Fréttablaðið - 14.07.2015, Side 32
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
ÚRVAL AF
VÖRUM FRÁ
IITTALA
Líklegast er hamingja það sem flestir vilja mest þegar búið er
að höggva hégómann utan af óskum
manna og kvenna. Örugglega er
sú tilfinning álíka algeng, að við-
komandi þurfi eitthvað eitt eða
tvennt áður en hann geti höndlað
hamingjuna. Þetta eitthvað getur
síðan verið í formi peningaupphæð-
ar, stöðu, stærra húss, nýrrar bif-
reiðar, betri konu eða karls, meira
kynlífs, frægðar og svo í seinni tíð
getur það verið fallegra nef, rass,
kinnbein eða tennur.
AF þessum toga er sagan af
óhamingjusama kónginum sem
spyr vitring einn hvernig hann
geti gert hamingjusamasta þjón
sinn óhamingjusaman. Vitringur-
inn veit vel hvernig spilla á ham-
ingju kauða og í því skyni lætur
kóngurinn þjón þennan finna
99 gullpeninga. Þjónninn verð-
ur glaður í fyrstu en svo þykir
honum sýnt, þar sem peningarnir
eru „bara“ 99, að það vanti einn og
þar með er sæla hans úti.
SVONA er hugmynd margra um
hamingjuna, hún er 99 gullpening-
ar, það vantar alltaf einn svo hægt
sé að njóta. Þetta kemur sér síðan
fjári vel fyrir auglýsendur og höf-
unda sjálfshjálparbóka sem vita
einmitt hvað þetta eina er sem
þig vantar. Sjálfur hef ég margoft
selt mig þessari firru en svo var
ég um daginn að rölta um fallega
ströndina á Rauðasandi þegar
yfir mig kom þessi líka svaka-
lega hamingja. Ég hafði nefnilega
gleymt því á röltinu að mig vant-
aði eitthvað til þess að verða ham-
ingjusamur.
EF eitthvað treður sér oftar í
eyru manns en áróður þeirra sem
vita hvað mann vantar þá er það
hryggðaróður þeirra sem eru að
vara fólk við öllum fjáranum.
Þegar ég kom að Látrabjargi var
ég meira að segja varaður við
því að ég myndi detta ef ég labb-
aði fram af bjarginu. Er því ekki
rétt að vara fólk við því, að vera
ekki að vinna alla þessa yfir-
vinnu, sleikja réttu rassana, taka
öll þessi lán, kaupa öll þessi tæki,
reynandi við allt þetta fólk en fara
þess í stað á vit hamingjunnar
sem bíður eins og ljótasti sénsinn
á ballinu eftir að þú gleymir öllu
þessu prjáli og bjóðir sér upp?
Er hamingjan
ljótasti sénsinn?
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
0
-C
E
4
C
1
7
5
0
-C
D
1
0
1
7
5
0
-C
B
D
4
1
7
5
0
-C
A
9
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K