríkiskassanum í annað en grunnstoðir samfélagsins. Þetta jafngildir því að á fimm ára fresti sé ákveðið að verja öllum tekjum ríkissjóðs í önnur verkefni en þau sem eru mikilvægust. Í rausnarskap sínum og löngun til að staðfesta víðsýni og umburðar- lyndi – í samræmi við pólitískan rétt- trúnað – hafa stjórnmálamenn gripið til tveggja ráða. Annars vegar seilast þeir dýpra í vasa skattgreiðenda og hins vegar senda þeir reikninginn til komandi kynslóða. En jafnvel vasar skattgreiðenda eru ekki ótæmandi auðlind þótt ein- hverjir standi í þeirri trú og telji rétt að láta skattgreiðendur greiða allt að 80% skatt af tekjum sínum. Og æ fleiri gera sér grein fyrir siðleysi þess að gefa út víxla sem afkomendum er ætlað að greiða. Kjarkur til að andmæla Í andrúmslofti örlætis á annarra manna fé og í samkeppni um hylli ein- hverra kjósenda koma þingmenn saman og etja kappi hver við annan. Fáir skorast undan – en þeir eru þó til sem betur fer. Alþingi samþykkti á sérstökum há- tíðarfundi 19. júní að stofna Jafnrétt- issjóð Íslands í tilefni af því að öld var liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt. Allir þingmenn, fyrir utan einn, voru sammála um að láta árlega 100 milljónir króna næstu fimm árin renna til sjóðsins frá skatt- greiðendum. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, stóð ein gegn til- lögunni sem var flutt sameiginlega af formönnum allra stjórnmálaflokka á þingi. Í fyrri umræðu um þingsályktunina (16. júní) rökstuddi Sigríður afstöðu sína og sagði meðal annars: „Ég ætla auðvitað ekki að tala fyrir hönd allra kvenna eða nokkurra ann- arra en bara sjálfrar mín, en það er nú mín skoðun að virðingu kvenna sé enginn sérstakur sómi sýndur með þingsályktunartillögu af þessu tagi sem sendir 500 milljóna króna reikn- ing til skattgreiðenda, sem ég leyfi mér nú að minna á að eru um helm- ingur konur.“ Sigríður taldi rétt að allir tækju þátt í að fagna tímamótunum en þingsályktunin væri ekki „neitt annað en enn eitt ríkisútgjaldamálið“: „Í tillögunni er lagt til að verulega háum fjármunum sé deilt út með afar ómarkvissum hætti í ýmis verkefni sem þarna eru talin upp á sama tíma og fé vantar í mörg nauðsynleg verk- efni sem ég veit að er jafnvel þver- pólitísk samstaða um að ráðast þurfi í.“ Þingmaður þarf sterk pólitísk bein til að andmæla einn tillögu sem for- menn allra flokka hafa sameinast um í tilefni af merkum tímamótum. Hugmyndafræðin sem liggur að baki tillögunni er hugmyndafræði ör- lætis og raunarskapar á kostnað ann- arra. Tillagan er birtingarmynd þess rétttrúnaðar sem hefur náð að skjóta rótum innan allra stjórnmálaflokka. Gert út á skattgreiðendur Umrædd þingsályktun er langt í frá að vera eina dæmið um hvernig þingmenn og þingflokkar reyna að gera út á skattgreiðendur. Litlu virð- ist skipta hvort um frumvörp eða þingsályktunartillögur er að ræða. Flest þingmál eru til þess að auka út- gjöld, fjölga reglum og herða eftirlit. Tillaga þingmanna Samfylking- arinnar um „bráðaaðgerðir“ í byggðamálum er tilraun til að ná hylli kjósenda á landsbyggðinni. Þá skiptir kostnaðurinn litlu. Auka á fjármagn til „sóknaráætlana“ (Samfylkingar), innleiða ívilnunarsamninga og útdeila öðrum gæðum. Tillaga um ríkisstuðn- ing með skattaívilnunum með nið- urfellingu gjalda á „vistvænt elds- neyti“ er annað dæmi um hvernig samfylkingar slá um sig en auðvitað er það kómískt að nokkur ár eru síð- an gjöldin voru felld niður. Með ann- arri tillögu til þingsályktunar vilja þingmenn Samfylkingar að ríkið hækki húsaleigubætur og niðurgreiði sérstök viðbótarlán til þeirra sem eru með lágar tekjur eða eru að kaupa íbúð eða búseturétt í fyrsta sinn. Í nafni „bráðaaðgerða“ á einnig að taka upp 20% stofnstyrki til byggingar leiguíbúða. Þingmenn Pírata vilja ekki síður vera góðir og hafa lagt til að unnið verði að því að „tryggja öllum borg- urum landsins skilyrðislausa grunn- framfærslu með það að markmiði að styrkja efnahagsleg og félagsleg rétt- indi fólks og útrýma fátækt“. Tíu þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram tillögu um að skipa nefnd um „lýðræðisleg ákvarðanaferli með beinni þátttöku almennings í op- inberri stefnumótun“. Markmiðið er auka „þátttöku og aðkomu almenn- ings að opinberum ákvörðunum í samræmi við hugmyndir um þátt- tökulýðræði“. Meðal flutningsmanna eru þingmenn sem komu í veg fyrir að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn Íslands að Evr- ópusambandinu og börðust hat- rammlega gegn þjóðaratkvæða- greiðslum um Icesave. Í þessum anda vill þingmaður Vinstri grænna