Fréttablaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 26
14. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22
Serena hefur unnið 21
stórmótstitil á ferlinum
og er sú eina– af öllum tennisleik-
urum– sem hefur unnið sex titla á
þremur mismunandi risamótum.
21
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
PEPSI DEILDIN 2015
STAÐAN
FH 11 7 3 1 25-12 24
KR 11 7 2 2 19-10 23
Breiðablik 11 6 4 1 18-8 22
Valur 11 6 3 2 22-14 21
Fjölnir 11 5 2 4 15-14 17
Stjarnan 11 4 3 4 13-14 15
Fylkir 11 3 5 3 13-14 14
ÍA 11 3 3 5 13-17 12
Leiknir R. 11 2 4 5 12-16 10
Víkingur R. 11 2 3 6 13-20 9
ÍBV 11 2 2 7 11-22 8
Keflavík 11 1 2 8 11-24 5
NÆSTU LEIKIR
Lau. 18. júlí: 16.00 Stjarnan - ÍA. Sun.19. júlí:
17.00 ÍBV - Fjölnir. 19.15 Víkingur - Keflavík. 20.00
FH - KR. Mán. 20. júlí: 19.15 Breiðablik - Fylkir.
20.00 Leiknir - Valur.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
Mörkin: 1-0 Oliver Sigurjónsson (38.), 2-0 Arnór
Sveinn Aðalsteinsson (70.).
BREIÐABLIK (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson
7 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson 7, Elfar Freyr
Helgason 7, Damir Muminovic 7, Kristinn Jónsson
7 - *Oliver Sigurjónsson 7, Andri Rafn Yeoman
6, Atli Sigurjónsson 5 (93. Sólon Breki Leifsson
-) - Davíð Kristján Ólafsson 4 (72. Olgeir Sigur-
geirsson -), Höskuldur Gunnlaugsson 6 (86. Gísli
Eyjólfsson -), Arnþór Ari Atlason 6.
FJÖLNIR (4-4-2): Þórður Ingason 4 - Arnór
Eyvar Ólafsson 5, Bergsveinn Ólafsson 6, Atli
Már Þorbergsson 6, Viðar Ari Jónsson 5 - Aron
Sigurðarson 6, Guðmundur Böðvar Guðjónsson
4 (76. Illugi Þór Gunnarsson -), Gunnar Már Guð-
mundsson 5, Ragnar Leósson 4 (68. Birnir Snær
Ingason 5) - Guðmundur Karl Guðmundsson 5 (58.
Mark Charles Magee 4), Þórir Guðjónsson 5..
Skot (á mark): 6-14 (2-8) Horn: 2-5
Varin skot: Gunnleifur 8 - Þórir 0
2-0
Kópavogsvöllur
Áhorf: 1235
Ívar Orri
Kristjánss. (7)
Mörkin: 0-1 Magnús Þórir Matthíasson (6.), 1-1
Kristján Páll Jónsson (30.).
LEIKNIR (4-3-3): Arnar Freyr Ólafsson 6 - Eiríkur
Ingi Magnússon 5, Óttar Bjarni Guðmundsson 6,
Halldór Kristinn Halldórsson 6, Charley Fomen 5
- Brynjar Þór Hlöðversson 5 (69. Atli Arnarsson 5),
Fannar Þór Arnarsson 5, Hilmar Árni Halldórsson
5 - Kristján Páll Jónsson 7, *Ólafur Hrannar
Kristjánsson 7, Kolbeinn Kárason 5 (83. Elvar Páll
Sigurðsson -).
KEFLAVÍK (4-3-3): Sindri Kristinn Ólafsson 6 -
Sindri Snær Magnússon 5, Unnar Már Unnarsson
6, Haraldur Freyr Guðmundsson 6, Alexander
Magnússon 6 (67. Bojan Stefán Ljubicic 5) -
Hólmar Örn Rúnarsson 5 (46. Leonard Sigurðsson
5), Frans Elvarsson 5, Magnús Þórir Matthíasson
5 - Daníel Gylfason 5, Samuel Jimenez Hernandez
7, Sigurbergur Elísson 5.
Skot (á mark): 10-8 (5-3) Horn: 6-6
Varin skot: Arnar Freyr 1 - Sindri Kristinn 3
1-1
Leiknisvöllur
Áhorf: Óuppgefið
Pétur
Guðmundss. (5)
TENNIS Þegar Serena Williams fagn-
aði öruggum sigri á andstæðingi sínum í
úrslitaleik einliðaleiks kvenna á Wimbledon-
mótinu í tennis á laugardag sá hún til þess
– og ekki í fyrsta sinn – að hennar verður
minnst sem einnar allra bestu tenniskonu
sögunnar. Ef ekki þeirrar allra bestu.
