Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2015, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 14.07.2015, Qupperneq 10
14. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Mótmælir nýja stjórnarsáttmálanum 1 DANMÖRK Fyrrverandi ráðherra í Danmörku, Mette Gjerskov, er æf yfir þeirri yfirlýsingu í stjórnar- sáttmála nýju stjórnarinnar að Danmörk sé kristið land. Gjerskov íhugar nú að segja sig úr dönsku þjóðkirkjunni. Það er mat hennar að með þessu sé verið að taka afstöðu gegn múslimum. Ný ríkisstjórn Danmerkur telur nauðsynlegt að leggja áherslu á danska menningu, þar á meðal kristinn menn- ingararf. Metgróði vegna fjölda flóttamanna 2 SVÍÞJÓÐ Fyrirtæki sem leigja sænsku útlendingastofnuninni húsnæði fyrir hælisleitendur hafa aldrei þénað jafnmikið. Stærst á markaðnum er fyrirtæki athafna- mannsins Berts Karlsson sem hafði í maíbyrjun rukkað stofnunina um nær 131 milljón sænskra króna. Í júlíbyrjun í fyrra var upphæðin hjá sama fyrirtæki 45 milljónir. Útlend- ingastofnunin í Svíþjóð gerir ráð fyrir að verja 1,3 milljörðum sænskra króna í tilfallandi húsnæði fyrir hælisleitendur. Bætur vegna lélegra tónleika 3 FINNLAND Neytendastofa í Finnlandi hefur úrskurðað að hægt sé að fá endurgreidda miða á tónleika hafi flutningurinn verið undir væntingum. Aðdáandi Chuck Berry hafði kvartað undan tónleikum hans í Helsinki árið 2013. Berry tjáði viðstöddum hvað eftir annað að sér liði ekki vel. Aðdáandinn fær nú helming miðaverðsins til baka. For- stjóri neytendastofunnar segir að í þessu tilviki hafi menn almennt verið sammála um að tónleikarnir hafi verið misheppnaðir. NORÐURLÖND 1 2 3 loKsins aftuR sumAr...íS ÍSinn Sem færiR þéR sumaRið er kOminn aftur. ekTa rjóMaís Með kókOs, áStaraLdini, mangó og súKkulaðIdropUm. VIÐSKIPTI Steinþór Pálsson, banka- stjóri Landsbankans, segir núver- andi húsnæði Landsbankans óvið- unandi. Meginþorri húsnæðisins sem Landsbankinn noti í Kvos- inni sé leiguhúsnæði og flestir leigusamningarnir á milli eins til þriggja ára. Þetta skapi rekstrar- áhættu fyrir bankann. Í dag sé húsnæðið sem bankinn rekur starfsemi sína í eins og völundar- hús og það skapi óhagræði. Fyrirhuguð bygging nýrra höfuð stöðva Landsbankans við Austurhöfn í Reykjavík hefur verið harðlega gagnrýnd undanfarna daga. Á meðal þeirra sem hafa gagnrýnt eru þingmennirnir Elín Hirst og Guðlaugur Þór Þórðar son. Steinþór segir aftur á móti að við núverandi húsnæðiskost sé verið að sóa peningum. Það væri 700 milljónum króna ódýrara að koma húsnæðinu í framtíðarmynd en að búa við óbreytt ástand. „Við erum búin að vera að skoða kosti í húsnæðismálum á undan- förnum árum. Við viljum vera staðsett þar sem miðstöð versl- unar og viðskipta er í landinu. Það er á þessu svæði þar sem Reykja- víkurborg hefur í aðalskipu- lagi sagt að eigi að vera aðalvið- skiptaásinn, frá miðbænum og að Kirkjusandi,“ segir Steinþór. Lóðin við Austurhöfn hafi fengist á góðu verði. „Þar er búið að grafa og jarðvinnan er að mestu búin. Gatnagerðargjöld eru innifal- in. Við borgum 58 þúsund krónur fyrir fermetrann,“ segir Steinþór og bendir á að lóðaverðið sé vægt, sé horft til þess að búið er að vinna jarðvegsvinnuna. Steinþór segir lóðina vera hag- stæðari en ef keypt væri lóð ann- ars staðar, eins og við Borgar- túnið. „Vegna þess að það er búið að byggja mikið af bílastæðum við Hörpuna, sem eru tóm á dag- inn en full á kvöldin, það er því mikil samnýting. Og við munum þess vegna byggja miklu færri bílastæði þarna í Austurhöfn- inni heldur en ef við værum ein- hvers staðar við Borgartúnið eða í nágrenni,“ segir Steinþór. Hann tekur fram að bílastæðin séu mjög dýr í byggingu og