þjóð- aratkvæðagreiðslu um aðildina að NATO og samherjar hans telja rétt að skipa nefnd um atvinnulýðræði. Svo eru þeir til sem telja nauðsynlegt að seinka klukkunni. Þá má ekki gleyma tillögum um þjóðgarða, skip- an umboðsmanna, alþjóðaflugvelli um allt land, eflingu atvinnulífs á Suð- urnesjum, kaup ríkisins á jörðum, flutning á starfsemi Landhelgisgæsl- unnar og um aðgerðir til að draga úr erilshávaða í kennsluhúsnæði. Þótt fæstar þingsályktunartillögur nái fram að ganga gefa þær ágæta innsýn í hugmyndafræði þingmanna. Skipa á nefndir, auka útgjöld, setja ný lög og reglugerðir. Fæstar tillög- urnar miða að því að draga úr um- svifum ríkisins, einfalda regluverkið og leyfa skattgreiðendum að halda aðeins meiru eftir af því sem þeir afla. Samþykkt þingsályktunartillögu um stofnun Jafnréttissjóðs Íslands með 500 milljónum frá skattgreið- endum er því í góðu samræmi við þann anda örlætis sem svífur yfir þingsölum. Eftir Óla Björn Kárason » Í andrúmslofti örlæt- is á annarra manna fé og í samkeppni um hylli kjósenda koma þingmenn saman og etja kappi hver við annan. Fáir skorast undan. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Gjafmildi og rausnarskapur stjórnmálamanna Af biturri reynslu gera flestir Íslendingar sér grein fyrir þeirri áhættu sem efnahagslífinu stafar af starfsemi banka og ann- arra fjármálastofnana. Skattgreiðendur um allan heim urðu með beinum og óbeinum hætti að greiða fyrir alþjóðlega banka- hrunið árið 2008. Stjórn- málamönnum, hér á Ís- landi og í flestum öðrum vestrænum löndum, var legið á hálsi fyrir að hafa ekki verið vakandi fyrir þeirri hættu sem umfangsmikil starf- semi banka og fjármálastofnana hefur í för með sér. Enginn vafi er á að gagn- rýnin var í það minnsta að hluta til rétt- mæt. Undirritaður hefur lagt fram fyr- irspurnir til fjármálastofnana bæði í formi opinberra þingskjala og einnig sem nefndarmaður í þeirri þingnefnd sem hefur eftirlit með bönkum og fjár- málamarkaði. Nær undantekningalaust hafa svör fengist enda ríkur skilningur á mikilvægi þess að almenningur jafnt sem markaðsaðilar hafi vitneskju um starfsemi fjármálastofnana og geti gert sér grein fyrir undirliggjandi áhættu. Það er því full ástæða til að halda vöku okkar þegar bankakerfið er ann- ars vegar. Íslenska bankakerfið hefur vissulega minnkað verulega eftir banka- hrun og eftirlit stóraukist. Það kom samt sem áður ekki í veg fyrir 22 millj- arða tap skattgreiðenda vegna Spkef. Um leið hefur dregið úr samkeppni – fá- keppni hefur aukist og enn eru bankar í umfangsmikilli starfsemi sem nær langt út fyrir hefðbundna viðskiptastarfsemi. Kerfisleg áhætta af starfsemi þeirra er mikil og völd þeirra og áhrif í íslensku þjóðfélagi eru gríðarleg. Staða gengislána innan bankanna hefur verið nokkuð í umræðunni. Skv. FME voru 1.260 ma.kr. í ágreiningi í árslok 2011 og telur Félag atvinnurek- enda 547 ma.kr. enn vera í ágreiningi. Þetta eru gríðarlegar upp- hæðir og alls óviðunandi staða. Vegna þessara upp- lýsinga sendi ég fyrirspurn á bankana og í síðustu viku fékk ég svör varðandi stöðu gengislána og hversu mikið af lánum er enn í þessari stöðu. Tveimur mánuðum eftir að ég lagði fyrirspurnina fram tókst loks að leggja fram skriflegt svar, en bankarnir drógu lappirnar við að veita þær upplýs- ingar sem óskað var eftir. Svör bankanna voru rýr svo ekki sé tekið dýpra í árinni: Landsbankinn svaraði engu efnislega en lætur að því liggja að engin mál séu í ágreiningi við viðskiptavini. Undirritaður hefur vitn- eskju um fjölda ágreiningsmála á milli bankans og viðskiptavina hans. Íslandsbanki svaraði ekki og vísaði í gögn þar sem svör við þessum upplýs- ingum er ekki að finna. Arion banki svaraði heldur ekki og sagði berum orðum að „Alþingi gegni ekki eftirlitshlutverki gagnvart bank- anum“. Með öðrum orðum, ykkur þing- mönnum kemur þetta ekki við! Það eru alvarlegar fréttir ef Alþingi og almenn- ingur fær ekki upplýsingar um banka- starfsemina. Það skal ítrekað að hér var spurt um mjög stóra hagsmuni fyrir fyrirtæki og heimilin í landinu. Ég mun ekki láta hér við sitja og hef vakið athygli forseta þingsins á þessu svarleysi. Afstaða bankanna einkennist af hroka og virðingarleysi fyrir hags- munum almennings. Skattgreiðendur eiga betra skilið. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Íslenska bankakerfið hefur vissulega minnk- að verulega eftir banka- hrun og eftirlit stóraukist. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er alþingismaður. Bankahroki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.