Fréttablaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 32
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka ÚRVAL AF VÖRUM FRÁ IITTALA Líklegast er hamingja það sem flestir vilja mest þegar búið er að höggva hégómann utan af óskum manna og kvenna. Örugglega er sú tilfinning álíka algeng, að við- komandi þurfi eitthvað eitt eða tvennt áður en hann geti höndlað hamingjuna. Þetta eitthvað getur síðan verið í formi peningaupphæð- ar, stöðu, stærra húss, nýrrar bif- reiðar, betri konu eða karls, meira kynlífs, frægðar og svo í seinni tíð getur það verið fallegra nef, rass, kinnbein eða tennur. AF þessum toga er sagan af óhamingjusama kónginum sem spyr vitring einn hvernig hann geti gert hamingjusamasta þjón sinn óhamingjusaman. Vitringur- inn veit vel hvernig spilla á ham- ingju kauða og í því skyni lætur kóngurinn þjón þennan finna 99 gullpeninga. Þjónninn verð- ur glaður í fyrstu en svo þykir honum sýnt, þar sem peningarnir eru „bara“ 99, að það vanti einn og þar með er sæla hans úti. SVONA er hugmynd margra um hamingjuna, hún er 99 gullpening- ar, það vantar alltaf einn svo hægt sé að njóta. Þetta kemur sér síðan fjári vel fyrir auglýsendur og höf- unda sjálfshjálparbóka sem vita einmitt hvað þetta eina er sem þig vantar. Sjálfur hef ég margoft selt mig þessari firru en svo var ég um daginn að rölta um fallega ströndina á Rauðasandi þegar yfir mig kom þessi líka svaka- lega hamingja. Ég hafði nefnilega gleymt því á röltinu að mig vant- aði eitthvað til þess að verða ham- ingjusamur. EF eitthvað treður sér oftar í eyru manns en áróður þeirra sem vita hvað mann vantar þá er það hryggðaróður þeirra sem eru að vara fólk við öllum fjáranum. Þegar ég kom að Látrabjargi var ég meira að segja varaður við því að ég myndi detta ef ég labb- aði fram af bjarginu. Er því ekki rétt að vara fólk við því, að vera ekki að vinna alla þessa yfir- vinnu, sleikja réttu rassana, taka öll þessi lán, kaupa öll þessi tæki, reynandi við allt þetta fólk en fara þess í stað á vit hamingjunnar sem bíður eins og ljótasti sénsinn á ballinu eftir að þú gleymir öllu þessu prjáli og bjóðir sér upp? Er hamingjan ljótasti sénsinn? BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 0 -C E 4 C 1 7 5 0 -C D 1 0 1 7 5 0 -C B D 4 1 7 5 0 -C A 9 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.