Hún er nú ríkjandi meistari allra fjögurra
stórmótanna í tennis. Það hefur enginn karl
eða kona afrekað síðan hún gerði það sjálf
fyrir tólf árum. Afrekið ber nú nafn henn-
ar – Serena-slemman. Því má svo bæta við
að hún er ríkjandi Ólympíumeistari í tenn-
is, ríkjandi meistari á Atvinnumannamóta-
röðinni og vitanlega efst á styrkleikalista
Alþjóðatennissambandsins.
Ef hún vinnur Opna bandaríska meist-
aramótið í september þá mun hún leika
eftir afrek Steffi Graf frá 1988 er sú þýska
varð fyrsta konan til að vinna Almanaksal-
slemmuna (e. Calendar Grand Slam) – vinna
öll risamótin á sama árinu. Aðeins einn karl-
maður hefur gert það – Ástralinn Rod Laver
árið 1969.
„Fyrst mér tókst að ná Serenu-slemm-
unni þá líður mér ágætlega að stefna á
alslemmuna,“ sagði Serena eftir sigur-
inn um helgina. Í aðdraganda úrslitaleiks-
ins mátti hún ekki heyra minnst á Serenu-
slemmuna. S-orðið var það kallað, líkt og
það myndi færa henni ógæfu að segja það
upphátt.
Til að auka enn á mikilvægið þá mun
Serena með næsta titli jafna árangur Graf
sem vann 22 stórmót á ferlinum. Serena
hefur sem sagt unnið 21 stórmót en sú eina
sem hefur unnið fleiri er Ástralinn Marg-
aret Court sem vann flesta af sínum 24 titl-
um áður en atvinnumenn máttu taka þátt í
stórmótunum fjórum. Það var ekki leyfilegt
fyrr en árið 1968 en þá urðu öll mótin „opin“
eins og heiti þeirra bera með sér.
Þess má geta að Serena hefur unnið Opna
bandaríska meistaramótið þrjú ár í röð.
Hún vann það fyrst árið 1999 – sautján ára
gömul.
Verður betri með árunum
Afrekalisti Serenu Williams er mun lengri
og margþættari. Það myndi fylla þessa síðu
og miklu fleiri að gera þeim öllum almenni-
lega skil. En eitt þeirra er að hún er nú elsti
sigurvegari á stórmóti í tennis síðan „opna“
tímabilið hófst. Roger Federer átti mögu-
leika á að bæta met hennar á sunnudag en
hann tapaði sínum úrslitaleik í karlaflokki
gegn Novak Djokovic.
Sagan sýnir að tenniskappar eftir þrítugt
eiga erfitt með að halda í við sér yngri kepp-
endur. Það hefur sárasjaldan gerst á und-
anförnum árum að sigurvegarar stórmóta
í tennis séu komnir yfir þrítugt. Sem dæmi
má nefna að Roger Federer, sem hefur unnið
sautján stórmót – flest allra karla frá upp-
hafi – hefur unnið einn titil eftir að hann
hélt upp á þrítugsafmælið sitt árið 2011.
Serena Williams hefur unnið átta af 21
titli sínum eftir að hún varð þrítug. „Mér
líður alls ekki eins og ég sé gömul. Þvert
á móti finnst mér að ég sé enn nokkuð
ung. Tæknin er að breytast og með nýjum
æfingaaðferðum og öllu slíku er ferill
íþróttafólks að lengjast,“ sagði hún.
Lokaði sig frá umheiminum
Serena hefur orðið fyrir mótlæti á ferli
sínum. Nægir að nefna fjölda meiðsla sem
hafa gert henni erfitt fyrir. En í ævisögu
sinni játaði hún að árið 2006 hefði hún þjáðst
af þunglyndi og lokað sig af frá umheimin-
um svo dögum skipti. Systur hennar þurftu
að grípa í taumana og það var ekki fyrr en
að hún leitaði sér hjálpar fagfólks að hún
náði bata. Hún keppti ekki í hálft ár og féll
niður í 139. sæti heimslistans.
Hún hóf árið 2007 með því að vinna Opna
ástralska meistaramótið þrátt fyrir harka-
lega gagnrýni á frammistöðu hennar og
jafnvel holdafar. Hún þaggaði niður í hverj-
um gagnrýnandanum á fætur öðrum með
því að koma sér alla leið í úrslitaleikinn þar
sem hún vann Mariu Sharapova, þrátt fyrir
að hafa verið í 81. sæti heimslistans fyrir
mótið.
Á næstu fjórum árum vann hún fimm
stórmót og kom sér aftur í efsta sæti heims-
listans. Fleiri áföll áttu eftir að dynja yfir en
sumarið 2010 steig hún á glerbrot á veitinga-
stað í Þýskalandi og keppti ekki aftur það
sem eftir lifði árs. Ofan á það bættust erfið
veikindi og þegar hún keppti loksins aftur
var liðið tæpt ár frá síðasta móti hennar.
Síðan þá hefur uppgangurinn verið mikill
og er staðan í dag sú að hún er einfaldlega
langbesta tenniskona heims, 33 ára gömul.