ítrekar að þegar allt komi til alls sé þetta ódýrari lausn en að byggja höfuðstöðvar annars staðar. „Til viðbótar við þetta má nefna að í deiluskipulagi er gert ráð fyrir að hluti af jarðhæðinni verði nýttur í aðra starfsemi þannig að byggingin mun hýsa fleira en bara bankann,“ segir Steinþór. Það verði því byggt verslunarpláss og því ráðstafað til annarra aðila, annaðhvort með leigu eða sölu á hluta húsnæðisins. jonhakon@frettabladid.is Bankastjórinn telur ódýrara að byggja við Austurhöfn Bankastjóri Landsbankans segir núverandi húsnæði Landsbankans óviðunandi. Stuttir leigusamningar skapi rekstraráhættu fyrir bankann. Hluti af nýrri byggingu Landsbankans verður notaður undir verslunarrými. AUSTURHÖFN Svona mun svæðið við Austurhöfn líta út með nýrri byggingu Lands- bankans. AÐSEND MYND Við viljum vera staðsett þar sem miðstöð verslunar og viðskipta er í landinu Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. UMHVERFISVERND Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti Íslands, snæddi kvöldverð með Ted Turner, stofnanda CNN, á Akur- eyri á sunnudag. Turner er stofn- andi Ted Turner-samtakanna sem starfa á sviði umhverfis- verndar. Í ávarpi fjallaði Ólafur um hvernig vaxandi samstarf á norð- urslóðum og á Himalajasvæð- inu getur nýst í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Þá fundaði Ólafur með sendi- herra Kína á Íslandi í gær um þátttöku kínverskra stjórnvalda í Hringborði norðurslóða, Artic Circle, en þing þess verður hald- ið í Reykjavík í október. - ih Ólafur ræddi norðurslóðir: Snæddi með Ted Turner FORSETI ÍSLANDS Ólafur Ragnar Grímsson fundaði með sendiherra Kína á Íslandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI AKUREYRI Mörg ár gæti tekið að laga fráveitukerfi Akureyringa svo mengun af völdum saurgerla haldist innan viðmiðunarmarka í sjó við strendur bæjarins. Nýleg sýnataka heilbrigðiseftirlitsins sýndi of háan styrk saurkólígerla og er það í þriðja sinn sem styrk- urinn er yfir viðmiðunarmörkum. Sýni sem tekin voru fyrir helgi sýna að magn saurgerla er innan viðmið- unarmarka við Pollinn á Akur- eyri en styrk- ur inn mæld- ist tífalt yfir mörkum norðan byggðarinnar. Í júní mældust mest 79.000 saurgerlar í 100 millilítrum af sjó en viðmiðið er 100 saurgerl- ar í því magni af sjó. Baldur Dýrfjörð, upplýsinga- fulltrúi Norðurorku sem heldur utan um fráveitukerfi á Akureyri, segir lagfæringar á kerfinu geta tekið nokkur ár. Kerfið sé tvöfalt eins og víðast hvar annars staðar í stærri bæjarfélögum. „Einhvers staðar er svokölluð slysatenging, sem lýsir sér í því að pípulögnum frá húsum bæjarins er víxlað í fráveituna og því fer skolp með yfirborðsvatni og á greiða leið í sjó fram,“ segir Baldur. Alfreð Schiöth, framkvæmda- stjóri Heilbrigðiseftirlits Norð- urlands eystra, segir það geta tekið nokkur ár að komast að því hvar gloppur eru í kerfinu og laga mögulegar slysatengingar. Norðurorka vinnur nú að því að komast til botns í því hvar þessar slysatengingar eru. „Eins og gefur að skilja gæti þetta tekið langan tíma. Það tók til dæmis nokkur ár að komast til botns í svipuðu vandamáli við Fossvoginn á höfuðborgarsvæð- inu. Við höfum á síðustu áratugum unnið gott starf í að koma skólp- málum bæjarins í gott horf og munum halda þeirri vinnu áfram,“ segir Baldur. - sa Nokkur ár gæti tekið að laga skolpmál í Eyjafirði: Skolp rennur út í sjó BALDUR DÝRFJÖRÐ TÍMAFREKT Langan tíma gæti tekið að ná tökum á saur- gerlamengun í Eyjafirði, að mati Norðurorku. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 1 -6 7 5 C 1 7 5 1 -6 6 2 0 1 7 5 1 -6 4 E 4 1 7 5 1 -6 3 A 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.