Fréttablaðið - 14.07.2015, Side 1
FRÉTTIR
Um borð í BragðörkinniÍslenska skyrið og íslenski geitastofninn eru meðal ellefu íslenskra afurða um borð í
Bragðörkinni. Þau hafa einnig hlotið gæða-
stimpil Slow Food-samtakanna.SÍÐA 2
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ AÐ VERSLA ÞEKKTA MERKJAVÖRU Á FRÁBÆRU VERÐI
Stór-
útsala
enn meiri afsláttur
40%-50%
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Þriðjudagur
12
SÉRBLÖAÐ Fólk
Sími: 512 5000
14. júlí 2015
163. tölublað 15. árgangur
Ódýrara við Austurhöfn
Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands-
bankans, segir lóð bankans við
Austurhöfn vera hagstæðari en ef
keypt væri lóð annars staðar, eins og
við Borgartún. Núverandi húsnæði sé
óviðunandi. 10
SKOÐUN Ögmundur Jónasson
skrifar um gjaldtöku á ferðamanna-
stöðum. 13
LÍFIÐ Fjórar íslenskar sveitir taka
þátt í hinu alþjóðlega verkefni Spotify
Sessions. 26
SPORT Serena Williams hefur unnið
21 stórmót á ferlinum og er í hópi
fremstu íþróttamanna samtímans. 22
Myndhöggvararar munnhöggvast
Félagsmönnum í Myndhöggvarafélagi
Reykjavíkur greinir á um brottrekstur
Ásmundar Ásmundssonar og Hann-
esar Lárussonar úr félaginu. 4
Hollenska stúlkan farin út Sautján
ára hollensk stúlka sem sat í gæslu-
varðhaldi hér á landi ásamt móður
sinni vegna fíkniefnasmygls er farin
heim til Hollands. 2
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
365.is Sími 1817
STJÓRNSÝSLA Hafist var handa í
gær við niðurrif á forstjórabústað
Orkuveitu Reykjavíkur við Þing-
vallavatn. Aðeins eru liðin þrjú ár
síðan endurbótum á húsinu lauk.
Þær kostuðu 8,9 milljónir króna
frá og með árinu 2008.
Bústaðurinn er byggður árið
1946 og fylgdi með þegar Hitaveita
Reykjavíkur keypti Nesjavalla-
jörðina 1964. Húsið hefur fyrst og
fremst verið ætlað fyrir forstjóra
fyrirtækisins.
Afnema átti öll sérréttindi
stjórnenda OR samkvæmt ákvörð-
un sem tekin var í kjölfar þess að
ný stjórn tók við sumarið 2010.
Bjarni Bjarnason, sem settist í for-
stjórastólinn á árinu 2011, kveðst
sjálfur hafa nýtt húsið, þar af tvisv-
ar sumarið 2012.
„Fyrri ferðin er vegna vinn-
unnar en sú síðari fer í bága við
stranga skilgreiningu á afnámi sér-
réttinda,“ sagði í svari Bjarna við
fyrirspurn Fréttablaðsins í septem-
ber í fyrra.
Þá sagði Bjarni að millistjórn-
endur í fyrirtækinu hefðu nýtt
bústaðinn fram á síðasta sumar.
Sömu tveir mennirnir og luku við
seinni áfanga í að klæða bústaðinn
að utan fyrir þremur árum tóku nú
að sér að rífa húsið. Verkið fengu
þeir eftir útboð. Sögðu þeir í gær
dálítið sérstakt að vera mættir á
staðinn svo skömmu síðar til að rífa
klæðninguna utan af húsinu aftur.
Öll ummerki um bústaðinn eiga
að vera horfin 31. ágúst. Lóðin
verður grædd upp með mosa sem
fenginn er af framkvæmdasvæðum
orkuveitunnar í Hverahlíð.
„Fréttir af bústaðnum í Frétta-
blaðinu og á Stöð 2 settu hann í
kastljósið. Ekki þurfti djúpa grein-
ingu á málinu til þess að komast að
þeirri niðurstöðu að bústaðurinn
skyldi víkja, enda stendur hann
nánast ofan á vatnsbólinu á Grámel
og liggur illa við sprungustefnum í
hrauninu,“ útskýrði Bjarni forstjóri
í svari sínu í september.
- gar / sjá síðu 6
Forstjórabústaðurinn rifinn
Byrjað er að rífa forstjórabústað Orkuveitunnar við Þingvallavatn. Nær níu milljónir króna fóru í endurnýjun
bústaðarins sem lauk 2012. Sömu tveir mennirnir og klæddu húsið fyrir þremur árum eru nú að rífa það.
BÚIÐ SPIL Félagarnir Hannes og Óskar, sem saman eru kallaðir Hanskar af gárungunum, sýndu engin vettlingatök þegar þeir byrjuðu í gær að rífa af klæðninguna sem þeir
negldu utan á forstjórabústað Orkuveitunnar í Riðvík á árinu 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ekki
þurfti djúpa
greiningu á
málinu til
þess að
komast að
þeirri niður-
stöðu að bústaðurinn
skyldi víkja, enda stendur
hann nánast ofan á
vatnsbólinu.
Bjarni Bjarnason,
forstjóri OR
MENNTAMÁL Illugi Gunnars-
son menntamálaráðherra telur
fullt tilefni til að endurskoða
útlánakerfi Lánasjóðs íslenskra
námsmanna (LÍN). „Það er
styrkjakerfi fólgið í íslenska
námslánakerfinu en það er engin
alvöru stefnumótun á bak við
hvernig þeim styrkjum er úthlut-
að eða til hverra þeir renna,“
segir Illugi.
Í ársskýrslu LÍN, sem kom út
í gær, kemur fram að um helm-
ingur útlána LÍN fáist ekki end-
urgreiddur. Verulegur munur er
á því hve mikið lánþegar greiða
til baka af lánum sínum eftir því
hve há lánsfjárhæðin er. Þannig
endurgreiða einstaklingar sem
skulda LÍN undir 2,5 milljónum
króna 85 prósent af virði láns-
ins. Þeir sem skulda LÍN yfir 15
milljónir króna endurgreiða hins
vegar á milli 18 og 27 prósent af
virði lánsins. Ríkið styrkir því
þá sem skulda LÍN mest um yfir
70 prósent af lánsfjárhæðinni en
þá sem skulda LÍN minnst um 15
prósent að meðaltali.
Afskriftir LÍN jukust úr 2,8
milljörðum króna árið 2013 í 7,6
milljarða króna 2014. Þá jukust
vanskil hjá Lánasjóðnum um
690 milljónir króna í fyrra. Mest
hafa vanskilin aukist hjá yngstu
lánþegunum. „Vissulega er það
áhyggjuefni að sjá þróunina
varðandi vanskilin,“ segir Illugi.
Hann segir brýnt að við endur-
skoðun laga um LÍN verði tekið
mið af auknum vanskilum og því
hvernig ríkisstyrkir dreifist milli
lánþega. - ih / sjá síðu 4
Menntamálaráðherra segir brýnt að brugðist verði við auknum vanskilum:
Vill endurskoða lánakerfi LÍN
Það er
styrkjakerfi
fólgið í
íslenska
námslána-
kerfinu en
það er engin
alvöru stefnumótun á bak
við hvernig þeim styrkjum
er úthlutað.
Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
0
-C
E
4
C
1
7
5
0
-C
D
1
0
1
7
5
0
-C
B
D
4
1
7
5
0
-C
A
9
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K