Betri en Jordan og Messi
Pistlahöfundar beggja vegna Atlantshafs-
ins hafa keppst um að hlaða Serenu lofi
eftir sigurinn um helgina og Bandaríkja-
maðurinn Bryan Armen Graham segir í
pistli sínum í breska blaðinu The Guardi-
an að þrátt fyrir öll sín afrek þurfi Serena
enn í dag að synda gegn straumnum. Hún
sé þeldökk kona, af fjölskyldu Votta Jehóva
í íþrótt þar sem langflestir innan hennar og
utan eru hvítir á hörund.
Hann gengur svo langt að fullyrða að
Serena Williams sé ekki lengur í sama
flokki og yfirburðaíþróttamenn eins og
Michael Jordan, Wayne Gretzky og Lionel
Messi. Hún sé í flokki með Muhammed Ali
og Jackie Robinson – þeldökkum íþrótta-
mönnum sem njóta sérstöðu í bandarískri
sögu og þjóðfélagi fyrir áhrif sín innan sinn-
ar íþróttar og utan.
Fáir, ef nokkrir, íþróttamenn hafa haft
jafn mikla yfirburði í sinni íþrótt og hún
hefur haft í tæpa tvo áratugi. Serena Willi-
ams er enn að endurskrifa sögubækurnar
og síðasti kaflinn hefur ekki enn verið rit-
aður.
Íþróttakona í allra hæsta gæðafl okki
Afrek Wimbledon-meistarans Serenu Williams í tennis þykir stórkostlegt. Hinn 33 ára gamla Williams á einstakan keppnisferil að baki
og er fyrir löngu búin að skrá sig á spjöld sögunnar. Hún er einn merkasti íþróttamaður samtímans og er ekki hætt.
BROSMILD Serena fagnar sínum fyrsta sigri á Wimbledon síðan 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Berglind Björg Þorvalds-
dóttir hefur verið í miklu markastuði
að undanförnu en hún hefur skorað í
fjórum leikjum Fylkis í röð.
Hún byrjaði á því að skora þrennu
í 4-0 sigri á Aftureldingu 29. júní og
endurtók svo leikinn í bikarleik gegn
Grindavík þremur dögum seinna.
Berglind skoraði svo eitt mark í 1-3
sigri Fylkis á KR í deildinni 7. júlí og
þremur dögum síðar gerði hún tvö
mörk í 0-4 sigri á Þrótti. Alls gera
þetta níu mörk á aðeins tólf dögum.
„Það er komið bullandi sjálfstraust
í liðið og við erum að spila mjög
vel saman. Það er að skila þessum
mörkum,“ sagði Berglind um mark-
heppni sína í undanförnum leikjum.
Hún skipti yfir í Fylki frá Breiðabliki
fyrir tímabilið og er ánægð með lífið
í Árbænum.
„Þetta hefur verið mjög skemmti-
legt. Það er mikil stemning í Fylki
og góður andi í hópnum,“ sagði
Berglind sem glímdi við erfið meiðsli
aftan í læri í fyrra.
Fylkiskonur geta unnið sinn
fimmta leik í röð í kvöld þegar þær
sækja Selfoss heim. Leikurinn leggst
vel í Berglindi: „Við unnum Selfoss
í fyrstu umferðinni og þekkjum vel
til þeirra. Við þurfum að spila vel og
vera harðar og þá eigum við góða
möguleika.“ - iþs
Berglind með níu mörk á tólf dögum
Í STUÐI Berglind er næstmarkahæst í
Pepsi-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
MMA Sigurinn á Brandon Thatch á mögnuðu
bardagakvöldi í Las Vegas á laugardaginn skilar
Gunnari Nelson upp um fjögur sæti á styrk-
leikalista UFC. Gunnar er nú kominn upp í 11.
sætið á styrkleikalista UFC í sínum þyngdarflokki
sem er veltivigt.
Í 10. sætinu er Rick Story, sem er sá eini sem hefur
unnið sigur á Gunnari í greininni, og í því níunda er
Stephen Thompson sem kemur nýr inn á listann. Thomp-
son þessi gersigraði Jake Ellenberger á bardagakvöldi á
vegum UFC á sunnudaginn en líklegt þykir að hann verði
næsti mótherji Gunnars í Dublin í október.
Írinn kjaftfori Conor McGregor, æfingafélagi Gunnars, er
kominn upp í efsta sætið á styrkleikalistanum í fjaðurvigt-
inni en hann bar sigurorð af Chad Mendes á UFC 189 á
laugardaginn. - iþs
Gunnar í 11. sætinu
FYRSTA MARKINU FAGNAÐ Oliver Sigurjónsson fagnar marki sínu gegn Fjölni sem
var jafnframt hans fyrsta í efstu deild á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPORT
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
0
-F
F
A
C
1
7
5
0
-F
E
7
0
1
7
5
0
-F
D
3
4
1
7
5
0
-F
B
F
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K